Morgunblaðið - 12.08.2005, Qupperneq 6
6 B FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
ÍTALSKIR bílar höfða til margra.
Það er leitun að jafn sportlegri ytri
hönnun og í ítölskum bílum, nánast
sama hvað þeir heita. Hvert manns-
barn þekkir Ferrari, Maserati og
Lamborghini, sem eru hinar eig-
inlegu táknmyndir fyrir sportbíla.
Alfa Romeo er eitt af þessum sport-
legu merkjum. Fyrirtækið er í eigu
Fiat og á sér talsvert langa sögu.
Það hefur farið í gegnum hæðir og
lægðir. 156 bíllinn þótti strax
skemmtilega öðruvísi í útliti og
akstri og seldist bara nokkuð vel
hér á landi þegar hann kom fyrst á
markað. Ekki var honum síður tek-
ið í Evrópu þar sem hann var val-
inn bíll ársins. En gæðavandamál
hafa fylgt þessum bíl, einkum tíma-
reimavandamál, en nú er von á arf-
takanum, 159, næsta haust og hann
verður með tímakeðju og þar með
er það vandamál úr sögunni. En
ætlunin var ekki að fjalla um 156
heldur Alfa Romeo Crosswagon
sem þó er byggður á sama grunni
og 156.
Langbakur og jepplingur
Langbaksgerðin af 156 kallast
Sportwagon. Crosswagon er síðan
blendingur af langbak og jeppling
og samt allt öðruvísi bíll en
Sportwagon. Fyrir það fyrsta er
hann með 1,9 lítra dísilvél, með sí-
tengdu fjórhjóladrifi og talsvert
meiri veghæð en venjulegur 156.
Crosswagon er óvenjulegur bíll frá
Alfa Romeo, sem hefur yfirleitt ver-
ið tengdur við sportbíla. Crosswag-
on nálgast það hins vegar mjög
mikið að vera jepplingur og ætti af
þeim sökum að vera eftirtektar-
verður kostur fyrir Íslendinga, sem
þurfa að komast leiðar sinnar, sama
hvernig færðin er.
Sídrif og aflmikil dísilvél
Fiat og Alfa Romeo-umboðið á
Malarhöfða hefur fengið fyrsta
Crosswagon og hann var prófaður í
síðustu viku. Hann vekur athygli á
götunum þessi bíll, enda með
grimman framenda, hlífðarpönnur
að framan og aftan og laglegar og
sportlegar hliðarlínur. Menn og
konur snúa sér við þar sem hann
siglir áfram með sínu hálfgildings
hlaðbakslagi á 17 tommu álfelgun-
um. Þá er hann með toppgrind-
arboga úr áli og á hleranum stend-
ur Crosswagon og Q4. Það
síðastnefnda er heiti Alfa á sí-
tengdu fjórhjóladrifinu.
Fiat-samstæðan hefur ávallt boð-
ið upp á skemmtilegar dísilvélar.
Nýja 1,9 lítra vélin í Crosswagon
var þróuð í samstarfi GM og Fiat
og er notuð m.a. í Opel Vectra og
Astra og Saab 9-3. Hún verður
einnig í boði í nýjum Alfa 159.
Í Crosswagon skilar vélin 150
hestöflum og togið er uppgefið 305
Nm við 2.000 snúninga á mínútu.
Þetta er aflmikil vél sem skilar bíln-
um úr kyrrstöðu í 100 km hraða á
10,2 sekúndum, sem er fullboðlegt
fyrir hvaða dísilbíl sem er. Það sem
er skemmtilegast við þessa vél er
hvað vinnslan er mikil á breiðum
vélarsnúningi. Þannig er bíllinn
þægilegur viðureignar úti á vegum
þegar nauðsynlegt er að taka fram
úr á sem skemmstum tíma án þess
þurfa mikið að skipta um gíra.
Crosswagon kemur með sex gíra
beinskiptum kassa. Vélin togar
mikið alveg frá 1.700 snúningum og
upp í 4.000 snúninga og á 100 km
hraða snýst vélin á 2.000 snúning-
um í sjötta gír. Þeir sem hafa vanist
Alfa 156 bensínbílunum eiga eftir
að verða undrandi á þessu mikla
togi.
