Morgunblaðið - 01.10.2005, Qupperneq 3
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2005 D 3
Þjálfarastyrkir ÍSÍ
Verkefnasjóður Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands auglýsir hér með til umsóknar
styrki fyrir íþróttaþjálfara til að sækja sér menntun eða kynna sér þjálfun erlendis.
Veittir verða 10 styrkir, hver að upphæð kr. 50.000,-
Við úthlutun verður leitast við að styrkja sem flestar íþróttagreinar. Þjálfarar hvers kyns
hópa (afreksmanna, barna og unglinga o.s.frv.) koma jafnt til greina við úthlutun. Konur
eru sérstaklega hvattar til að sækja um styrkina.
Umsóknum með lýsingu á náms- og starfsferli, auk greinargóðrar lýsingar á fyrirhugaðri
ráðstöfun styrksins og ávinningi íþróttahreyfingarinnar af henni, skal skilað til skrifstofu
ÍSÍ, Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, í síðasta lagi mánudaginn 24. október n.k.
Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á skrifstofu ÍSÍ, Íþróttamiðstöðinni Laugardal og á
heimasíðu ÍSÍ – www.isisport.is
Haust 2005
ÚLFAR Hinriksson þjálfari Íslands- og
bikarmeistara Breiðabliks sendi frá sér í gær
eftirfarandi fréttatilkynningu: ,,Í ljósi þess
að engar viðræður hafa átt sér stað við mig
undanfarnar tvær vikur af hálfu kvennaráðs
Breiðabliks um áframhaldandi þjálfun mína
lít ég svo á að ekki sé óskað eftir starfs-
kröftum mínum á næsta keppnistímabili og
lýsi furðu minni á þessum vinnubrögðum. Ég
hef þjálfað hjá knattspyrnudeild Breiðabliks
frá árinu 1995 við góðan orðstír nú síðast Ís-
lands- og bikarmeistara í meistaraflokki
kvenna. Að lokum vil ég óska félaginu og
leikmönnum alls hins besta á komandi ár-
um.“
Kemur mér í opna skjöldu
Morgunblaðið hafði samband við Karl Brynjólfsson,
formann meistaraflokksráðs Breiðabliks, og fékk hans
hlið á málinu.
,,Þetta kemur mér gjörsamlega í opna
skjöldu. Ég er búinn að vera í góðu sambandi
við Úlfar og síðast í gær var ég í sambandi
við hann í tölvupósti. Það er eitthvað annað
sem býr að baki hjá Úlfari og ég trúi því ekki
að hann labbi í burtu frá félaginu af því að
það hefur ekki verið rætt við hann síðan fyrir
hálfum mánuði. Ég hef persónulega átt mjög
gott samstarf við Úlfar og ég hef borið mikla
virðingu fyrir öllu því starfi sem hann hefur
innt af henti. Því kemur þessi tilkynning frá
Úlfari mér mjög á óvart og líka í ljósi þess að
hann ræddi ekkert við mig áður en hann
sendi tilkynninguna á fjölmiðlana. Ég harma
mjög þessa niðurstöðu,“ sagði Karl við Morgunblaðið en
hann segir óvíst hver taki við þjálfun Breiðabliksliðsins.
,,Fyrir hönd knattspyrnudeildarinnar þá harma ég
þessa niðurstöðu og hvernig þetta hefur borið til,“ sagði
Steini Þorvaldsson, formaður knattspyrnudeildar
Breiðabliks, við Morgunblaðið.
Úlfar Hinriksson hættur sem
þjálfari kvennaliðs Breiðabliks
Úlfar Hinriksson
Árið 1999 var keppnisfyrirkomulaginorsku úrvalsdeildarinnar breytt
þeim hætti að sett var á laggirnar „of-
eild“, BLNO, og á þeim tíma voru lið
flestum stórbæjum Noregs með í deild-
Mjög strangar kröfur voru gerðar til
gsliða sem vildu fá sæti í BLNO deild-
Og má þar nefna að hvert lið verður
era með tvo atvinnumenn í sínum röð-
auk framkvæmdastjóra í fullu starfi.
gjörð heimaleikja verður að uppfylla
fur deildarinnar, aðsókn áhorfenda
verður einnig að vera yfir ákveðnu með-
altali og að auki þurfa félögin að sýna fram
á að geta staðið við fjárhagslegar skuld-
bindingar sínar.
