Morgunblaðið - 16.09.2005, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2005 47
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir
eftir vitnum að árekstri á gatna-
mótum Rauðarárstígs og Skúla-
götu hinn 14. september rétt fyrir
kl. 13. Rauðri KIA-jeppabifreið
var ekið norður Rauðarárstíg og
beygt vestur Skúlagötu og lenti
hún á grárri Toyota Landcruiser-
jeppabifreið sem ekið var vestur
Skúlagötu. Þeir sem geta gefið
upplýsingar um óhappið eru beðn-
ir að hafa samband við umferð-
ardeild lögreglunnar í Reykjavík í
síma 4441130.
Lýst eftir
vitnum
PÉTUR Björnsson, fyrrverandi for-
stjóri og eigandi Vífilfells, hefur veitt
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna,
UNICEF, fimm milljóna króna styrk
til verkefnis í V-Afríkuríkinu Gíneu-
Bissá en samtökin eiga nú möguleika
á því að beina styrkjum beint til af-
markaðra verkefna sem gefur
styrktaraðilum kleift að fylgjast bet-
ur með í hvað fjármunirnir fara.
Stefán Ingi Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri UNICEF á Íslandi,
segir stuðning Péturs mikið gleðiefni
en það er ekki á hverjum degi sem
einstaklingar veita svo háa upphæð
til góðgerðamála.
„Pétur og fjölskylda hans hafa
sýnt starfi UNICEF áhuga lengi og
fylgst með verkefninu í Gíneu-Bissá
um nokkurn tíma en fjárstuðn-
ingnum frá Pétri verður varið til tví-
þætts verkefnis. Annars vegar er
tekið á vandamáli sem snýr að joð-
skorti hjá konum og börnum og hins
vegar á ólæsi og skorti á menntun.
Það eru konur sem sjá um að fram-
leiða saltið og bæta við það joði hálf-
an daginn, hinn hluta dagsins eru
þær í skóla. Þannig er því verið að út-
vega þeim atvinnu og um leið að
mennta þær.“
Pétur Björnsson, Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF, og
Einar Benediktsson, stjórnarformaður á Íslandi, með poka af joðbættu salti.
Fimm milljónir til Barnahjálpar
Pétur Björnsson styrkir verkefni UNICEF í Gíneu-Bissá
Í TILEFNI af ári eðlisfræðinnar
verða haldnir fyrirlestrar á vegum
Eðlisfræðifélags Íslands og Raun-
vísindadeildar Háskólans í sal 1 í
Háskólabíói á laugardögum. Fyr-
irlestrarnir hefjast klukkan 14 og
standa í 45–60 mínútur en á eftir
gefst kostur á umræðum. Erindin
eru ætluð almenningi og allir eru
velkomnir.
Fjórir fyrirlestrar voru haldnir í
apríl og nú í haust verða flutt átta
erindi.
Fjallað er bæði um ýmsar
grundvallarspurningar vísindanna
og einnig um það sem efst er á
baugi um þessar mundir í vís-
indum og tækni.
Á morgun, laugardaginn 17.
september, kl. 14 heldur Hannes
Jónsson fyrirlestur er nefnist
Nanókerfi og orka: Þverrandi olíu-
lindir ógna mannkyninu og ljóst er
að þróa þarf nýja tækni til að afla
orku – margir telja þessa þróun þó
allt of hæga. Hvernig tengjast
rannsóknir og hönnun á svoköll-
uðum nanókerfum orkurann-
sóknum?
Dagskrá næstu fyrirlestra verð-
ur sem hér segir: 24. sept. Sigríð-
ur Valgeirsdóttir: Genaflögur: Að
lesa genamengið með örflögu-
tækni; 1. okt. Viðar Guðmundsson:
Eðlisvísindi í tölvum; 8. okt. Brynj-
ar Karlsson: Eðlisfræði í heilbrigð-
isgeiranum: Frá Arkímedesi til
öreinda; 15. okt. Guðmundur Egg-
ertsson: Uppruni lífsins; 22. okt.
Þorsteinn Þorsteinsson: Líf í
geimnum?; 29. okt. Jakob Yngva-
son: Kaldasta efnið: Enn ein upp-
götvun Einsteins; 5. nóv. Lárus
Thorlacius: Uppruni alheimsins.
Fyrirlestrar
á ári eðlis-
fræðinnar
Rangt nafn
Nafn og starfstitill Hjálmars W.
Hannessonar, sendiherra og fasta-
fulltrúa Íslands hjá Sameinuðu þjóð-
unum, misritaðist í myndatexta með
mynd af Hjálmari og Halldóri Ás-
grímssyni forsætisráðherra á fundi
Sameinuðu þjóðanna í blaðinu í gær.
Beðist er velvirðingar á þessu.
LEIÐRÉTT
TÍSKUDAGAR hófust í Kringlunni
í gær og standa til 25. september,
þar sem íslensk og alþjóðleg haust-
tíska er kynnt.
Hausttískan er komin í verslanir
Kringlunnar og af því tilefni halda
tískuverslanir tískudaga og stilla
fram hausttískunni. Útskrift-
arnemar Listaháskóla Íslands í
fatahönnun sýna hvað framtíðin
ber í skauti sér á sýningu á laug-
ardag. Þá hefur Kringlan einnig
gefið út 64 síðna tímarit fyrir gesti
sína sem helgað er hausttískunni.
Tískudagar
í Kringlunni
FYRSTA æðruleysis-
messan í Dómkirkjunni eft-
ir sumarfrí verður næst-
komandi sunnudagskvöld
klukkan 20. Þær eru haldn-
ar einu sinni í mánuði,
næstsíðasta sunnudag
hvers mánaðar, alltaf
klukkan 20.
Æðruleysismessur eru
tileinkaðar þeim sem hafa eignast
nýja sýn til lífsins fyrir tilstilli
sporakerfis AA-samtakanna. Í til-
kynningu frá kirkjunni segir að þess-
ar guðsþjónustur hafi gefið góða
raun og verið afar vinsælar. Í
messunum er leikin
fjölbreytt tónlist og ræðu-
menn koma úr ýmsum áttum.
Auk dómkirkjuprestanna sr.
Jakobs Ágústs Hjálm-
arssonar og sr. Hjálmars
Jónssonar munu sjá um
messurnar sr. Jóna Hrönn
Bolladóttir miðborgar-
prestur, sr. Anna Sigríður
Pálsdóttir í Grafarvogi og sr. Karl V.
Matthíasson sérþjónustuprestur á
sviði áfengis- og fíkniefnamála.
Einnig kemur Marinó Þorsteinsson
sóknarnefndarformaður í Dóm-
kirkjunni að starfinu. Tónlist er í
umsjón Harðar Bragasonar.
Fyrsta messan verður sem fyrr
segir sunnudaginn 18. september
klukkan 20.00. Messudagar fram að
áramótum eru 18. september, 23.
október, 20. nóvember og 18. desem-
ber. Í messunni á sunnudaginn 18.
september munu Hjálmar, Anna og
Karl annast messuna ásamt Herði
Bragasyni, söngkonunni Önnu Sig-
ríði Helgadóttir og Guðfreður Jó-
hannesson syngur lofsöng eftir
Beethoven. Þá verður sögð reynslu-
saga eða rætt um lífið og tilveruna á
jákvæðum nótum. Allir eru vel-
komnir.
Æðruleysismessur í Dómkirkjunni