Morgunblaðið - 16.09.2005, Blaðsíða 38
38 FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Geir Þorsteins-son fæddist í
Reykjavík 5. júlí
1916. Hann lést á
Landspítalanum 8.
september síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Guðrún Geirs-
dóttir skriftarkenn-
ari, f. 29. nóvember
1887, d. 4. mars
1955, og Þorsteinn
Þorsteinsson, hag-
stofustjóri, f. 5. apríl
1880, d. 22. febrúar
1979. Geir var elst-
ur í röð fimm systkina. Yngri
systkini hans eru Hannes, f. 25.
desember 1918, Þorsteinn f. 31.
mars 1920, Narfi, f. 23. maí 1922,
d. 25. desember 1989, og Bryndís,
f. 26. september 1923.
Hinn 28. júlí 1956 kvæntist Geir
eftirlifandi eiginkonu sinni Inge
Jensdóttur Laursen, f. 25. desem-
ber 1921 í Förslev við Haslev í
Danmörku. Fyrstu árin bjuggu
þau á Laufásvegi 57, en fluttu árið
1960 í Skeiðarvog 37 þar sem þau
bjuggu síðan.
Geir lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík árið
1935, fyrrihlutaprófi í verkfræði
frá Tækniháskólanum í Þránd-
heimi 1941 og prófi í bygginga-
verkfræði frá Há-
skóla Íslands árið
1948. Geir starfaði
sem verkfræðingur
hjá bæjarverkfræð-
ingnum í Reykjavík
á árabilinu 1948–
1954 og var forstjóri
Ræsis hf. frá 1954 til
1986.
Geir var virkur í
félagsstarfi og
gegndi ýmsum trún-
aðarstörfum. Hann
sat í stjórn Félags
bifreiðaeigenda í
Reykjavík á árunum 1958–70, þar
af sem varaformaður 1968–70.
Hann sat í stjórn Sambands bíla-
verkstæða á Íslandi 1962–70, þar
af sem formaður 1968–70. Í stjórn
Bílgreinasambandsins 1970–78,
var varaformaður 1970–75 og for-
maður 1975–78. Einnig sat Geir í
verðlagsnefnd búvara, „sex-
mannanefndinni“ svokallaðri á
árunum 1974–86 og í nefnd sem
samdi frumvarp til laga um að-
búnað, hollustuhætti og öryggi á
vinnustöðum 1978–79. Hann var
gerður að heiðursfélaga Bíl-
greinasambandsins árið 1968.
Útför Geirs verður gerð frá
Langholtskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 11.
Föðurbróðir minn, Geir Þorsteins-
son, er látinn í hárri elli. Það voru
forréttindi mín, eins og margra ann-
arra barnabarna ömmu og afa, að
eyða fyrstu æviárunum í húsinu
þeirra að Laufásvegi 57. Þar mætt-
ust þrjár kynslóðir með eftirminni-
legum hætti. Amma og afi, aldamóta-
fólkið sem tók virkan þátt í
sjáfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Börn
þeirra, sem á sama æviskeiði upplifði
að við urðum lýðveldi mitt í hörm-
ungum heimsstyrjaldar, sem olli á
margan hátt straumhvörfum í lífi
þeirra. Við, þriðji ættliðurinn, áttum
síðan flest öll eftir að taka út þroska
okkar í umróti hippatímans.
Mér er sagt, að prakkarastrik mín
á Laufásvegsárunum hafi oftast mátt
rekja til frænda minna, Geirs og
Steina. Þar sem ég var elstur barna-
barnanna hef ég sjálfsagt átt óskipta
athygli þeirra. Þegar fram liðu
stundir stækkaði barnahópurinn og
ég var ekki lengur einn um hituna.
Ég taldi mig hins vegar vera búinn
að skipa mér í sérstakan sess hjá
Geir frænda. Hann átti alla vega eftir
að skipa háan sess hjá mér um alla
framtíð. Það var t. d. ekki ónýtt að
eiga frænda, sem gat séð manni fyrir
splunkunýjum Mercedes Benz bíla-
myndum, sem voru gulls ígildi á
strákamarkaði slíkra mynda um
miðjan sjötta áratuginn. Ekki var
það síður ánægjulegt síðar á lífsleið-
inni þegar samskipti mín hófust við
leigubílstjóra og aðra atvinnubíl-
stjóra að heyra eitthvað þessu líkt:
„Nú, ertu frændi hans, Geir er fínn
karl.“ Ég var alltaf montinn af Geir
frænda.
