Morgunblaðið - 27.10.2005, Síða 1
G
O
TT
F
Ó
LK
M
cC
A
N
N
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
mbl.is
NÝR SEÐLABANKASTJÓRI
BANDARÍKJANNA | 6
SPROTAFYRIRTÆKI
SVIPMYND:
DÖGG HJALTALÍN | 16
Hvítir sokkar
í Hvíta húsinu SPROTARNIR GALDRA
FRAM FJÁRMAGN
Finnst gam-
an að tala
ÞETTA HELST…
HEILDARÚTGÁFA skuldabréfa í
íslenskum krónum erlendis er kom-
in yfir 100 milljarða króna. Þetta
gerðist þegar Alþjóðabankinn gaf
út skuldabréf fyrir 3 milljarða
króna til tveggja ára með 8% föst-
um vöxtum í gær. Frá þessu er
greint í Vegvísi greiningardeildar
Landsbanka Íslands í gær.
Fram kemur í Vegvísinum að Al-
þjóðabankinn hafi tekið virkan þátt
í útgáfu samskonar skuldabréfa í
öðrum hávaxtagjaldmiðlum. Nú
þegar Alþjóðabankinn hafi bæst í
hóp erlendra útgefenda á skulda-
bréfum í íslenskum krónum megi
gera ráð fyrir að enn sé nokkuð í að
þessari útgáfu linni. Á aðeins
tveimur mánuðum nemi útgáfan
um 10% af vergri landsframleiðslu
Íslands.
Skuldabréfaút-
gáfan komin yfir
100 milljarða
BOGI Pálsson, stjórnarformaður
Flögu Group, segir ekki enn ljóst
hversu mörgum starfsmönnum
Flögu Medcare
verður sagt upp
störfum vegna
skipulagsbreytinga
hjá fyrirtækinu.
Hann segir ljóst að
einhverjar til-
færslur verði á
störfum hér heima
og erlendis en fyrir
þeim verði gerð nánari grein í
dag, um leið og félagið birti upp-
gjör þriðja ársfjórðungs. Vildi
hann ekki staðfesta fregnir fjöl-
miðla um að 40 manns yrði sagt
upp.
Flaga skýrir
málin í dag
KAUPHÖLL Íslands mun í des-
ember hleypa af stokkunum nýjum
hlutabréfamarkaði, iSEC, sem verð-
ur sérstaklega hannaður fyrir minni
og meðalstór fyrirtæki, í hvaða
grein sem er, sem sjá fram á mikinn
vöxt.
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Kauphallar Íslands, segir iSEC
vera kjörinn vettvang fyrir sprota-
fyrirtæki en fjárfestingaþingið Seed
Forum verður haldið hér á landi á
morgun, föstudag.
„iSEC er hlutabréfamarkaður
fyrir framsækin fyrirtæki, frum-
kvöðlafyrirtæki í örum vexti og er
leið þeirra á hlutabréfamarkað sem
ekki er háður jafn ströngum skil-
yrðum eins og á aðalmarkaði en
veitir með skipulögðum hætti upp-
lýsingar um reksturinn,“ segir
Þórður.
Tvö uppgjör á ári
Þannig þurfa fyrirtæki á iSEC-
markaðnum að gefa upplýsingar um
afkomu tvisvar á ári, auk annarra
upplýsinga sem geta haft verðmót-
andi áhrif á hlutabréf í fyrirtækinu.
Aftur á móti eru ekki sett takmörk
á stærð fyrirtækja sem skrá sig á
iSEC-markaðinn, lengd rekstrar-
sögu eða dreifingu eignarhalds. Þá
gilda ekki ákvæði um yfirtöku-
skyldu.
Stefnt er að því að opna iSEC
markaðinn í desember en Þórður
segir að það fari eftir þátttöku fyr-
irtækja. Markaðurinn verður opinn
innlendum jafnt sem erlendum fyr-
irtækjum en meginsjónarmiðið er
að sögn Þórðar að veita innlendum
fyrirtækjum þessa þjónustu. Hann
bendir á að Kauphöll Íslands muni
eiga í harðri samkeppni við kaup-
hallir í nágrannalöndunum á þessu
sviði, enda sé nú verið að stofna
áþekka hlutabréfamarkaði víðs veg-
ar í Evrópu. „Fyrirmynd markaðar-
ins er AIM-markaðurinn (Alterna-
tive Investments Market) í
kauphöllinni í London. Það er mark-
aður með minni kröfur en gerðar
eru til fyrirtækja á aðalmarkaðnum.
Þá er ráðgert að opna svipaðan
markað í Danmörku í desember,
auk þess sem slíkir markaðir eru í
bígerð í Noregi og Þýskalandi.“
Góður kostur
Fyrirhugaður er samstarfssamning-
ur milli Kauphallarinnar og Seed
Forum Iceland sem byggist á að
Kauphöllin merki sérstaklega Seed
Forum-fyrirtæki sem skrá sig á
iSEC. Þórður telur að iSEC geti
orðið góður kostur fyrir sprotafyr-
irtæki, ekki síst þau sem taka þátt í
Seed Forum.
„Seed Forum fyrirtæki, bæði inn-
lend og erlend, hafa sýnt þessum
vettvangi áhuga og því munum við
kynna þeim markaðinn sérstaklega.
Við viljum gjarnan fá þessi fyrir-
tæki á markaðinn. Velta á slíkum
mörkuðum er vitanlega ekki jafn-
mikil og á aðalmarkaðnum og þess
vegna er ekki víst að velta með bréf-
in verði í öllum tilfellum mjög mikil.
En áhugi á fyrirtækjunum fer alltaf
eftir þeim árangri sem þau ná.
Markaðurinn verður þannig kjörinn
vettvangur fyrir fjárfesta að nálgast
fyrirtækin,“ segir Þórður Friðjóns-
son.
Kauphöll Íslands opnar
nýjan hlutabréfamarkað
Markaðurinn hannaður sérstaklega fyrir minni og meðalstór fyrirtæki í örum vexti
Eftir Helga Mar Árnason
hema@mbl.is
Morgunblaðið/ÞÖK
Nýr markaður Kauphöll Íslands áformar að opna nýjan hlutabréfamarkað
í desember fyrir sprotafyrirtæki og önnur minni og meðalstór fyrirtæki.
Sprotafyrirtæki | 8–13
Fimmtudagur
27. október 2005