Mánudagsblaðið - 26.08.1974, Side 7
Mánudagur 26. ágúst 1974
Mánudagsblaðið
7
Einræðisherrann Amin
Fraxnhald af 3. síðu.
SKAMMVINN GLEÐI.
Fagnaðarlætin voru skamm-
vinn. Amin byrjaði fljódega að
jafna á gömlum andstæðingum.
Innan fárra daga voru hin ný-
tæmdu fangelsi orðin full aftur
af pólitískum föngum. í Murchi-
son Bay fangelsinu einu voru
500 manns hnepptir í varðhald
innan mánaðar frá valdatöku
Anims. Flestum var ekki haldið
lengi. Þeir voru einfaldlega
drepnir án dóms og laga.
Svo var að sjá sem Anim ætl-
aði líka að gleyma loforðinu um,
að Uganda ætti að hverfa aftur
til lýðræðislegra stjórnarhátta.
Og enn er Kampala, ein af feg-
urstu höfuðborgum Afríku, í
greipum óttans.
„ÚTRÝMING".
Flest af hryðjuverkunum eru
framin af öryggissveitum Amins
og bera þær nafnið Öryggislög-
regla almennings. Amin greip
völdin til að berjast gegn vanda-
málinu, sem skapast hafði vegna
Kondoismans, eða vopnaðra
gripdieilda. Meðlimir Öryggislög-
reglunnar aka nú í Peugot-bíl-
um um götur höfuðborgarinnar
og stansa öðru hverju til að
handtaka „grunaða". Mjög sjald-
an gerist það, að þeir sem verða
fyrir því óhappi að vera tekn-
ir fastir, sjáist aftur. í skýrsl-
unni er getið um eitt dæmi þess,
að Öryggislögregilumenn hafi
stungið mann til bana á götu
og sagt hinum óttaslegnu áhorf-
endum, að hann væru „kondo",
eða vopnaður ræningi.
En sú öryggissveit, sem mest-
an ótta vekur nú orðið, er hin
svokallaða „Ráðgefandi rann-
sóknarsveít", sem var upphaflega
stofnuð af Amin sem upplýs-
ingáþjónusta. Verkefni hennar
er, eftir því sem Ugandamaður
segir sem kunnugur er öryggis-
ráðstöfunum í Kampala, „út-
rýming".
TIL
ÁMINNINGAR — SKÓR.
Rannsóknarsveit þessi, sem er
ábyrg fyrir Amin einum, er að
nokkru leyti skipuð Palestínu-
Aröbum, margir þjálfaðir af
Svarta-September samtökunum
og sendir til Uganda frá Tripoli
í Libýu af Gaddafi forseta. „þeg-
ar Rannsóknarsveitin tekur ein-
hvern fastan, er hann færður úr
skónum og þeir skildir eftir á
gangstéttinni fyrir utan heimili
hans sem sorglegt minnismerki;
honum er varpað upp í bíl og
ekið til Makindyefangelsis", sagði
maður, sem á heima í Kampala.
Og það er eins um hann og
fórnardýr Almenningslögregl-
unnar, að það er mjög sjaldan
sem aftur heyrist frá hinum
handtekna.
Venjulega eru um 200 manns
í einu í Makindyefangielsi, en
mannaskipti eru tíð. Þeir, sem
drepnir eru innan veggja þess,
eru fyrst „yfirheyrðir" af örygg-
ismönnum, sem líkjast hinum al-
ræmdu Ton-Ton Makútum á
Haiti. Samkvæmt áreiðanlegum
vitnum hafa mörg hundruð
handteknir Afríkanar í Uganda
verið stungnir, barðir, hýddir eða
sparkað til bana í aftökuklefun-
um tveim í Makindýefangelsi á
síðustu tveimur og hálfu ári.
Þessir tveir dauðaklefar eru kald-
hæðnislega uppnefndir „Singa-
pore" og „Dar es Salaam", en
þar dvaldist Obote eftir vafda-
ránið árið 1971. En ekki fara
allir þeir, sem tekntr hafa ver-
ið til fanga, x dauðaklefana.
Margir hafa verið brytjaðir í
smátt eða skotnir til bana í
fangelsisgarðinum.
