Morgunblaðið - 12.08.2005, Síða 4
4 B FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
Sími 567 6744 • Bíldshöfða 14 • 110 Reykjavík
höggdeyfar eru orginal
hlutir frá USA og E.E.S.
Aisin kúplings-
sett eru orginal
hlutir frá Japan
varahlutir í miklu úrvali
R
æsir hf. er að hefja innflutn-
ing á aldrifsbílunum
MANTRA sem eru að
grunni til Mercedes Benz
Sprinter sem Achleitner í Austurríki
hefur breytt á ýmsan veg. MANTRA
er með sítengdu aldrifi og fáanlegur
sem sendibíll eða pallbíll, sem smá-
rúta með sætum fyrir mismunandi
marga farþega og vinnubíll með
margs konar útbúnaði. Henta þessir
bílar m.a. fyrir skólaakstur, fólks-
flutninga og sjúkraflutninga þar sem
aðstæður eru erfiðar, fyrir björgun-
arsveitir, fyrir orkufyrirtæki og sem
margs konar þjónustubílar.
Varla þarf að fjölyrða um Merced-
es Benz hérlendis, svo gamalgróna
sögu sem þeir eiga meðal íslenskra
bílakaupenda bæði sem atvinnutæki
og fólksbílar. Achleitner-fyrirtækið
hefur um 70 ára reynslu í hönnun og
breytingu á sérbúnum bílum og hef-
ur það ekki síst breytt bílum fyrir
heri, slökkvilið og björgunarsveitir.
Viðamikil breyting
Í þessu tilviki tekur Achleitner
Sprinter-bílana frá verksmiðjunum
og útbýr þá með nýjum fjöðrunar- og
drifbúnaði, nýjum millikassa og sér-
hannar þá til hvers kyns erfiðra
verkefna. Eru að langmestu leyti
notaðir íhlutir frá Mercedes Benz og
því má segja að kaupendur eigi
tryggan aðgang að varahluta- og við-
gerðarþjónustu. Eina undantekning-
in er millikassi frá Land Cruiser.
Drifbúnaður, hemla- og stýrisbúnað-
ur hefur verið aukinn og styrktur til
samræmis við aukið álag og verkefni
sem þessum bílum er ætlað að sinna
og hafa allar breytingar verið vott-
aðar af viðurkenndum vottunaraðila.
Breytingin telst það viðamikil að hún
telst sjálfstæð framleiðsla.
Ræsir ætlar framvegis að leggja
mesta áherslu á sölu og þjónustu við
atvinnubíla frá Mercedes Benz og af
öðrum gerðum og er nú að hefja
framkvæmdir við nýja þjónustumið-
stöð á mótum Suðurlands- og Vest-
urlandsvegar.
MANTRA 4x4 er fáanlegur í fjór-
um grunngerðum, seríu S, B3, B5 og
B6. Í öllum gerðunum eru 2,7 lítra og
fimm strokka CDI dísilvélar sem eru
156 hestöfl sem með aflauka geta
orðið 187 hestöfl. Hefur Ræsir þegar
fengið hingað til lands tvo bíla í ser-
íunni B3 og eru þeir báðir með 187
hestafla vélaútgáfunni. Þessi lína er
byggð á 300 línunni hjá Sprinter og
er unnt að breyta þeim fyrir hjól-
barðastærðir allt á milli 31 og 38
tommu. Tog vélanna eru 390 Nm við
1.400 til 2.400 snúninga. Bílarnir eru
mislangir og er sá styttri með 3.550
mm hjólahafi og sá lengri 3.640 mm.
Leyfður heildarþungi er 3.500 kg og
4.300 kg. Hægt er að fá fimm gíra
beinskiptingu eða 5 gíra sjálfskipt-
ingu en að öðru leyti má segja að allir
aukahlutir sem boðnir eru í Sprinter
séu einnig fáanlegir í MANTRA.
