Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 27.01.1975, Qupperneq 5

Mánudagsblaðið - 27.01.1975, Qupperneq 5
Mánudagur 27. janúar 1975 Mánudagsblaðið 5 JACK DEMPSEY ER AÐ TAPA SÍNUM SÍÐASTA BARDAGA Hann er að verða gamall, og viðurkennir það sjálfur. Gengur hægt og varlega, styðst vi^ svart- an staf. Hann hefur verið sleg- inn þungu höggi, kannski einu þyngsta sem hann hefur fengið um ævina. William Harrison- — Jack Dempsey, áttræður að aldri. Einn kunnasti hnefaleika- kappi sem uppi hefur verið. Hann hefur tmnið 250 sinn- um í atvinnukeppni og þar af 49 sinnum á „knock out" eins og það heitir á máli hnefaleika- manna. Nú er hann að tapa bar- daga, ekki þó baráttunni við diauðann, heldur baráttu við ó- þekktan andstæðing. Leigan hækkar um helming Jack Dempsey hefur um lanigt árabii átt veitingastað á aðai- götu New York, Broadway. Staðurinn ber nafn hnefaleika- kappans og er vel þekktur langt út fyrir Bandaríkin. Aðdáendur hans úr öilurn heimsálfum hafa litið inn á staðinn þegar þeir hafa átt leið um New York. Nú er útlit fyrir að hann verði að lolca staðnum. Hingað til hefur Dempsey -groict-'óO þúsund dali á ári í leigu fyrk húsnæðið. Þetta er ^geysihá leiga, en reksturinn hef- ur gengið vel hjá gamia ljóninu og hefur staðið undk leigunni. Nú hefur honum verið tilkynnt, að leigan verði hækkuð upp í 120 þúsund doliara á ári og það er meira en hann ræður við. Út- litið er því svart. — Ég held að það sé enska konungsfjöiskyldan sem er að reyna að svæla mig út, segir Dempsey. Hún á víst þetta hús. Ekki eru þó ailk á einu máii um ástæðurnar fyrir því að hann þarf að víkja, eins og kemur fram síðar í greininni. Myndir og eiginhandaráritun — Hvað er Broadway án veitingahús. Jack Dempsey, segir gamali boxari og hristir höfuðið. Hann situr á hverju kvöldi á veitingastað sínum, rétt við dyrnar. Yfkleitt situr hann einn með stóran bunka af póstkort- um fyrir framan sig. Á kortun- um er ljósmynd af málverki sem gert var af bardaga hans við Jess Wiilard og á bakhlið þekra hefur hann ritað nafn sitt. Kortin hefur hann handa ungum mönnum sem þarna líta inn öðru hvoru til að láta taka ' mynd af sér með Jack Dempsey. Stúika er fastráðin til þess að taka myndir og notar hún polar- oid myndavél. Á nokkrum mín- útum getur þú eignast mynd af þér við hliðina á Jack Dempsey. Gamla kempan segir ekki margt. Eiginlega segir hann fátt annað en „All right" nice to meet you, guys", þegar stúlkan hef- ur lokið myndatökunni. Síðan heldur hann áfram að hugsa um þá, er vilja fleygja honum út á gamals aldri. Jack Dempsey er þeirrar skoð- unar, að það sé enska konungs- fjölskyldan sem sé að svæla hann burtu með veitingahúsið. Enska hnefaieikablaðið „Ring Magazine" birti grein þess efnis sl. vor, að rífa ætti alia bygg- inguna og byggja þar verzlunar- hús í staðinn. Jafnframt lagði blaðið til, að gamlir aðdáendur boxarans fyrrverandi gengjust fyrir söfnun til þess að Dempsey mætti vera í friði með veitinga- hús sitt meðan honum entist aldlur tii. Byrjaði 16 ára Hann lenti í fyrsta bardagan- um aðeins 16 ára gamall. Þá var hann starfsmaður í námu og einn af vinnufélögum lrans æsti hann upp með móðgunum og svívirðingum. Jack Dempsey gerði sér lítið fyrir og sló mann- inn niður. Þetta var byrjunin á frægðarferli hans, því að fram þessu hafði maður þessi unnið hver einustu slagsmái sem liann hafði efnt til þarna í námunni. Þótt Dempsey líj$a|5i,sæmilega vel í námunum'byrjaði hann að æfa hnefaleika með keppni fyr- k augum. Hann var fæddur bar- dagamaður. Hamn beinlínis elsk- aði að berjast og í sinni háif- bognu stellingu, með mikla krafta í mjaðmavöðvum gat hann gefið geysiþung högg með báðum hnefum. Dag nokkurn yfkgaf hann heimaborg sína, Menassa x Col- orado, og hélt til borgarinnar sem bjó yfir mestum fyrirheit- um. New York. En þar var ekki nokkur sála sem þekkti náma- mennina sem Dempsey hafði barið niður fram til þessa. Eftk langa mæðu fckk hann þó að reyna sig á móti hinum þekkta André Anderson, og þrátt fyrir að Dempsey var sleginn niður hvað eftir annað, reis hann alilt- af upp aftur og tókst að velgja Anderson undir uggum áður en bardaginn var hringdur af í tí- undu lotu. Strax í