Morgunblaðið - 13.07.2005, Page 4
FÓLK
GHANABÚINN Michael Essien,
hinn 22 ára gamli leikmaður Lyon,
vill ólmur komast frá félaginu og
ganga í raðir Chelsea. „Það væri
best fyrir mig og Lyon að ég færi
núna, og Chelsea er mitt draumalið,“
sagði Essien en að sögn forráða-
manna Lyon mun hann ekki kosta
undir 25 milljónum punda, jafnvirði
rúmlega þriggja milljarða króna.
MATEJA Kezman er hvergi bang-
inn og segist ætla að skora tuttugu
mörk fyrir Atletico Madrid á næstu
leiktíð en þangað var hann seldur á
dögunum frá Chelsea. Fátt gekk upp
hjá leikmanninum, sem er 26 ára
gamall, á síðustu leiktíð, en það hef-
ur greinilega ekki dregið úr honum
kjarkinn.
FORRÁÐAMENN Evrópumeist-
ara Liverpool hafa staðfest að Ant-
onio Nunez muni yfirgefa félagið í
sumar. Rafael Benitez, knattspyrnu-
stjóri Liverpool, leitar nú að nýju fé-
lagi fyrir leikmanninn og spænska
liðið Celta Vigo hefur verið nefnt til
sögunnar.
FRANSKI varnarmaðurinn, Greg-
ory Vignal, hefur samið við
Portsmouth en hann var á mála hjá
Liverpool, sem leysti hann undan
samningi í vor. Vignal lék sem láns-
maður hjá Glasgow Rangers á síð-
asta tímabili. Hann fyrirhittir annan
Frakka hjá Portsmouth, knatt-
spyrnustjórann Alain Perrin, og átti
það stóran þátt í að Vignal, sem er
23 ára, samþykkti að ganga til liðs
við Portsmouth.
BARCELONA hefur borist þrjú
tilboð í argentínska leikmanninn
Javier Saviola en hann var boðinn til
láns fyrir skömmu. Deportivo La
Coruna, Real Betis og Sevilla hafa
öll sýnt leikmanninum áhuga. Hann
fær nú að velja hvar hann leikur á
næsta tímabili.
BANDARÍSKI táningurinn Jonat-
han Spector, sem er á mála hjá Man-
chester United, hefur verið lánaður
til Charlton út næsta tímabil. Spect-
or sem er átján ára og leikur sem
varnarmaður kom við sögu í sjö
leikjum Manchester United á síðasta
leiktímabili.
ENSKA úrvalsdeildarfélagið Tott-
enham Hotspur hefur samþykkt til-
boð þýska liðsins Hamburg í Thi-
mothee Atouba. Atouba sem kemur
frá Kamerún gekk til liðs við Totten-
ham síðasta sumar og kom við sögu í
24 leikjum liðsins á síðasta tímabili.
HERNAN Crespo segir það hafa
komið sér á óvart hve mikið hafi
breyst í herbúðum Chelsea á því ári
sem hann var á Ítalíu. Breytingarn-
ar hafa verið til batnaðar að mati
Crespo sem hyggst gefa sig allan í að
leika með ensku meisturunum á
komandi leiktíð. Fjölskylda Crespo
mun þó búa áfram á Ítalíu.
Þróttur R. 0:0 ÍA
Leikskipulag: 4-4-2 Landsbankadeild karla,
10. umferð
Laugardalsvöllur
Þriðjudaginn 12. júlí 2005
Aðstæður:
Fínar. Hæg gola, þungbúið en
þurrt og fínn völlur.
Áhorfendur: 1.005
Dómari:
Erlendur Eiríksson,
Fram, 4
Aðstoðardómarar:
Einar Örn Daníelsson,
Gunnar Gylfason
Skot á mark: 15(5) - 13(5)
Hornspyrnur: 6 - 9
Rangstöður: 3 - 2
Leikskipulag: 4-3-3
Fjalar Þorgeirsson M
Freyr Karlsson M
Eysteinn P. Lárusson
Páll Einarsson M
Ingvi Sveinsson
Halldór A. Hilmisson
Hallur Hallsson M
Haukur Páll Sigurðsson
Daníel Hafliðason
(Guðfinnur Þ. Ómarsson 66.)
