Tíminn - 17.03.1970, Síða 4
4
TIMINN
ÞRIÐJUDAGUR 17. marz 1970.;
FISDDWE®D«Da
SAFNARINM
ÚTI Á LANDI
Það er sem betur fer komið
svo fyrir frímerkjasöfnun á
landi hér, að sveitir landsins
hafa vaknað úr dvalanum og
tekið að starfa. Þar ber án alls
vafa að telja fremsta í flokki
Ámessýslu. Þar eru nú starf-
andi Hvorki meira né minna en
3 frímerkjaklúbbar.
Félag frímerkjasafnara á Sel-
fossi, er að verða eitt hinna
eldri og virðulegri félaga í
landinu og hefir starfað vel i
vetur. Vissulega háir samt slíkri
félagsstarfsemi, að vera ekki í
beinu sambandi við alla þá
möguleika, sem félögin í borg-
inni liafa. Geta alltaf fylgzt
með þvi sem kemur nýtt á mark
aðinn, náð merkjum, sem erfitt
er að eignast jafnóðum og þau
koma fram i búðir kaupmann-
anna o. s. frv. En ekki fæ ég
samt betur séð, en þeir á Sel-
fossi uni vel við sitt og geri sér
hið bezta úr hverjum hlut.
Þyrftu þó vanir og rótgrónir
Camel Camel Camel Camel Comel
V
safnarar úr bænum að geta skot
izt ti þeirra á fundi við og við,
til að lífga uppá, því að „maður
er manns gaman“, og svo koma
alltaf fram fleiri sjónarmið,
þegar fleiri hittast. Ég mynnist
þeirra ferða, scm ég hefi farið
til þeirra með sérstakri ánægju,
énda allir meðlimir lifandi af
áhuga og er því hrein upplyft-
ing að umgangast þá.
Þá er einnig starfandi ungl-
ingaklúbbur á Selfossi, sem þeg
ar hefir starfað í nokkur ár og
ætur engan bibug á sér finna.
Það verður að segja með sanni
að unglingarnir þar hafa unnið
ýms þrekvirki við söfnunina, á
þeirra mælikvarða. Eitt er það
sem ég hefi tekið eftir ( söfn-
um þeirra, sem margir gætu af
lært og það er að vanda sér-
staklega val þeirra merkja, sem
þeir láta i safnbækurnar. Þá
hafa klúbharnir á Selfossi geng
izt fyrir frímerkiakvnningum
og smásýningu, sem mun vera
sú fyrsta utan Reykjavíkur.
Nú er líka risinn upp fri-
merkjaklúbbur á Eyrarbakka
og eru þar starfandi bæði ung-
lingar og fullorðnir. Hefir slíkt
samstarf gefizt með ágætum í
Kópavogi og á áreiðanlega ekld
eftir að gefast ver á Eyrabakka. ,
Ég átti þess kost að heimsækja
þá uin daginn og naut þess vel
að vera í þeirra hópi, því að
áhuglihn er nógur og getan
kemur með tímanum, það skap-
ar hinn mikli áhugi. Klúbbur
þessi mun hafa fengið að láni
neista frá Selfossi, sem nú hef-
ir tendrað bál á Eyrarbakka.
Það eru ýmsir fleiri, sem
starfa í klúbbformi úti á landi
og vonast ég til að gera þeim
einhver skil í næstu þáttum. en
gaman væri nú að fá tilskrif
frá sem flestum og þá lýsingu
á hvernig þeir starfa og hver
þeir telja helztu vandamálin
að glíma við. Þau er kannske
hægt- að leysa með sameigln-
legu átaki og vissulega mun
Landssamband íslenzkra frí-
merkjasafnara vera reiðubúið
að styðja við bakið á þeim sem
þurfa, ef það gó'iir á einhvern
hátt.
Sigurður H. Þorsteinsson
SÓLUN
Látið okkur sóla hjól-
barða yðar, áður en þeir
eru orðnir of slitnir.
Aúkið með því endingu
hjólbarða yðar um
helming.
Sólum flestar tegundir
hjólbarða.
Notum aðeins úrvals
sólningarefni.
BARÐINN h\f
Ármúla 7 — Sími 30501 — Reykjavík
---------
SÓLNING HF.
SIMI 84320
BIFREIÐA-
STJÓRAR
FYRIRTÆKI —
KAUPFÉLÖG
Látið okkur gera hjólbarða yðar að úrvals
SNJÓHJÓLBÖRÐUM.
Sólum allar tegundir vörubifreiðahjólbarða.
Einnig MICHELIN vírhjólbarða.
SÓLNING HF.
Sími 84320 — Pósthóli 741
OMEGA
Niuada
©lBSBi
JUpílUL.
PIERPOHI
Wlaginús E. Baldvlnsson
Laugavegi 12 — Slmi 22804