Morgunblaðið - 27.10.2005, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 27.10.2005, Qupperneq 2
2 B FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ                                                             Viðskiptablað Morgunblaðsins Kringlunni 1, 103 Reykjavík, sími 5691100, netfang vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins Skammtímasjó›ur er fjárfestingarsjó›ur skv. lögum nr. 30/2003, um ver›bréfasjó›i og fjárfestingarsjó›i. Rekstrarfélag sjó›sins er Rekstrarfélag Kaupflings banka hf. Fjárfestingarsjó›ur telst vera áhættusamari fjárfesting en ver›bréfasjó›ur skv. lögunum. Meiri áhætta fjárfestingarsjó›s er fólgin í r‡mri fjárfestingarheimildum sem geta m.a. leitt til minni áhættudreifingar en í ver›bréfasjó›i. Nánari uppl‡singar um framangreint má nálgast í útbo›sl‡singu e›a útdrætti úr útbo›sl‡singu sjó›sins í útibúum KB banka e›a á www.kbbanki.is. * Nafnávöxtun sl. 12 mánu›i m.v. 31.08.2005 E N N E M M / S IA / N M 18 0 8 8 – kraftur til flín! S K A M M T Í M A S J Ó ‹ U R 9,2% * Skammtímasjó›ur er gó›ur kostur fyrir flá sem vilja áhættulitla fjárfestingu og verja sig gegn ver›bólgu. Enginn munur er á kaup- og sölugengi eftir 30 daga. Innstæ›an er alltaf laus til útborgunar.  !  !  !  !                 " "    !  !#$! % & & '"  ( (" % & & ( ( ( " % & & ( ( ( % & & ( ( "  !  !#$!  !  !#$!  !  !#$!       SÆNSKA fjármálaeftirlitið, FI, hefur veitt Kaupthing fonder, eigna- stýringarfélagi Kaupþings í Svíþjóð, áminningu. Málavextir eru þeir að í tveimur af sjóðum sínum hafði Kaupthing fonder óskráð félag, Airsonett AB, sem á þriggja ára tímabili var reiknað inn í sjóðina miðað við kaupverð. Á tímabilinu lækkaði virði félagsins hins vegar verulega, samkvæmt vef Dagens Industri. Að lokum neyddist Kaupthing fonder svo til þess að afskrifa 96% af virði eignarhlutans í Airsonett sem varð til þess að gengi sjóðanna lækkaði um 4%. Afleiðingin er sú að fjárfestar í sjóðunum keyptu og seldu hluti í þeim á röngu verði sem að mati FI er mjög ámælisvert. Annað sem FI gerir athugasemd við er að Kaupthing Fonder mis- munaði hluthöfum í sjóðunum og varaði stærstu hluthafa við daginn áður en afskriftirnar tóku gildi þannig að þessum hluthöfum var gefinn möguleiki á að selja hlut á fullu verði. Þannig báru einungis smærri hluthafar skaðann. Vinnureglum var breytt Í fréttatillkynningu frá Kaupþingi í Svíþjóð kemur fram að málið sé litið alvarlegum augum hjá félaginu en heildarupphæðin sem um er að ræða er ríflega 1 milljón sænskra króna. Kjell Thelenius, forstjóri Kaup- thing fonder, segir í samtali við Morgunblaðið að vinnureglum hafi verið breytt á árinu 2003 til þess að koma í veg þetta komi ekki fyrir aft- ur. „Þeir sem hafa orðið fyrir tjóni geta haft við okkur samband og við munum skoða hvert mál fyrir sig varðandi bætur,“ segir Thelenius. „Þetta mál kemur tiltölulega fljótlega upp eftir yfirtöku okkar á JP Nordiska. Við tókum á málinu og höfum tryggt að svona nokkuð gæti ekki endurtekið sig,“ segir Jónas Sigurgeirsson, forstöðumaður fjárfestatengsla hjá KB banka. Dótturfélag KB banka í Svíþjóð áminnt Áminning Eignastýringafélag Kaupþings í Stokkhólmi, Kaupthing fonder, hefur fengið