Þórarinn Kristjánsson
Magnús Már Lúðvíksson M
(Erlingur Þ. Guðmundsson 77.)
Bjarki Guðmundsson M
Finnbogi Llorens Izaguirre
(Ellert Jón Björnsson 46.) M
Reynir Leósson
Gunnlaugur Jónsson M
Guðjón H. Sveinsson
Pálmi Haraldsson M
Helgi Pétur Magnússon
Hjörtur J. Hjartarson
(Jón Vilhelm Ákason 83.)
Kári Steinn Reynisson M
Sigurður Ragnar Eyjólfsson
(Andri Júlíusson 62.)
Hafþór Vilhjálmsson
Gul spjöld: Eysteinn P. Lárusson, Þróttur R. (9.) fyrir brot. Páll Einarsson, Þróttur R.
(24.) fyrir brot. Finnbogi Llorens Izaguirre, ÍA (24.) fyrir brot. Kári Steinn
Reynisson, ÍA (49.) fyrir brot. Helgi Pétur Magnússon, ÍA (76.) fyrir brot.
Freyr Karlsson, Þróttur R. (90.) fyrir brot.
Rauð spjöld: Engin
Atli Eðvaldsson, sem stýrði Þrótti ífyrsta sinn, gerði nokkrar breyt-
ingar á liðinu auk þess sem hann virð-
ist hafa gefið leikmönnum fullt leyfi til
að skjóta alltaf þegar þeir teldu sig
vera í þokkalegu færi. Jens Sævars-
son, sem hefur leikið í stöðu miðvarð-
ar, var í leikbanni og tók Páll Ein-
arsson, fyrirliði liðsins og miðju-
maður, við hlutverki hans. Páll átti
fínan leik í öftustu vörn, sem nú var
fjögurra manna og Freyr Karlsson,
sem hefur leikið nokkuð framar í
sumar, var hægri bakvörður og stóð
sig ágætlega. Frammi voru þeir Þór-
arinn Kristjánsson og Magnús Már
Lúðvíksson, sem nýlega gekk til liðs
við Þrótt frá ÍBV. Báðir voru duglegir
og vinnusamir.
Þróttarar hófu leikinn með miklum
látum og hefðu Skagamenn lítið getað
sagt þó þeir hefðu fengið á sig ein tvö
mörk fyrir hlé. Páll átti gríðarlega
fasta aukaspyrnu af um 40 metra færi
á 8. mínútu en boltinn small í þver-
slánni og þaðan yfir. Flott spyrna.
Þremur mínútum síðar átti Hallur
Hallsson fínt langskot – reyndar ekki
af eins löngu færi og Páll – sem Bjarki
Guðmundsson varði glæsilega með
því að ýta boltanum yfir þverslána.
Markús Már komst inn fyrir vörn ÍA
á 20. mínútu eftir langt útspark Fjal-
ars Þorgeirssonar, en Bjarki var
snöggur út á móti og varði í horn.
Hjörtur Hjartarson átti gott skot
úr miðjum vítateignum hinum megin
en Fjalar varði vel og aftur þegar
Hjörtur reyndi bakfallsspyrnu eftir
hornspyrnu Skagamanna.
Síðustu mínútur fyrri hálfleiks
sóttu Þróttarar látlaust og Skaga-
menn örugglega fegnir að komast til
búningsklefa með jafntefli.
Skagamenn vakna til lífsins
Það má eiginlega segja að Skaga-
menn hafi loks mætt til leiks þegar
flautað var til síðari hálfleiks. Liðið
var mjög slakt fyrir hlé en í síðari
hálfleik tók það öll völd á vellinum og
var margoft alveg við það að gera það
sem knattspyrnan snýst um – að
skora. En þrátt fyrir látlausa sókn
fyrstu 35 mínútur síðari hálfleiks
tókst þeim ekki að skora. En það
munaði oft sáralitlu að það tækist.
Gunnlaugur fyrirliði Jónsson var
nærri því eftir hornspyrnu á 58. mín-
útu, fékk boltann í hnéð frá varnar-
manni Þróttar og þaðan fór hann rétt
yfir markið.