Það er líka kostur við þessa vél
að hún er fremur lágvær og eyðslan
á þjóðvegahraða ætti ekki að hræða
neinn frá, í þessari gríðarlegu olíu-
dýrtíð sem nú ríkir. Það versta er
að ríkisstjórninni tókst að klúðra
þeim þjóðarhagsmunum sem hefðu
getað falist í upptöku olíugjaldsins
með einmitt alltof háu olíugjaldi og
þar að auki virðisaukaskatti í of-
análag. Dísilbílar eru því orðnir
rándýrir í rekstri, rétt eins og bens-
ínbílar.
Átak flyst milli fram- og afturhjóla
Crosswagon er stöðugur á vegi
með sínu fjórhjóladrifi sem, eins og
fyrr segir, kallast Q4. Q4 stendur
auðvitað fyrir quattro, sem á ítölsku
þýðir fjórir – sem sagt fjórhjóladrif-
inn, og er sama orð og Audi notar
yfir sitt fjórhjóladrif. Kerfið byggist
á svokölluðu Torsen C mismuna-
drifi sem leitast við að deila átakinu
til allra hjóla. 57% átaksins fer til
afturhjólanna og 43% til framhjól-
anna. En kerfið getur flutt meira af
átakinu til afturhjólanna, eins og
t.d. við undirstýringu þegar allt að
78% átaksins flyst á afturhjólin. Við
yfirstýringu flytjast hins vegar allt
að 72% átaksins á framhjólin. Þar
fyrir utan er Crosswagon líka með
rafeindastýrða stöðugleikastýringu
og spólvörn. Ef þrýst er á hnapp í
mælaborðinu er hægt að aftengja
spólvörnina en stöðugleikastýringin
helst inni. Þetta er góður kostur,
ekki síst ef menn lenda í því að
keyra inn í snjóskafl og hálffesta
bílinn.
Að sjálfsögðu gafst ekki kostur á
að prófa bílinn í snjó en farið var
með hann á grófan malarveg.
Óhætt er að segja að bíllinn kom
undirrituðum skemmtilega á óvart
fyrir mikinn stöðugleika. Þess má
líka geta að veghæðin er 6,5 cm
meiri í Crosswagon en Sportwagon
og ætti því að vera hægt að bjóða
bílnum upp á ýmislegt misjafnt.
Crosswagon með 1,9 l dísilvélinni
og sex gíra handskiptingu kostar í
grunngerðinni 3.789.000 kr. Meðal
staðalbúnaðar er 17 tommu álfelg-
ur, þakbogar úr áli, tvískipt loftkæl-
ing, skriðstilling, spólvörn og stöð-
ugleikastýring og álpetalar svo
eitthvað sé nefnt. Í prófunarbílnum
var ýmislegur aukabúnaður, eins og
t.d. leðurklæðning á sætum, Bose-
hljómkerfi, fjölrofastýri og hiti í
sætum og þá er verðið komið upp í
4.139.000 kr.
Vél: 4 strokka dísilvél,
1.910 rúmsentimetrar.
Afl: 150 hestöfl við 4.000
snúninga á mínútu.
Tog: 305 Nm við 2.000
snúninga á mínútu.
Gírkassi: Sex gíra hand-
skiptur.
Drif: Sítengt fjórhjóladrif.
Hröðun: 10,5 sekúndur úr
kyrrstöðu í 100 km/klst.
Hámarkshraði: 192 km/
klst.
Eyðsla: 7,1 lítri á hundr-
aðið í blönduðum akstri
(skv. framleiðanda).
Eigin þyngd: 1.605 kg.
Lengd: 4.441 mm.
Breidd: 1.765 mm.
Hæð: 1.497 mm.
Dráttargeta: 1.450 kg.
Dekk: 225/55 17.
Verð: 3.784.000 kr.
(grunnverð).
Umboð: Fiat-Alfa Romeo-
umboðið, Malarhöfða.
Alfa Romeo
Crosswagon
Morgunblaðið/Þorkell
Meiri veghæð og álpönnur að framan og aftan gera Crosswagon verklegan.
Alfa Romeo með
jepplingagen
gugu@mbl.is
REYNSLUAKSTUR
Alfa Romeo Crosswagon
eftir Guðjón Guðmundsson
Morgunblaðið/Þorkell
Crosswagon kostar frá 3.784.000 kr.
Rennilegar línur eru í Crosswagon.
Morgunblaðið/Þorkell
Morgunblaðið/Þorkell
Sex gíra handskipting er staðal-
búnaður.
Morgunblaðið/Þorkell
Ál og leður — prófunarbíllinn var með ýmsum aukabúnaði.