Morgunblaðið - 31.08.2005, Side 1
2005 MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
ÞRÓTTARAR FALLNIR Í TÍUNDA SKIPTI / C4
ÞORLÁKUR Árnason hættir störfum sem þjálfari úr-
valsdeildarliðs Fylkis í knattspyrnu eftir þetta tíma-
bil. Hann er að ljúka sínu öðru ári við stjórnvölinn
hjá Árbæjarliðinu en hann samdi við félagið til
þriggja ára haustið 2003.
„Það er rétt, Þorlákur hefur ákveðið að hætta og
hann tilkynnti leikmönnunum það eftir æfingu í gær-
kvöld. Það voru endurskoðunarákvæði í hans samn-
ingi að loknu þessu tímabili og hann nýtir sér þau,“
sagði Ásgeir Ásgeirsson, formaður meistaraflokks-
ráðs karla hjá Fylki, við Morgunblaðið í gær.
Ásgeir sagði að eflaust færi leit að eftirmanni Þor-
láks fljótlega í gang. „Ég kem þó ekki nálægt henni
því ég hætti formennskunni þegar tímabilinu lýkur.“
Fylkismenn höfnuðu í fjórða sæti úrvalsdeildar-
innar undir stjórn Þorláks á síðasta ári. Í ár hefur
gengi þeirra ekki verið samkvæmt væntingum, Fylk-
isliðið hefur oft spilað mjög góðan fótbolta í sumar
en stöðugleikann vantað í leik þess.
Þorlákur hættir
með Fylkismenn
SÆNSKA meistaraliðið Halm-
stad hefur gert FH-ingum tilboð
í Davíð Þór Viðarsson og þá hef-
ur enska 1. deildarliðið Reading,
sem Ívar Ingimarsson og Brynj-
ar Björn Gunnarsson leika með,
sent fyrirspurn til FH-inga um
að fá leikmanninn út til reynslu.
Pétur Ó. Stephensen, fram-
kvæmdastjóri knattspyrnudeild-
ar FH, staðfesti í samtali við
Morgunblaðið í gær að Halmstad
hefði gert tilboð í Davíð Þór en
því yrði ekki tekið að svo stöddu.
Þá sagði Pétur að forráðamenn
Reading hefðu á fagmannlegan
hátt sett sig í samband við FH-
inga og óskað eftir því að fá
Davíð Þór til reynslu eftir tíma-
bilið.
Davíð Þór kom til landsins í
gærkvöld frá Svíþjóð þar sem
hann átti viðræður við for-
ráðamenn Halmstad og skoðaði
aðstæður hjá félaginu en með
liðinu leikur Eyjamaðurinn
Gunnar Heiðar Þorvaldsson.
,,Mér leist bara mjög vel á
Halmstad og allt í kringum það.
Það er samt alveg ljóst að ég
sem ekki við liðið áður en
félagaskiptaglugginn lokar núna
um mánaðamótin. Það er hins
vegar möguleiki á að ég fari til
Halmstad síðar í vetur. Það eru
fleiri hlutir sem ég er að skoða
og það er þegar ákveðið að ég
fer til Reading þegar tímabilinu
með FH lýkur í haust,“ sagði
Davíð Þór Viðarsson, við Morg-
unblaðið í gær, en hann er samn-
ingsbundinn FH til ársins 2007.
Reading vill skoða
Davíð Þór Viðarsson
Ólafur Garðarsson, umboðsmað-ur, sagði við Morgunblaðið að
um fullan atvinnusamning væri að
ræða og Rúrik færi beint í æfinga-
hóp aðalliðs og varaliðs Charlton.
Rúrik er 17 ára gamall, á að baki
18 leiki með tveimur yngri landslið-
um Íslands, og hefur skorað í þeim 5
mörk. Hann samdi snemma á síðasta
ári við belgíska félagið Anderlecht
en sneri þaðan aftur til HK eftir
rúmlega hálfs árs dvöl og samdi þá
við Kópavogsfélagið til þriggja ára.
Rúrik hefur verið í stóru hlutverki
hjá HK í 1. deildinni í sumar.
