Morgunblaðið - 04.08.2005, Qupperneq 8
8 B FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
skjalaskápar • einfaldlega betri
Bæjarhrauni 10 Sími 565 1000 Netfang: bedco@bedco.is
220 Hafnarfirði Fax 565 1001 www.bedco.is
M
IKHAIL Borisovich
Khodorkovsky fædd-
ist fátækum foreldr-
um sínum í Moskvu
árið 1963. Engan
renndi í grun á þeirri stundu að hann
yrði auðugastur allra Rússa fáeinum
áratugum síðar, hvað þá einn ríkasti
maður heims.
Misha, eins og móðir hans kallaði
hann, ólst upp við aðstæður sem voru
nokkuð dæmigerðar í Sovétríkjunum
á þessum tíma. Hann bjó ásamt for-
eldrum sínum í tveggja herbergja fé-
lagslegri íbúð en þau störfuðu bæði
hjá verksmiðju sem framleiddi ýmiss
konar mælitæki, s.s. reglustikur og
örkvarða. Misha sótti á meðan leik-
skóla við hlið verksmiðjunnar.
Hann var fyrirmyndar piltur, góð-
ur námsmaður og lagði hart að sér,
hvort sem hann var að læra að synda
eða leita sér að sumarvinnu. Snemm-
borin staðfesta hans og ákveðni varð
jafnvel til þess að hann hlaut viður-
nefnið Leikfangahermaður.
Khodorkovsky var sem ungur mað-
ur virkur meðlimur í ungliðahreyf-
ingu sovéska Kommúnistaflokksins.
Lauk hann gráðu í efnaverkfræði frá
Mendelev-stofnuninni í Moskvu árið
1986 og bætti jafnframt við sig hag-
fræðiprófi frá Plekhanov-stofnuninni.
Hann var svo lánsamur að vera að
hefja starfsferil sinn þegar Mikhail
Gorbachev var að umbreyta Sovét-
ríkjunum. Undir hlífiskildi ungliða-
hreyfingar kommúnista hóf Khodor-
kovsky fyrst að stunda viðskipti.
Gjarnan er vísað til góðra tengsla
Khodorkovsky við hátt setta pólitík-
usa innan Kommúnistaflokksins, að
það hafi gert hann að einna farsæl-
ustu viðskiptajöfrum Rússlands.
Sjálfur hefur hann sagt svo ekki vera.
Ásamt sex félögum kom hann á fót
einkareknu kaffihúsi og í kjölfarið
hófu þeir innflutning, útveguðu sov-
éskum fyrirtækjum nýjasta tækni-
búnað, fluttu inn PC-tölvur og marg-
víslegan varning, jafnvel franskt
koníak. Árið 1988, innan við tveimur
árum eftir að hann hóf að stunda
þessi viðskipti, veltu hann og félagar
hans um 10 milljónum dollara.
Bólgnir bankasjóðir
Næsta skref á ævintýralegum ferli
Khodorkovsky og félaga hans var
stofnun Menatep-bankans, sem átti
eftir að reynast þeim happadrjúgur,
þar til Pútín kom til sögunnar. Hans
þáttar verður nánar getið síðar.
Þetta var tveimur árum fyrir enda-
lok Sovétríkjanna. Menatep var einn
af fyrstu bönkum Rússlands í einka-
eigu og stækkaði ákaflega hratt, ekki
aðeins af því að fjármagna hina mjög
svo ábatasömu verslunarstarfsemi
Khodorkovsky og af gjaldeyrisvið-
skiptum heldur einnig af því að
höndla með fjármuni frá ríkinu,
þ.á m. sjóði fyrir fórnarlömb Cherno-
byl-kjarnorkuslyssins.
Sjóðir Menatep bólgnuðu mjög eft-
ir að kommúnisminn féll og Boris
Jeltsín komst til valda í Rússlandi.
Bankinn hafði m.a. öðlast heimildir til
að fara með sjóði fjármálaráðuneyt-
isins, ríkisskattstjóra og Moskvu-
borgar.
Óvildarmenn Khodorkovsky telja
að strax árið 1990 hafi bankinn farið
að greiða leið manna fyrir allsherjar
arðráni úr sjóðum Sovétríkjanna. En
rússneskir bankar voru þá almennt
grunaðir um að koma hundruðum
milljarða undan inn á nafnlausa
reikninga í Sviss og víðar. Khodor-
kovsky hefur vísað þessu á bug og
sagt bankann sinn hafa haft hreinan
skjöld. Enga slíka reikninga hafi ver-
ið þar að finna.
Hataðir ólígarkar
Khodorkovsky auðgaðist verulega í
byrjun tíunda áratugarins af Mena-
tep-bankanum sem hann er enn sagð-
ur eiga meirihluta í. Ekki síst af þátt-
töku bankans í einkavæðingu fjölda
ríkisfyrirtækja undir stjórn Jeltsíns.
Ríkisfyrirtæki landsins voru á
þessum tíma seld lágu verði, að því að
nú er talið, og þeir sem fengu þar góð-
an skerf urðu jafnan vellauðugir.
