Morgunblaðið - 31.08.2005, Side 2

Morgunblaðið - 31.08.2005, Side 2
ÍÞRÓTTIR 2 C MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ KNATTSPYRNA Efsta deild karla, Landsbankadeild Fylkir – Keflavík ..................................0:1 – Hólmar Örn Rúnarsson 76. Staðan: FH 16 15 0 1 47:8 45 Valur 16 10 2 4 28:12 32 ÍA 16 8 2 6 20:19 26 Keflavík 16 6 6 4 25:28 24 KR 16 7 1 8 19:22 22 Fylkir 16 6 2 8 25:27 20 Fram 16 5 2 9 17:25 17 ÍBV 16 5 2 9 18:27 17 Grindavík 16 4 3 9 19:37 15 Þróttur R. 16 2 4 10 16:29 10 Markahæstir: Tryggvi Guðmundsson, FH.................. 13 Allan Borgvardt, FH ............................ 13 Hörður Sveinsson, Keflavík ................... 8 Garðar B. Gunnlaugsson, Val ................ 7 Matthías Guðmundsson, Val .................. 7 Björgólfur Takefusa, Fylki .................... 6 Hjörtur J. Hjartarson, ÍA...................... 6 Steingrímur Jóhannesson, ÍBV ............. 5 Viktor Bjarki Arnarsson, Fylki ............. 5 Guðmundur Steinarsson, Keflavík......... 5 3. deild karla 8-liða úrslit, síðari leikir: Víðir – Sindri ........................................0:1 – Seval Zahirovic 3.  Sindri áfram, 2:1 samanlagt. ÍH – Leiknir F.......................................2:3 Engilbert Garðarsson 61., Eiríkur Snæ- björn Einarsson 89. – Vilberg Jónasson 50. (víti), 87., Daði Steinsson 83.  Leiknir áfram, 4:3 samanlagt. Reynir S. – Hvöt ...................................3:2 Hafsteinn Friðriksson 74., 98., 117. – Dejan Duric 15., Óskar Snær Vignisson 34.  Reynir S. áfram, 5:3 samanlagt. Höttur – Grótta.....................................0:4 – Ásmundur Haraldsson 44., Ásgrímur Sigurðsson 48., Sveinn Guðmundsson 67., 71.  Grótta áfram, 7:0 samanlagt  Í úrslitaeinvígjum um sæti í 2. deild mætast Sindri – Leiknir F. og Reynir S. – Grótta. 1. deild kvenna Undanúrslit, síðari leikur: Þór/KA/KS – Haukar ..........................5:1 Rakel Hönnudóttir 28., 55., Freydís Jónsdóttir 63., Rakel Hinriksdóttir 79., Jónína Íris Ásgrímsdóttir 90. – Linda Þorláksdóttir 16.  Þór/KA/KS áfram, 7:1 samanlagt, og mætir Fylki í úrslitaleik um sæti í úr- valsdeildinni. England 1. deild: Wolves – QPR........................................3:1 Carl Cort 8., 24., 90. - Kevin Gallen 12. Staðan: Sheff. Utd 6 5 0 1 14:7 15 Reading 6 4 1 1 13:3 13 Luton 6 4 1 1 10:6 13 Watford 6 3 2 1 12:8 11 Southampton 6 3 2 1 7:4 11 Wolves 6 3 2 1 8:6 11 Leeds 5 3 1 1 6:3 10 Stoke City 6 3 1 2 8:8 10 Ipswich 6 3 1 2 6:8 10 Derby 6 2 3 1 9:7 9 Hull 6 2 3 1 5:3 9 Preston 6 2 2 2 8:7 8 QPR 6 2 2 2 5:8 8 Cr. Palace 5 2 1 2 6:5 7 Coventry 6 1 3 2 6:8 6 Brighton 6 1 3 2 5:7 6 Crewe 6 1 3 2 8:11 6 Leicester 6 1 3 2 8:11 6 Burnley 6 1 1 4 10:11 4 Cardiff 5 1 1 3 6:9 4 Plymouth 6 1 1 4 5:10 4 Sheff. Wed. 5 0 3 2 2:4 3 Norwich 6 0 3 3 4:8 3 Millwall 6 0 1 5 3:12 1 KÖRFUKNATTLEIKUR Kína – Ísland 96:80 Harbin, Kína, vináttulandsleikur karla, þriðjudaginn 30. ágúst 2005. Gangur leiksins: 22:24, 52:43, 82:62, 96:80. Stig Íslands: Magnús Þór Gunnarsson 21, Hlynur Bæringsson 18, Jón Arnór Stefánsson 13, Sigurður Þorvaldsson 9, Friðrik Stefánsson 7, , Logi Gunnarsson 6, Jakob Sigurðsson 3, Helgi Magnússon 3. HANDKNATTLEIKUR HK tapaði í gær fyrir litháíska hand- knattleiksliðinu Panevézio í æfingaleik sem fram fór í Litháen, 27:31, en HK var yfir í hálfleik, 19:14. Vilhelm Gauti Berg- sveinsson og Remi Cepulis skoruðu 6 mörk hvor fyrir HK. Þjálfari Panevézio er Gintaras Savukynas, sem lengi lék með Aftureldingu. KNATTSPYRNA: Efsta deild kvenna, Landsbankadeild: Akranesvöllur: ÍA – Breiðablik............18.30 Stjörnuvöllur: Stjarnan – Keflavík......18.30 KR-völlur: KR – ÍBV ............................18.30 Kaplakrikavöllur: FH – Valur..............18.30 Í KVÖLD SVETLANA Kuznetsova, rúss- neska tenniskonan sem sigraði á