Morgunblaðið - 12.08.2005, Qupperneq 16
16 B FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
K
appakstursklúbbur Akur-
eyrar hefur byggt upp
skemmtilegt og vel útbú-
ið æfinga- og keppnis-
svæði fyrir torfæruhjól í
Hlíðarfjalli ofan Akureyrar. Braut-
in er frekar hörð og krappar
beygjur á milli þröngra stökkpalla
gera hana tæknilega krefjandi.
Hart barist í unglingaflokki
Unglingaflokkur og kvenna-
flokkur óku fyrst af stað. Steinar
Aronsson sigraði í 85 rúmsentí-
metra flokki og Karen Arnardóttir
sigraði í kvennaflokki. Í 125 rúm-
sentímetra flokki börðust þeir Ar-
on Ómarsson og Hjálmar Jónsson,
en þeir hafa mikla yfirburði í
flokknum og hafa slegist um fyrsta
sætið í allt sumar. Hjálmar Jóns-
son hafði betur á Akureyri en Ar-
on fylgdi fast á eftir og hafnaði í
öðru sæti. Hjálmar er efstur að
stigum til Íslandsmeistara í þess-
um flokki en Aron hefur enn
möguleika á titlinum.
Breski ökuþórinn Ed Bradley á
KTM ók hraðast allra í brautinni
og hafði töluverða yfirburði.
Honda-ökumaðurinn Ragnar Ingi
Stefánsson hefur titil að verja og
barðist af hörku við Einar Sverri
Sigurðarson á KTM sem leiðir Ís-
landsmótið að stigum. Ragnar ók
þétt og flaug fallega fram af brött-
um stökkpöllum, en þreyta í fram-
handleggjum gerði honum erfitt
fyrir. Einar lagði allt undir og náði
að halda Ragnari fyrir aftan sig,
þótt bilið á milli þeirra væri sjald-
an meira en hjóllengd. Þegar ein-
ungis tveir hringir voru eftir lenti
Ed í vélarbilun og varð að hætta
keppni. Einar náði þar með að
krækja í fyrsta sætið í keppninni,
Ragnar lenti í öðru sæti og Kári
Jónsson á TM hafnaði í þriðja
sæti.
Allt opið fyrir síðustu
umferð á morgun
Úrslitin á Akureyri komu mörg-
um á óvart og hafa opnað ýmsa
möguleika fyrir síðustu umferð Ís-
landsmótsins í mótorkrossi. Einar
er í þægilegri stöðu, en þarf að
lenda í öðru sæti til að vera örugg-
ur um Íslandsmeistaratitilinn. Ein-
ar slasaði sig nýlega á fæti og
hugsanlegt er að hann geti ekki
keppt. Ragnar þarf klárlega á sigri
að halda og þá án þess að Einar
nái öðru sætinu. Kári Jónsson er
fræðilega inni í myndinni, en til
þess að hann hampi titli þurfa Ein-
ar og Raggi að lenda frekar aft-
arlega.
Það verður því gífurleg spenna í
loftinu þegar keppendur verða
ræstir í síðustu umferð, sem fram
fer í Sólbrekkubraut við Grinda-
víkurafleggjarann á morgun, laug-
ardaginn 13. ágúst.
Einar Sverrir átti besta startið en
Ragnar Ingi er þétt við hlið hans og
Kári Jónsson rétt fyrir aftan.
Þriðja umferð Íslandsmótsins í
mótorkrossi fór nýlega fram í
rjómablíðu á Akureyri. Bjarni
Bærings tók púlsinn á kepp-
endum og segir frá keppninni
sem var hin fjörlegasta.
Breski ökuþórinn Ed Bradley var yfirburðamaður í brautinni og langhraðastur
en vélarbilun kom í veg fyrir verðlaunasæti að þessu sinni.
Ljósmynd/Magnús Sveinsson
Einar Sverrir Sigurðarson svífur hér glæsilega í gegnum endamarkið en hann sigraði í keppninni.Háflug í brautinni sem þykir tæknilega erfið en svæðið er skemmtilegt og vel útbúið.
Einar stal senunni í mót-
orkrossinu á Akureyri