Morgunblaðið - 21.10.2005, Page 4

Morgunblaðið - 21.10.2005, Page 4
Jordan ekki spila- fíkill MICHAEL Jordan, sem er einn þekktasti körfuknatt- leiksmaður NBA-deildar- innar frá upphafi, segir í viðtali við bandarísku CBS- sjónvarpsstöðina að hann hafi gert heimskulega hluti í veðmálum á sínum tíma er hann var leikmaður með Chicago Bulls. Viðtalið var birt í þættinum 60 mínútur en Jordan sagði m.a. að keppnisskap hans og sigur- vilji hefði farið illa með hann hvað varðar heimsóknir hans í spilavíti víðsvegar um Bandaríkin en Jordan við- urkennir ekki að hann hafi átt við spilafíkn að stríða. „Ég hef aldrei stofnað fram- tíð fjölskyldu minnar í hættu með því að leggja mikið und- ir í spilum. Ég fór stundum yfir strikið og sagði oft við sjálfan mig þetta væri heimskulegt,“ segir Jordan í viðtalinu við CBS. ÞAÐ er mikil spenna ríkjandi á Evrópumótaröðinni hjá þeim kylfingum sem eiga það á hættu að missa keppnisrétt sinn á mótaröðinni og þeir sem eru fyr- ir neðan 116. sæti á peningalista Evrópumótaraðarinnar þurfa að leika á 3. stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina sem fram fer á Spáni um miðjan nóv- ember. Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG leikur á 2. stig úrtökumóts- ins í byrjun nóvember á Spáni. Það munar oft litlu hjá kylf- ingum á Evrópumótaröðinni hvað stöðu þeirra varðar á pen- ingalistanum og Svíinn Robert Karlsson er besta dæmið um það en hann endaði í 77. sæti af þeim 79 sem komust í gegnum niður- skurðinn á Madridarmóinu um s.l. helgi. Þar með skaust Karls- son upp í 116. sætið á peninga- listanum og tryggði sér keppn- isrétt að nýju á næsta ári en Ástralinn Jarrid Moseley, sem var í 116. sæti fyrir Madridar- mótið, komst ekki í gegnum niðurskurðinn. Karlsson fékk 109.062 kr. í verðlaunafé fyrir árangur sinn í Madrid og þar með hafði hann fengið 1.004 kr. hærri upphæð í verðlaunfé á keppnistímabilinu en Moseley og sleppur Karlsson við 3. stig úr- tökumótsins í nóvember en Moseley þarf að leika á 3. stigi úrtökumótsins til þess að komast aftur inn á Evrópumótaröðina. Moseley hefur þénað rúmlega 10.720.000 kr. á þessu tímabili á Evrópumótaröðinni en það dugir ekki til að þessu sinni. „Þúsundkallinn“ skipti öllu máli Ross Berlin umboðsmaður Wiesegir að forsvarsmenn LPGA vilji gera allt til þess Wie verði með enda eru fáir kylfingar sem hafa vak- ið eins mikla athygli og hin 16 ára gamla Wie sem gerðist atvinnumað- ur í síðustu viku. Carolyn Bivens, framkvæmda- stjóri LPGA, segir að reglugerð um Kraft Nabisco sé nú tveggja áratuga gömul og það sé tímabært að endur- skoða reglugerðina með það til hlið- sjónar að sem flestir geti tekið þátt og segir Bivens að allt bendi til þess að Wie verði ein af mörgum sem fái boð um að leika á mótinu. Næsta keppnistíma- bil á LPGA-móatröð- inni verður nokkuð sér- stakt hjá Wie en hún hefur leyfi til þess að þiggja boð á 6 mótum en Opna bandaríska meistaramótið og Opna breska meistaramótið gætu bæst við þá tölu. Tiger Woods, efsti maður heimslistans í karlaflokki, fór svipaða leið og Wie er hann gerðist atvinnumaður á sínum tíma en hann varð að stóla á að fá boð um að leika og átti hann ekki í vandræðum með að fylla þann kvóta. Mótshaldarar og PGA- mótaröðin högnuðust verulega á þátttöku Woods og hann hafði það sem markmið að þéna nógu mikið á mótaröðinni til þess að sleppa við að fara í gegnum úrtökumótin á banda- rísku mótaröðinni. B.J. Wie, faðir Michelle Wie, segir að stúlkan muni leggja áherslu á námið samhliða atvinnumennskunni en hann telur að valið verði erfitt hjá Wie er kemur að því að velja þau mót sem henni stendur til boða að taka þátt í. „Það eru mörg fyrirtæki sem hafa á undanförnum árum boðið henni að taka þátt og við munum að sjálf- sögðu ekki gleyma þeim,“ segir B.J. Wie. Þess má geta að Mic- helle Wie hefur nú þeg- ar gert samninga við Nike og Sony, sem tryggja henni um 700 millj. kr. ári í laun og þarf hún því ekki að kvíða framtíðinni og ár- angur hennar á golf- vellinum mun ekki skipta öllu máli næstu fimm árin á meðan samningarnir eru í gildi. Að vanda var Sigfús í eldlínunni ívörn Magdeburg í leiknum. Þegar á leikinn leið rifnaði keppn- istreyjan illa í átökum við einn leik- mann Grosswallstadt. Varð Sigfús að fara af leikvelli og fá treyjuna límda saman með límbandi. Skömmu síðar þegar hann var kominn til leiks á ný urðu aftur stimpingar á milli Sigfúsar og línumanns Grosswall- stadt með þeim afleiðingum að við- gerðin bilaði og treyjan rifnaði enn með meira. Þá