Morgunblaðið - 27.10.2005, Blaðsíða 4
4 B FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
)! * !+$!
, -./! !"
#$
%$ )0#, .$!, .
*. ,
12
2 .
3/ ,. .
3 2/
0 ,. .
4-.2.
50#.6# 708
!
9:
!;
50 . !
"
" "
"
" " ( ("
("
'" ' ' ' '"
'
'
!
(
!
, -./!
<=! ,.
> ,..
5 .
5?.
4>.
-
@ .2-.
.
>-
?
-
& .
)5
)!. 6 .A0#.A-
B .
1CDE %F@
G
5)D
*&E
3
H G
A/..
FL GROUP hefur aukið hlut sinn
í breska lággjaldaflugfélaginu easy-
Jet í tvígang á síðustu dögum og á
félagið nú tæplega 65 milljónir hluta
í easyJet eða 16,18% hlut og er
markaðsverðmætið um 20,5 millj-
arðar króna.
Fyrst keypti FL Group fjórar
milljónir hluta, 0,99%, á mánudag en
í fyrradag bættust við 4,8 milljónir
hluta eða 1,2%.
Kaupverð liggur ekki fyrir en
gengi easyJet hefur hækkað veru-
lega það sem af er viku, hækkaði um
5% á mánudag og meira en 6% á
þriðjudag en lækkaði raunar í gær
um 1,33%. Gengið var 296,5 pens/
hlut við lokun markaða í gær en
268,75 pens/hlut við opnun markaða
á mánudag og er það hækkun um
10,33%. Gengi bréfa FL Group
lækkaði aftur á móti um 2,11% í
Kauphöll Íslands í gær en lækkun
bréfanna það sem af er vikunni er
um 1,4%.
Verðmætið fjórum milljörðum
meira en í upphafi vikunnar
Í upphafi vikunnar var markaðsvirði
hlutar FL Group í easyJet um 16
milljarðar en með kaupunum og
hækkun á gengi bréfanna hefur
markaðsverðmætið hlutar FL Gro-
up aukist um meira en fjóra millj-
arða, er nú um 192 milljónir punda
sem jafngildir 20,5 milljörðum ís-
lenskra króna.
Bæði breskir og danskir fjöl-
miðlar hafa að undanförnu fjallað
nokkuð um hugsanleg kaup FL Gro-
up á lágfargjaldafélaginu breska.
Danska blaðið Børsen segir sér-
fræðinga sjá hag í auknu samstarfi
easyJet við Sterling en með því móti
næði félagið fótfestu í Skandinavíu
þar sem hlutdeild þess séu miklum
mun minni en annars staðar í Evr-
ópu. „Kaup hins íslenska FL Group
á Sterling hafa ýtt undir væntingar
manna um að næst standi til að
kaupa easyJet. Það myndi með Ice-
landair, sem er i eigu FL Group,
gera Sterling að einu stærsta flug-
félagi Evrópu og setja írska flug-
félagið Ryanair í annað sæti. [-]
FL Group hefur einmitt tryggt
sér viðbótar fjármagn til kaupa á
fyrirtækjum. Með 44 milljarða
hlutafjárútboði er búið að leggja
grunninn að frekari sókn félagsins
erlendis.“
Í frétt á vef BBC er þó tekið fram
að sérfræðingar hafi varað við því að
hugsanleg yfirtaka á easyJet geti
reynst mjög erfið í framkvæmd þar
sem aðaleigandi félagsins, Stelios
Haji-Ioannou og fjölskylda hans, sé
tregur til að selja 40% hlut sinn í ea-
syJet.
Hannes Smárason, forstjóri FL
Group, vill ekki tjá sig um kaup fé-
lagsins á bréfum í easyJet.
Hlutur FL Group í easyJet
meira en 20 milljarða virði
)*
&+ A ,I .
#A
! 2.
608
A .7
J! 4
2 . ,--6 .
./6 .
A ,I .
#A
! 2.
608
.A .7
J! .,06 .
1-6 .
A ,I .
#A
! 2.
608
.A .7
J! 4
2 . 002-6 .
126 .
K5?. L
Eftir Arnór Gísla Ólafsson og
Guðmund Sverri Þór
Reuters
Verðmæti Hlutur FL Group í breska lágfargjaldafélaginu easyJet hefur stóraukist á skömmum tíma.
