Morgunblaðið - 16.09.2005, Page 52
52 FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ÞEGAR komið er inn í sýning-
arrýmið Suðsuðvestur í Reykja-
nesbæ tekur á móti manni frekjulegt
og kunnuglegt mávagarg. Ekki
heyrði ég betur en þar væri um fugla
að ræða þar til ég var upplýst um að
hér voru Gjörningaklúbbskonur
sjálfar að verki, og hafa án efa
skemmt sér vel í stúdíói við að taka
upp þessi óargahljóð sem síðan hafa
verið aðlöguð markmiði sýning-
arinnar. Þema Gjörningaklúbbsins
nú er græðgi, þessi löstur sem nú
virðist löngu orðinn helsti kostur ís-
lensks samfélags. Þær Eirún Sig-
urðardóttir, Jóní Jónsdóttir og Sig-
rún Hrólfsdóttir nota íslenska
máfinn sem líkingu græðginnar og
klæða sig upp í fuglabúninga sem
þær sýna í galleríinu. Við opnun
frömdu þær gjörning sem að sögn
staðarhaldara fólst í því að þvo
koddaver, áprentuð myndum sem
prýða seðla sem ILC hefur látið
prenta, ILC-krónur. Íklæddar
fuglabúningunum að sjálfsögðu
hengdu þær verin út á snúru, eins og
einhvers konar sambland af hús-
mæðrum og alþjóðlegum við-
skiptavörgum sem hvítþvo peninga
sína. Á sýningunni má sjá búninga
þeirra, áprentaða ILC-seðlana,
heimskort og ljósmyndir af ILC, í
búningunum, bæði á veggjum og í al-
búmi á stöpli. Öll útfærsla á hug-
myndinni er óaðfinnanleg, eins og
oftast er um verk Gjörningaklúbbs-
ins, allt frá lógóinu til sokkabuxna-
klofbótarinnar sem prýðir albúmið.
Sýningin er húmorísk og nýtir sér
afar vel staðhætti, tilvísun í máfa í
sjávarplássi gengur vel upp, einnig
það að nota þvottasnúrur í garði.
Búningarnir eru kraftmiklir og eft-
irminnilegir eins og jafnan hjá þeim
stöllum og í heild er augljóst að þær
ná æ betur tökum á vinnuaðferð
sinni og skortir síst hugmyndir.
Græðgi er líka vissulega umhugs-
unarefni í samfélagi okkar í dag þeg-
ar efnishyggjan virðist botnlaus og
hugsjónir gleymt hugtak, í besta
falli eitthvað til að brosa að út í ann-
að, naífur hugsunarháttur löngu lið-
inna kynslóða á borð við hippana.
Hugsjónir eru e.t.v. helst til þess að
græða á þeim, ekki má gleyma því að
ullarsokkum krúttkynslóðarinnar
fylgir oft dýr merkjavara. Síst færi
ég að mæla sjálfboðaliðavinnu lista-
manna bót, en það er líka þreytandi
að meta allt og mæla allt í krónum
og aurum, líkt og það sé eina hugs-
anlega gildið í heimi hér. Ádeila á
þessa græðgi er einmitt kjarni sýn-
ingar Gjörningaklúbbsins en um leið
vandast málið fyrir áhorfandann. Að
mínu mati er ádeilan bæði léttvæg
og ómarkviss, einum of auðveld til
þess að hægt sé að taka hana alvar-
lega. Hér er gargað en ekki goggað
sem verður til þess að inntak sýning-
arinnar fer fyrir bí, verður enn eitt
stundargamanið, enn eitt stutta
brosið út í annað er kallað fram í
smástund, svo búið. Því jafnvel í
ádeilunni er græðgin krúttleg og
skemmtileg, jafnvel dálítið flott og
um leið fellur öll hugsanleg ádeila
um sjálfa sig. Margt af því sem sett
er fram á þennan hátt, innan gæsa-
lappa kaldhæðni og gríns, verður
stikkfrí í raunheiminum, missir alla
merkingu og hugsanlegt gildi. Eftir
stendur enn eitt óaðfinnanlega fram-
reitt sirkusatriði alþjóðlegra sam-
tímalista þar sem hver hlutur hefur
sinn verðmiða.
„Hér er gargað en ekki goggað sem verður til þess að inntak sýningarinnar fer fyrir bí, verður enn eitt stund-
argamanið, enn eitt stutta brosið út í annað er kallað fram í smástund, svo búið.“
Óaðfinnanlega stikkfrí
MYNDLIST
Suðsuðvestur, Reykjanesbæ
Til 25. september. Suðsuðvestur er opið
fimmtud. og föstud. frá kl. 16–18 og
laud. og sunnud. frá kl. 14–17.
Gjörningaklúbburinn
Ragna Sigurðardóttir
Föstudagur
16. september
12.00. Hádegisspjall í Norræna
húsinu. DBC Pierre, Hall-
grímur Helgason, Andrej
Kurkov, Árni Bergmann.
15.00. Eftirmiðdagsspjall í Nor-
ræna húsinu. Antonio Tab-
buchi, Paolo Turchi (á
ítölsku). Paul Auster, Torfi
Tulinius. 20.00. Upplestur í
Iðnó. Siri Hustvedt, Sjón,
Lars Saaby Christensen,
Auður Jónsdóttir, DBC
Pierre.
Dagskrá Bókmenntahátíðar 2005
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
www.kringlukrain.is sími 568 0878
Stuðbandalagið
frá Borgarnesi
www.leikhusid.is
Sala á netinu allan sólarhringinn.
