Mánudagsblaðið - 11.01.1982, Blaðsíða 11

Mánudagsblaðið - 11.01.1982, Blaðsíða 11
Mánudagur 11. janúar 1982 MÁNUDAGSBLAÐIÐ 1 1 Við erum ekki óvanir því að ílytja fyrir aðra ... en nú flytjum við sjálíir. FLUGFR4KT FLYTUR ÞANN FJÓRÐA JANÚAR 1982. ÚR: Tollhúsinu við Tryggvagötu. í: Aðalskriístofubyggingu Flugleiða á Reykjavíkurílugvelli. SÍMI: 27800 AFGREIÐSLA FARMBRÉFA og FARMSÖLUDEILD eru þœr deildir sem flytja starfsemi sína á Reykavíkurflugvöll. STARFSFÓLK okkar tekur á móti ykkur í björtu og rúmgóðu húsnœði og býður enn betri þjónustu. BILASTÆÐIN em nœstum óþrjótandi. FLUGLEIDIR 0K0 FUIGFRAKT Æ Hvernig þú getur lært á gítar með auðveldu heimanámi Gítarinn er án efa hlð handhægasta og þægileg- asta hljóðfæri, sem völ er á til notkunar i heima- húsi — Ijúfir tónar, sem allir hafa ánægju af, en trufla ekki nágrannann [ fjölbýli. Þó gítarinn sé ein- faldur í sniðum, er hann f rauninni hið fullkomn- asta hljóðfæri bæði til undirleiks, samleiks og ein- leiks. Því er nú sums staðar farið að nota gítar við almenna tónlistarkennslu barna í skólum. Gitarinn hefur líka þann kost, að vera ekki dýrari en svo að jafnaöi, að flestir hafa efni á að eignast hann. Ný tæknl Marga hefur lengi langað til að geta spilað svolitið á þetta vinsæla hljóðfæri á góðri stund sér og öðrum til ánægju, en einhvern veginn ekki komið því í verk að læra. Ef þú ert meðal þeirra, þá er tækifæri þitt komið. Ný kennslutækni hefur litið dagsins Ijós á fslandi. Þú getur látið drauminn rætast og verið farin(n) að spila svolitið, og meira að segja þekkt nóturnar, eftir skamman tima — - bara með bráðskemmtilegu heimanámi. Svariö er heimanámskeiðið Lelkur að læra á gftar frá Gítar- skóla Ölafs Gauks — á tveimur kassettum og vandaöri, litprentaöri 52 síðna bók. Fyrsta tilraun Slíkt heimanám með kassettum og bók hefur á undanförnum árum rutt sér til rúms víða um heim, og er þaö ekki aóeins kennsla á hljóðfæri heldur einnig t.d. tungumálanámskeið og margt fleira, sem hægt er að fá sent heim til sín á þennan hátt. Hér á fslandi er þetta fyrsta tilraun til að kenna á hljóðfæri með kassettum og bók, og hefur þessi tilraun tekizt mjög vel hér, ekki síður en i öðrum löndum. Þú leikur með Bókina og kassetturnar verður að nota jöfnum höndum. Þannig lest þú kafla f bókinni og athugar skýringarmyndir, en þegar kemur að þessu merki: hlustal setur þú kassettutækið af stað og hlustar á við- eigandi kafla á spólunni. Þar færð þú nánari leið- beiningar kennara, en á spólunum eru líka heil- mörg lög, sem hver einasti Islendingur þekkir, og ætlazt er til að þú æfir þig með því að leika með spólunni. Þekktir hljómlistarmenn leika með þér lögin á kassettunum, og þér tekst fljótlega að fylgj- ast með. Seinna sleppir þú svo kassettutækinu og leikur sjálf(ur) á gítarinn undir eigin eða annarra söng, en vegna þessa fylgja nær öllum lögunum íslenzkir textar. Kassettur og bók Það hefur ótvíræða kosti að hafa yfir að ráða bæði kassettum og bók, þegar útskýra skal hvernig leika skuli á hljóðfæri. Þannig er t.d. stilling gítars- ins á kassettu, nefnilega tónarnir, sem stilla ber hvern streng á, en þá tóna væri ekki hægt að senda hvert á land sem er með bókinnl einni. Á hinn bóginn er svo í bókinni fjöldi skýringamynda, nótna, merkja og teikninga af gripum, sem erfitt eða útilokað myndi reynast að útskýra á kassettu einni saman. Þannig vinna bókin og kassetturnar saman. Á kassettunum tveim er samtals 90 mín- útna kennsluefni, m.a. 23 lög, en bókin hefur að geyma leiðbeiningar í máli og myndum, byrjunar- kennslu f nótum á öllum strengjum, 14 grip o.m.fl. Ánægjustundir Heimanámskeiðið Leikur að læra á gítar fæst aðeins hjá Gítarskóla Ólafs Gauks. Það er hið vandaðasta að frágangi í sérhönnuðum plast- umbúöum og því hin fallegasta tækifærisgjöf að útliti, auk þess sem innihaldið veitir ótal ánægju- stundir fólki á öllum aldri. Námskeiðið má panta með pöntunarseðlinum, sem hérfylgir, en einnig í símum 85752 eða 27015 í Reykjavík, og veröur það sent um hæl PONTUNARSEÐILL Gjöriö svo vel aö senda mér undirrlt. í póstkröfu gítarnámskeiöiö Laikur aö laara á gítar, tvœr kassettur og bók, verö KR. 290- auk sendingarkostnaðar. NAFN HEIMA i ¥ Utanóskrift: Gitarskóli Ölafs Gauks, pósthólf 806, 121 Reykjavik.

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.