Morgunblaðið - 12.08.2005, Qupperneq 14
14 B FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
Bílasmáauglýsingar 569 1100
Bílar til sölu
TOYOTA 4RUNNER SR5 2005
Ek. 400 km! Sama grind, drif, vél og undir-
vagn og í Land Cruiser '90. Eyðsla aðeins
10-13 lítrar. Hraðast., DAC, VSC, HAC,
krókur o.m.fl. Verð aðeins 3,7 m. stgr.
Sími 820 1050.
VW GOLF COMFORTLINE 1,6
Árg. 1998, ek. 92 þús. km. Silfurgrár. fimm
dyra, fimm gíra, 1600cc. Verð 780 þús.
eða 700 þús. stgr. Mjög vel með farinn.
CD spilari, sumar- og nagladekk fylgja.
Upplýsingar í síma 659 5906.
VW ÁRG. '94 EK. 125 ÞÚS. KM
VW Golf CL til sölu, árgerð 1994, 1400 vél,
keyrður tæplega 125 þús., 3ja dyra, reglu-
lega smurður. Ásett verð 230.000. Uppl.
í síma 696 0426.
VOLKSWAGEN GOLF 1400 ÁRG. 2000
Nýskoðaður og mjög vel með farinn bíll.
Silfurgrár, ekinn 60.000 km. Aðeins einn
eigandi. Verðhugmynd 840.000 kr. Upplýs-
ingar í síma 864 3510 eða 899 1258.
SUZUKI SWIFT ÁRG. '97
Ekinn 92 þús. km, 1300 vél, fimm gíra,
skr. '06, rafmagn í rúðum og speglum, hiti
í sætum, loftpúði, útvarp, góð smurbók,
mjög sparneytinn, einn eigandi. Ásett
verð 390 þús. Tilboð 290 þús.
Upplýsingar í síma 661 8185.
NÝIR BÍLAR FRÁ KANADA
Á góðu verði. INFINITI G35, Fx35, M35.
NISSAN 350Z XTrail, Murano.
Sjáið fleiri bíla á vefsíðunni
www.autonet.ca/woodchesterinfiniti
Til þess að fá frekari upplýsingar eða til
panta bíl hafið samband við Drífu á netf-
anginu admin@ismotek.com eða í síma
1 905 820 4545.
NISSAN PATROL ´95. 2.8TDI
7 manna. 38" breyttur. Upptekin vél, ný
dekk, nýtt hedd, ný stærri túrbína, nýr
millikælir, yfirfarinn undirvagn, bremsur
o.fl. o.fl. Nýskoðaður og mikið endur-
nýjaður. Í toppstandi. Gott lakk, samlæs-
ingar, kastarar, álkassi, bakk-kastarar,
dráttarkrókur. Verð 1.550.000 eða
1.250.000 stgr. Upplýsingar hjá Toyota
í Keflavík, sími 421 4888.
NISSAN MICRA GX/LX TIL SÖLU
v. flutninga. Árg. '98. Ek. 117 þús. 1300
cc. 3ja dyra, beinskiptur. Samlæsing, CD
og álfelgur. Góður og sparneytinn bíll.
Verð 350 þús. Uppl. í s. 821 8989.
MERCEDES BENZ ML500 SPORT 2002
Gullfallegur bíll sem nýr. Hlaðinn búnaði:
32" ný dekk, Sportpakki, þægindapakki,
lúxuspakki, Bi-Xenon, Bose hljómt., 12
hát. Ek. 80 þ. V. 3.9 m. stgr. s. 847 2582.
HYUNDAI SANTA FE 10/2002
V6 sjálfskiptur, ekinn 30 þús. km
dráttarkúla. Toppbíll. Ath. skipti á ódýrari.
Verð 2.250.000. Upplýsingar í síma
690 2577.
FORD KA SKRD. 31.12.98 EK. 55 ÞÚS.
Neyslugrannur borgarbíll, vel með farinn.
Verð 430.000 stgr. Uppl. í síma 864 1362.