Opna bandaríska mótinu í fyrra, skráði nafn sitt öðru sinni í sögu- bækurnar á mánudaginn þegar hún varð fyrsti meistarinn í kvenna- flokki til að falla úr keppni í fyrstu umferð árið eftir. Meistarinn mætti löndu sinni Ekaterinu Bychkovu í fyrstu um- ferð mótsins á mánudaginn og reið ekki feitum hesti frá þeirri við- ureign því hún tapaði 6-3 og 6-2. Hún tók tapinu með stóískri ró og bar sig nokkuð vel. „Það er betra að fá tækifæri til að verja titilinn en að hafa aldrei unnið hann. Ég hef sigrað á mótinu og er ánægð með það og ég á eftir að koma hingað aftur og keppa – og vonandi sigra aftur,“ sagði hún. Það hefur gengið fremur illa hjá Kuznetsovu síðan hún sigraði á Opna bandaríska í fyrra. Hún hefur aðeins sigrað á einu móti síðan þá, litlu móti á Balí skömmu eftir að hún hrósaði sigri í New York. Meistarinn, sem er aðeins tvítug, segir að sigurinn á Opna banda- ríska hafi vissulega sett mikinn þrýsting á sig. „Maður setur óneit- anlega þrýsting á sjálfan sig eftir svona sigur og hlustar allt of mikið á hvað fólk segir og hvað fjölmiðlar segja. Það eina sem maður getur í raun gert er að gera sitt besta. Þetta var greinilega ekki minn dag- ur og hvað get ég gert við því? Ekk- ert nema reyna að læra af reynsl- unni,“ segir hin tvítuga tenniskona. Kuznetsova féll úr leik á Opna bandaríska Flestir reiknuðu með því að Owenmyndi snúa aftur til Liverpool, og það var heitasta ósk hans sjálfs, en Liverpool var ekki tilbúið til að greiða umrædda upphæð fyrir hann, sam- kvæmt breskum fjölmiðlum. Mikil gleði ríkir í Newcastle yfir þessum tíðindum og stuðningsmenn liðsins voru mættir í höfuðstöðvar þess til að kaupa treyjur með nafni hans áður en hann hafði lokið lækn- isskoðun hjá félaginu í gær. Ian Gilmour, formaður samtaka stuðningsfélaga Newcastle United, sagðist varla trúa sínum eigin eyrum. „Ég er nánast orðlaus, ég hélt að Owen væri á leiðinni til Liverpool og er mjög hissa á að okkur skuli hafa tekist að fá hann hingað á St. James Park. Þetta er stór viðburður í sögu félagsins og er í svipuðum stærðar- flokki og þegar Alan Shearer var keyptur fyrir níu árum. Owen er fremsti sóknarmaður Englands og Freddy Shepherd stjórnarformaður og félagið eiga mikið hrós skilið fyrir að krækja í hann,“ sagði Gilmour. Getur orðið ein af goðsögnum félagsins Newcastle hefur enn ekki skorað mark eftir fjóra leiki í ensku úrvals- deildinni og Graeme Souness, knatt- spyrnustjóri, er talinn mjög valtur í sessi. „Þetta eru stærstu kaup sem ég hef átt þátt í sem knattspyrnustjóri og Owen fellur inn í þá hefð New- castle að eiga frábæra framherja. Hann getur orðið ein af goðsögnunum í sögu félagsins. Það erfiðasta af öllu í fótboltanum er að krækja í mennina sem skora mörkin og Michael hefur sýnt að hann er sá besti sem England á í því hlutverki,“ sagði Souness. Owen fékk að sama skapi góðar kveðjur frá leikmönnum og stjórn- endum Real Madrid. Arrigo Sacchi, yfirmaður knattspyrnumála hjá spænska félaginu, sagði að það væri mikil eftirsjá að Owen. „Við höfum misst frábæran leikmann og mjög já- kvæðan mann. En ég skil hann vel, hann vildi fara til að geta spilað meira en hann hefur átt kost á hjá okkur, fyrst og fremst vegna þess að heims- meistarakeppnin er á næsta ári. Ástæður hans voru augljósar og við óskum honum alls hins besta en erum afar leiðir að sjá á bak honum,“ sagði Sacchi. Hittir nýja félaga ekki fyrr en í næstu viku Það verður þó bið á að Owen hitti samherja sína í Newcastle eða verði kynntur opinberlega fyrir stuðnings- mönnum félagsins. Hann fór beint til móts við enska landsliðshópinn eftir læknisskoðunina í gær en leikmenn Newcastle eru staddir í Málaga á Spáni þar sem þeir dvelja í æfinga- búðum á næstunni. Michael Owen er 25 ára gamall og skoraði 118 deildamörk í 216 leikjum með Liverpool