Morgunblaðið - 16.09.2005, Side 18
18 FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Bagdad, Dubai. AP, AFP. | Þrjár bíl-
sprengjur og ein vegsprengja
sprungu í Bagdad í gærmorgun og
urðu þær að minnsta kosti 31 manni
að bana. Í fyrradag féllu alls um 160
manns í mörgum sjálfsmorðs-
sprengingum, sem al-Qaeda-hryðju-
verkasamtökin segjast hafa staðið
fyrir.
Í fyrstu sprengingunni í gær féllu
16 íraskir lögreglumenn og fimm
óbreyttir borgarar og tvær þær síð-
ari urðu sjö lögreglumönnum að
bana. Þá létust þrír óbreyttir borg-
arar er vegsprengja sprakk undir
fólksflutningabíl frá íraska innanrík-
isráðuneytinu.
Bandaríska hermenn og íraska
lögreglumenn dreif á staðina þar
sem sprengjurnar sprungu og var
fólki skipað að halda sig innandyra
þar sem upplýsingar væru um, að
fimm sjálfsmorðssprengjumenn
væru tilbúnir til atlögu.
Zarqawi hótar „allsherjar-
stríði“ gegn öllum sjítum
Meintur leiðtogi al-Qaeda-hryðju-
verkasamtakanna í Írak, Abu Mus-
ab al-Zarqawi, lýsti á miðvikudag yf-
ir „allsherjarstríði“ gegn sjítum í
landinu en þeir eru um 60% allra
Íraka. Hvatti hann einnig meðlimi
annarra trúar- og þjóðflokka til þess
að ganga til liðs við sig og sína menn
í uppreisn gegn ríkisstjórninni.
Kom þetta fram á hljóðupptöku
sem birtist á Netinu nokkrum
klukkustundum eftir að al-Qaeda
hafði lýst á hendur sér fjölda
sprenginga sem áttu sér stað í land-
inu fyrr um daginn, þar á meðal
einni í Bagdad sem kostaði a.m.k.
112 manns lífið.
Zarqawi hvatti
súnní-araba, trú-
flokksbræður
sína, einnig til
þess að „vakna
af doðanum“ og
átta sig á því að
sjítar myndu
alltaf ætla sér að
útrýma súnnít-
um. Hinir síðar-
nefndu yrðu því að verða fyrri til og
stríða gegn sjítum. Hótanir hans
náðu einnig til mun víðfeðmari hóps
fólks. „Allir trúflokkar sem vilja
forðast það að verða fyrir árásum
hinna heilögu stríðsmanna (mujah-
adeen) eiga að [fordæma] ríkisstjórn
[forsætisráðherra landsins, sjítans
Ibrahim] Jaafaris og glæpaverk
hans. Annars skulu þeir verða fyrir
því sama og krossfararnir.“
Orðið krossfarar er jafnan notað
yfir innrásarher bandamanna sem
felldi stjórn Saddams Husseins, þá-
verandi Íraksforseta, árið 2003.
Halda áfram stríði
gegn hryðjuverkum
Enn hótaði Zarqawi og sagði að
hver sá sem héti krossförunum holl-
ustu mundi verða skotmark stríðs-
manna sinna. „Þið verðið að velja að
standa með hinu góða eða hinu illa,“
sagði hann.
Talsmaður Sambands íslamskra
fræðimanna, sem eru áhrifamikil
samtök meðal súnníta í Írak, for-
dæmdi í gær hótanir al-Zarqawis og
sagði, að hann vildi koma af stað
stríði á milli súnníta og sjíta.
Jaafari forsætisráðherra sagði í
sjónvarpsávarpi í gær að hann væri
harðákveðinn í því að „halda áfram
stríðinu gegn hryðjuverkum hvar
sem er í landinu“. Utanríkisráðherr-
ann, Kúrdinn Hoshyar Zebari,
hvatti þjóðir heims enn fremur til að
standa við skuldbindingar sínar um
að hjálpa stríðshrjáðri þjóð sinni.
Áfram vargöld í Bagdad
Reuters
Syrgjendur fylgja til grafar verkamanni sem var meðal hinna myrtu eftir tilræði sjálfsmorðingja í hinni helgu
borg Najaf í Írak á miðvikudag. Hryðjuverkamenn al-Qaeda segja nú umbúðalaust að drepa beri alla sjíta.
