Morgunblaðið - 16.09.2005, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2005 25
DAGLEGT LÍF
52
.87
0 k
r
Dal.is
Eldshöfða 16
Sími: 616 9606
Opið 12 - 16
BESTA VERÐIÐ?
Klassík
Laugardagur 17.sept
D A N S L E I K U R
Danshljómsveitin
GUÐNI Gunnarsson fékk það
skemmtilega verkefni fyrr á þessu
ári að veita lífsráðgjöf ekki ómerk-
ara fyrirbæri en sjálfri ofurhetjunni
Súperman. „Vinur minn Gil Adler
réði mig til starfsins en hann er
framleiðandi að myndinni Superman
returns sem sýnd verður á næsta
ári. Gil þekkir til verka minna og
veit að ég er upphafsmaður og stofn-
andi kaðlajóga (Rope yoga) í heim-
inum og að ég hef leiðbeint í þeim
fræðum í mörg ár. Þess vegna þótti
honum ég tilvalinn til að sjá um and-
lega velferð aðalleikarans Brandon
Routh, meðan á tökum myndarinnar
stóð.“
Stígur beint til himna
Brandon Routh, sem leikur Súp-
erman í þessari mynd, er ungur og
alls óreyndur leikari. „Ég fór með
honum til Ástralíu í janúar þar sem
tökur fóru meðal annars fram, og ég
var líka með hann í einkaþjálfun í
þrjá mánuði úti í Los Angeles. Það
er nokkuð ljóst að þegar myndin fer
í sýningu þá mun hann stíga beint til
himna eins og við köllum það þegar
kvikmyndastjarna verður til. Og það
er mikið álag að verða stjarna í
þessum kvikmyndaheimi. Mitt hlut-
verk er meðal annars að búa Brand-
on undir allt það andlega álag og
áreiti sem því fylgir. Þetta er mjög
ljúfur og indæll drengur og það þarf
sterk bein til að standa undir vel-
gengni á þessu sviði og því þótti ráð-
legt að veita honum andlega ráðgjöf
og koma á sem bestu tilfinningalegu
jafnvægi svo hann gæti unnið sem
best úr þeim frama sem hann mun
öðlast.“
Kjarninn er miðja líkamans
Guðni segir að Brandon hafi sann-
arlega fengið mikla ráðgjöf í líkams-
ræktinni, því hann þurfti að byggja
upp mikinn vöðvamassa fyrir þetta
hlutverk. „Í svona hlutverki þar sem
heilmikið reynir á líkamann, þá þarf
hann að vera í góðu flæði. Kaðlajóga
var talið hafa best áhrif á kviðinn,
sem er jú miðja líkamans, svo hann
hefði fullkomið vald á skrokknum.“
Guðni segir kaðlajóga ganga út á
umbyltingu kjarnans. „Kjarninn er
þá svæðið í kringum naflastrenginn,
eða miðja líkamans. Með því að þróa
með sér tengingu við kviðinn, þá
styrkist öll tilvist hans, melting og
úrvinnsla og þar af leiðandi orka og
flæði. Þetta snýst líka um að vera
vakandi í tilvist sinni og geta brugð-
ist við aðstæðum hverju sinni.
Kaðlajóga gengur meðal annars út á
slökun og einbeitingu og sjö skrefa
kerfi til að vakna til vitundar.“
Kvik flugskot framundan
Tökur á myndinni Superman re-
turns standa enn yfir og Steven
Barton, þjálfari á vegum Guðna, sér
núna um þjálfun Brandons. „Ég er í
sambandi við hann og veiti ráð bæði
um næringu og hugmyndafræði. En
ég tek við þjálfun Brandons í Los
Angeles í lok þessa mánaðar og verð
með hann í nokkrar vikur til að und-
irbúa hann fyrir svokölluð flugskot,
en þar kemur kaðlajóga aftur inn,
því hann þarf að vera mjög kvikur
og hverfull í þeim tökum.“
Guðni segir það hafa verið merki-
lega reynslu að vinna innan kvik-
myndageirans í Ameríku. „Þetta er
mjög sérstakur heimur og hverfull
og það er oft stutt í átök.“
VERKEFNI | Guðni Gunnarsson veitti óreyndum leikara lífsráðgjöf
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Guðni fékk það verkefni að veita leikaranum Brandon Routh andlega leið-
sögn og undirbúa hann fyrir þann frama sem hann á í vændum.
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Nú um helgina verður Guðni með
opið námskeið (workshop) í Maður
Lifandi í Borgartúni um kaðlajóga.
Námskeiðið hefst í kvöld kl. 19:00
og verður áfram haldið á laug-
ardag og sunnudag.
www.ropeyoga.is
www.ropeyoga.com.
www.fullyalivecoaching.com
Guðni Gunnarsson er upphafsmaður kaðlajóga sem gengur meðal annars
út á slökun og einbeitingu og sjö skrefa kerfi til að vakna til vitundar.
Súperman þarf að vera
í afar góðu jafnvægi