áminningu. Eftir Guðmund Sverri Þór sverrirth@mbl.is ÍSLENSKU markaðsverðlaunin, ÍMARK, verða afhent á morgun í fimmtánda sinn. Athöfnin fer fram á Apóteki Grill-Bar og hefst kl. 12. Verðlaunin eru veitt ár hvert þeim fyrirtækjum sem hafa skarað fram úr í markaðsmálum. Þrjú fyrirtæki hafa verið tilnefnd til markaðsverðlaunanna í ár, þ.e. hugbúnaðarfyrirtækið CCP, Síminn og Stöð 2. Einnig fer fram val á markaðsmanni ársins, en þeir ein- staklingar sem hafa fengið þau verð- laun síðustu ár eru m.a. Björgólfur Thor Björgólfsson, Magnús Schev- ing, Þórólfur Árnason, Bogi Pálsson og Sigurður Helgason. Ræðumaður dagsins verður Svafa Grönfeldt, að- stoðarforstjóri Actavis Group, og verðlaunin afhendir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands. ÍMARK-verð- launin á morgun AKTIESPARARNA, samtök fjár- festa í Svíþjóð, hafa á einni viku fengið umboð ríflega 10 þúsund hlutafjáreigenda í tryggingafélag- inu Skandia til þess að hafna yf- irtökutilboði s-afríska trygginga- félagsins Old Mutual í Skandia. Ljóst er að tilboðsferlið hefur ekki gengið eins vel og Old Mutual hefði óskað sér en hingað til hafa hluthafar sem eiga 14,5% af heild- arhlutafé Skandia hafnað tilboðinu. Talsmenn Aktiespararna telja of snemmt að segja hversu mikið hlutafé um er að ræða en samtökin eru áhrifamikil í sænsku viðskipta- lífi og því ljóst að róður Old Mutual á eftir að þyngjast enn frekar. Enn þyngist róðurinn hjá Old Mutual STJÓRN Og fjarskipta hf. hefur boðað til hluthafafundar í næstu viku og er lagt til að nafni félags- ins verði breytt í Dagsbrún hf. Fyrir nokkru var sú fyrir- ætlan að breyta nafninu gerð opinber. Jafnframt er lagt til að stjórninni verði veitt heimild til þess að hækka hlutafé félags- ins um allt að einum millj- arði króna að nafnverði. Skarphéðinn Berg Steinarsson, stjórnarformaður Og fjarskipta, segir í samtali við Morgunblaðið að Dagsbrún hyggist auka eignir á komandi misserum á þeim sviðum sem félagið starfar, þ.e. fjölmiðlun og fjarskiptum. Hann segir að engin tiltekin verkefni séu fyrir- huguð þótt alltaf sé ýmislegt í skoðun. „Það eru ýmis sóknarfæri í fjar- skiptum hér á landi en hvað varðar fjölmiðlun lítum við til annarra landa þar sem lítil kauptækifæri eru í fjölmiðlum á Íslandi. Ef við ætlum að vaxa á því sviði verður það að gerast erlendis,“ segir Skarphéðinn. Horft til út- landa með fjárfestingu í fjölmiðlum Skarphéðinn Berg Steinarsson ÞETTA HELST . . . HAGNAÐUR BNbank í Noregi á þriðja ársfjórðungi nam 64 millj- ónum norskra króna, samanborið við 55 milljónir á sama tíma í fyrra. BNbank er dótturfélag Íslands- banka og segir í tilkynningu að vöxtur á húsnæðislánamarkaði sé grunnurinn að góðu gengi bankans á tímabilinu. Viðskiptavinum bank- ans hafi fjölgað mjög og útlán til einstaklinga hafi aukist um 62% á milli ára. Þá hefur bankinn ákveðið að fara í auglýsingarherferð til að auka sýnileika merkisins. Hefur BNbank gert samning við norska skíða- sambandið um að hann muni styrkja norska skíðamenn, og munu sjónvarps- og dagblaðaauglýsingar fylgja í kjölfarið þar sem skíðafólk- ið mun kynna bankann. Tekjur BNbank aukast milli ára

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.