Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 04.02.1974, Blaðsíða 5

Mánudagsblaðið - 04.02.1974, Blaðsíða 5
Mánudagut' 4. febrúaf 1974 Mánudagsblaðið 5 LIÐIN TÍÐ Höfundur: Harold Pinter Leikstjóri: Stefán Baldursson Sýningartilraun í Leikhúskjallara Ég lenti í sömu vandræðum I s.l. viku og Shaw heitinn sagði frá í einni gagnrýni sinni, er leikritið Liðin tíð var frum- sýnt í Leikhúskjallaranum og auðvitað á vegum Þjóðleik- hússins. Þegar sýningin hófst eftir smátölu Sveins Einarssonar, leikhússtjóra, þá fann ég að ein af hinum fögru súlum sal- arins var fyrir mér þannig, að ég sá um stund ekkert nema kollinn á Erlingi Gíslasyni og fæturna á henni Þóru Friðriks- dóttur, en Kristbjörg Kjeld var falin bak við þessa súlu. Þetta súlupróblem verður leikhúsið að leysa, því það er ekki öllum hent, að taka sér vígstöðu að baki aftasta bekkjar og standa þar út sýninguna — ásamt nokkrum öðrum gestum. En það má þakka umtals- verðum afrekum leikenda, ný- stárni í flutningi og mjög góð- um tilþrifum annars starfsfólks að maður þreyttist ekki á að horfa á sýninguna né njóta endurminninganria sem þarna eru í fyrirrúmi. Höfundurinn Harold Pinter, brezkur, rösklega fertugur og, eftir leikskrá að dæma, vel þekktur í leikhúsheiminum. Liðin tíð er ekki sérstaklega frumleg að efni, en tekizt hef- ur að flytja það í skemmti- legum búningi, sem eflaust má þakka ungum leikstjóra, Stef- áni Baldurssyni, og eins og að ofan getur, ágætra spretta hjá Ieikurunum þremur, þó ekki snurðulausra með öllu. Efni er hversdagsleg samtöl hjóna og vinkonu þeirra sem ekki hefur^ séð þau í 20 ár, enda búsett ! „úti í heimi“; len’' hbfnndur nýt- ! ir alls kyns leikbrögð, langar áhrifaríkar þagnir, ekki óal- algeng leikbrögð, hóflegar hreyfingar. Hann leggur ekki ( Reykjavíkurbók lceland Review „Þetta er einkar falleg bók og fengur að henni til kynningar Reykjavíkur úti í heimi," sagði borgarstjórinn, Birgir ísleifur Gunnarsson, þegar Gunnar Hannesson afhenti honum fyrsta eintakið af nýrri myndabók, „REYKJAVÍK — A Panorama in Four Seasons". Bók þessi er í útgáfu Ice- land Review, Jökull Jakobsson skrifar inngang um lífið í Rvík fyrr og nú, en myndirnar, sem eingöngu eru litmyndir, eru all- ar eftir Gunnar Hannesson. Nær áratugur er liðinn síðan fyrstu myndir Gunnars birtust á prent — og þá í Iceland Review, sem síðan hefur birt mikinn fjölda mynda hans og þær hafa jafnan vakið athygli. Hvergi hefur Gunnar tekið fleiri myndir en í Reykjavík — og í þessari bók birtist úrval þess fjölbreytta safns, skipt niður í árstíðirnar fjórar, eins og titillinn ber með sér. Það e, viðburður í íslenzkri bókaútgáfu. þegar gefin er út bók með myndum eins ljós- myndara — og einsdæmi, að eingöngu sé um litmyndir að ræða. Ekki hafa margar bæk- ur af því tagi — eingöngu helg- aðar höfuðstaðnum — séð dags- ins Ijós, og þessi nýja Reykja- víkurbók er þar að auki sérstæð að því leyti, að hér er brugðið upp svipmyndiun af borginni, fólkinu í starfi og leik — og þeirri umgjörð, sem stórbrotin náttúran er höfuðstaðniun — í skini og skúrum skammdegis sem miðsumars. Þeir fjölmörgu, sem séð hafa myndir Gunnars á síðustu árum — og nú í vetur á sýningunni Ljós 73 — hafa hrifizt af skerpu, tærleika og myndrænni skynjun hans. Þetta er þriðja bókin í flokki Iceland Review Library. Áður voru út komnar „ICELAND — The Unspoiled Land" og „VOL- CANO — Ordeal by Fire in Iceland’s Westmann Islands". Þessi nýja bók er af sömu stærð og hinar fyrri, þar birtast þær 90 ljósmyndir, sem í heild gefa glögga mynd af höfuðstaðnum og úmhverfi. Uppsetningu og frágang önn- uðust Gísli B. Björnsson og Fanney Valgarðsdóttir, en þýð- ing texta var í höndum May og Hallberg HaMmundssonar. mikið á leikarana, nema fram- sögn og svipbrigði, treystir á þessa hæfileika. Leikstjóranum er það ljóst, að ef brúkaður er gamli hátturinn og reynt að böðlast í gegn með hávaða, þá er verkið tapað úr höndum. Listræn hógværð verður kjarni túlkunarinnar, borin uppi af góðum ljósum, músík og „lög- um“ liðins tíma, allt til að skapa hið rétta andrúmsloft. Þetta tókst með ágætum, á- horfendur komust í intím sam- band við sviðið og persónurn- ar. Þóra Friðriksdóttir, Kata, sýndi ágætan og vandaðan leik, m.a. kynþokka hinnar þrosk- uðu konu, enda ekki