Afgreiðsla í húsinu frá kl. 12.30
Sími 55 11 200 - opinn frá 10:00
StórA Sviðið kl. 20.00 SmíðAverkStæðið kl. 20.00
LitLA Sviðið kl. 20.00
RAMBÓ 7
Lau. 17/9 allra síðasta sýning!
KODDAMAÐURINN
Í kvöld fös. 16/9 uppselt, lau.
17/9 uppselt, fös. 23/9 örfá
sæti laus, lau. 24/9 nokkur
sæti laus, fös. 30/9 nokkur sæti
laus, lau. 1/10 Takmarkaður
sýningafjöldi.
VELKOMIN Í ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
– Leikárið kynnt með leik, söng
og dansi. Fös 16/9, lau. 17/9.
Allir velkomnir!
KLAUFAR OG KÓNGSDÆTUR
Sun. 18/9 kl. 14:00 nokkur sæti
laus, sun. 25/9 kl. 14:00, sun. 2/10
kl. 14:0, sun. 9/10 kl. 14:00
EDITH PIAF
Sun. 18/9 örfá sæti laus, fim. 22/9
, fös. 23/9 örfá sæti laus, lau. 24/9
nokkur sæti laus, fim. 29/9, fös.
30/9. Sýningum lýkur í október.
BENJAMIN
BRITTEN
the turn of the screw
e f t i r
25 ára
og yngri:
50%
afsláttur
af miða-
verði
í sal
Íslenska óperan v/Ingólfsstræti Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík Sími: 511 6400
21. okt. kl. 20 - Frumsýning
23. okt. kl. 20 - 2. sýning - 30. okt. kl. 20 - 3. sýning
4. nóv. kl. 20 - 4. sýning - 6. nóv. kl. 20 - 5. sýning
6. nóv. kl. 20 - 6. sýning - Lokasýning
www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200
Kynning fyrir sýningar á Tökin hert , 2. - 6. sýning
Kl. 19.15 – Stutt kynning á verkinu og uppsetningu þess.
Kynningin fer fram á sviðinu og er innifalin í miðaverði.
15. sýn. sun. 18/9 kl. 14
16. sýn. fim. 29/9 kl. 19
FRUMSÝNING 16. september kl. 20.00 UPPSELT
2. SÝN LAU 17. kl. 20.00 ÖRFÁ SÆTI LAUS
3. SÝN FÖS 23. kl. 20.00 ÖRFÁ SÆTI LAUS
4. SÝN LAU 24. kl. 20.00 ÖRFÁ SÆTI LAUS
5. SÝN FÖS 30. kl. 20.00
6. SÝN LAU 1. OKT kl. 20.00
Stóra svið
Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
ÞAÐ BORGAR SIG AÐ GERAST ÁSKRIFANDI
Nýja svið
KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren
Í samstarfi við Á þakinu
Su 18/9 kl 14 - UPPSELT
Su 25/9 kl. 14
Lau 1/10 kl. 14
Su 2/10 kl. 14
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Í kvöld kl. 20 - UPPSELT
Lau 17/9 kl. 20 - UPPSELT
Fi 22/9 kl. 20 - UPPSELT
Fö 23/9 kl. 20 - UPPSELT
Lau 24/9 kl. 20 - UPPSELT
Fim 29/9 kl. 20
Fö 30/9 kl. 20
Endurnýjun áskriftarkorta
stendur yfir
Ef þú gerist áskrifandi fyrir 20. september færðu að
auki gjafakort á leiksýningu að eigin vali
- Það borgar sig að vera áskrifandi -
MANNTAFL
Miðaverð á forsýningar kr. 1.000-
Lau 17/9 kl. 14 Forsýning
Su 18/9 kl. 20 FRUMSÝNING - UPPSELT
Su 25/9 kl. 20
Su 2/10 kl. 20
Fö 7/10 kl. 20
HÖRÐUR TORFA Hausttónleikar
Í kvöld kl. 19:30 - UPPSELT
Í kvöld kl. 22:00
WOYZECK – 5 FORSÝNINGAR Í SEPTEMBER
Frumsýnt í London 12. okt. og á Íslandi 28. okt
Miðaverð á forsýningar aðeins kr. 2.000
Su 18/9 kl. 21
Fö 23/9 kl. 20
Fi 29/9 kl. 20 - UPPSELT
Fö 30/9 kl. 20
Lau 1/10 kl. 20 (Sýning á ensku)
HÍBÝLI VINDANNA
Örfáar aukasýningar í haust
Lau 24/9 kl. 20
Su 25/9 kl. 20
Su 2/10 kl. 20
Fö 7/10 kl. 20
Kabarett
í Íslensku óperunni
Miðar í síma 511 4200, og á www.kabarett.is
Leikhópurinn Á senunni í samstarfi við SPRON
“Söngur Þórunnar
er í einu orði sagt
stórfenglegur...”
SH, Mbl.
laugardaginn 17. september kl. 20
föstudaginn 23. september kl. 20
föstudaginn 30. september kl. 20
laugardaginn 1. október kl. 20
Næstu sýningar
örfá sæti laus
örfá sæti laus
Pakkið á móti - Örfáar aukasýningar
lau. 17. sept. 11. kortasýning kl. 20 nokkur sæti laus
fös. 23. sept. 12. kortasýning kl. 20
Belgíska kongó
- gestasýning
fös. 30. sept. 1. kortasýning kl. 20
lau. 1. okt. 2. kortasýning kl. 20
Áskriftar-
kortasala
stendur
yfir