Abu Musab
al-Zarqawi
Að minnsta kosti
31 féll í hryðju-
verkaárásum í gær
SPENNA vex enn í Þýskalandi vegna þingkosn-
inganna á sunnudag en munurinn á fylgi helstu
fylkinga hefur minnkað verulega síðustu vik-
urnar. Könnun Allensbach-stofnunarinnar á mið-
vikudag þótti staðfesta að Gerhard Schröder
kanslara og jafnaðarmannaflokki hans, SPD,
hefði tekist að bæta stöðuna verulega á loka-
sprettinum. Var flokkurinn með 32,9% stuðning,
fimm prósentustigum meira en að jafnaði í ágúst.
Kristilegu systurflokkarnir tveir, CDU og CSU,
fengu samanlagt 41,7%, svipaðan stuðning og
undanfarnar vikur. Leiðogar fylkinganna tveggja
vísa eindregið á bug möguleikanum á stjórn-
arsamstarfi eftir kosningar.
Enn er talið líklegast að næsti kanslari verði
Angela Merkel, kanslaraefni CDU. En flokkurinn
sem hún vill helst mynda stjórn með, Frjálslyndir
demókratar, var ekki með nema 7% stuðning og
því hæpið að flokkarnir næðu saman meirihluta á
þingi. Næstlíklegasti kosturinn er samstjórn
kristilegra og jafnaðarmanna með Merkel sem
kanslara. Stjórnarflokkur græningja og jafn-
aðarmenn hafa samanlagt of lítið fylgi í könn-
uninni, um 40%, til að geta myndað stjórn.
Sumir stjórnmálaskýrendur spá pólitískri patt-
stöðu eftir kosningar. Aðrir segja að neyðist stóru
fylkingarnar tvær til að starfa saman með ólund
gæti það tafið fyrir samstöðu um brýnar efna-
hagsmálaumbætur sem ljóst er að margir kjós-
endur eru alls ekki reiðubúnir að kyngja, a.m.k.
enn þá. Merkel hefur lagt sig fram um að vísa
hugmyndinni um „mikla bandalagið“ með jafn-
aðarmönnum á bug.
Engar ástarjátningar
„Margir halda að ef ekki verði nægur stuðn-
ingur við svart-grænt bandalag [stjórn kristilegra
og frjálslyndra] hljóti mikla bandalagið að verða
til sjálfkrafa,“ sagði Merkel í viðtali við blaðið
Stuttgarter Nachrichten. „Og ég segi þeim að það
muni ekki gerast.“ Schröder er ekki blíðmálli, að
sögn AFP-fréttastofunnar, hann segist ekki munu
taka þátt í stjórnarsamstarfi við kristilega og
hætta afskiptum af pólitík ef það verði niður-
staðan.
Kjósendur hafa margir lýst áhuga á samstjórn
stóru fylkinganna, fylgi við hugmyndina var um
36% fyrir viku en hefur nú dvínað mjög og
mældist aðeins 23%. Síðast stjórnuðu fylking-
arnar tvær saman á árunum 1966–1969. Sam-
starfið gekk þá vel og tókst að vinna bug á tíma-
bundnum efnahagserfiðleikum. En
heimildarmenn segja margir að nú séu aðstæður
öðruvísi og samstarfið myndi varla haldast út
kjörtímabilið. „Allir myndu vilja fá nýjar kosn-
ingar sem fyrst og ekki gera annað en bíða eftir
góðu tækifæri til að ganga út,“ sagði Günther
Beckstein, innanríkisráðherra Bæjaralands, í
blaðaviðtali en hann er úr röðum kristilegu flokk-
anna.
Nær þriðjungur
kjósenda óákveðinn
Nær þriðjungur kjósenda hefur samkvæmt
könnunum enn ekki gert upp hug sinn en frétta-
skýrendur segja að síðustu daga hafi atvinnuleys-
ið skyggt á önnur mál, þ.á m. efnahags-
málatillögurnar. Athyglisvert er að 51%
aðspurðra í könnun Forsa-stofnunarinnar sagðist
ekki vilja að nýir leiðtogar tækju við völdum.