frá 1997 til 2004. Hann varð annar markahæsti leikmaður Real Madrid á síðasta tímabili með 16 mörk þrátt fyrir að hann ætti ekki fast sæti í liðinu fyrr en á lokaspretti tímabilsins. Owen hefur skorað 32 mörk í 71 leik með enska landsliðinu, sem hann hefur leikið með frá 18 ára aldri. Mikil gleði í Newcastle eftir kaup á Michael Owen frá Real Madrid „Er nánast orðlaus“ Eftir Víði Sigurðsson vs@mbl.is ENSKI landsliðsmiðherjinn Michael Owen gekk í gær til liðs við New- castle og samdi við félagið til fjögurra ára. Kaupverð hefur ekki verið formlega gefið upp en talsmaður Newcastle hefur sagt að það sé það hæsta í sögu félagsins. Breskir fjölmiðlar sögðu í gær að það væri 17 milljónir punda, tæpir 2 milljarðar króna en Newcastle greiddi 15 milljónir punda fyrir Alan Shearer árið 1996. Newcastle kaupir Owen af Real Madrid en hann var aðeins í rúmt ár í röðum spænska stór- veldisins, eftir að það keypti hann frá Liverpool sumarið 2004. Þetta var sjötti ósigur Fylkismanna áheimavelli í sumar en liðið státar aðeins af einum sigri á Árbæjarvelli í ár, gegn Þrótturum í 5. umferð þann 12. júní. Leikmenn Árbæjarliðsins geta þó engum nema sjálfum sér um kennt hvernig fór í gær. Þeir höfðu undirtökin lengst af leiknum, sköpuðu sér fullt af tækifærum en sváfu svo á verðinum í varnarleiknum þegar Hólmar Örn Rún- arsson skoraði sigurmarkið stundar- fjórðungi fyrir leikslok. Töpuðum á eigin klaufaskap ,,Við vorum sjálfum okkur verstir og sú staðreynd blasir við eftir þennan ósig- ur að við erum komnir aftur á hættu- svæðið. Við áttum alls ekki að tapa en fyrir okkar klaufaskap þá gerðum við það. Við óðum í færum nær allan leikinn en sváfum svo á verðinum í einni af fáum hættulegum sóknum þeirra,“ sagði Val- ur Fannar Gíslason, fyrirliði Fylkis, við Morgunblaðið eftir leikinn. Valur bætti við: ,,Nú er ekkert sem heitir annað en að vinna FH-ingana í næsta leik og gull- tryggja sætið.“ Leikurinn fór að mestu leyti fram á vallarhelmingi Keflvíkinga í fyrri hálf- leiknum. Fylkismenn virkuðu sprækir og voru miklu markvissari í sínum að- gerðum heldur en Keflvíkingar. Öll fær- in í fyrri hálfleik féllu Árbæingum í skaut og í þrígang skall hurð nærri hælum við mark Keflvíkinga. Álverkið kom Keflvík- ingum einu sinni til bjargar í hálfleiknum en eftir fyrirgjöf Ragnars Sigurðssonar sem hafði viðkomu í varnarmanni Kefl- víkinga datt boltinn ofan á slána. Kefl- víkingar vörðust vel og áttu af og til ágætar skyndisóknir sem brotnuðu oftar en ekki á varnarmönnum Fylkis. Fylkismenn héldu áfram að þjarma að Keflvíkingum í upphafi síðari hálfleiks. Gunnar Þór Pétursson þrumaði boltan- um í utanverða stöngina úr aukaspyrnu og Kjartan Ágúst Breiðdal, sem kom Enn tap ir í Árb Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is Fylkismaðurinn Helgi Valur Daníelsson á hér í hö FYLKIR er enn í fallhættu eftir ósigur gegn Keflvíkingum í lokaleik 16. umferðar Landsbankadeildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Fylkis- menn skortir enn eitt stig til að tryggja tilverurétt sinn í deildinni en Kefl- víkingar skutust upp fyrir KR-inga í fjórða sætið og eru þar með í barátt- unni um þriðja sætið sem gefur Evrópusæti fari svo að Valsmenn beri sigurorð af Fram í bikarúrslitaleiknum. Valskonur spila í Eskilstuna DJURGÅRDEN/ÄLVSJÖ, sænsku meistararnir í knatt- spyrnu kvenna, hafa ákveðið að milliriðill UEFA-bikars- ins verði leikinn í bænum Eskilstuna en ekki á heima- velli liðsins í Stokkhólmi. Eskilstuna er skammt vest- an við Stokkhólm. Valskonur leika í riðlinum með sænsku meisturunum, Masinac Nic frá Serbíu-Svartfjallalandi og Alma frá Kasakstan. Allir leikir riðilsins verða spilaðir á tveimur leikvöngum í Esk- ilstuna dagana 13.–17. sept- ember. ÚRSLIT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.