Morgunblaðið - 04.08.2005, Síða 10

Morgunblaðið - 04.08.2005, Síða 10
10 B FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ  Sumaropnunartími: 1. júli til 31. ágúst, Kl. 8 til 17. Verið velkomin í heimsókn! Erum flutt í SKIPHOLT 17 ! Sími 588 - 4699 Fax 588 - 4696 www.oba.is Otto B. Arnar ehf. Úrval af: Plöstunarvélum Gormainnbindivélum Pappírstæturum Stimpilklukkum Plastkortaprenturum HÁ MA RKS GÆ ‹I Á F RÁ BÆ RU VER ‹I! REYKJAVÍK · HAFNARFIR‹I · AKUREYRI · REY‹ARFIR‹I · EGILSSTÖ‹UM BRETTAREKKAR www.midlun.is Þ að er til siðs í viðtölum við listamenn að fjalla um helstu áhrifavalda þeirra og fá þannig dýpri skilning á þróun og mót- un listastefnu þeirra. Þó svo að al- mennt viðhorf sé með öðrum hætti hvað varðar fjárfestingar teljast þær þó list fyrir marga þá sem með einum eða öðrum hætti taka virkan þátt í fjárfestingar- ákvörðunum. Frá slíku sjónarhorni felst listin ef til vill í margbrotinni sam- setningu fjölda fræðigreina sem ekki takmarkast við viðskiptafræði. Slík list tekur tillit til sögulegra stað- reynda og hvernig þær koma til með að endurspegla framtíðarþróun fjár- festingarkosta. Í þessu ljósi er áhugavert að athuga hver sé almennt talinn vera helsti áhrifavaldur Warr- en Buffett, frægasta fjárfestis sög- unnar. Áhrifavaldurinn sem jafnan er nefndur er Benjamin Graham sem Roger Lowenstein gerir góð skil í ævisögunni Buffett: The Making of an American Capitalist (1995). Kynni Graham af hlutabréfamarkaðinum hófust óbeint með skelfilegum hætti þegar að hann var rétt orðinn tán- ingur. Faðir hans hafði látist nokkr- um árum áður og móðir hans notaði það fé sem hann hafði safnað saman auk líftryggingarfjárins til að fjár- festa í hlutabréfum. Í hruninu mikla árið 1907 tapaði hún ekki aðeins á hlutabréfakaupum heldur fór bank- inn hennar í þokkabót á hausinn. Graham var framúrskarandi náms- maður á mörgum sviðum og var boð- in staða í þremur deildum að loknu námi – ensku, stærðfræði og heim- speki. Þess í stað fór hann að vinna á Wall Street. Þar nutu margþættir hæfileikar hans sín við kerfisbundna greiningu á hlutabréfum, sem þá var nánast óþekkt fyrirbrigði. Fljótlega fór hann að skrifa greinar og halda fyrirlestra um fjárfestingar. Graham var þá þegar farinn að sýna snilli sína við að koma auga á fjárfestingartæki- færi sem fólu í sér afar litla áhættu en veittu á tíðum frábæra ávöxtun, sem var í litlu samræmi við þá spákaup- mennsku sem réði ríkjum á síðari hluta þriðja áratugarins. Árið 1929 var auður Graham orðin verulegur vegna fjárfestinga hans, eins og átti reyndar einnig við marga aðra. Hann var þó varkár og tapaði ekki miklu í upphaflegu niðursveifl- unni á gengi hlutabréfa. Næsta ár varð hann hins vegar sannfærður um að hið versta væri afstaðið og tók lán til frekari hlutabréfakaupa. Gengi hlutabréfa hélt hins vegar hægt og bítandi áfram að falla meira og meira. Þeir sem að biðu eftir fyrsta fallinu hlutu svipuð grimm örlög og allir hin- ir sem á annað borð fjárfestu í hluta- bréfum og var Graham engin undan- tekning. Lífsstíll fjölskyldunnar breyttist úr allsnægtum í baráttu við að halda í sér lífinu – Graham var launalaus í fimm ár. Það var á tímum mikillar kreppu og vantrúar á hlutabréfum sem Graham ásamt David Dodd gaf út bókina Security Analysis, en hún kom út árið 1934. Bókin lagði áherslu á að einblína á raunverulegt virði fyr- irtækja með tilliti til þátta eins og hagnaðar, væntanlegs vaxtar og innra virði þeirra. Þeir héldu því fram að