Af öðrum búnaði má nefna hemla-
læsivörn, ASR-spólvörn, rafhitun í
afturrúðu, rafstillanlega spegla með
hita, fjarstýrðar samlæsingar, raf-
drifnar rúður, hraðastillingu, úti-
hitamæla, loftnet og hátalara og loft-
púða fyrir ökumann og farþega í
framsæti. Er þá aðeins fátt eitt talið.
Fyrir utan bílana tvo, sem Ræsir
hefur fengið til landsins og kynnir á
næstunni víða um land, eru tveir aðr-
ir væntanlegir á götuna bráðlega og
fer annar þeirra í skólaakstur.
Mjúk fjöðrun
Tekið var aðeins í MANTRA 4x4 í
malargryfjum rétt utan við borgina
og finnst fljótt að hér eru á ferð öfl-
ugir bílar og togmiklir. Gormafjöðr-
unin að framan og nokkuð belgmikil
dekk, annars vegar frá Goodrich og
hins vegar Michelin, gera bílana í
raun furðu mjúka á grófum vegi. Fer
og vel um ökumann undir stýri en
sætið má stilla á marga vegu og laga
það að þörfum hvers og eins. Sætið
er einnig fjaðrandi.
Annar bíllinn var sjálfskiptur og
hinn beinskiptur og hafa báðar gerð-
ir nokkuð til síns ágætis. Sjálfskipti
bíllinn er þægilegur í meðförum og í
torfærum og erfiðleikum er hægt að
setja í lága drifið og nýta 100% læs-
inguna í bæði fram- og afturdrifi.
Þannig getur hann malað í rólegheit-
um upp grófan bratta, yfir vatns-
miklar ár og svo framvegis. Sá bein-
skipti er einnig búinn háu og lágu
drifi og með sömu driflæsingum en
segja má að það fari fremur eftir
óskum og löngunum kaupanda frem-
ur en mismun á getu eða meðhöndl-
un hvort valin er sjálfskipting eða
beinskipting.
Verð á MANTRA 4x4 er eins mis-
jafnt og bílarnir geta verið margir,
þ.e. það ræðst algjörlega af notkun.
Bæði er að bílarnir eru misjafnlega
útbúnir eftir verkefnum og því mis-
dýrir af þeim sökum og hitt að toll-
flokkun ræðst af því hver kaupir og
rekur og í hvaða skyni. En sem dæmi
má nefna að sendibíll á 31 tommu
dekkjum kostar 6,5 milljónir með
virðisaukaskatti, sé bíllinn tekinn
sem 9 manna fólksbíll er verðið um 8
milljónir með vsk. og 18 sæta full-
innréttaður rútubíll kostar um 7,5
milljónir og hefur þá verið tekið tillit
til þess hluta virðisaukaskatts sem
fæst endurgreiddur. Nánari upplýs-
ingar um verðdæmi er best að fá með
því að leggja dæmi um bíl og búnað
fyrir sölumenn atvinnubíladeildar
Ræsis.
Í dag leggja sölumenn Ræsis upp í
kynningarferð með bílana tvo. Verða
þeir m.a. sýndir á Akureyri og síðan
haldið áfram um Austurland og Suð-
urland.
Morgunblaðið/jt
Aldrifsbílarnir MANTRA 4x4 verða kynntir víða um land um og eftir helgina.
Ræsir kynn-
ir nýjan
vinnuþjark
MANTRA 4x4 er nýtt vörumerki sem verið er að kynna hér-
lendis um þessar mundir. Eru það breyttir aldrifsbílar af
gerðinni Mercedes Benz Sprinter sem Ræsir flytur inn frá
Austurríki. Jóhannes Tómasson kynnti sér þessa nýjung.
joto@mbl.is
Framfjöðrunin er slaglöng og með
gormum sem gerir bílinn mjúkan.
Með driflæsingum getur Mantra seiglast yfir skurði og lænur þótt eitt eða fleiri hjól séu á lofti.
Mælaborð er ágætlega úr garði gert og framsætin eru bæði með góðum still-
ingum. Þau eru einnig fjaðrandi sem er góður kostur í slíkum bíl.