Morgunblaðið - 16.09.2005, Blaðsíða 8
SKRIFAÐ var undir samning milli
Reykjavíkurborgar og Knattspyrnu-
sambands Íslands í gær um upp-
byggingu og endurbætur á Laug-
ardalsvelli. Samningurinn er gerður
í framhaldi af samningi frá árinu
1997 á milli Reykjavíkurborgar,
Íþrótta- og tómstundaráðs og KSÍ
en þá tók knattspyrnusambandið að
sér að hafa umsjón með rekstri
Laugardalsvallar og uppbyggingu
mannvirkja á vallarsvæðinu.
Í framkvæmdunum felst stækkun
eldri stúku Laugardalsvallar til
norðurs og suðurs fyrir allt að 2.600
manns, nýjum sætum fyrir 470
manns verður komið fyrir framan
við stúkuna og því ættu um 10.000
manns að eiga víst sæti á Laug-
ardalsvelli eftir stækkunina. Einnig
verða ýmsar lagfæringar gerðar á
stúkunni, þar á meðal endurbygging
á þaki hennar. Umbætur verða þá
gerðar á aðgengi hreyfihamlaðra,
s.s. á salernum en einnig verða sér-
stök stæði fyrir hreyfihamlaða í
eldri stúku þar sem hægt verður að
koma fyrir allt að tíu hjólastólum.
Heildarkostnaður
um einn milljarður
Í samningnum er gert ráð fyrir
því að Reykjavíkurborg leggi 398
milljónir króna á næstu þremur ár-
um til viðhalds og endurbóta á eldri
mannvirkjum í eigu borgarinnar við
völlinn, KSÍ mun leggja 440 millj-
ónir til byggingar kennslu- og
fræðslumiðstöðvar og skrifstofu-
húsnæðis fyrir knattspyrnuhreyf-
inguna og ríkisvaldið kemur að
framkvæmdunum með 200 milljóna
króna framlagi vegna stækkunar
áhorfendastúkunnar.
Stefnt er að því að klára stækkun
stúkunnar fyrir fyrsta leik að vori en
öllum framkvæmdum á að vera lokið
í ágúst eða september á næsta ári.
Eggert Magnússon, formaður
KSÍ, segir framkvæmdirnar vera
bráðnauðsynlegar því Laugardals-
völlurinn hafi úrelst á síðustu árum
og sé eftirbátur þjóðarleikvanga
ríkja í kringum okkur. „Við gerðum
ákveðnar endurbætur og nýbygg-
ingu árið 1997 en það er kominn tími
til að endurnýja alla hluti núna og
raunar nauðsynlegt.“
Að sögn Eggerts hefðu fram-
kvæmdirnar ekki komið til nema
fyrir fjárstuðning frá Knattspyrnu-
sambandi Evrópu, UEFA, og Al-
þjóðaknattspyrnusambandinu,
FIFA, sem styðja rausnarlega við
bakið á KSÍ. „Ég held að það sé
einsdæmi í Íslandssögunni að sam-
band eins og Knattspyrnu-
sambandið komi svo veglega að slík-
um framkvæmdum og það er
lykillinn að því að farið er í þessar
framkvæmdir núna. Við komum með
talsvert stóra fjármuni inn sem við
höfum barist fyrir hjá UEFA og
FIFA og þegar peningarnir voru
fyrir hendi gátum við hafið viðræður
við borgina og ríkisvaldið og sagt:
„Nú erum við búnir að skaffa pen-
inga, nú þarf að klára málin“,“ segir
Eggert og bætir við að framkvæmd-
irnar séu ekki lokaáfangi breytinga
á Laugardalsvelli því framtíðarsýn
KSÍ sé að vera með lokaðan leik-
vang, en farið verður að skoða þau
mál betur síðar.
Borgin fjárfestir fyrir
milljarða í Laugardal
Steinunn Valdís Óskarsdóttir
borgarstjóri segir framkvæmdirnar
á Laugardalvelli hafa margþætta
þýðingu fyrir borgina. „Það er verið
að reka endahnútinn á það að Laug-
ardalsvöllur verði sá þjóðarleik-
vangur sem stefnt hefur verið að í
áratugi. Ég held að þetta hafi mikla
þýðingu fyrir íþróttalífið í borginni
og ekki síður viðburðalífið þar sem
völlinn má einnig nota undir stór-
tónleika,“ segir Steinunn Valdís og
bætir við að Reykjavíkurborg hafi
fjárfest fyrir milljarða í Laug-
ardalnum. „Í vinnslu er að reisa nýtt
fimleikahús við hliðina á félagshúsi
Þróttar í Laugardalnum, einnig höf-
um við byggt við skautasvellið, við
erum að taka í notkun nýja sýn-
ingar- og íþróttahöll og fyrirhuguð
er stækkun á fjölskyldu- og hús-
dýragarðinum,“ sagði Steinunn
Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri að
lokum.