FORD FOCUS ÁRG. 2000 SILFURGRÁR
Station. Ekinn 79 þús. km. Sk. '06. Bein-
skiptur. Dráttarkrókur. Góður bíll. Verð
890 þús. Upplýsingar í síma 866 3836.
FORD FIESTA ÁRG. 1999
Ek. 94.000. Nýskoðaður. Verð 380.000.
Uppl. í síma 660 8412.
FORD F 350, ÁRGERÐ 2005
Ekinn 4.500 km.
Einnig Nissan Patrol, árgerð 1999,
breyttur á 38" dekkjum
og Alfa Romeo 156, árgerð 2000.
Uppl. í símum 893 4595 og 567 2716.
DRAUMAEINTAK AF FORD VAN E 150
Árg '92, ek. 98 þús. mílur, 4,9 L bensín,
ABS, Cruise control, Rafm. í rúðum,
speglum og hurðum. Splittað drif, kapt-
ein-stólar, dráttarbeisli. Verð 800 þús.
Uppl. í síma 482 1011 eða 695 3033.
DODGE GRAND CARAVAN 2005
7 manna lúxusbíll með 4 captainsætum
og bekk aftast. Ekinn 30 þús. km. Verð
2.790.000. Uppl. í s. 843 4972 / 431 2440.
ÁRG. '95 EK. 120 ÞÚS. KM
WV Golf CL árg '95, fimm gíra, beinsk.,
1.4 l vél. Sami eigandi frá upphafi, smur-
bók. Vel við haldið. Skipt um tímareim í
117 þús. km. Vetrardekk á felgum, tjón-
laus, krókur. Upplýsingar í síma 864 1362.
AUDI A4 2.0 ÁRG. '02 EK. 46 ÞÚS. KM.
Audi A4 2.0, skrd. 04/2002, ek. 46 þkm.
Álfelgur og vetrardekk á felgum. Þjón-
ustubók. Gott eintak. Verð 1.890.000 stgr.
Upplýsingar í síma 860 8605.
Jeppar
RANGE ROVER 4.6, ÁRGERÐ 2000
Ekinn 140 þús. km. Dökkblár. Gullfallegur
með öllu. Verð 450 þús. út og yfirtaka á
bílaláni. Til sölu og sýnis hjá Bílasölu
Reykjavíkur. Uppl. í síma 867 4418.
FORD ESCAPE V6 03/05
Ford Escape V6 2005. Ekinn aðeins 9 þús.
km, 3000 cc. Leðursæti og topplúga. Sexf.
CD, dökkar rúður. Glæsilegur bíll sem nýr.
Verð aðeins 2.850.000 stgr. S. 821 2066.
Bílar óskast
Óska eftir Econoline 4x4 í skiptum fyrir
þrjá bíla. Þ.e.: Patrol '91 upphækkaður
fyrir 38" en er á 35", nýupptekið hedd, 3ja
raða nýr vatnskassi, ný kúpling, læstur;
Hyundai Sonata '95; Mazda '88 sendibíll
4x4, ekinn 147.000 km gott kram, fullt af
aukahlutum.
Upplýsingar í síma 697 7766.
FYRSTA sending af bílum frá
Honda sem framleiddir eru í Kína
eru senn væntanlegir á markað í
Evrópu. Verða það 150 Honda
Jazz-fólksbílar.
Honda í Kína hóf framleiðslu
Jazz-bíla í apríl á þessu ári og er
stefnt að því að framleiða um tíu
þúsund bíla í ár. Ráðgert er að
senda þá alla á markað í Evrópu
og verða þeir seldir gegnum
Honda-umboð í hverju landi.
Kínverskir Honda-bílar til Evrópu
HONDA hefur tilkynnt að hætt
verði að framleiða sportbílinn
NSX en hann hefur verið á
markaði víða um heim. Unnið er
að þróun arftakans.
Hætta á framleiðslu á NSX
fyrir markaði í Evrópu í sept-
ember en hann verður boðinn í
Ameríku fram undir áramót.