ÓGNARÖLD.
Voveiflegur dauðdagi er orð-
inn þáttur í daglegu lífi Ug-
andabúa á síðustu tveimur og
hálfu ári. Amine, sem er um-
setinn kynþáttavandamálum, fjár-
hagsvandamálum og stjórnmála-
vandamálum, sem hann skilur
varla sjálfur, hefur komið af
stað ógnaröld, sem á sér ekki
líka í hinni stuttu, en blóðugu
sögu nýfrjálsra Svertingjaríkja í
Afríku. Á fyrstu mánuðum valda-
ferils síns tókst Amin að villa
umheiminum og mörgum lönd-
um sínum sýn með hinu lit-
skrúðuga, en ódiplómatíska orða-
vali sínu. En samtímis stjórnaði
hann fjöldamorðunum, sem und-
irbúin höfðu verið fyrir valda-
ránið, á mörg þúsund liðsfor-
ingjum í hernum.
Fjöldamorð þessi eiga rætur
sínar að rekja til tortryggni
hinna ýmsu ættbálka í garð
hvers annars. Sjálfur fordæmdi
Amine þessa ættbálkafordóma
snemma á hinum sjálfskipaða
forsetaferli sínum. Faðir hans
var af Kakwa-ættbálkinum en
móðir hans af Lugbaraætt. En
hann hefur stælt Hitler í með-
ferð sinni á mönnum af ætt-
bálki Acholi og Langi — eink-
um þeim sem voru í hernum
og hollir Obote. Hins vegar hef-
ur hann ekki Iátið ættbálka tor-
tryggni binda sig í hjúskapar-
málum. Hann á 15 börn með
konum og hjákonum af sex ó-
líkum ættbálkum.
SKJÓTUR FRAMI.
Amin er fæddur í smáþorpi
Múhameðstrúarmanna á vestur-
bökkum Nílarfljóts í Uganda,
Hann er 48 ára gamall, og það
er ekki ólíklegt, að hann hefði
eytt lífinu þar sem geitahirðir,
ef hann hefði ekki tekið upp á
því að ganga í afríkönsku riffil-
mannasveitina, sem Bretar höfðu
stofnað. Hann tók þátt í Burma-
herferðinni í seinni heimsstyrj-
öldinni og var skipaður yfirlið-
þjálfi. Síðar barðist hann á
móti Mau Man hryðjuverka-
mpnnunum í Kenya, en þaðan
fór hann til ísraels til þjálfunar
sem fallhlífarmaður.
Eftir að Uganda hlaut sjálf-
stteði fékk Amin skjótan
frama í hernum. Árið 1966 var
það hann, sem stjórnaði árásinni
á höll kabakans í Buganda, þeg-
ar Obote innlimaði þetta full-
valda konungdæmi. Sama ár var
Amin gerður yfirmaður her-
ráðsins, og ári síðar settur yfir
landher og flugher. Svo skeði
nokkuð, sem ekki er oft minnst
á í Kampala nú á dögum. í
október 1970 var Amin settur
í stofufangelsi og sviptur öllum
embættum, og honum gefið að
sök að vera flæktur í svarta
markaðsbrask og smygl á gulli
og fílabeini um Uganda frá
Kongó. Meðan verið var að
rannsaka mál hans, notaði Obote
tækifærið til að byggja upp her-
inn með mönnum af sínum eig-
in ættbálki til að vega upp á
móti Múhameðstrúarmönnum
Amins úr norðurhéröðunum. En
það var of seint fyrir Obote.
Undirbúningurinn undir valda-
tökuna var of langt á veg kom-
inn.
GÓÐ BYRJUN.