markaðsvirði fyrirtækja byggðist oft á tilfinningum sem hefðu lítt með raunhæfa greiningu að gera. Galdur- inn væri að koma auga á fjárfestingar sem markaðurinn mæti á gengi langt undir raungengi fyrirtækisins. Síðan yrði að treysta á að markaðurinn fylgdi þeirri tilhneigingu að leiðrétta verðið svo að raungengi fáist. Það er merkilegt að Graham, sem í tvígang á ævi sinni hafði lent í slíkum hremm- ingum tengdum hlutabréfum, tæki þátt í skrifum slíks verks. Jafnvel enn merkilegri, þó svo að hún sé sígilt verk enn í dag, var tímasetning út- gáfu bókarinnar, sem segja mætti að hafi verið á undan sinni samtíð. Markaðsvirði margra fyrirtækja var minna á þeim tíma en bankainnstæð- ur þeirra. Margir fjárfestar, að Grah- am meðtöldum, höfðu fjárfest í hluta- bréfum sem sannarlegu voru vanmetin samkvæmt fræðunum, að- eins til að sjá gengi þeirra falla meira og meira sem oft leiddi til gjaldþrots fjárfesta hlutabréfa þeirra. Spurn- ingin sem þeir áttu erfitt með að svara var hvernig væri hægt að finna út hversu lengi markaðurinn leiðrétti slíkt ósamræmi. Sú aðferð var þróuð árið áður en Buffett hóf nám sitt hjá Graham árið 1950 í bókinni The In- telligent Investor (1949). Í stuttu máli gekk sú aðferð út á það að fjár- festa aðeins í afar vanmetnum fyr- irtækjum, helst í kringum 40% af raunvirði þeirra. Þannig væri betur komist hjá því að fjárfesta í fyrir- tækjum sem væru vanmetin af mark- aðinum en héldu áfram að lækka í virði og/eða hækkuðu seint aftur í raunvirði sitt. Það var ofangreind hugmynda- fræði sem höfðaði til Buffett. Hann hafði reynt margar aðferðir áður við hlutabréfafjárfestingar en þarna var komin aðferð sem krafðist sjálf- stæðrar hugsunar. Buffett hafði áður sótt um inngöngu í Harvard-háskól- ann án árangurs, en Harvard taldi Buffett vera fullungan til að fá inn- göngu. Buffett sótti um inngöngu í Columbia-háskólann þar sem Grah- am og Dodd kenndu, enda hafði hann þá þegar lesið Security Analysis og strax orðið heillaður af henni. Hann hóf nám þar 1950 eins og fyrr var sagt. Mikil ásókn var í námskeið Graham enda gaf hann oft til kynna góða fjárfestingakosti. Algengt var að nemendur hans keyptu í þeim hlutabréfum sem Graham fjallaði um og högnuðust mikið – Graham stóð á sama. Auk þess voru tímar Graham líflegir enda var hann sjálfur afar víð- sýnn. Fyrir Graham var Wall Street aðeins hluti af stóru myndinni í til- gangi lífsins enda var hann samhliða kennslu að grúska í latínu og grísku, þýddi spænsk ljóð og samdi leikrit fyrir Broadway. Samræður – sem oft voru á milli Graham og Buffett – voru sjaldnast í einföldum stíl í anda já og nei svara. Áhugi þeirra snérist frekar um hugsanaferlin að baki ákveðnum niðurstöðum. Stuttu eftir útskrift bauð Graham Buffett vinnu hjá fjárfestingafyrir- tæki sínu. Þrátt fyrir þá staðreynd að Buffett lærði margt hjá Graham þá þreyttist Buffett fljótlega á því hversu áhættufælinn Graham var og lítt gefinn fyrir að skoða fyrirtæki sem Buffett taldi vera áhugaverða kosti en voru ekki nægilega örugg samkvæmt kennitölunum. Ekki bætti úr skák að Dow Jones-hluta- bréfavísitalan var að nálgast sömu hæðir og hún hafði náð rétt fyrir hrunið árið 1929 og því var mikil fjöl- miðlaumræða um hvort hún væri ekki orðin ofmetin (þó svo að 25 ár hefðu liðið). Ef til vill hafði Graham einfaldlega misst áhugann því árið 1956 hætti hann vinnu við fjárfest- ingar og fluttist til Kaliforníu. Þar kenndi hann auk þess að sinna öðrum áhugamálum sínum. Hann gaf mikið