Það var örugglega mikið gæfuspor
hjá Geir þegar hann, á miðjum aldri,
kvæntist Inge. Þessi glæsilega
danska kona skapaði honum fallegt
heimili, sem síðar er stundir liðu varð
vettvangur boða og stórveizlna af
öllu tagi. Þar fór vel saman dönsk
smekkvísi og matargerðarlist og ís-
lenzkur höfðingskapur.
Þótt Geir frændi gæti virkað
hrjúfur á yfirborðinu þá var alltaf
stutt í ljúft viðmótið og víst er, að
sjaldnast mátti hann aumt sjá svo
ekki vildi hann um bæta. Hann var
fyrst og fremst alþýðlegur, heiðar-
legur og fullkomlega laus við allan
hroka og yfirborðsmennsku. Þessir
eiginleikar, ásamt góðum gáfum,
nýttust honum vel til að leggja víða
hönd á plóginn í íslenzku athafna og
þjóðlífi. Geir var mikill gleðimaður
og hrókur alls fagnaðar, hvar sem
hann fór. Raunar hef ég alltaf bent á
hann sem lýsandi dæmi um það, að
ekki þurfi að stunda neinn meinlæta-
lifnað til þess að lifa lengi í sátt við
líkama og sál.
Nú, þegar leiðir skilja, kveðjum
við öll stórbrotinn mann með miklum
söknuði. Ég, foreldrar mínir og syst-
ur ásamt fjölskyldum vottum Inge
innilegustu samúð okkar.
Hjörtur Hannesson.
Í dag, föstudaginn 16. september,
verður til moldar borinn vinur minn
og frændi, Geir Þorsteinsson. Þegar
kallið kemur að lokum er það alltaf
jafn óvænt þó að Geir hafi náð nærri
níræðisaldri þá var langlífi einkenn-
andi í hans ætt og hann ern og hress.
Við sem áttum því láni að fagna að
starfa með Geir Þorsteinssyni erum
allir betri vegna þeirrar reynslu.
Geir var einkar lagið að setja sig inn í
viðfangsefni annarra og stöðu og
hafði alltaf eitthvað jákvætt til mál-
anna að leggja. Þegar hann tók við
störfum hjá Ræsi hf. var umhverfið
allt annað og verra til fyrirtækja-
reksturs. Þá ríktu höft á öllum hlut-
um – til að flytja inn vörur þurfti leyfi
og svo annað leyfi til að fá gjaldeyri
til að greiða vörurnar og þannig koll
af kolli. Geir var líklega einn af
fyrstu útflytjendum íslenskra hrossa
enda einkar útsjónarsamur og komst
að því að ef hægt væri að koma á
vöruskiptum var hægt að fá innflutn-
ingsleyfi og kom því þá í kring að
flytja út íslenska hesta í skiptum fyr-
ir bíla. Því miður komst ekki skriður
á þessi viðskipti þannig að þau lögð-
ust fljótt af. En þetta var einkenn-
andi fyrir Geir – alltaf reiðubúinn að
prófa nýjar leiðir. Þess var oft þörf
því það var ekki auðvelt að reka fyr-
irtæki í bílgreininni mörg árin sem
hann var við stjórnvölinn. Stundum
þurfti að draga saman seglin og bíða
færis eftir betri valkostum. En eðl-
islæg skynsemi hans leiddi fyrirtæk-
ið í gegnum þær ógnanir sem á vegi
urðu. Að kunna að hlusta var mik-
ilvægur eiginleiki og finna þannig
hvað kom sér best fyrir viðskiptavin-
ina. Þannig gat Geir oft leyst vanda-
mál í þröngri stöðu. Geir var einkar
greiðvikinn að eðlisfari og einstak-
lega praktískur þannig að arfleifð
hans er þjónustuviðmót sem ein-
kennist af að innihaldið sé í lagi. Við
samstarfsmenn fengum ríkulega að
njóta ráðgjafar hans sem við minn-
umst með hlýju. Einkennandi var
hvað hann leiddi með fordæmi frekar
en með tilskipunum og kryddaði
gjarnan leiðsögn sína með frábæru
skopskyni sem gerði alla vinnu létt-
ari og skemmtilegri.
Geir naut mikils trausts og var eft-
irsóttur til félagsstarfa. Hann var um
langt skeið í stjórn Bílgreinasam-
bandsins og forvera þess þar af síð-
ustu þrjú árin sem formaður. Hann
átti einnig sæti í stjórn lífeyrissjóðs
málm- og skipasmiða, í sex-manna
nefndinni frægu sem ákvað verðlag á
landbúnaðarvörum svo eitthvað sé
talið. Þegar Geir lét af störfum hjá
Ræsi hf. var hann kosinn í stjórn fé-
lagsins og var stjórnarmaður fram til
2004.
