Morgunblaðið - 14.08.2005, Qupperneq 6
6 | 14.8.2005
S
íðsumarsstelpupartí, sem er árlegur viðburður
Flugu og fylgifiska hennar, var haldið með
miklum stæl nýverið. Þá eru karlmenn ekki vel-
komnir. Slegið var upp hvítu tjaldi í garðinum, logandi
kerti flutu um í vatnsfylltum glerskálum og bleikar
blöðrur blöktu í trjánum. Það er sko ,,dresskód“ í
þessu partíi; buxnadragtir eru bannaðar en hvatt er til
mætingar í kvenlegum kjólum, helst dálítið blúnduleg-
um og það er ,,möst“ að bera mikið skart. Og nota
massa mikinn eyeliner. Tónlistin er sambland af Tom
Jones, Frank Sinatra og að sjálfsögðu Abba-dísunum.
Hálfgert hinsegin kvöld okkar stelpnanna.
Eftir mikinn dans og söng í garðinum var bætt að-
eins á varalitinn og stefnan tekin á Miðbæinn. Það
voru stelpur í stuði sem mættu á frekar fúlan Vínbarinn en þar fengu
þær þó glös af eðalhvítvíni og skemmtu sér við að skoða viðstadda,
þeirra á meðal Sigurð Örlygsson myndlistarmann og Karl í Pelsinum
og frú hans, hina huggulegu Esther. Flugnagerið færði sig síðan um set
yfir á Thorvaldsen til þess að taka sporið. Þar dönsuðu þær sig sveittar
og á leiðinni út sáu þær Gunnlaug Briem tónlistarmann. Sætur. Næst
var ráðist inn á Rex en þar var dansgólfið litlu stærra en tölvukubbur,
alltof dimmt og tveir gæjar sofandi í sófanum.
Gay Pride gangan var mjög flott eins og reyndar alltaf. Einlæg gleði
og mikið fjör einkenndu þennan ómissandi viðburð í menningarlífi
okkar Reykvíkinga. Það var frábært að sjá Birnu Þórðardóttur ,,alt-
mugligtkonu“ njóta sín í botn í svörtu leðri með písk á lofti og óræðan
svip. Hommahnjúkavagninn svonefndi sló í gegn en virkjunarheilarnir
á bak við þá hugmynd voru Felix Bergsson leikari og eiginmaður hans
Baldur Þórhallsson. Á þessum vagni voru allir að sjálf-
sögðu klæddir vinnugöllum og báru öryggishjálma og
voru ótrúlega flottir! Minntu á hluta liðs-
manna Village People.
Nýlega opnaði heldur betur nytsamleg
og mögnuð verslun neðarlega á Vestur-
götunni en hún ber hið virðulega heiti:
Nornabúðin. Flugustelpa var að
spóka sig um á nýju leðurstígvélun-
um, liðka þau fyrir haustið, þegar hún
gekk fram á hina seiðandi og stór-
skemmtilegu búð. Skemmst er frá því
að segja að okkar kona heillaðist alveg
upp úr stígvélunum og drakk í sig allt
sem fyrir augu bar. Meðal þess sem fæst
í þessari sannkölluðu töfrabúllu er Fá-
vitafælan en það er verndargaldur fyrir
fólk sem verður ástfangið af tilfinninga-
legum fávitum. Alveg tilvalin tækifær-
isgjöf í vinkonuhópnum.
Skelfileg en jafnframt nýstárleg þjófa-
vörn nornastelpnanna blasir við á hurðinni:
,,Nornabúðin er varin með öflugum þjófa-
galdri“. Þjófnaði verður svarað með bölvunum
og hefndarseið. Eins gott að hnupla ekki einu
sinni reykelsi, gæti haft dulúðugar afleiðingar í
för með sér … | flugan@mbl.is
L
jó
sm
yn
di
r:
E
gg
er
t
Hinsegin kvöld hjá Abba-dísum
… það er verndargaldur fyrir fólk sem verður ástfangið af tilfinningalegum fávitum …
FLUGAN
Herbjörn Þórðarson
og Valgerður
Guðnadóttir.
María Elísabet Steinarsdóttir
og Styrmir B. Kristjánsson.
Sigurður Guðmundsson, Gróa
Hreinsdóttir og Guðmundur
Óskar Guðmundsson.
Eyjólfur Þorleifsson, Hild-
ur Guðný Þórhallsdóttir,
Clara Regína Ludwig og
Margrét Ludwig.
Davíð Smári Harðarson og
María Sveinsdóttir.
Ragnheiður Guðna-
dóttir, Helga Berg-
steinsdóttir og Sigrún
Bergsteinsdóttir.
Katla Þorsteinsdóttir og Helga
S. Guðmundsdóttir.
Sigríður Valdimars-
dóttir, Guðrún Val-
dís Jónsdóttir og
Jón Helgason.
Bjarnólfur Lárusson og Þóra Clausen.
Guðrún Agnarsdóttir, Birna
Helgadóttir, Ágústa Sigfús-
dóttir og Valdís Vífilsdóttir.
L
jó
sm
yn
di
r:
E
gg
er
t
Steinar Geirdal, Vigdís Er-
lingsdóttir og Dagný Geirdal.
Í Íslensku óperunni var sérstök
hinsegin-hátíðarsýning á Kabarett.
Bobby McFerrin söng með
Kammerkór Langholtskirkju og
áheyrendum í Háskólabíói.
Jenný Gunn-
arsdóttir og
Anna Hafberg.
Inger Steinson
og Elín Krist-
jánsdóttir.