af fjármunum sínum til góðgerða- mála og sagði að hver sá sem skildi eftir andlát sitt meira en milljón dali eftir væri kjáni. Samstarf Buffett og Graham hélt þó áfram. Buffett bauð Graham oft á fundi með sér og helstu ráðgjöfum sínum sem Buffett hélt árlega til að ræða um fjárfestingar. Auk þess tók Buffett þátt í að uppfæra fjárfesting- arverkið The Intelligent Investor sem var endurútgefið 1972. Buffett var reyndar tvístígandi um hvort hann ætti að fá viðurkenningu fyrir hlut sinn í uppfærslunni og var um tíma að spá í að takmarka opinbera þátttöku sína við formálann. Ástæð- an var sú að Buffett var ekki sam- mála öllu því sem fram kom í verkinu. Aðallega var Buffett ósáttur við þá hugmynd Graham að takmarka eigi hlutabréfaeign sem hluta fjárfesting- arsafns við 75% þegar mestu tæki- færin væru til staðar. Að mati Buffett eiga fjárfestar að setja allt að 100% af fjárfestingum sínum í hlutabréf þeg- ar að góð tækifæri myndast, enda hefur verið haft eftir honum að þegar að aðrir eru hræddir eigi skynsamir fjárfestar að vera gráðugir. Graham til varnar hefur hann sjálfsagt haft bitra reynslu sína frá mögru árunum til hliðsjónar við að takmarka hluta- bréfaeign fjárfesta að ákveðnu marki og verður að segjast að fyrir lang- flesta er slík stefna skynsamleg. Árið 1976, skömmu fyrir lát sitt, sagði Graham að lítið væri orðið að hafa upp úr greiningu hlutabréfa. Margir túlkuðu þetta á þann veg að hann teldi að vísitölusjóðir kæmu til með að veita jafn góða ávöxtun fyrir fjárfesta og þeir sem ynnu að grein- ingu hlutabréfa. Þetta fór líklegast í taugarnar í Buffett þó svo að hann hafi verið tregur til að viðurkenna það. Helstu rök Graham fyrir þessu voru sú staðreynd að tölvur gátu orðið greint flest öll þau tölfræði- legu atriði sem áður fyrr var erfiðra að greina við að finna vanmetin fyr- irtæki. Þó svo að slíkar eigindlegar staðreyndir væru aðgengilegri voru megindlegar staðreyndir orðnar að stórum hluta til helsti styrkur Buff- ett á þeim tímapunkti. Hann var farinn að brjóta örlítið lögmál varð- andi tölfræðilega þætti í fjárfest- ingum sem Graham fylgdi án und- antekninga og einblína á fyrirtæki sem áttu möguleika á að styrkja stöðu sína á markaði, fara í frekari útrás eða ná að snúa erfiðum rekstri við. Buffett og Graham eiga það sam- merkt að það að græða var eitthvað sem var markmið í sjálfu sér, ekki peningarnir sem slíkir. Annað sam- merkt er sérviska þeirra og að þeir voru dáðir af flestum sem þekktu þá. Stundum hefur verið sagt að Buffett sé spegilmynd Graham hvað varðar fjárfestingarstefnu. Réttara væri að segja að Graham hafi haft mikil áhrif á þann grunn fjárfestingarstefnu sem Buffett byggði á og ekki síst þá heimspekilegu sýn til fjárfestinga sem nauðsynleg er til að ná framúr- skarandi langtímaárangri við fjár- festingar. Slíkur grunnur hefur reynst Buffett vel í gegnum tíðina, stöðugur þegar nauðsynlegt er en sveigjanlegur í takt við breytta tíma. Ben og Warren Már Wolfgang Mixa Warren Buffett Einn frægasti fjár- festir sögunnar. Eftir Má Wolfgang Mixa marmixa@yahoo.com Faðir virðisfjárfestingarinnar var helsti áhrifavaldur hins goðsagnakennda fjárfestis Warren Buffett Það var ofangreind hugmyndafræði sem höfðaði til Buffett. Hann hafði reynt marg- ar aðferðir áður við hlutabréfafjárfestingar en þarna var komin að- ferð sem krafðist sjálf- stæðrar hugsunar. Benjamin Graham Kenningar hans höfðuðu til Buffett.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.