Skagamenn sóttu og sóttu en
Þróttarar vörðust ágætlega, tókst
hvað eftir annað að stöðva síðustu
sendingu gestanna þannig að það sem
virtist ætla að verða ákjósanlegt færi
varð það aldrei.
Ellert Jón Björnsson, sem kom inn
á í hálfleik og hressti verulega upp á
leik ÍA, var óheppinn á 68. mínútu
þegar boltinn var sendur fyrir frá
vinstri kanti og stefndi á höfuðið á
Ellerti Jóni við stöngina fjær. En
boltinn fór í stöngina og Ellert Jón
missti því af tækifærinu.
Þróttarar gerðu nokkrar breyting-
ar á liðinu undir lok leiksins og tóku
þá til við að sækja á nýjan leik eftir að
hafa bakkað fullmikið. En færin urðu
ekki fleiri og þegar á heildina er litið
er jafntefli sjálfsagt ekki langt frá því
að teljast sanngjarnt.
Eitt stig betra en ekkert
„Fyrri hálfleikurinn var virkilega
góður hjá okkur og við hefðum átt að
skora eitthvað þá. Ég kunni vel við
mig í miðverðinum enda hef ég spilað
þar áður og maður er bara ánægður
ef maður er í liðinu,“ sagði Páll Ein-
arsson, fyrirliði Þróttar, eftir leikinn.
„Þó svo maður vilji alltaf meira þá
held ég að ég sé bara nokkuð sáttur
við stigið. Það er alltaf gott að fá stig.
Það voru smá vandræði hjá okkur í
seinni hálfleiknum en síðustu mínút-
urnar náðum við að jafna okkur og
leika ágætlega þá. Ég er ánægður
með að við skyldum ná að hrista af
okkur slenið undir lok síðari hálfleiks
og halda haus því Skagamenn sóttu
nokkuð stíft.“
– Þið skutuð meira en venjulega á
markið í kvöld.
„Já, meira en í allt sumar,“ segir
Páll og brosir. „Það var gefið skotleyfi
og menn nýttu sér það – en við hefð-
um alveg mátt setja eitt mark eða
svo.“
Klaufar að fá ekki öll stigin
„Ég hefði nú viljað fá eitthvað
meira út úr þessum leik. Við vorum
ferlega slakir í fyrri hálfleik og horfð-
um þá bara á Þróttara, en við réðum
algjörlega þeim síðari og hefðum átt
að skora. Við vissum að Þróttarar
kæmu brjálaðir til leiks og að við yrð-
um að hafa fyrir hlutunum. En menn
verða stundum værukærir og við vor-
um það svo sannarlega fyrir hlé og við
máttum þakka fyrir að fara inn í hálf-
leik með 0:0. En við vorum miklu betri
eftir hlé og klaufar að vinna ekki,“
sagði Ólafur Þórðarson, þjálfari ÍA.
– Ertu sæmilega sáttur við stöðu
mála hjá ykkur núna þegar mótið er
ríflega hálfnað?
„Já og nei eiginlega. Ég hefði að
sjálfsögðu viljað hafa fleiri stig, en
hvaða lið myndi ekki sakna þess að
missa sjö sterka leikmenn úr byrjun-
arliðinu frá því í fyrra. Það tekur tíma
að byggja upp og búa til nýtt lið og
miðað við allt þá getur maður varla
annað en verið þokkalega sáttur. Við
sjáum í það minnsta að það eru lið
sem misstu minna en við og eru í verri
stöðu en við,“ sagði Ólafur og bætti
við: „En ég vildi samt vera ofar í
deildinni!“
Morgunblaðið/ÞÖK
Þróttararnir Þórarinn Kristjánsson og Daníel Hafliðason eiga hér í baráttu við Kára Stein Reynisson, ÍA.
Markalaust þrátt
fyrir stórskotahríð
STAÐA Þróttar og ÍA breyttist ekkert eftir markalaust jafnefli lið-
anna á Laugardalsvelli í gær, en þá lauk tíundu umferð Lands-
bankadeildar karla. Þróttur er enn í tíunda sæti, nú tveimur stigum
á eftir Fram, og Skagamenn eru enn í fimmta sæti deildarinnar, stigi
á eftir Keflvíkingum.
Eftir Skúla Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is