Þau lið sem eru eftir í norsku úrvals-
deildinni eru: Asker Aliens frá úthverfi
Ósló, Harstad Vikings, Kongsberg Pengu-
ins, Kristiansand Pirates, Tromsø Storm
og Ulriken Eagles sem er frá Björgvin líkt
og Fröya. Ekki hefur gengið vel fyrir lið
frá Osló að festa sig í sessi í deildinni og er
framtíð deildarinnar því í uppnámi.
COLIN Montgomerie frá Skot-
landi lék vel á öðrum keppnisdegi
á Dunhill meistaramótinu í gær en
hann lék á 65 höggum eða 7 högg-
um undir pari. Hann byrjaði dag-
inn á því að fá sex fugla á fyrstu
sex holunum en hann er samtals á
9 höggum undir pari og er einu
höggi betri en Kenneth Ferrie sem
er á 136 höggum í öðru sæti.
SVÍINN Pierre Fulke og Arg-
entínumaðurinn Ricardo Gonzalez
eru jafnir í þriðja sæti á 137 högg-
um. „Þessi dagur er einn af bestu
dögunum hjá mér sem kylfingur,
ég gerði engin mistök, fékk sjö
fugla og miðað við þær aðstæður
sem voru í dag þá get ég ekki ann-
að en verið sáttur,“ sagði Mont-
gomerie en leikið var á St. And-
rews þar sem að Montgomerie varð
annar á Opna breska meistara-
mótinu í sumar. „Ég get leikið völl-
inn blindandi og kylfusveinninn
hefur kortlagt hverja þúfu á þess-
um velli,“ sagði Montgomerie en
hann leikur í liði með kvikmynda-
leikaranum Michael Douglas í liða-
keppninni sem fram fer samhliða
atvinnumannamótinu.
ÞRJÁR kínverskar frjálsíþrótta-
konur hafa verið úrskurðaðar í
keppnisbann eftir að þær féllu á
lyfjaprófi sem tekið var á dögun-
um. Wang Lina og Niu Nana
reyndust hafa notað steralyf sem
var á bannlista og það sama var
uppi á teningnum hjá Sun Hong-
feng. Prófin voru tekin utan við
keppni og voru íþróttakonurnar
sendar í lyfjapróf er þær mættu á
æfingu en forsvarsmenn kínverska
íþróttasambandsins hafa lagt mikla
áherslu á að íþróttamenn landsins
sem koma til með að keppa á Ól-
ympíuleikunum árið 2008 í Peking
verði undir ströngu eftirliti fram
að leikunum.
ANDRE Agassi hefur afboðað
þátttöku sína á tennismóti sem
fram fer í Stokkhólmi 10.-16. októ-
ber en Bandaríkjamaðurinn á við
meiðsli að stríða í baki. Hann lék
til úrslita á Opna bandaríska
meistaramótinu á dögunum og tap-
aði þar gegn Roger Federer frá
Sviss. Agassi sem er 34 ára gamall
lék til úrslita á mótinu í Stokk-
hólmi fyrir ári síðan en þar tapaði
hann í úrslitum gegn Thomas Jo-
hansson frá Svíþjóð.
BOB Sura leikstjórnandi NBA-
liðsins Houston Rockets fór í að-
gerð á hné á dögunum og verður
ekki með liðinu þegar æfingabúðir
liðsins hefjast í næstu viku. Sura
sem er 32 ára gamall lék 61 leik
með liðinu á s.l. leiktíð og var með
10,3 stig að meðaltali í leik, 5,5 frá-
köst og 5,3 stoðsendingar í leik en
það er langt yfir meðaltali hans í
deildinni. Hann var á sínum tíma
valinn í fyrstu umferð háskólavals-
ins af Cleveland og hefur hann
leikið með Golden State, Detroit
og Atlanta Hawks á sínum ferli.
FÓLK
Morgunblaðið fékk Loga Ólafs-son, landsliðsþjálfara, og Guð-
mund Benediktsson, sóknarmann úr
bikarmeistaraliði Vals, til að gefa álit
sitt á frammistöðu Auðuns í sumar.