Þar með eru tveir Íslendingar í
röðum Charlton en landsliðsmaður-
inn Hermann Hreiðarsson hefur
verið þar síðan í mars 2003.
„Við erum sáttir við okkar hlut og
fyrst og fremst ánægðir fyrir hönd
Rúriks að hann skuli vera kominn á
þær slóðir þar sem hans metnaður
liggur í fótboltanum,“ sagði Halldór
Valdimarsson, formaður knatt-
spyrnudeildar HK, við Morgunblað-
ið að undirskriftinni lokinni í gær en
hann fór til London til að ganga frá
samningum fyrir hönd félagsins.
Rúrik samdi
við Charlton
RÚRIK Gíslason, unglingalandsliðsmaður í knattspyrnu úr HK,
skrifaði í gær undir tveggja ára samning við enska úrvalsdeildar-
félagið Charlton Athletic. Gengið verður frá félagaskiptum hans í
dag og hann verður því löglegur með Lundúnaliðinu frá og með
morgundeginum, og spilar því ekki meira með HK í 1. deildinni á
þessu tímabili. Hann kom aftur til Íslands að lokinni undirskrift í
gær en er alfarinn til félagsins í næstu viku.
Rúrik Gíslaon
Þegar Morgunblaðið náði tali afGrétari í gærkvöldi var hann
staddur í Hollandi að skoða aðstæð-
ur hjá AZ Alkmaar og ræða kaup
sín og kjör. Alkmaar er sem stendur
í efsta sæti hollensku úrvalsdeild-
arinnar, með fullt hús stiga eftir
þrjár umferðir en liðið vann góðan
útisigur á Vitesse, 5:0, í síðustu um-
ferð og er til alls líklegt í deildinni í
vetur. Grétar Rafn sagðist spenntur
yfir tilboðinu og vonaðist eftir að
læknisskoðuninn færi vel. „Ég slæ
ekki hendinni á móti því að spila
með einu stærsta félagi í Hollandi
og mjög sterku liði á evrópska vísu.
Þannig að þetta er frábært tækifæri
fyrir mig og mjög stórt skref upp á
við. Félagið er mun stærra en fólk
gerir sér grein fyrir þannig að þetta
er allt mjög spennandi,“ sagði Grét-
ar og bætti við að Alkmaar hefði
fylgst með honum í þó nokkurn
tíma. „Þeir voru búnir að fylgjast
með mér bæði í landsleikjum og svo
hefur útsendari verið á síðustu leikj-
um hjá Young Boys þannig að þetta
hefur verið í bígerð í einhvern tíma
en það kom fljótt upp að kauptil-
boðið hefði verið samþykkt.“
Heldur til móts við
landsliðið á morgun
Grétar fer í læknisskoðun hjá hol-
lenska liðinu í dag og heldur til Ís-
lands strax að henni lokinni. Ef allt
fer vel í skoðuninni skrifar Grétar
undir samning áður en hann heldur
til æfinga með landsliðinu. Hann
segir dvölina í Sviss hafa verið mjög
góða en ferillinn verði að ganga fyr-
ir.
„Það hefur verið mjög fínt að vera
hjá Young Boys og mér hefur geng-
ið mjög vel í leikjum liðsins. En ég
er orðinn 23 ára og verð að hugsa
um feril minn og það er ljóst að
Alkmaar er mun sterkara lið og
þegar svona tækifæri gefst verður
maður að grípa það.“
Grétar Rafn á leið
til AZ Alkmaar
GRÉTAR Rafn Steinsson, landsliðsmaður í knattspyrnu og leik-
maður Young Boys í Sviss, mun að öllum líkindum skrifa undir
samning við hollenska félagið AZ Alkmaar í dag eftir að hafa und-
irgengist læknisskoðun. Félag Grétars Rafns, Young Boys, sam-
þykkti fyrr í vikunni kauptilboð í leikmanninn snjalla sem hefur
staðið sig vel með félagi sínu sem og íslenska landsliðinu í und-
anförnum leikjum.
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Torfason
Helgi Valur Daníelsson, miðjumaður Fylkis, og Branislav Milicevic, varnarmaður Keflvíkinga, í
hörkubaráttu á Árbæjarvelli í gær þar sem Keflavík fór með sigur af hólmi.