Geir var ekki bara góður ráðgjafi
heldur líka náinn frændi sem ég,
systkini mín og foreldrar höfum haft
þau forréttindi að eiga að vini. Þessi
vinskapur hefur haldið áfram til
næstu kynslóðar þannig að börn mín
og systur minnar hafa nú misst
uppáhaldsfrændann úr hans kyn-
slóð.
Geir var gæfumaður í einkalífi. Ár-
ið 1956 giftist Geir eftirlifandi eigin-
konu sinni Inge Jensdóttur Laursen.
Geir átti stuðning Inge alltaf vísan.
Hún hefur ekki síðra skopskyn en
eiginmaðurinn og léttu þau and-
rúmsloftið hvar sem þau komu. Ein-
kennandi á heimilisbrag þeirra var
hversu auðveldlega þeim gekk að
umgangast alla sína samferðamenn.
Gildir þá einu hvort um var að ræða
börn, gamalmenni eða jafnaldra.
Geir hafði gaman af að bregða á leik
við börnin þannig að þau muna enn,
sum nú fullorðin, eftir lífsgleðinni
sem þeim hjónum var svo eiginleg.
Við samferðamenn, vinir og frændur
þökkum að leiðarlokum fyrir þau for-
réttindi að hafa fengið að ganga með
Geir smá spöl á vegi lífsins og send-
um Inge okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Hallgrímur Gunnarsson.
Í dag kveðjum við Geir Þorsteins-
son. Hann var farsæll maður í einka-
lífi og starfi og fyrirmynd margra.
Geir hafði þá náðargáfu að öllum leið
vel í návist hans. Hann var samtímis
stríðinn og glaðsinna, ráðhollur
hlustandi og kunni að gleðjast og
syrgja með sínum samheldna frænd-
garði og vinahóp. Saman hafa þau
Inge glatt og stutt stóran hóp af fólki
á öllum aldri. Góðar minningar eig-
um við systkinin frá þeim tíma er
Geir og Inge pössuðu okkur um tíma
þegar foreldrar okkar voru erlendis.
Ég og fjölskylda mín minnumst
Geirs með djúpri virðingu og inni-
legu þakklæti.
Áslaug Gunnarsdóttir.
Nú er höfðinginn Geir frændi fall-
inn frá. Geir og Inge voru einn af
föstu póstunum í tilverunni hjá okk-
ur krökkunum í fjölskyldunni. Það
lýsir honum kannski best að þegar
ég sagði níu ára dóttur minni frá því
að hann væri dáinn hugsaði hún sig
um svolitla stund og sagði svo: ,,Jáá-
áá, þú meinar þessi skemmtilegi!“
Það er af mörgu að taka þegar
horft er til baka og minningarnar
streyma fram.
Við hlökkuðum alltaf til að heim-
sækja Geir og Inge og sérstaklega
voru jólaboðin þeirra eftirminnileg.
Oft gistum við hjá þeim enda var þar
gott að vera og Geir hjálpaði okkur
þá gjarnan við heimanámið.
Leikfangalestin hans Geirs
frænda var engin venjuleg lest. Hún
fyllti allt gólfið í kontórnum með öllu
tilheyrandi: teinum, brautarstöðvum
og húsum. Einnig voru kassarnir
með Mercedes bílunum alltaf spenn-
andi. Vel var veitt af nammi og kök-
um og hvergi annars staðar en hjá
Inge og Geir fengum við gosdrykk-
inn Spur.
Það var eftirminnileg ferð sem
Geir fór með okkur krakkana á göml-
um Unimog-jeppa upp á Úlfarsfell.
Eitthvað var bíllinn ekki alveg í lagi
og var hávaðinn í honum mikill. Mig
minnir að röðin fyrir aftan okkur hafi
orðið ansi löng en upp á fjallið kom-
umst við og mikið ævintýri var þetta
fyrir okkur.
Á menntaskólaárunum borðaði ég
stundum í hádeginu hjá Inge og Geir.
Alltaf tekið vel á móti mér og ljúf-
fengur matur hjá Inge.
Leiðir okkar Geirs lágu einnig
saman í hestamennskunni. Hann átti
nokkra góða gæðinga, stóra og öfl-
uga, enda var hann sjálfur mikill að
burðum. Geir og vinur hans Óli Páls
voru vanir að fara langar hestaferðir
á sumrin og var mér einu sinni boðið í
eina slíka ásamt fleiri ungum mönn-
um. Fórum yfir Kjöl þar sem við
gistum í fjallaskálum við misgóðan
aðbúnað. Á meðan hestarnir voru
hvíldir sagði Geir okkur sögur og við
hlustuðum með athygli.