Laugardalsvöllur mun taka á sig breytta mynd. Á tölvumyndinni má sjá hversu mikið eldri stúkan mun stækka.
Tíu þúsund manns munu
eiga víst sæti á vellinum
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
Rúmum milljarði varið í uppbyggingu á Laugardalsvelli
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ánægð með samkomulag um uppbygginguna í Laugardal. F.v. Anna Krist-
insdóttir, formaður ÍTR, Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri, Eggert
Magnússon, formaður KSÍ, og Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri KSÍ.
8 FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Finnsk grunnskóla-börn eru styst allrabarna í OECD
ríkjunum í grunnskólan-
um, samtals 5.523 stundir
á aldrinum 7–14 ára. Engu
að síður hafa Finnar náð
gríðarlega góðum árangri
í PISA-könnunum sem
gerðar hafa verið. Þetta er
meðal þess sem kemur
fram í Education at a
Glance, nýju riti OECD
um menntamál.
Íslensk börn á sama
aldri fá um 6.250 stunda
kennslu á þessu tímabili,
en meðaltal allra OECD
ríkjanna eru tæpar 6.850
stundir. Í þeim ríkjum
sem börn á þessum aldri fá
flestar kennslustundir eru
þær um 8.000 á þessu ald-
ursbili, en það er t.d. í
Ástralíu, Skotlandi, Hol-
landi og Ítalíu.
Þegar skoðaður er nánar árang-
urinn í PISA-könnuninni 2003, t.d.
stærðfræðikunnátta, er ekki að
sjá mikla fylgni milli mikillar
kennslu og góðs árangurs, t.d.
stóðu finnsk börn sig best í al-
mennri stærðfræði þrátt fyrir fáar
kennslustundir. Hollensk og ástr-
ölsk börn stóðu sig einnig vel, en
þau eru meðal þeirra sem fá hvað
flestar kennslustundir, eða um
8.000, um 45% fleiri en finnsku
börnin. Ítölsk börn, sem fá ámóta
marga tíma og þau áströlsku og
hollensku, standa sig fremur illa.
Svipað er upp á teningnum þeg-
ar skoðaður er árangurinn í úr-
lausnum þrauta, og því ekki hægt
að draga neinar niðurstöður um
tengsl fjölda kennslustunda við
námsárangur út frá þessu.
Stelpur í lengra nám
Skólasókn barna hefur aukist
stórlega á undanförnum árum, en
árið 2003 gat fimm ára gamalt ís-
lenskt barn búist við að sækja
skóla í 19,2 ár, sem er um 15%
aukning frá árinu 1995. Meðaltalið
í öllum OECD-ríkjunum er 17,3
ár, eins og fram kemur í útdrætti
Hagstofu Íslands úr riti OECD.
Mikill munur er á skólasókn
kynjanna, drengir sækja að jafn-
aði skóla í um 18,2 ár, en stúlkur í
20,2 ár, og er munurinn með því
mesta sem gerist í OECD.
Árangur þess að leggja fé í
menntun sést best þegar skoðaðir
eru atvinnumöguleikar þeirra sem
hafa gengið menntaveginn. Mun-
urinn á tekjum þeirra sem hafa
meiri menntun og hinna sem
minni menntun hafa virðist vera
að aukast, auk þess sem auknar
líkur eru á því að þeir sem ekki
ljúka framhaldsskóla verði at-
vinnulausir.
Í OECD-ríkjunum hefur tekju-
munurinn milli þeirra sem lokið
hafa háskólaprófi, og þeirra sem
hættu námi eftir framhaldsskóla,
aukist í 22 af 26 ríkjum frá árinu
1997, og er tekjumunurinn á bilinu
25–119%. Þó algengast sé að þeir
sem eru betur menntaðir hafi
hærri laun benda höfundar þó á að
einnig sé vel menntað fólk í lægri
tekjuhópum. Þegar litið er á
menntun sem fjárfestingu þar
sem kostnaðurinn felist meðal
annars í tekjumissi einstaklings-
ins á meðan námi stendur má sjá
að yfirleitt borgar sú menntun sig
innan OECD-ríkjanna. Að meðal-
tali aukast tekjur um tæplega 10%
á ári hverju sökum menntunar, en
þar sem tekjuaukningin mældist
hæst, í Finnlandi og Bandaríkjun-
um, var hún 15,8% á ári.