næsta bardaga var hann þó sleginn svo harkalega að hann hafnaði utan hringsins og sneri aftur til síns heima með tvö brotin rifbein. En hann héit áfram að æfa og herða sig. Sætur sigur Eftir nokkur ár og marga leynilega bardaga hélt Dempsey aftur tii New York, staðráðinn í að ná langt. Hann gerði samn- ing við Jack Kearns, um að hinn síðarnefndi yrði umboðs- maður hans. Sá samningur átti eftir að færa þeim báðum ótald- ar milljónir áður en langur tími leið. Dempsey var orðinn vanur að vinna sína bardaga, en hann var óstyrkur vegna hins nýja samningg og tapaði nú fyrir flestum sem hann mætti. En svo mætti hann Gunboat Smith, en það var sjómaður sem flestir óttuðust vegna gífurlegra krafta sem hann bjó yfir. Jack Dempsey fór varlega af stað og hélt sig í hæfilegri fjar- lægð til að byrja með. En í ann- arri lotu lá vio að illa færi fyr- k honiun. Gunboat kom á hann geysiþungu hægri handar höggi og fiestir bjuggust við að þar með væri keppninni lokið. Dempsey var vankaður eftir höggið og barðist áfram líkt og í svefni. En í fjórðu lotu rann höfginn skyndilega af honurn og hann gekk berserksgang. Gunboat mátti verjast eftir beztu getu. Dempsey sigraði og það var sætur sigur þar sem and- stæðingurinn var hion mikli Gunboat. Leiðin til keppni við heimsmeistarann hafði opnast. Heimsmeistari í sjo ar Jack Dempsey varð að berjast við marga áður en úrslitastund- in rann upp. Það var hinn 4. júlí árið 1919 sem hann mætti heimsmeistaranum í þungavigt, Jess Willard, í hringnum, Keppnin fór fram í Toledo. Dempsey byrjaði á að vappa tun hálfboginn eins og venjulega þegar hann barðist við stóra menn. Willard hóf leifturárás og Dempsey varðist vasklega. Hann varðist þessari árás, en stuttu seinna gerði Willard aðra leiftursnögga atlögu. Dempsey var þó enn snarari í snúningum og kom miklu höggi á kvið Willards, en á þennan hátt hafði hann slegið Fred Fulton út skömmu áður. Willard stundi og beygði sig í hnút. Dempsey var ekki seinn að nota tækifærið og gaf hon- um eitt upper-cut, sem sendi Willard í gólfið. Hann reis þó upp þegar dómarinn hafði talið upp að þrem, en Dempsey var viss urn að hafa nú skotið hon- um skelk í bringu. Bardaginn hélt áfram. Demps- ey barði heimsmeistarann sund- ur og saman, sem ýmist hljóp undan eða hékk í köðlunum með gapandi munn. Allir héldu að Dempsey hefði unnið þegar í fyrstu lotu, en vegna mistaka hélt batdaginn áfram. Aðstoðar- menn heimsmeistarans reyndu á fálmkenndan hátt að hressa hann við með lyktarsalti og nuddi, en allt kom fyrir ekki. Dempsey réðst á liann eios og óður um leið og önnur lota hófst og þótt Willard reyndi að beita sínum síðustu kröftum kom það fyrir ekki. í hléi eftir þriðju lotu var handklæði kastað inn í hringinn og Jack Dempsey var þar með orðinn heimsmeistari í þunga- vi|gt. Þau sjö ár sem hann hélt titl- iruum barðist hann oft. Stundum olli hann aðdáendum sínum von- brigðum, en langoftast barðist hann eins og sniUingur og menn féllu -unnvörpum fyrir hinni sér- stæðu tækni hans. Jack Dempsey hafði jafnan í huga að sókn er bezta vörnin og réðist harkalega að andlstæð- ingum sínum í hringnum. Að- eins eitt komst að og það var að siá andstseðinginn út. Lét hann sér hvergi bregða þótt fyr- ir kæmi að hann yrði fyrir þimgum höggum, heldur hélt ó- trauður áfram þar til sigut vannst. Bardaga- og ef svo mætti segja, drápshugurinn úr námun- um fylgdi hontun jafnan. En þetta er liðin tíð. Nice to meet you, old pal Nú hefur Dempsey orðið fyr- ir höggi svo þungu, að hann rið- ar til falls og það er þegar byrj- að að telja. Á hverju kvöldi sit- ur hann í horninu á veitinga- stað sínum, líkt og hann bíði eftir þvx að hinir gömlu góðu dagar, þegar hann komst yfir alla erfiðleika, komi aftur. Hann drekkur ekki áfengi og reykir ekki heldur. Jack Dempsey er fús til að veita blaðaviðtöl. — Skrifið eitthvað gott um mig. Þá getur verið að ég fái að halda veit- ingahúsinu, segir gamli bardaga- kóngurinn biðjandi. Hann lyft- ir öðrum hnefa í sveif.'u og seg- ir glottandi: — Svona sló ég þá einu sinni. Nice to meet you, öld pal. ... Hvað er Broadway án veitinga- húss Jack Dempseys ..:

x

Mánudagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.