Fyrir tveim vikum var hlutfallið um 45% sem
hlýtur að vera umhugsunarefni fyrir Merkel og
kristilega.
Hjónaband ólundarinnar
eftir kosningarnar?
CDU og SPD gætu orðið
að vinna saman í stjórn
Reuters
Gerhard Schröder kanslari á leið á kosningafund í Trier í gær. Kosið verður á sunnudag.
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
BRESKA lögreglan handtók í gær
sjö útlendinga og er búist við, að
þeim verði vísað úr landi af „örygg-
isástæðum“. Var ekki skýrt frá
nöfnum þeirra eða þjóðerni en
breskir fjölmiðlar segja, að ein-
hverjir þeirra að minnsta kosti hafi
verið meðal átta
Norður-
Afríkumanna,
sem voru sýkn-
aðir í apríl síð-
astliðnum af
ákæru um að
hafa ætlað að
vinna hryðju-
verk með tauga-
eitrinu rísín.
Eftir hryðju-
verkin í London í júlí er það stefna
stjórnvalda að reka úr landi þá út-
lendinga, sem eru taldir geta ógnað
öryggi ríkisins og þegna þess.
Charles Clarke innanríkisráðherra
hefur tekið undir kröfur lögregl-
unnar um, að leyfilegt verði að
halda grunuðum hryðjuverka-
mönnum í fangelsi í þrjá mánuði án
ákæru í stað hálfs mánaðar nú.
Uppbygging
brýnni en
skattalækkanir
BANDARÍKJAMENN telja það
brýnna að byggja upp New Orleans
en lækka skatta eða breyta eftir-
launakerfinu en þau tvö mál voru
efst á baugi hjá George W. Bush
forseta fyrir hamfarirnar. Kemur
þetta fram í skoðanakönnun CBS-
New York Times í fyrradag. 63%
töldu mikilvægara að endurreisa
New Orleans en að hreyfa við eft-
irlaunakerfinu og 73% sögðu upp-
bygginguna brýnni en skattalækk-
un. Rúmlega helmingur var fús til
að greiða hærri skatta til að hjálpa
þeim, sem líða fyrir afleiðingar
fellibylsins, en 75% vildu ekki, að
bensínverð yrði hækkað í því skyni.
Klagaði leigu-
morðingjann
JAPÖNSK kona, Eriko Kawaguchi
að nafni, sem fékk leigumorðingja
til að drepa ófríska eiginkonu ást-
manns síns, er nú í haldi lögregl-
unnar. Var hún handtekin á lög-
reglustöðinni er hún kom þangað til
að klaga leigumorðingjann, sem
hafði tekið við þóknuninni, nærri
8,5 millj. kr., en svikist um morðið.
Hafði hún fundið hann á Netinu og
hann lofað að fyrirkoma eiginkonu
ástmannsins með eitri.
Kawaguchi sagði lögreglunni, að
með morðinu hefði hún viljað hefna
sín vegna „framhjáhalds“ ást-
mannsins.
Leikstjórinn
Robert Wise
látinn
BANDARÍKJAMAÐURINN Robert
Wise, sem á sínum tíma leikstýrði
söngvamyndunum Tónaflóð (The
Sound of Music)
og West Side
Story, lést á
miðvikudag í
Los Angeles, að
sögn BBC í gær.
Wise var 91 árs.
Leikstjórinn
var sjö sinnum á
ferlinum til-
nefndur til Ósk-
arsverðlauna og
vann fjórum sinnum en alls leik-
stýrði hann 39 myndum, þ.á m.
fyrstu Star Trek-kvikmyndinni
1979. Hann var aðeins 19 ára þegar
hann hóf störf í kvikmyndum og var
fyrst við hljóðvinnslu. Árið 1962
deildi hann Óskarnum fyrir leik-
stjórn með Jerome Robbins fyrir
West Side Story. Enn sigraði Wise
árið 1965, þá fyrir Tónaflóð. Sagði
hann sjálfur að leikararnir Julie
Andrews og Christopher Plummer
hefðu átt mikinn þátt í þeim sigri.
Handteknir og
vísað úr landi
Charles Clarke
Robert Wise