NSX kom fyrst fram á sjónar-
sviðið árið 1990 og var með yf-
irbyggingu úr áli.
Honda hættir með NSX
SALA á bílum frá Kia hefur aukist
mjög milli ára í Evrópu og sé álfan
tekin í heild nemur salan 160 þúsund
bílum sem þýðir að aukningin er 61%
frá sama tíma í fyrra. Hérlendis er
aukningin enn meiri og hefur salan
sexfaldast, var orðin um 400 bílar í
lok júlí. Segir Sigurður P. Sigfússon,
sölustjóri Kia, að eftirspurnin hér-
lendis hafi ekki síst verið mikil eftir
jeppunum, Sportage og Sorrento.
Alls seldust um 24 þúsund bílar af
gerðunum Picanto, Sorrento, Sport-
age og Cerato í Evrópu í júlí. Kia var
stofnað árið 1994 og er elsti bíla-
framleiðandi Suður-Kóreu. Er fyrir-
tækið sem kunnugt er hluti af Hyund-
ai-Kia Automotive Group og rekur
fyrirtækið 16 framleiðslu- og sam-
setningarverksmiðjur í 13 löndum.
Mikil söluaukning
hjá Kia
JEAN Martin Folz, forstjóri PSA
Peugeot Citroën, og Takashi Nish-
ioka, forstjóri Mitsubishi Motors,
hafa skrifað undir samkomulag um
smíði nýs fjórhjóladrifsjepplings
sem væntanlegur er árið 2007. Er
greint frá þessu á vefsíðu Citroën-
umboðsins Brimborgar.
Samningurinn gerir ráð fyrir
smíði bílsins í Japan og að notaðar
verði m.a nýjustu hátækni HDI-dís-
ilvélar frá Citroën-Peugeot. Bílarnir,
sem allir verða með sínu útliti fyrir
hvern framleiðanda, verða fyrst og
fremst ætlaðir á Evrópumarkað en
síðar er gert ráð fyrir sölu í öðrum
heimsálfum. Í fréttatilkynningu
framleiðendanna segir að hér sé að-
eins um fyrsta skref að ræða í frek-
ari samvinnu fyrirtækjanna.
Citroën með nýjan
fjórhjóladrifsbíl
HUGSANLEGT er að Volvo í Am-
eríku þurfi að innkalla allt að 266 þús-
und bíla af nokkrum gerðum fólksbíla
sem smíðaðir voru á árunum 1999 til
2001. Eru þeir af gerðunum C70, S60,
S70, S80, V70 og V70CX. Alls hefur
fyrirtækið selt um 860 þúsund bíla af
þessum gerðum. Fram hafa komið
136 kvartanir í Ameríku vegna gang-
truflana í bílunum og í einu tilviki hef-
ur það leitt til slyss.
Þetta kemur fram hjá norska
blaðinu Aftenposten og segir þar
einnig að truflanirnar séu í rafeinda-
stýrðri bensíngjöf, þ.e. þar sem
stjórnað er loftinntaki á hreyfilinn.
Þessi tækni hafi ekki virkað sem
skyldi og íhugi samgönguyfirvöld í
Ameríku að láta innkalla bíla af þess-
ari gerð. Þá kemur fram í Jótlands-
póstinum að það geti kostað sem svar-
ar 60 þúsund ísl. krónum að spora
uppi eigendur, útvega varahluti og
gera við.
Upplýsingafulltrúi Volvo í Noregi
segir að þessi vandi hafi komið upp
þar í landi en í litlum mæli. Umfangið
geti verið meira í Ameríku þar sem
strangari kröfur séu vegna útblást-
urs. Hann segir ekki hafa verið nein
óhöpp í Noregi vegna málsins.
Ekki tókst vegna sumarleyfa hjá
Brimborg að fá upplýsingar um hvort
þessi vandi steðjaði að bílum sem hér
hafa verið seldir.
Bílar frá Volvo
hugsanlega
innkallaðir