stöðvaði annar dóm- arinn leikinn og sagði að hann gæti ekki leyft Sigfúsi að leika áfram í treyjunni eins og hún liti út, en hún var í henglum. Sigfús fór út af en þar var engin aukatreyja. Til þess að bjarga málunum þar sem enn voru sjö mínútur til leiksloka þá kastaði einn stuðningsmaður Magdeburg sinni peysu til Sigfúsar sem klæddist henni umsvifalaust þótt hún væri í minni kantinum. Sigfús gat því lokið leiknum í lánskeppnistreyju með nafni og númeri Arnórs Atlasonar á bakinu. Sigfús tekur á móti landsliðshópnum Sigfús mun ekki vera mikið á ferð- inni með Magdeburgarliðinu á næst- unni, þar sem hann fer til Póllands og leikur þar á móti með íslenska landsliðinu. Sigfús tekur á móti landsliðshópi Íslands í Magdeburg á mánudaginn kemur, þar sem lands- liðið mun æfa í tvo daga áður en það heldur til Póllands og tekur þar þátt í móti með Pólverjum, Dönum og Norðmönnum 27. til 29. október. Landsliðshópur Viggós Sigurðs- sonar, landsliðsþjálfara, er þannig skipaður: Birkir Ívar Guðmundsson, Hauk- um, Hreiðar Guðmundsson, KA, og Gísli Guðmundsson, ÍR, sem standa vaktina í markinu. Aðrir leikmenn eru Vignir Svav- arsson, Skjern, Sigfús Sigurðsson, Magdeburg, Markús Máni Mikaels- son, Düsseldorf, Guðjón Valur Sig- urðsson, Gummersbach, Snorri Steinn Guðjónsson, GWD Minden, Ólafur Stefánsson, Ciudad Real, Einar Hólmgeirsson, Grosswall- stadt, Alexander Petersson, Gross- wallstadt, Jaliesky Garcia, Göppin- gen, Róbert Gunnarsson, Gummers- bach, Sigurður Eggertsson, Val og Ernir Hrafn Arnarson, Aftureld- ingu. Sigurður, Ernir Hrafn og Gísli eru nýliðar í landsliðshópnum. Mikil átök á línunni í leik Grosswallstad og Magdeburgar Sigfús lauk leik í treyju frá áhorfanda SIGFÚS Sigurðsson, landsliðsmaður í handknattleik og leikmaður Magdeburg, fékk lánaða keppnistreyju frá einum stuðningsmanni liðsins til þess að hann gæti lokið leiknum með samherjum sínum gegn Grosswallstadt í þýsku 1. deildinni á þriðjudagskvöldið. Morgunblaðið/Golli Sigfús Sigurðsson, línumaðurinn sterki hjá Magdeburg. Michelle Wie þarf að stóla á boðsmótin FORSVARSMENN bandarísku kvennamótaraðarinnar í golfi leita nú leiða til þess að koma Michelle Wie að í fyrsta stórmóti næsta árs á LPGA-mótaröðinni, Kraft Nabisco. Wie sem er 16 ára gömul þarf að stóla á að fá boð um að leika á LPGA-mótaröðinni næstu tvö ár en hún fær ekki fullan keppnisrétt fyrr en hún hefur náð 18 ára aldri. Michelle Wie  JAKOB Sigurðarson, landsliðs- maður í körfuknattleik, lék vel með þýska úrvalsdeildarliðinu Bayer Leverkusen Giants gegn Walter Tigers Tübingen á miðviku- dagskvöld en Jakob skoraði 9 stig á þeim 23 mínútum sem hann lék í leiknum. Jakob skoraði þrjár þriggja stiga körfur í leiknum úr fimm til- raunum en að auki gaf hann 3 stoð- sendingar og tók 3 fráköst. Banda- ríski leikmaðurinn Brandon Woudstra, sem lék með Njarðvíking- um, er einnig í herbúðum Leverkus- en og skoraði hann 11 stig í leiknum en hann lék í 30 mínútur. Leverkusen tapaði leiknum naumlega, 89:87, en liðið er í áttunda sæti deildarinnar með tvo sigra og eitt tap.  SPÆNSKI kylfingurinn Jose Maria Olazabal, sem er fertugur að aldri, ætlar sér að leika það vel á næstu mánuðum að hann verði valinn í Ryderlið Evrópu á næsta ári er keppnin fer fram á K-Klub á Írlandi. Það eru sex ár síðan að Olazabal var síðast í Ryderliði Evrópu og var hann í aðalhlutverki í einu af eftirminnileg- ustu atvikum keppninnar frá upphafi.  ÞAR fögnuðu kylfingar bandaríska liðsins gríðarlega er Justin Leonard setti niður gríðarlega langt pútt í við- ureign sinni gegn Olazabal, og fóru kylfingar bandaríska liðsins inn á flötina til þess að fagna áður en Olazabal hafði lokið leik á holunni. Framkoma bandaríska liðsins þótti ekki viðeigandi en Olazabal náði ekki að setja sitt pútt ofan í og bandaríska liðið fór með sigur af hólmi.  OLAZABAL er sem stendur í fimmta sæti á lista yfir þá sem hafa flest Ryderstig en hann tekur þátt í Mallorca-mótinu á Spáni. Á meðal keppenda á mótinu eru Sergio Garcia frá Spáni sem hefur titil að verja, Daninn Anders Hansen og enski kylfingurinn Nick Dougherty. „Það skipta öll mót máli fyrir okkur sem ætlum okkur að komast í Ryder- liðið, enda söfnum við stigum á hverju móti og það vilja allir fá sem flest Ryderstig og komast í 10 manna hóp sem er sjálfvalinn í liðið,“ sagði Olazabal en hann valdi að taka þátt í þremur mótum á Evrópumótaröðinni í stað þess að leika á bandarísku mótaröðinni. FÓLK

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.