Fyrst eftir að Amin komst
til valda, var margt sem virtist
boða gott fyrir hann. Hinn op-
inskái, alþýðlegi fyrrverandi
hnefaleikameistari tók við af
Obote, sem átti við vaxandi óvin-
sældir að stríða vegna misheppn-
aðra efnahagsráðstafana og per-
sónuleg gjörræðis, sem var að
koma landinu á hausinn. Amin
sakaði fyrirrennara sinn um að
hafa skapað „auðuga stétt leið-
toga sem auðgast því meir sem
hinir fátæku verða fátækari". En
tveim mánuðum eftir að Amin
flutti inn í hvítþvegna villu í
Kampala sem annar forseti Ug-
anda, var þegar orðið Ijóst, að
fjárhagur landsins var ekki á
batavegi. Eina „vaxtarsviðið"
voru „varnarmálin". Hernaðarút-
gjöldin flugu á engri stundu
upp úr 20 milljónum dollara
undir stjórn Obotes, upp í 90
milljónir dollara undir stjórn
Amines. Sumir hafa leitt getum
að því að Amin hyggist gera
Uganda voldugustu þjóðina í
Austur- og Mið-Afríku. Nýlega
fékk hann miklar birgðir vopna
frá Rússlandi og Libya hefur líka
lofað að auka hernaðaraðstoð
sína, þó að það gæti brugðist.
SKAPGERÐARBRESTUR.
Eftir því sem hinn vondi
fjárhagjur versnaði, eftir því
jókst álagið á Amin og þá
fór að bera á skapgerðarbrest,
sem varð að æði. í stað
þess að koma með sparnaðar-
áætlun og draga úr hervæðingar-
kostnaðinum fór hann að svip-
ast um eftir einhverjum, sem
hann gæti kennt um ástandið.
ísrael varð fyrir valinu, þótt
hann hefði þar fengið þjálfun
sína sem fallhlífarhermaður, auk
þess sem ísraelsmenn voru líka
að þjálfa hermenn hans og gefa
stjórnardeildum hans í Kamp-
ala góð ráð. Hann rak ísraels-
mennina úr landinu og lét
óbótaskammir fylgja með, lofaði
Hitler fyrir útrýmingu Gyðinga,
og þegar það brást, að Arabar
kæmu honum til hjálpar efna-
hagáega, beindi hann athygiinni
að Asíumönnunum í landinu.
Þúsundir Asíumanna með bresk
vegabréf voru reknir úr landi
sem liður í Ugandaseringu,
eignir þeirra og verslanir gierð-
ar upptækar og fengnar í hend-
ur Áfríkönum. En þrátt fyrir
allt, þá brást það, að efnahagur-
inn rétti við.
Vinsældir Amins í Uganda
eru ört minnkandi.
Til þessa hefur hann sloppið
lífs af frá að minnsta kosti fjór-
um banatilræðum og tveim upp-
reisnartilraunum.. Hann hefur átt
í útistöðum við því nær alla
flokka, sem studdu hann til
valda árið 1971. Meðal valda-
mestu ættflokkanna er það að-
eins hans eigin Kawaflokkur,
sem er tiltölulega hollur honum.
Fjárkúgarar
Framhald af 1. síðu.
háttað, verður þessi til-
raun til fjárkúgunar upp-
rætt þegar í stað. Enda
þótt aðferðum sé þannig
hagað, að fómarlömbum
óbótalýðs þyki tvísýnt
um velferð sína, hvoru
megin við strikið sem
sannanlegt siðferði kann
að vera, er hver sá mað-
ur eilíflega ofurseldur
glæpamönnum, sem
gengst undir vilja þeirra
og kröfur.
Það endast ekki
allir bílar jafnt!
SAAB V4 er t.d. óvenju sterkur bíll,
byggður af sænskri tæknikynnáttu fyrir
erfiðustu vegi og. veðurfar.
SAAB V4 er vandaður bíll, utan sem innan
— léttur í akstri, rúmgóður og þýður.
SAAB’ er sparneytinn og liggur vel á vegi
í öllum akstri.
SAAB er öruggur bíll — SAAB er bíll hinna vandlátu.
•s^BlÖRNSSONASP;
SKEIFAN 11 SÍMI 81530
and
straufría sængurfataefnið er nú fyrirliggjandi í mörg-
um mynztrum og Iitum.
Einnig í saumuðum settum. Kærkomin gjöf, hverj-
um sem hlýtur.
Sparið húsmóðurinni erfitt verk, sofið þægilega og
lífgið upp á litina í svefnherberginu.
Reynið Night and Day og -sannfærizt.