,,Það kemur mér ekki á óvart að
Auðun hafi orðið efstur í einkunna-
gjöf Morgunblaðsins. FH fékk á sig
lítið af mörkum og þar fór Auðun
fremstur í flokki í sterkri vörn liðs-
ins,“ segir Logi Ólafsson. ,,Auðun
hefur sýnt það í sumar hversu sterk-
ur persónuleiki hann er. Hann kem-
ur heim úr atvinnumennskunni og
hvikar hvergi frá metnaði sínum sem
knattspyrnumaður. Þó að verkefnið
hafi oft á tíðum litið auðveldlega út
fyrir FH þá fannst mér Auðun alltaf
vera einbeittur, fullur af vilja og
krafti til að draga liðið með sér. Leið-
togahæfileikar Auðuns hafa berlega
komið í ljós í sumar. Maður hefur
alltaf vitað um að Auðun væri bein-
skeittur og metnaðarfullur leikmað-
ur og í sumar sýndi hann það bara
enn frekar og heimkoma hans hefur
gert mikið fyrir deildina og íslenskan
fótbolta almennt,“ segir Logi.
Með frammistöðu sinni í sumar
vann Auðun sér aftur sæti í landslið-
inu og lék sinn 33. landsleik þegar Ís-
lendingar biðu lægri hlut fyrir Búlg-
örum í undankeppni HM í síðasta
mánuði. ,,Auðun hefur sýnt gríðar-
legan styrk. Hann lenti í gríðarlegu
mótlæti hjá Lokeren. Þar var hann
settur í frost sem hefði verið nóg til
að beygja meðalmann en með sínum
sterka persónuleika reis hann upp
og vann sér sæti í landsliðinu á nýjan
leik. Hann átti frábæra endurkomu í
íslensku knattspyrnuna,“ segir Logi.
Spilaði eins og
kóngur í allt sumar
Guðmundur Benediktsson fram-
herji Vals þurfti að glíma við Auðun
og félaga hans í FH vörninni í sumar
og þar komu þeir að lokuðum dyrum.
FH hafði sigur í báðum leikjum,
vann 1:0 á Hlíðarenda og 2:0 í Kapla-
krika og með þeim sigri tryggði FH
sér Íslandsmeistaratitilinn.
,,Ég sá Auðun í vorleikjunum með
FH. Bæði í deildabikarnum og eins í
æfingaferð okkar í Portúgal. Mér
fannst hann í þessum leikjum svolítið
ryðgaður en um leið og Íslandsmótið
hófst þá var allt annað að sjá til hans.
Hann spilaði eins og kóngur í ríki
sínu í allt sumar, var á köflum alveg
stórkostlegur. Hann og félagi hans
Allan Borgvardt voru tveir bestu
leikmenn deildarinnar. Borgvardt
var sá besti að mínu mati en Auðun
er vel að þessari viðurkenningu kom-
in. Það var ekki bara að hann var
firnasterkur í vörninni, sem hann
stjórnaði eins og hershöfðingi, held-
ur skoraði hann fimm mörk og það
verður ekki horft framhjá því að
Auðun átti frábæra endurkomu í
boltann hér heima og hann fékk
verðskuldað sæti í landsliðinu á nýj-
an leik,“ segir Guðmundur.
Logi Ólafsson og Guðmundur Benediktsson um Auðun
Helgason, leikmann ársins, að mati Morgunblaðsins
Frábær endur-
koma Auðuns
AUÐUN Helgason varnarmaður í liði Íslands-
meistara FH varð efstur í einkunnagjöf
Morgunblaðsins fyrir frammistöðu sína í
sumar. Hann sneri heim úr atvinnumennsk-
unni á vormánuðum, átti frábært tímabil
með FH-ingum og átti ekki síst stóran þátt í
velgengni liðsins í ár. Auðun fékk 21 M í 18
leikjum FH-liðsins og varð langefstur en
Fjalar Þorgeirsson markvörður Þróttar kom
næstur með 17 M og Helgi Valur Daníelsson,
Fylki, varð þriðji með 16 M.
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
Auðun Helgason
Sex lið eftir
í úrvalsdeild
í Noregi
Ð gengur erfiðlega hjá forsvarsmönnum norskra úrvalsdeildarliða að ná í
magn til þess að reka deildir sínar ef marka má nýjustu fregnir frá Noregi.
nú hafa tvö lið dregið sig úr keppni og eru aðeins sex lið eftir í deildinni.
ya frá Björgvin hefur ákveðið að vera ekki með í deildinni í vetur en liðið var
af sterkustu liðum deildarinnar í fyrra og Njård frá Bærum, rétt utan við
ó, hefur einnig dregið lið sitt úr keppni vegna þess að liðið uppfyllir ekki
r fjárhagslegu kröfur sem gerðar eru til þess.