verið öllu laglegri á sviði undanfarin ár. Kristbjörg Kjeld, Anna, af- greiddi sérkennilegt hlutverk með hreium ágætum og Erling- ur Gíslason, Deely, sýndi ó- venjulega hógværð í leik, hafði t fullu tré við hlutverkið nema í þau fáu skipti er hann þurfti að beita rödd sinni, þá virtist hann ekki hafa fullan kontrol yfir raddbrigðunum. Hinn unga leikstjóra, Stefán, þekki ég ekki, en þessi sýning hans bar vott um smekkvísi og natni, hversu sem síðar kann að takast til. Þjóðleikhússtjóri gat þess í upphaíi sýningar áð svona myndi endúrtekið í framtíð- ihni og er það vel. En hins ber að gæta, að eitthvað verð- ur að gera í sambandi við súl- Kristbjörg, Erlingur, Þóra. urnar éða sætin sém eru í beinni línu við sviðið, því þótt þær séú fallegar, þá géta jafn- vel ekki þolinmóðustu nienn horft á þær von úr viti. A. B. VIGGÓ ODDSSON skrifar írá S-Afríkú: Drykkjusiðir Islendinga og temnlarar TILHÆFULAUS ÓHRÓÐUR Oft hefur mér runnið í skap þegar ég hefi heyrt eða lesið um drykkjusiði Egils skálds á Borg, þegar ómerkilegur templ- araáróður veður uppi. Þeir ausa mikið úr þeim brunni, þegar Egilll var sendur í hættuför af Noregskonungi, ril að gera lög- tök og rukka inn skatta. Talið var að bófafélag hefði myrt fyrri skatstjóra á ferðum þeim Egill vissi að hér þurfti meira við en krafta og vopn til að sigrast á bófunum. Hjá Ármóði var gist, sem frægt var, og fengu þeir mikið af skyri og öli. Það mun hafa verið ókurt- eisi í Noregi á þeim tíma að neita að taka við miðinum á meðan gestgjafi bar fram full horn eða krúsir. Af þessum sið virðast íslendingar enn njóta eða líða. Það er ennþá sá siður að klára öll ílát sem áfengi er í, án tillits til hófs eða skynsemi. LAUNMORÐINGINN Eftir kaldar viðtökur hjá Ármóði breytti hann um stefhu og ætl- aði að gera konungsmenn ofur- ölvi fyrir líflátið. Egill sá hvað til stóð. Af kurteisisástæðum urðu þeir að drekka allt sem fram var borið. Egill sá hvað þeir höfðu gott af, og þegar ferðafélagar hans höfðu fengið nóg til að halda sönsum, drakk Egill fyrir alla. En jafnvel Egill hafði sín takmörk. Hann ákvað að gefa launmorðingjanum mak- leg málagjöld þegar sér hentaöi, krækti úr honum auga og ældi skyrinu og ölinu yfir gestgjaf- ann og flúði bæinn með sína menn, erindum Noregskonungs var trúlega lokið eins og vænta mátti. Egill sýndi bæði hugrekki, mannvit og hafði næga þekk- ingu á áfengum drykkjum til að bjarga lífi sínu og sina manna þegar Norðmönnum fór ver. TEMPLARARNIR í áfatugi hafa templarar og ó- uppdregið fólk, jafnvel há- menntað, notað þessa sögu úr Egilssögu til að koma óorði á bjórinn og sverta minningu Eg- ils á Borg, setja hann á bekk með rónum ög dónum. Rithöf- undur Egilssögu var það fær meður, að honum hefúr ekki dottið í hug að þessi einfalda frásögn gæti farið villúr vegar, eða að frásögnin yrði rangfærð til að lasta söguhetjuna. Ég hefi aldrei getað fundið út hvort ó- hróður bindindismanna um þ'ennan forföður okkar sé vegna heimsku eða af útspekúleruðum ótuktarskap og fölsun á frásagn- arlist söguritara. Hins vegar væri áthugandi hvort þessi gamaldags drykkjusiður Norðmanna: að klára allt sem á borð er borið, sem kurteisisvott við gestgjafa, er ekki grundvöllurinn að drykkjuvandamálum á íslandi. Það er drukkið minna magn af áfengi á íslandi á hvem lands- mann en víðast annarsstaðar, en þeim mun verr. Drykkjusiðir sverringja í Afríku eru ekki ó- svipaðir. GREIN SEM EKKI MÁTTI BIRTAST Uppistaðan í þessari grein er sú sama og ekki mátti birtast í til- teknu dagblaði á íslandi, það má ekki móðga skussana, templ- arana, sem eru það akkeri sem heldur þjóðinni fastri á úfnu skipalægi í stað þess að flytja skip lífsins á framfarabraut og aukins þroska, fræðslu og rýmk- andi hafta og álagningar í á- fengismálum. Að lilaupa úr ein- um öfgum í aðrar, eins og Frakkar eru sagðir gera, er ekki raunhæft. Hví er talið að íslend- ingar VERÐI ætíð að vera þeir verstu í þessa áttina eða hina? Flestir. þræða hinn gullna með- alveg. Áfengisbönn og ofsa ok- ur á áfengi hafa aldrei leyst neinn vanda, heldur verið upp- spretta spillingar, smygls, af- brota og leynivínsöfu, eins og Norðurlandaþjóðirnar þekkja af eigin reynslu éða frægt er út sögu Bandaríkjanna.

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.