Morgunblaðið - 12.08.2005, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 12.08.2005, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2005 B 15 bílar HÁ MA RKS GÆ ‹I Á F RÁ BÆ RU VER ‹I! REYKJAVÍK · HAFNARFIR‹I · AKUREYRI · REY‹ARFIR‹I · EGILSSTÖ‹UM AUTOMAN LOFTPRESSUR 580 80 80 Vilt þú auglýsa! Þetta svæði er laust núna hringdu í síma midlun@midlun.is MANTRA 4x4 á ferð um landið Föstudagur 12.8 Reykjavík, Blönduós, Sauðárkrókur Laugardagur 13.8 Akureyri Sunnudagur 14.8 Egilsstaðir, Reyðarfjörður Mánudagur 15.8 Fáskrúðsfjörður, Stöðvarfjörður, Djúpavogur, Höfn Þriðjudagur 16.8 Höfn, Kirkjubæjarklaustur, Vík Nánari upplýsingar um staðsetningu og tímaáætlun bílanna í símum 825 5451 og 825 5452. RÆSIR HF. sími 540 5400 FIAT-verksmiðjurnar hafa í hyggju að bjóða Fiat 500 á ný og á hann að koma í stað smábílsins Seicento seint á árinu 2007. Ef- laust muna margir eftir Fiat 500 sem er sagður hafa lagt grunn að samgöngum á Ítalíu þegar hann kom fram á sjónarsviðið árið 1957. Nýi Fiat 500-bíllinn verður byggður á hugmynd- inni um Trepiuno 3+1 sem sýndur var í Genf í fyrra. Verður hann fjögurra sæta og þriggja dyra bíll og um það bil 3,3 m langur. Ráðgert er að smíða um 100 þúsund bíla á ári og verður byggt á styttri gerð Panda-grunnsins. Fram- leiðslan fer fram í verksmiðju Fiat í Tychy í Póllandi þar sem Seicento og Panda eru nú smíðaðir. Segja talsmenn Fiat að lágur launakostn- aður þar geri það m.a. að verkum að unnt sé að framleiða þennan smábíl þar með hagnaði. Vélin verður þúsund rúmsentimetrar og bíllinn verður framhjóladrifinn. Gamli Fiat 500 var með 479 rúmsentimetra og 13 hestafla vél og afturdrifinn. Fiat 500 á ný ALÞJÓÐLEGA bílasýningin í Frankfurt hefst um miðjan sept- ember og verður hún opin blaðamönnum dagana 12. til 14. sept- ember. Frankfurtarsýningin er jafnan viðamikil og þar kynna ekki síst hinir evrópsku framleiðendur nýjungar sínar og verður þar ým- islegt í boði í ár. Evrópuútgáfa vikuritsins Automotive News greinir frá nokkrum áhugaverðum gripum sem þar verða og er stiklað á stóru um nokkra þeirra. Af þýsku framleiðendunum má nefna að sýndur verður Audi Q7- lúxusjeppinn sem er stillt upp við hlið Volkswagen Touareg og Porsche Cayenne en hann er ívið lengri og sjö manna. Þá verður unnt að sjá nýjan S-línu Mercedes Benz sem orðinn er stærri og breiðari en fyrirrennarinn og verður hann hlaðinn hvers kyns ör- yggisbúnaði. Volvo og hinn ítalski Pininfarina taka höndum saman um endur- nýjaðan C70-blæjubíl sem raunar er ekki með neinni blæju eða dulu heldur málmþaki sem svipta má frá. Þá verður Yaris boðinn í nýjum búningi, örlítið stærri og boðinn þrennra eða fimm dyra. Hætt verður við skutbílsútgáfuna, Yaris Verso. Cadillac BLS er stefnt í samkeppni við BMW, Mercedes Benz og Lexus en hann verður smíðaður hjá Saab-verksmiðjunum í Troll- hättan í Svíþjóð. Segir blaðið að nú verði Evrópa að fara að vara sig því nú sé Cadillac loksins farinn að skipta einhverju máli á þeim markaði. Af enn öðrum bílum má nefna hinn mjög svo straumlínulagaða Peugeot 407, Jaguar Daimler og Honda Civic sem var hugmyndabíll í Genf er er nú kominn í búning til að fara á markað. Margt áhugavert í Frankfurt Peugeot 407. Volvo C70. Cadillac BLS. Jaguar Daimler.S-línan frá Mercedes Benz.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.