Morgunblaðið - 12.08.2005, Side 2

Morgunblaðið - 12.08.2005, Side 2
2 B FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ bílar FJÓRAR bílasölur í Reykjavík hafa nýverið flutt á sama svæðið á mótum Breiðhöfða og Eirhöfða. Er það sölurnar Aðalbílasalan, Bílabankinn, Litla bílasalan og Nýja bílahöll- in. Reka þær sameiginlegt og vaktað stæði og samnýta ýmsa kosti nálægðarinnar en eru eftir sem áður sjálfstæð fyrirtæki í bullandi samkeppni. „Við erum hér með um 20 þúsund fermetra svæði og af því eru um þrjú þúsund fermetr- ar innanhúss,“ segir Ingimar Sigurðsson hjá Nýju bílasölunni sem kom einna fyrst á stað- inn, 11. júní. Næstar komu sölurnar Litla bílasalan og Bílabankinn og um síðustu helgi var Aðalbílasalan opnuð þarna. Ýmis tilboð um helgina „Við ætlum að vera með formlega opn- unarhelgi 12. til 14. ágúst og verða allar söl- urnar með ýmis tilboð á bílum,“ segir Óskar Guðnason hjá Aðalbílasölunni. Bílasalarnir segja að nálægðin hafi ýmsa kosti sem þeir ráðgera að spila vel úr. „Hér verður unnt að hafa um 600 bíla í allt, um 500 á bílastæðunum og kringum 100 samanlagt inni og þannig geta viðskiptavinir séð á einu bretti mjög fjölbreytt úrval bíla og þannig líklega fundið það sem þeir leita að,“ segir Stefán Þór Sveinbjörnsson hjá Litlu bílasöl- unni. Undir þetta tekur Ævar Hallgrímsson hjá Bílabankanum, yngsta fyrirtækinu í hópnum. „Þannig nýtum við saman kosti þessa stóra svæðis en um leið eru fyrirtækin eftir sem áður í samkeppni. Hér hafa viðskiptavinir að- gang að fjórum bílasölum sem allar leggja áherslu á góða og trausta þjónustu.“ Forsaga þessarar samstöðu bílasalanna er að einstaklingar sem keyptu lóðina í lok síð- asta árs komu að máli við Ingimar hjá Nýju bílahöllinni sem verið hafði við Funahöfða í 17 ár. Ingimar skoðaði svæðið, sem áður var athafnasvæði Orkuveitu Reykjavíkur og þar áður Vatnsveitunnar, og úr varð að alls fjórar bílasölur ákváðu að setja sig niður á þessu svæði. Bílasölurnar skipta með sér útisvæð- inu eftir umfangi og hefur Aðalbílasalan flest stæðin Nýja bílahöllin og Litla bílasalan hafa álíka mörg stæði og færri koma síðan í hlut Bílabankans. Meiri þjónusta í bígerð Þá nefna bílasalarnir nýtt svið sem þeir sjá fram á að nýtist þeim í sameiningu til að þjóna viðskiptavinum sínum. Það er rekstur bón- og þvottastöðvar og skoðunarstöðvar þar sem skoða má bíla sem selja á en slík skoðun er orðin skilyrði þess að bíll sé skráð- ur til sölu. Segja þeir þægilegt að geta veitt viðskiptavinum þessa þjónustu á sama staðn- um, þá sé hægt að koma með bíl í þrif og ástandsskoðun og skrá hann síðan hjá ein- hverri bílasölunni. Allt miði þetta að því að gera mönnum lífið sem þægilegast í þessum efnum. Tvö bílasölusvæði hafa þá myndast í þess- um austasta hluta Reykjavíkur, annars vegar svæðið við Eirhöfða og hins vegar hafa nokkrar bílasölur komið sér fyrir á svipuðum slóðum við Klettháls. Má kannski líkja þessu við tvö svæði sem bílasölur söfnuðust á hér áður fyrr, annars vegar Skeifusvæðið og hins vegar svæðið við Miklatorg. Í lokin má draga fram það sem bílasalarnir lögðu áherslu á að þeir vilji umfram allt byggja upp traust viðskiptavina. Sala á not- uðum bílum hefur lengi haft einhvern leið- indastimpil á sér en sá tími er liðinn, nú er allt uppi á borðinu og á Netinu má sjá við- miðunarverð þannig að fólk veit nokkurn veg- inn að hverju það getur gengið. Fólk er með- vitað um rétt sinn, vill fá að sjá feril bílsins og óháð mat á ástandi hans. Þetta dregur úr hættu á eftirmálum. Aðalbílasalan er í eigu Honda- og Peugeot- umboðsins Bernhard. Aðrar sölur hafa einnig tengingu við umboð því Nýja bílahöllin selur bíla frá Ingvari Helgasyni og Litla bílasalan hefur selt fyrir Heklu. Um helgina verður formleg opnun svæð- isins og bjóða allar sölurnar ýmsa áhuga- verða bíla á lækkuðu verði. Opið er virka daga hjá bílasölunum kl. 10 til 18, á laug- ardögum 10 til 17 og á sunnudag verður í þetta sinn opið kl. 13 til 17. Morgunblaðið/Sverrir Fulltrúar fjögurra bílasala á sama stað á mótum Breiðhöfða og Eirhöfða. Frá vinstri: Ingimar Sigurðsson frá Nýju bílahöllinni, Stefán Þór Sveinbjörnsson frá Litlu bílasölunni, Ævar Hallgrímsson frá Bílabankanum og Óskar Guðnason frá Aðalbílasölunni. joto@mbl.is Fjórar bílasölur á sömu lóð SUBARU kynnti nýlega í Bandaríkjunum fyrsta jeppann sem sendur verður á markað og nefnist hann B9 Tribeca. Hann var kynntur á bílasýningunni í Genf í mars og sam- kvæmt upplýsingum umboðsins hérlendis, Ingvars Helgasonar, er ráðgert að kynna bílinn hér í september. B9 er vel búinn sjö manna bíll með 250 hestafla vél. Ráðgert er að bjóða bílinn með leðursætum, sóllúgu og ýmsum búnaði fyrir rúmlega 4,7 milljónir króna. Subaru-jeppi í næsta mánuði B&L, sem hefur umboð fyrir bíla frá Renault, BMW, Hyundai og Land-Rover, efnir til svonefndrar laugardagsgleði á morgun við Grjótháls. Er það í tilefni þess að aftur er nú opið á laugardögum eftir sex vikna sumarhlé. Sýndir verða hraðskreiður sportbíll, BMW M5, sem er með fimm lítra og 507 hestafla vél, sportjepparnir Santa Fe og Tusc- on frá Hyundai, Discovery 3 frá Landrover og Megan-línan frá Renault. Þá verður efnt til get- raunar þar sem gestir eiga að giska á stærð farangursrýmis í Megan Saloon. Verðlaunin eru ferð til Parísar og á laugardags- gleðinni verður einnig boðið upp á pylsur með öllu og gos. Sportbílar í laugar- dagsgleði B&L               !"  !"# !" $ %& ' (!%& ) * +,* -- . / "  *((% " *(% ! !(%! 0 ( 1"

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.