Morgunblaðið - 12.08.2005, Side 12

Morgunblaðið - 12.08.2005, Side 12
12 B FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ bílar EINS og títt er um flesta aðra franska bíla eru mýkt og ýmis þæg- indi einkennandi Citroën C5, þann meðalstóra í Citroën-línunni. C5 er fimm manna þokkalega vænn bíll rennilegur og laglega hannaður. Prófaður var bíll með 1,6 lítra dís- ilvél sem er 110 hestöfl og dugar ágætlega vel. Verðið á slíkum bíl með fimm gíra handskiptingu er 2.370.000 krónur. Ekki er ýkja langt síðan Citroën C5 kom á markað og er hann einnig fáanlegur með bensínvélum sem þegar hefur verið gerð grein fyrir hér. Eins og fyrr segir er C5 lag- legasti gripur. Framendinn er vænn og mikill með nokkuð fínlegri vatns- kassahlíf og luktum, hliðarnar ával- ar með brotlínum sem setja alltaf ákveðinn svip á bílana og afturend- inn nokkuð stuttur nema hvað að innan kemur skottrýmið á óvart þegar lokið er opnað. Á bogadregn- um afturendanum eru luktirnar mest áberandi. Frönsku sætin söm við sig Mýktin og þægindin koma ekki síst í ljós þegar sest er inn. Fransk- ir bílaframleiðendur leggja mikið uppúr góðum sætum, nánast hæg- indum, og í C5 eru þau öll með þeim formerkjum. Hægt er að stilla bílstjórasætið eins og hver vill, fram og aftur, halla á setu og baki og mjóbaksstuðning. Allt á þetta þátt í að gera bílinn sem bestan úr garði fyrir alla meðhöndlun og víst er að aksturinn verður á vissan hátt afslappaðri og notalegri þegar vel er búið að ökumanni. Það er kannski aldrei of brýnt fyrir öku- mönnum, ekki síst þegar þeir eign- ast nýjan bíl, að taka góðan tíma til að prófa sig áfram, nota stilling- arnar á sæti og stýri og fara nokkr- ar ökuferðir til að finna eðlilegustu stöðuna fyrir sig. Þegar menn kunna þannig orðið vel á allt það innra í bílnum er minni hætta á ax- arsköftum þegar ekið er út í um- ferðina. Mælaborðið er hefðbundið og engin sérstök framúrstefna í fram- setningu. Lítill upplýsingagluggi er ofan á mælaborðshillunni og þar má lesa hvaðeina er varðar meðalhraða og eyðslu, útihita og útvarpsstilling- arnar. Við stýrið eru stefnuljósa-, ljósa- og þurrkurofar og á þriðja arminum eru aukreitis útvarpsstill- ingar. Á miðjubrettinu eru síðan rofar fyrir útvarp og miðstöðina sem er tölvustýrð og með loftkæl- ingu. Rétt er að taka tíma til að setja sig inní þau vísindi og mögu- leika sem bæði miðstöðin og útvarp- ið með geislaspilara eru og óvarlegt að fikta mikið í þessu á ferð einsog ökumenn gera sér grein fyrir. Sjálfvirkar þurrkur Skemmtilegur möguleiki er skyn- væddur þurrkurofinn. Þegar dropar taka að falla er nóg að setja þurrk- urnar af stað á „letingjann“ og auk- ist rigningin rjúka þurrkurnar af stað eins og þurfa þykir og hægja síðan á sér í takt við úrkomuna. Er þetta næsta fyndið kerfi og ekki laust við að það minni á ákveðna franska bíómynd Jaques Tati þar sem hann gerði stólpagrín að tækni og umferðarmenningu. Búnaður er ríkulegur í C5 og má þar helst nefna af öryggisatriðum stöðugleikastýringu, hemlajöfnun og neyðarhemlunarbúnað. Þá eru í bílnum sjö loftpúðar, tveir á hefð- bundnum stöðum, tveir í hliðum sæta og tvær loftpúðagardínur. Sjö- undi púðinn sem er undir stýrinu á sérstaklega að verja hné ökumanns. Bíllinn er búinn tölvustýrðu vökva- fjöðrunarkerfi með þremur veg- hæðarstillingum og hægt er einnig að stilla fjöðrunina á „sport“ til að fá viðbrögð sem hæfa betur ef menn vilja nýta aksturseiginleikana til hins ýtrasta. Þá má nefna útvarp og geislaspil- ara og eru hátalarar sex, speglar eru með rafknúinni stillingu, sam- læsing er fjarstýrð og rúðuvindur rafdrifnar. Einnig er í bílnum akst- urstölva sem eins og fyrr segir greinir frá ýmsum upplýsingum varðandi meðhöndlun bílsins. Góð vinnsla Dísilvélin er 1,6 lítrar, fjögurra strokka, 16 ventla og 110 hestöfl og bíllinn er búinn fimm gíra hand- skiptingu. Sjálfskipting er í boði sé valin stærri dísilvél, 2,2 lítrar og 186 hestöfl. Í þessum bíl fer dís- ilvélin langt með að uppfylla allar óskir ökumannsins og þótt bíllinn sé ekki nein raketta í viðbragði er það samt sem áður fullgott. Er skipt- ingin það liðleg að lítill vandi er að ná út úr vélinni því sem þarf til að fá góða spyrnu og sömuleiðis er vinnslan ágæt þegar komið er út á þjóðveg. Varla þarf að fjölyrða um mýkt- ina í fjöðruninni því C5 líður yfir ójöfnur á grófum malarvegi sem dældótt malbik eins og töfrateppi. Ekki þarf að óttast óvænt hliðar- stökk þrátt fyrir holuraðir á mal- arvegi og þannig má segja að bíllinn fari mjög örugglega og fótvisst yfir hvers kyns veg sem vera skal. Mikið í hann spunnið Citroën C5 er í alla staði heilmik- ill bíll og mikið í hann spunnið. Verðið, 2.370.000 krónur, er nokkuð eðlilegt og fyrir það er í boði rúm- góður fimm manna bíll sem er þægilegur viðskiptis í þéttbýlinu, mjúkur og notalegur í ferðalögum og ekki skemmir útlitið fyrir. Morgunblaðið/Sverrir Morgunblaðið/Sverrir Fimm gíra handskiptingin er sérlega liðug og þægileg. Morgunblaðið/Sverrir Sætin fá alltaf góða einkunn í frönsk- um bílum og Citroën er þar engin undantekning. Mýktin söm við sig í Citroën C5 REYNSLUAKSTUR Citroën C5 eftir Jóhannes Tómasson joto@mbl.is Morgunblaðið/Sverrir Afturendinn er snyrtilegur. Mælar eru skýrir og góðir og yfirleitt er öll framsetning á rofum og hnöppum með besta móti. Morgunblaðið/Sverrir Vél: 1,6 lítrar, 4 strokkar 16 ventlar. Afl: 110 hestöfl v. 4.000 sn.. Tog: 240 Nm v. 1.750 sn. Lengd: 4.745 mm. Breidd: 1.780 mm. Hæð: 1.475 mm. Hjólahaf: 2.750 mm. Þyngd: 1.425 kg. Hröðun: 11,3 sek. í 100 km/klst. Eyðsla: 5,4 l/100 km í blönduðum akstri. Verð: 2.370.000 kr. Umboð: Brimborg. Citroën C5

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.