Geir var alla tíð mikill áhugamað-
ur um bíla og keyrði Bensana sína
allt fram á síðasta dag. Hann fór með
konurnar um bæinn, hægt og gæti-
lega í seinni tíð og þá helst um götur
sem hann þekkti vel.
Það er ef til vill dæmigert fyrir
Geir að kvöldið fyrir andlát sitt
mætti hann í afmælisfagnað frænku
sinnar hress og kátur að vanda. Um
nóttina kvaddi hann þennan heim.
Ég þakka Geir frænda fyrir allar
góðu stundirnar sem við höfum átt
saman og við fjölskyldan vottum
Inge okkar dýpstu samúð.
Þorsteinn Helgason.
Margs er að minnast og margs er
að sakna þegar ég sest niður og rifja
upp mín bestu minningabrot frá upp-
vaxtarárunum, en þá komu þeir Geir
og pabbi oftar en ekki við sögu. Milli
pabba og Geirs voru tíu ár og tveir
dagar í aldursmun, báðir fæddir í
júlíbyrjun en þeir áttu afskaplega vel
saman og aldrei varð ég vör við að þá
greindi nokkurn tímann á. Þeir áttu
sameiginlegt áhugamál sem var
hestamennska og þegar ég hafði vit
og aldur til tók ég einnig þátt í þessu
áhugamáli þeirra. Og það var aldeilis
ekki leiðinlegt. Ég efast um að marg-
ir hafi fengið að heyra Carmen sung-
ið fyrir sig efst á Arnarvatnsheiði, en
einmitt þannig var Geir. Húmorinn
og glettnin voru aldrei langt undan.
Skipulagðar hestaferðir um hálendið
var árlegur viðburður og alltaf reynt
að feta einhverjar nýjar leiðir, sem
gátu verið talsvert torfærar á köfl-
um. Menn gáfu sér góðan tíma í und-
irbúning og þá komu skipulagshæfi-
leikar Geirs sér að góðum notum.
Vegalengdir milli áningarstaða voru
vegnar og mældar og allt skráð og
haldið vel til haga þegar lagt var í för.
Geir átti dyggan lífsförunaut sem
var Inge. Það var oft gestkvæmt í
Skeiðarvoginum og veisluborð Inge
áttu engan sinn líka.
Mín fyrsta tjaldferð sem ég minn-
ist, var þegar ég var fárra ára á
ferðalagi með mömmu, pabba, Geir
og Inge. Þá fékk ég að gista eina nótt
í tjaldinu hjá Inge og Geir. Þar var
ekki í kot vísað í því tjaldi, uppábúin
rúm og „meget, meget hyggeligt“.
Eftirsókn í félagskap þeirra hjóna
áttu sér engin landamæri. Það var í
raun sama hversu gamall viðkom-
andi var eða hvaða stöðu hann
gegndi í þjóðfélaginu. Það þótti öll-
um gaman að vera í návist þeirra. Þá
var Geir lipur tungumálamaður og
átti auðvelt með að gefa sig á tal við
hvern sem er og gátu oft spunnist
ansi líflegar umræður.
Ef það er líf eftir þetta líf, þá er ég
viss um að pabbi hafi staðið við hliðið
með klár til reiðu handa Geir, þar
sem þeir feta nú nýjar ókunnar slóð-
ir.
Kæra Inge. Þinn söknuður er mik-
ill. Mínar bestu kveðjur.
Harpa Ólafsdóttir.
Inge og Geir koma gangandi eftir
stígnum arm í arm. Þau fara ekki
hratt yfir enda árin farin að segja til
sín. Við horfum á þau út um
gluggann. Inge er glæsileg að vanda,
hávaxin og tíguleg. Hann er stór-
skorinn í andliti, miklar kinnarnar
örlítið signar, nefið vel lagað og íbog-
ið, munnurinn stór og varirnar þykk-
ar. Snyrt yfirvararskeggið situr vel
enda skeggstæðið breitt og mikið.
Augun eru ung og full af gáska.
Hann er flottur hann Geir frændi
með hattinn og stafinn og augljóst að
hér fer einn af höfðingjum Reykja-
víkur.
Hálfníræður galgopi við stýrið á
gula Benzinum á leiðinni inn í Kverk-
fjöll, stríðnisglampi í augum. Hann
ætlar sko ekki að hleypa Toyota-
jeppunum fram úr og vinnur enda-
sprettinn heim að Sigurðarskála með
glæsibrag; langtum yngri farþegar
halda sér dauðahaldi, náfölir.