Þetta voru hinir svokölluðu ólígarkar,
fámennur hópur manna sem urðu for-
ríkir á einkavæðingu og viðskiptum í
fyrrum Sovétríkjunum á tíunda ára-
tugnum. Khodorkovsky var talinn þar
fremstur með jafningja. Ólígarkarnir
hafa lengi mætt hatri í sínu heima-
landi og margir þeirra hafa flúið land.
Þeir segja landa sína ekki ennþá geta
skilið kosti einkaframtaksins, frum-
kvöðla eða ríkidæmis einstaklingsins.
Khodorkovsky barst aldrei mikið á
og það mildaði afstöðu almennings í
hans garð. Líf hans var heldur fábrot-
ið miðað við aðra ólígarka, hann
keypti hvorki snekkjur né fótbolta-
félög og kaus heldur að fara með fjöl-
skylduna í útilegu en að sækja svall-
veislur á Rivíerunni. Auk þess létu
hann og félagar hans nokkurt fé af
hendi rakna til góðgerðarmála, t.a.m.
munaðarleysingjahæla og háskóla.
Reyfarakaup á Yukos
Mikhail Khodorkovsky dembdi sér út
í einkavæðingu ríkisins sem til var
stofnað til þess að dreifa á sanngjarn-
an hátt auðæfum ríkisins. Í gegnum
Menatep-bankann eignaðist hann
stóra eignarhluti í einkavæddum rík-
isfyrirtækjum og komst þannig yfir
stærsta olíufyrirtæki Rússlands, Yu-
kos, í útboði árið 1995. Menatap var
reyndar falið að vinna tilboðin í Yukos
og þannig vildi til að fyrirtæki undir
stjórn Khodorkovsky og félaga vann
útboðið. Tilboð þriggja stórra banka í
Rússlandi, sem buðu reyndar hærri
peningaupphæðir en samstarfshópur
Khodorkovsky, voru ógild af tækni-
legum ástæðum.
Khodorkovsky og félagar greiddu
um 350 milljónir dollara fyrir 78%
hlut í Yukos. Þóttu það mikil reyfara-
kaup enda var fyrirtækið í heild sinni
samkvæmt þessu metið um 450 millj-
ónir dollara. Þegar farið var að skipta
með hlutabréf í fyrirtækinu nær
tveimur árum síðar var markaðsvirði
þess nærri 9.000 milljónir dollara og
átti þá eftir að hækka umtalsvert.
Khodorkovsky hefur sagt að þeir fé-
lagar hafi tekið gríðarmikla áhættu
með fjárfestingu í þessu fyrirtæki
enda hafi það verið mjög skuldsett og
að mikil óvissa hafi ríkt um hvort
stjórnarandstaðan kæmist til valda
og afturkallaði alla einkavæðingu.
Rjúkandi rústir í Moskvu
Félagarnir hittu þarna á gullæð og
Khodorkovsky vann hörðum höndum
að uppbyggingu fyrirtækisins. Hann
hafði þó vart lokið við að ná þar yf-
irráðum þegar rússneska hagkerfið
hrundi árið 1998. Rússland var gjald-
þrota eftir arðrán hinna gírugu kapít-
alista, að því er talið var. Ríkisstjórn-
in felldi gengi rúblunnar og stóð ekki í
skilum með lán sín. Sem leiddi til þess
að flestir stóru einkabankar landsins
urðu gjaldþrota, þeirra á meðal
Menatep-bankinn í Moskvu. Bjarg-
andi því sem bjargað varð flutti
Khodorkovsky þá reikninga sem
hægt var að flytja yfir í Menatep-
systurbankann í St. Pétursborg. Eftir
sátu rjúkandi rústir í Moskvu og bál-
reiðir lánardrottnar.
Eftir efnahagshrunið í Rússlandi
þóttu sumar aðgerða Khodorkovsky
til að tryggja sér Yukos allt að því
svívirðilegar. Hann þrýsti minni hlut-
höfum markvisst út úr fyrirtækinu,
færði mikilvæga fundi fram á
ögurstundu til að tryggja sér sem
hagfelldastar málalyktir og er að auki
talinn hafa skotið undan talsverðu af
eignum Yukos og flutt til útlanda.
Sögurnar hafa reyndar sumar
verið talsvert verri. Sennilega fór að
halla undan fæti árið 2000 þegar Vla-
dimir Pútín varð forseti Rússlands.
Þá hafði Khodorkovsky grætt meiri
peninga á styttri tíma en nánast
nokkur maður hafði áður gert, þar til
hann, einhvern veginn, kallaði yfir sig
bræði Pútíns.
Þegar Pútín tók við embætti var
nýtt tímabil í dagrenningu í Rúss-
landi. Það sem kallað hefur verið
glæpamanna-kapítalismi vék fyrir
siðmenntaðri markaði.
