Morgunblaðið - 16.09.2005, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2005 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• sími 581 2141
Ný sending frá
Bláu húsin Fákafeni, sími 588 4545, netfang: postulín.is
Sigurstjarnan
Opið virka kl. 11-18, lau. kl. 11-15
öðruvísiFull búð af vörum
Lomonosov postulín, Rússneska
keisarasettið í matar- og kaffistellum.
Handmálað og 22 karata gylling.
Frábærar gjafavörur
Alltaf besta verðið
Eddufelli 2, sími 557 1730
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Síðar skyrtur
vertu þú sjálf
vertu belladonna
Opið virka daga frá kl. 11-18,
laugardaga 11-15
Hlíðasmára 11 • Kópavogi
sími 517 6460 • fax 517 6565
www.belladonna.is
Starfsfólk Sláturhúss SS á Hellu fyrrum, ásamt mökum, áformar að hittast á eystri bakka
Ytri-Rangár í Árhúsum á Hellu laugardaginn 8. október kl. 19:30
til að rifja upp gamla og góða daga.
Hafið samband, gömlu félagar, og fáið nánari upplýsingar fyrir 25. september hjá:
Sigga frá Hemlu sími 892 1644 sigsig@hi.is
Siggu frá Núpi símar 486 6634 og 846 6776 siggalax@mi.is
Önnu frá Hvammi símar 487 5005 og 894 5217
Tomma á Hamrahól sími 866 0275 eða
Lóu frá Árbæ sími 863 5213.
Rangæingar - takið eftir!
Gull í grjóti - skóverslun Skólavörðustíg 4 - sími 551 5050
Ný sending af kvenskóm
Lækkað verð á eldri vöru
TEPPABÚÐIN - LITAVER, Grensásvegi 18,
„við eru sérfræðingar í gólfteppum“,
símar 568 1950 og 581 2444.
Gólfteppin eru allt þetta og meira til.
Mikið úrval af gólfteppum á góðu verði.
Líttu við, því það hefur alltaf borgað sig.
„SÖFNUNIN gekk framar okkar
björtustu vonum,“ segir Hólmfríður
Anna Baldursdóttir, upplýsinga-
fulltrúi Barnahjálpar Sameinuðu
þjóðanna á Íslandi, um heims-
foreldraátak UNICEF Ísland í sér-
stökum söfnunarþætti hjá Sirrý á
Skjá einum í fyrrakvöld.
UNICEF starfar í 160 löndum og
eru stærstu barnahjálparsamtök í
heimi. Samtökin sinna bæði langtíma
þróunaraðstoð og neyðaraðstoð og
styrkja uppbyggingu verkefna sem
gagnast mörgum börnum, eins og til
dæmis að byggja skóla, bólusetja, út-
vega hreint vatn, heilsugæslu og
umönnun, koma í veg fyrir vinnu-
þrælkun og misnotkun barna.
Um 6.000 heimsforeldrar
Einstaklingar geta lagt sitt af
mörkum með því að gerast heimsfor-
eldrar og styðja þannig hin ýmsu
verkefni. Heimsforeldrar greiða
mánaðarlega fjárhæð og stjórna
framlögum sínum og að sögn Hólm-
fríðar Önnu Baldursdóttur er með-
algjöf íslenskra heimsforeldra um
1.100 krónur á mánuði.
Skráning íslenskra heimsforeldra
hófst fyrst í sjónvarpsþætti hjá Sirrý
í maí 2004. Síðan hefur þeim fjölgað
ört og fyrir átakið í fyrrakvöld voru
þeir rúmlega 5.000.
Hólmfríður Anna segir að enn séu
að berast skráningar í kjölfar þátt-
arins á miðvikudag, sem verður end-
ursýndur á sunnudag, en ljóst sé að
meira en 1.000 heimsforeldrar hafi
bæst við hópinn. Það þýði ríflega
milljón krónur á mánuði til viðbótar
fyrri skuldbindingum upp á um fimm
milljónir á mánuði. „Söfnunin hefur
gengið mjög vel og þessi styrkur
gagnast mörgum börnum,“ segir hún.
Morgunblaðið/RAX
UNICEF starfar í 160 löndum og sinnir meðal annars langtíma þróunaraðstoð í Afríku.
Íslenskum heims-
foreldrum fjölgar ört
VÍÐSVEGAR um Evrópu eru stjórn-
völd farin að bregðast við hækkandi
olíuverði í kjölfar hækkandi mótmæl-
aradda almennings, nú síðast hvatti
Jasques Chirac, forseti Frakklands,
olíufyrirtæki í landinu til að lækka
verðið á eldsneyti og Gordon Brown,
fjármálaráðherra Bretlands, tilkynnti
fyrr í vikunni að hann muni þrýsta á
um breytingar á eldsneytismarkaði í
Bretlandi. Annars staðar hafa yfir-
völd einnig lýst því yfir að breytinga
sé að vænta, s.s. í Póllandi og Aust-
urríki.
Hér á landi hefur hækkandi elds-
neytisverð víðtæk áhrif og segir Run-
ólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri
Félags íslenskra bifreiðaeigenda,
stjórnvöld ekki geta stungið hausnum
í sandinn og falið sig bakvið að ráða
ekki heimsmarkaðsverði. „Ég tel
ríkulega þörf á því að stjórnvöld grípi
inn í, sérstaklega í ljósi þróunar vísi-
tölunnar. Við erum að sjá að marg-
földunaráhrif eldsneytishækkunar
eru ekki aðeins að skila því að hinn al-
menni borgari greiði meira við bens-
índæluna heldur eru aðrar verðhækk-
anir að skella á okkur. Leigubílar
hafa hækkað sína gjaldskrá, flutn-
ingaaðilar einnig og ekki sér fyrir
endann á þessum hækkunum.“
Runólfur segir stjórnvöld ráða
gríðarlega miklu varðandi vöruverðið
til neytenda þar sem svo hátt hlutfall
af eldsneytisverði séu skattar sem
renna til ríkissjóðs.
„Þar kemur að því að kjörnir
fulltrúar verða að sýna mátt sinn og
grípa inn í þegar við á.“
Framkvæmdastjóri FÍB segir hækk-
andi olíuverð hafa víðtæk áhrif
Þörf á að stjórn-
völd grípi inn í
RANNSÓKN lögreglunnar á Ísa-
firði á meintri ólögmætri vegarlagn-
ingu í Leirufjörð er á lokastigi, að
sögn Sigríðar Bjarkar Guðjónsdótt-
ur, sýslumanns á Ísafirði.
Að hennar sögn hefur Umhverf-
isstofnun skilað skýrslu um málið en
stofnunin var fengin til að leggja mat
á skemmdirnar sem unnar voru með
vegarlagningunni.
Á sínum tíma fékk landeigandi í
Leirufirði, Sólberg Jónsson, leyfi hjá
Ísafjarðarbæ til að „labba“ með jarð-
ýtu niður af heiðinni gegn því að „allt
jarðrask“ vegna umferðar vinnutæk-
is í firðinum yrði lagfært og átti að
nota ýtuna við framkvæmdir til að
hefta landbrot í firðinum. Talsmenn
Ísafjarðarbæjar telja að farið hafi
verið langt út fyrir heimildir og lögðu
fram kæru vegna málsins. Það gerðu
líka Náttúruverndarsamtök Íslands.
Að sögn Sigríðar Bjarkar hefur verið
tekin skýrsla af hinum kærða.
Rannsókn á vega-
gerð á lokastigi
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Fréttir í tölvupósti