Geir stendur í hlaðinu á æsku-
heimili Inge í Nörre Tvede og vinkar
kankvís til okkar eftir enn eina stór-
veisluna á því rausnarheimili. Ungu
námsmennirnir sjá hann í þoku út
um bílrúðuna, hálf rænulausir því
efnt hafði verið til kappdrykkju; eig-
inkonurnar keyra.
Svipmyndir af þessu tagi fara um
hugann nú þegar Geir er allur. Hann
hafði einstaklega trausta, góða og
skemmtilega nærveru sem einkennir
þá sem eru sáttir við sjálfa sig og til-
veruna. Hann var húmoristi fram í
fingurgóma, en gat verið hrjúfur og
beinskeyttur og stundum meinstríð-
inn. Hann var töffari og þoldi illa
væmni og tepruskap, en undir niðri
bærðist viðkvæmt gullhjarta. Í sam-
ræðum okkar endurspeglaðist ólík
lífssýn og oft var tekist á um málefni
og talað hátt; hann maður raunsæis,
framkvæmda og verkfræðilegra
lausna í anda Einars Ben, en við
rómantískir náttúruverndarar undir
áhrifum útlendra grillufangara. Geir
borðaði ekki „gras“ ef í boði var kjöt
eða fiskur. Hann sá ekki ástæðu til
að ganga ef hægt var að komast
sömu leið á gæðingi eða góðum Benz.
Við þökkum Geir ómetanlegar
samsverustundir og biðjum góðar
vættir að vera með Inge.
Guðrún Narfadóttir
og Snorri Baldursson.
Þótt Geir Þorsteinsson hafi verið
orðinn 89 ára gamall kom andlát
hans nokkuð á óvart. Hann var
sæmilega hress og keyrði enn Bens-
inn sinn af öryggi bæði hér heima og
erlendis. Máttu margir yngri öku-
menn taka hann sér til fyrirmyndar í
umferðinni. En þar sem hann var að
verða níræður mátti auðvitað við öllu
búast.
Leiðir okkar Geirs lágu fyrst sam-
an árið 1974 þegar ég kynntist Guð-
rúnu bróðurdóttur hans. Hún ólst
upp í húsi afa síns og ömmu, Þor-
steins Þorsteinssonar hagstofustjóra
og Guðrúnar Geirsdóttur við Lauf-
ásveg. Þar bjuggu einnig Geir og
Inge fyrstu búskaparárin sín. Tengsl
fjölskyldnanna voru sterk og Guðrún
var ekki nema átta ára þegar hún fór
fyrst með Inge til Danmerkur á
heimaslóðir hennar í Nørre-Tvede.
Ætíð síðan voru samskipti þeirra
hjóna og hennar mikil og því hlaut ég
líka að kynnast þeim vel. Í alla staði
hafa það verið góð kynni og það er
með söknuði að ég kveð Geir nú þeg-
ar hann er allur. Hann var traustur
og velviljaður maður, jákvæður og
gæddur góðum húmor.
Á þessum tímamótum koma marg-
ar góðar minningar upp í hugann frá
fjölmörgum heimsóknum okkar
hjóna til Inge og Geirs. Þá var stund-
um boðið upp á „en lille en“. Á eftir
var sest að matarborði en Inge er
meistarakokkur. Voru umræður
ávallt fjörugar og Geir lá ekki á skoð-
unum sínum.
Upp í hugann koma líka ánægju-
legar minningar frá Danmerkurför
sumarið 2004. Þá fórum við Guðrún
ásamt foreldrum hennar í heimsókn
til Geirs og Inge í Nørre-Tvede og
systra hennar þar. Nokkrum dögum
seinna komu systurnar með Geir í
Bensanum til okkar í sumarhúsið í
Rödvig. Þar var setið í blíðviðri og
spjallað saman.
Geir var barngóður og náði vel til
unga fólksins þrátt fyrir aldursmun.
Oft aðstoðaði hann skólafólk, einkum
í stærðfræði en hana kunni hann
mjög vel. Hann var uppáhaldsfrændi
barna okkar og þau kunnu vel að
meta skopskyn hans.
Það er komið að kveðjustund. Við
hjónin þökkum Geir fyrir áralanga
ánægjulega samfylgd og biðjum
GEIR
ÞORSTEINSSON
Lokað
Snyrtimiðstöðin Lancome, Kringlunni 7, Húsi verzlunarinnar,
verður lokuð í dag vegna jarðarfarar FRIÐMEYJAR
GUÐMUNDSDÓTTUR.
Snyrtimiðstöðin Lancome,
Kringlunni 7.