Morgunblaðið - 01.10.2005, Blaðsíða 1
2005 LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER BLAÐ D
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
EVRÓPUSTEMNING HJÁ HAUKUM AÐ ÁSVÖLLUM / D4
FRAMKVÆMDASTJÓRN ÍSÍ samþykkti á fundi sínum í
vikunni tillögur stjórnar Afrekssjóðs og styrktarsjóðs
ungra og efnilegra íþróttamanna um aukaúthlutanir til
sérsambanda ÍSÍ. Handknattleikssamband Íslands fékk
úthlutað 4 milljónum króna vegna undirbúnings A-
landsliðs karla vegna þátttöku á EM í janúar 2006.
Fimleikasamband Íslands fékk úthlutað 300.000 kr.
vegna þátttöku Rúnars Alexanderssonar og Viktors
Kristmannssonar á HM í fimleikum, sem haldið verður í
Ástralíu í nóvember.
Frjálsíþróttasamband Íslands fékk úthlutað 300.000
kr. vegna Silju Úlfarsdóttur frjálsíþróttakonu. Skíða-
samband Íslands fær 300.000 kr. eingreiðslu til hvers
skíðamanns sem nær lágmörkum á ÓL í Tórínó. Í dag
hafa 4 skíðamenn náð lágmörkum og líklega bætast 1-2
við.
Úr sjóði ungra og efnilegra var Blaksambandi Íslands
veittur styrkur að upphæð 500.000 kr. vegna þátttöku
yngri landsliða stúlkna og pilta á NM í blaki.
HSÍ fær fjórar
milljónir frá ÍSÍ
Ég er mikill Fylkismaður í mér ogþað vó þungt í þessari ákvörðun
minni að gera nýjan samning. Ég hef
vitað um áhuga ein-
hverra liða á mér en
eftir að hafa skoðað
nokkra möguleika
og rætt við nýja
stjórn meistara-
flokksráðsins þá
ákvað ég að vera um
kyrrt hjá Fylki,“
sagði Helgi Valur
við Morgunblaðið
eftir blaðamanna-
fund sem Fylkis-
menn efndu til í
gær. Helgi segist
líta björtum augum
á næsta tímabil.
,,Það er gott að það
er búið að semja við
flesta sem höfðu
lausa samninga og
ég er bara mjög
bjartsýnn. Mér líst
vel á nýja þjálfarann
og það eru allar for-
semdur fyrir því að
við verðum með
sterkara lið. Við er-
um að endurheimta
sterka leikmenn úr meiðslum og
hópur okkar ætti að geta orðið ansi
öflugur.“
Stefnan að komast út
í atvinnumennskuna
Spurður hvort hann sé búinn að
gefa atvinnumennskuna upp á bát-
inn sagði Helgi Valur; ,,Nei það hef
ég ekki. Stefnan er að komast aftur
út í atvinnumennskuna hvenær sem
það svo verður. Í augnablikinu er lít-
ið að gerast hjá mér hvað þessi mál
varðar. Það kom fyrirspurn frá
norska liðinu Odd Grenland um dag-
inn en ég veit ekkert hvort eitthvað
verður úr því,“ segir Helgi sem lék
um með enska liðinu Peterbrough.
Helgi segir að Fylkismenn muni
ekki standa í vegi fyrir sér fari svo
honum bjóðist að fara út til reynslu.
Leifur Sigfinnur Garðarsson var á
dögunum ráðinn þjálfari Fylkis til
þriggja ára og hann
segist mjög ánægð-
ur að búið sé að
festa flesta þá leik-
menn sem voru með
lausa samninga.
,,Það var for-
gangsatriði að
tryggja þá Fylkis-
menn sem fyrir
voru. Það ber að
fagna svona undir-
skriftum. Ég tel mig
vera með góðan hóp
í höndum og ef allir
standa saman, æfa
vel og leggja sig
fram þá verðum við
til alls líklegir,“
sagði Leifur Sig-
finnur við Morgun-
blaðið. Spurður
hvort Fylkir ætli á
leikmannamarkað-
inn sagði Leifur;
,,Það eru allir góðir
fótboltamenn vel-
komnir í Fylki en
við byggjum samt
fyrst og síðast á þeim mönnum sem
fyrir eru,“ sagði Leifur en Jón
Sveinsson verður aðstoðarmaður
hans.
Finnur Kolbeinsson og Gunnar
Þór Pétursson hafa ákveðið að
leggja skóna á hilluna eftir langa og
dygga þjónustu við Fylki og þá er
óvíst með fyrirliðann Val Fannar
Gíslason en hann er að velta því fyrir
sér að halda utan til náms. Samn-
ingur hans er laus um áramót og þá
eiga Fylkismenn eftir að semja við
Kristján Valdimarsson. Þá gera
Fylkismenn sér vonir um að halda
Viktori Bjarka Arnarssyni sem var í
láni hjá Fylki frá Víkingi í sumar.
Helgi Valur áfram í Árbænum
Fjórir sterkir
leikmenn
áfram í Fylki
FJÓRIR af lykilmönnum knattspyrnuliðs Fylkis, Helgi Valur Daní-
elsson, Haukur Ingi Guðnason, Hrafnkell Helgason og Eyjólfur Héð-
insson skrifuðu undir nýja þriggja ára samninga við Árbæjarliðið í
gær en samningar þeirra allra voru lausir. Forráðamenn Fylkis, sem
á dögunum réðu Leif Sigfinn Garðarsson sem þjálfara, ætla sér
stóra hluti og stefna þeirra er að Fylkir verði í titlabaráttu.
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
Helgi Valur Daníelsson
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Auðun Helgason, leikmaður Íslandsmótsins í knattspyrnu 2005 að mati íþróttafréttamanna
Morgunblaðsins, með verðlaun sín. Auðun lék mjög vel með meistaraliði FH í sumar en hann var
einnig iðinn við að skora. – „Eins og kóngur í ríki sínu,“ segir Guðmundur Benediktsson, leik-
maður Vals. Sjá ummæli hans og Loga Ólafssonar landsliðsþjálfara um Auðun á D3.