„Núna skiljum við hvernig viðskipti
fara fram hjá vestrænum þjóðum,“
hefur verið haft eftir Khodorkovsky í
seinni tíð. „Sem hluthafi afla ég fjár
með arðgreiðslum og með hækkunum
á markaðsvirði fyrirtækis míns á
markaði. Áður fyrr einblíndum við
allir á að hámarka tekjur fyrirtækis
okkar í peningum enda hafði enginn
trú á að ástandið yrði viðvarandi.“
Rússnesku ólígarkarnir þurftu orð-
ið á lífvörðum að halda eftir innreið
kapítalismans í landið. Khodorkovsky
var einn fárra sem ekki flúði land en
fjölskylda hans býr í úthverfi vestur
af Moskvu þar sem hann reisti, ásamt
félögum sínum sex, þyrpingu lúxus-
heimila sem er girt af með háum
veggjum og gætt af vörðum vopnuð-
um vélbyssum.
Handtekinn í einkavélinni
Pútín lét til skarar skríða gegn
Khodorkovski í október 2003. Vopn-
aðir lögreglumenn réðust inn í einka-
flugvél Khodorkovski á flugvelli í Síb-
eríu og handtóku hann. Þá hafði hann
ekki sinnt boðunum um að mæta til
yfirheyrslu en félagi hans hafði verið
hnepptur í varðhald þremur mánuð-
um fyrr.
Enginn vissi nákvæmlega hvað
Khodorkovsky hafði gert af sér. At-
kvæðamesta kenningin var þó sú að
hann hefði ekki virt samkomulag sem
Pútín átti að hafa gert við ólígarkana
árið 2000, að þeir fengju að halda sínu
ef þeir greiddu skattana sína og héldu
sig frá stjórnmálum.
Khodorkovsky og félagar hans
studdu hins vegar við bakið á hinum
ýmsu stjórnmálaflokkum og pískrað
var um að Khodorkovsky hygðist
bjóða sig fram, jafnvel til forseta. Og
enn í dag eru gerðar kannanir á fylgi
hans til forsetaframboðs.
En ástæður rannsóknarinnar gátu
verið aðrar og margs konar kenning-
ar voru á lofti. Vegna óvinsælda ólíg-
arkana þótti það pólitískt hentugt fyr-
ir Pútín að koma höggi á þá og þá sér í
lagi Khodorkovsky. Einnig var leitt
getum að því að rekja mættir ástæð-
urnar til þess að Khodorkovsky og
Pútín deildu opinberlega um spillingu
ríkisstjórnarinnar í byrjun sama árs.
Sumir telja að dramb hafi orðið
Khodorkovsky að falli. Hann hafi ver-
ið farinn að líta á sig sem ósigrandi.
Píslarvottar elskaðir
Ferill hans spannaði allt frá engu til
milljarða dollara og endaði í fangelsi.
Þarna var hann á hátindinum. Rétt-
arhöld yfir honum fyrir dómstólum í
Moskvu stóðu fram á sl. vor en verða
ekki rakin hér. Var hann fundinn sek-
ur um fjársvik, skattsvik, fjárdrátt og
rekstur glæpastarfsemi og hefur
hann áfrýjað dómnum.
Khodorkovsky var dæmdur í níu
ára fangelsi en hann hefur nú þegar
afplánað nærri tvö ár. Hann er sagður
una sér nokkuð vel í fangelsinu, hafi
aðlagast fljótt, sé brosmildur, rólegur
og vingjarnlegur. Hann á sér fjöl-
marga fylgismenn sem hafa þúsund-
um saman mótmælt réttarhöldunum
og fangelsisdómi. Og þrátt fyrir að
eiga sér einnig svarna andstæðinga
þá virðist ekki loku fyrir það skotið að
vinsældir hans komi til með að aukast
á næstu árum.
Leiðtogi Bandalags hægri afla í
Rússlandi, Irina Khakamada, fullyrð-
ir í það minnsta að því lengur sem
Khodorkovsky sitji í fangelsi þeim
mun pólitískari og vinsælli verði hann
í augum almennings. „Rússar elska
píslarvotta. Þeir munu gleyma því að
hann er ólígarki.“
Fátækt, frami, fangelsi – forseti?
Ólígarkinn Mikhail
Khodorkovski var um
fertugt orðinn ríkasti
maður Rússlands og
meðal auðugstu
manna heims. Hann
er í senn elskaður og
hataður í heimalandi
sínu. Soffía Haralds-
dóttir leit yfir lífshlaup
mannsins sem nú situr
í fangelsi en þykir lík-
legur forseti Rúss-
lands í framtíðinni.
Reuters
Stuðningur Mikhail Khodorkovsky á sér fjölmarga fylgismenn víða um heim. Landar hans hafa komið saman í
þúsundatali, m.a. fyrir utan dómshús í Moskvu, til að mótmæla réttarhöldum og fangelsisdómi yfir honum.
) '
# #*''# # # %
F #" !!#! ! 0% ! /;%$
) % #! 00 0 /5% >;#" (
?!% ?(%% $% ?, %
I #! 0,% I 'J!) % #! 0,% 0 >! ) +, 0 (%, ;%F