Athyglisvert er að í tölum
OECD kemur fram að mun al-
gengara er að íslenskar stúlkur á
aldrinum 15–24 ára stundi vinnu
með skóla en drengir. Í aldurs-
hópnum 15–19 ára stunduðu um
36% stúlkna vinnu með námi, en
sambærilegt hlutfall var 23%
meðal drengja. Íslensk ungmenni
vinna þó mun frekar með skóla en
ungmenni í öðrum OECD-ríkjum,
þar sem að meðaltali 11% á þess-
um aldri voru í starfi með skóla.
Talsvert hefur verið fjallað um
það innan OECD hvort einkaskól-
ar veiti betri menntun en opinber-
ir skólar, en niðurstaða höfund-
anna er sú að eftir að tekið hefur
verið tillit til félagslegs bakgrunns
og samsetningu skólahverfa sé
ekki lengur merkjanlegur munur
á frammistöðu nemenda í einka-
skóla og opinberra skóla. Saman-
burðurinn er þó vissulega flókinn,
og var borin saman frammistaða
15 ára nemenda í PISA-könnun-
inni til að fá mynd af gengi nem-
enda eftir rekstrarformi skóla.
Frumniðurstöður sýndu raunar
að í 9 af 22 OECD-ríkjanna standi
nemendur sem sækja einkaskóla
sig betur en nemendur opinberra
skóla, en í 2 af 22 löndum sé því öf-
ugt farið, og opinberir skólar sýni
betri árangur. Þegar þessar nið-
urstöður voru leiðréttar með tilliti
til félagslegs bakgrunns nemenda
hvarf munurinn alveg.
Fréttaskýring | OECD ber saman ýmsar
hliðar menntunar í aðildarríkjunum
Einkaskólar
ekki betri
!"
# $%&'
()*"
$"%
+,-
,./ 0.
1
2
+
"3
4*3 %
5
+3 %
Útgjöld til menntamála há
en minna fer í háskólanám
Þegar heildarútgjöld landa til
menntamála eru skoðuð sem
hlutfall af vergri þjóðarfram-
leiðslu er Ísland í fyrsta sæti með
7,4%, en næst koma Bandaríkin,
sem verja 7,2% af vergri þjóð-
arframleiðslu til menntamála. Ís-
land er hins vegar í 17. sæti
OECD-ríkja þegar mæld eru út-
gjöld á hvern nemanda á há-
skólastigi, þar sem Ísland ver
tæpum 515 þúsund kr. á hvern
nemanda, en meðaltal OECD
jafngildir um 660 þúsund kr.
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
Fjöldi kennslustunda í grunnskóla
leiðir ekki endilega af sér betri árangur
Mikill munur er á skólasókn kynjanna.
TENGLAR
.................................................
Sjá meira á www.mbl.is/itarefni
BÆJARRÁÐ Mosfellsbæjar sam-
þykkti í gær ályktun þess efnis að
Miðdalsheiðin væri vænlegur kost-
ur fyrir nýjan innanlandsflugvöll og
hefur ályktunin verið send Sturlu
Böðvarssyni samgönguráðherra.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, bæjar-
stjóri í Mosfellsbæ, segir hugmynd-
ina ekki hafa verið lengi til skoð-
unar en bæjarráð hafi fengið
nokkrar ábendingar um staðsetn-
inguna, þar á meðal frá landeig-
endum. Aðstæður á Miðdalsheiði
hafi verið kannaðar og þyki góðar,
heiðin liggi til að mynda vel við að-
flugsstefnum og Veðurstofa Íslands
hafi mælt vindhraða á heiðinni og
ekki gert athugasemdir.
„Við vildum blanda okkur í þá
umræðu að flugvöllurinn fari ekki
af Höfuðborgarsvæðinu og jafn-
framt er þetta gott tækifæri til að
íhuga fleiri staði en nefndir hafa
verið,“ segir Ragnheiður og nefnir
til dæmis Löngusker og Hvassa-
hraun og bætir við að hugsanlega
gæti skapast meiri sátt um Mið-
dalsheiði. „Þetta er gott tækifæri til
að skoða sveitarfélag sem væri
hugsanlega tilbúið að taka við inn-
anlandsflugvelli án þess að það
skemmdi eitthvað fyrir öðrum.
Þetta svæði kemur ekki til með að
trufla íbúðabyggð í náinni framtíð
og yfir höfuð ekki. Það liggur vel
við Suðurlandsvegi og er innan við
tuttugu kílómetra frá miðborg
Reykjavíkur þannig að þetta er líka
góður kostur fyrir landsbyggðina.“
Vilja flugvöll á Miðdalsheiði