Morgunblaðið - 12.08.2005, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 12.08.2005, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2005 B 13 bílar Söluumboð: Bílás sf., Akranesi - BSA, Akureyri - Betri bílasalan, Selfossi - SG Bílar, Reykjanesbæ 1.720.000 kr. Komdu,reynsluaktu og gerðu verðsamanburð. Gæðin eru augljós. H im in n o g h a f / SÍ A Mazda er japanskur bíll, framleiddur í Japan sem vermir nú toppsætið samkvæmt stærstu gæðakönnun Evrópu og skarar fram úr hvað varðar endingu og lága bilanatíðni. Aukahlutir á mynd: álfelgur Mazda3 T 5 dyra 1,6 l kostar aðeins Opið frá kl. 12-16 laugardaga Mazda 3 fullkominn ferðafélagi Mazda3 4 dyra 1.6 l ÞAÐ er viðurkennd staðreynd að akstur vélknúinna ökutækja mengar; mest vegna koltvísýringslosunar með útblæstri. Flestir hugsa sem svo að það sé annarra en okkar öku- mannanna að finna leiðir til að draga úr þessari mengun og því bíðum við þolinmóð eftir tæknilausn í formi hreinni bruna eða öðruvísi eldsneytis sem mun frelsa okkur frá þeirri iðju að menga andrúmsloftið. Svo stynj- um við líka þungan undan hverri bensínverðshækkuninni á fætur ann- arri og forðumst jafnvel að taka sam- an hversu miklu fé við verjum til eldsneytiskaupa. En getum við virki- lega ekki gert neitt í málunum sjálf? Tíðindamaður bílablaðsins sótti nýlega námskeið í vistakstri sem ökukennararnir Grétar H. Guð- mundsson og Sigurður Steinsson bjóða fyrirtækum og einstaklingum. Námskeiðið er finnskt að uppruna og byggjast leiðbeiningarnar sem þátt- takendur fá á niðurstöðum rann- sókna. Sparnaður og minni mengun Markmið námskeiðsins er einkum tvíþætt: Í fyrsta lagi að draga úr los- un mengandi efna við akstur og í öðru lagi að spara fé með því að haga akstri þannig að ökutækin brenni minna eldsneyti. Sé þessum mark- miðum náð hafa þau reyndar aðrar jákvæðar afleiðingar eins og minna slit á ökutækjum, sérstaklega heml- um. Er það ætlan þeirra Grétars og Sigurðar að þátttakendur öðlist metnað til að skipuleggja akstur þannig að hegðun þeirra dragi úr mengun og fjáraustri til eldsneytis- kaupa, auk þess að stuðla að auknu umferðaröryggi. Námskeiðið skiptist í verklegan og bóklegan hluta. Í verklega hlutanum ekur hver þátttakandi sömu vega- lengdina um sömu göturnar tvisvar sinnum. Í fyrri umferðinni situr þátt- takandinn undir stýri og ekur á eins sparneytinn hátt og hann telur sér unnt miðað við eigin þekkingu og reynslu. Í þessari umferð skráir mjög nákvæm aksturstölva allt akst- urslag þátttakandans, meira að segja er tíminn sem bíllinn er í lausagangi og kyrrstöðu skráður upp á sekúndu. Að fyrri ferðinni lokinni fær þátt- takandinn að vita hvaða þættir end- urspegluðu hagkvæmni í akstri hans, auk þess að fá ráð um hvernig hann getur bætt aksturslag sitt til að nýta eldsneytið betur. Síðan er lagt í seinni ferðina og að henni lokinni er hægt að bera saman meðalhraða, meðaleyðslu og aksturstíma ferð- anna tveggja. Út frá þessum þremur höfuðtölum er svo reiknaður mis- munur sem yfirleitt leiðir í ljós minni eyðslu í seinni ferðinni. Þátttakendur geta svo fundið út hversu háar fjár- hæðir þeir geta sparað árlega með því að setja sparnaðinn í samhengi við árlegan akstur sinn. Munar um minna Í þessu sambandi er vert að geta þess að ekki er verið að kenna fólki að lúsast um á litlum hraða, enda getur slíkur akstur mengað töluvert. Það vakti til dæmis athygli tíðindamanns bílablaðsins að á námskeiðinu sem hann sótti varð meðal eldsneytis- sparnaður þátttakenda á milli ferða 11,50% þrátt fyrir að meðalaksturs- tími seinni ferðarinnar væri styttri miðað við fyrri ferðina. Tölur úr nám- skeiðum Grétars og Sigurðar sýna allt að 25% sparnað í eyðslu seinni ferðinni í hag en algengur sparnaður í lítrum er á bilinu 10–18%. Einstak- linga, svo ekki sé talað um stór fyr- irtæki og stofnanir, hlýtur að muna um slíkan sparnað enda geta þetta orðið allháar tölur á ársgrundvelli. Í bóklega hluta námskeiðsins eru gefnar raunhæfar leiðbeiningar um hvernig hægt sé að draga úr mengun við akstur. Til dæmis eru skýrðir tæknilegir þættir sem tengjast elds- neytissparnaði; efnasamsetningu út- blásturs; framkvæmd kaldræsingar; viðhaldi ökutækja sem dregur úr mengun; ólíkar aðferðir við hröðun bifreiða; áhrif gírnotkunar og hemla; hagkvæmt aksturslag og akreinaval; bílakaup og rekstrarkostnaður. Vaninn af ósiðunum Tíðindamaður blaðsins hefur ekið um vegi og götur þessa lands í ein 26 ár og hugsað eins og flestir að best væri að bíða eftir að vísindin finni lausn á mengandi útblæstri. Nám- skeiðið vakti hann hinsvegar til um- hugsunar enda kom í ljós að hann hafði tamið sér nokkra þá ósiði sem auka mengun og bensíneyðslu. Skýr útprentuð skilaboð frá aksturstölv- unni nákvæmu gerðu það að verkum að ekkert þýddi að þræta fyrir það. Það sem mest var um vert var að lítið hafði verið hugsað út í að þær tvær höfuðtegundir eldsneytiskerfa sem verið hafa í bifreiðum til þessa; blöndungurinn og beina innspýting- in, krefjast ólíkrar hegðunar öku- mannsins til að nýta eldsneytið sem best. Margir sem komnir eru yfir miðjan aldur aka um á nýjum bílum með beinni innspýtingu en haga akstrinum eins og ökutækið sé útbú- ið blöndungi. Vænlegur vistakstur Með vistakstri má bæði draga úr mengun og eins spara fé, sem getur reynst töluverð upphæð á ári líkt og Ragnar S. Ragnarsson komst að. Morgunblaðið/Árni Torfason Ökukennararnir Grétar H. Guðmundsson og Sigurður Steinsson bjóða upp á námskeið í vistakstri sem þeir segja að geti sparað ökumönnum talsvert fé. Með bættu aksturslagi má bæði draga úr losun mengandi efna við akstur og eins spara fé með því að haga akstrinum þannig að ökutækin brenni minna. Aksturstölvan skráir aksturslag þátttakandans mjög nákvæmlega.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.