HAGNAÐUR Össurar hf. á
fyrstu níu mánuðum þessa árs nam
8,6 milljónum Bandaríkjadala, eða
liðlega 500 milljónum íslenskra
króna. Þetta er nokkuð minni hagn-
aður en á sama tímabili á síðasta
ári, en þá var hagnaðurinn 11,8
milljónir dala. Greiningardeildir
bankanna segja að afkoman sé í
takt við væntingar.
Ef tekið er tillit til óvenjulegra
liða í rekstri Össurar er hagnaður
félagsins á fyrstu níu mánuðum
þessa árs hins vegar svipaður og á
sama tímabili í fyrra, en á þriðja
fjórðungi þessa árs var gjaldfærð
4,1 milljón dala í tengslum við end-
urskipulagningu og samþættingu
Royce Medical Holding, sem félagið
keypti á fjórðungnum. Í heild voru
gjaldfærðir óvenjulegir liðir upp á
6,7 milljónir dala á fjórðungnum og
óvenjuleg tekjufærsla nam einni
milljón. Áhrif þessa á hagnað fyrir
afskriftir, vexti og skatta er því nei-
kvæð um 5,7 milljónir dala. Að
teknu tilliti til tekjuskatts lækka
þessar gjaldfærslur hagnað Össur-
ar hins vegar um 3,2 milljónir dala.
Hagnaður Össurar á þriðja fjórð-
ungi þessa árs nam rúmum 800
þúsund dölum, eða rúmum 50 millj-
ónum króna en hann var 4,7 millj-
ónir dala á sama tímabili í fyrra.
Sala Össurar jókst um 45% á
þriðja ársfjórðungi í ár og nam um
44,6 milljónum dala. Segir í tilkynn-
ingu félagsins að fjórðungurinn sé
sá söluhæsti frá upphafi, en hæsti
fjórðungurinn áður hafi verið annar
fjórðungur þessa árs.
Í tilkynningunni frá Össuri segir
að miklar breytingar hafi orðið á
samstæðu Össurar við kaupin á
Royce Medical Holding sem kom
inn í reksturinn frá og með 11.
ágúst síðastliðnum. Út úr samstæð-
unni féllu frá fyrra ári rekstrarein-
ingarnar Mauch og innanlandsdeild
Össurar.
Metsala Össurar
!
"# !$
%# %&
#!
'" #&'
& #
$ '%
" #
' #&$
(' #"
) )""
( """
*+
) !'
%% )%'
, +
* - #!
').
$.
! $
% %$
#% #))
##'
! !"'
% %&)
" $#
)
# %$!
($%"
" !#
( "
#" !#
#" $')
$ !'#
''.
#).
!" #$%&# MJÖG erfitt er að komast upp með
refsiverða markaðsmisnotkun hér á
landi, bæði vegna virks eftirlits
Kauphallar Íslands og Fjármálaeft-
irlitsins, auk þess sem smæð ís-
lenska markaðarins gerir slíkt at-
hæfi enn erfiðara. Þetta segir
Hlynur Jónsson, lögfræðingur hjá
Fjármálaeftirlitinu.
Í Morgunblaðinu í gær var sagt
frá því að danska fjármálaeftirlitið
hefur vísað til lögreglu tveimur mál-
um sem varða misnotkun á markaði
og ólögleg viðskipti með hlutabréf í
dönsku kauphöllinni.
„Eftirlit með verðbréfavið-
skiptum hér á landi er mjög sam-
bærilegt við ástand mála í Dan-
mörku,“ segir Hlynur.
„Kauphallirnar hér á landi og á öðr-
um Norðurlöndum nota til þess
tölvukerfi, sem kallast Smarts, og
nemur allar óeðlilegar hreyfingar
með bréf, eftirspurn eftir þeim og
gengi. Ef eitthvað af þessu er ekki í
takt við eðlilega þróun, miðað við
ákveðna forskrift sem kerfið er mat-
að á, þá hringja viðvörunarbjöllur.“
Auk þessa sjálfvirka kerfis berast
eftirlitinu ábendingar frá aðilum,
sem Hlynur segir að séu athugaðar
þyki nauðsyn bera til.
„Þessar bjöllur hringja oft, en
langoftast eru eðlilegar skýringar á
því,“ segir Hlynur. „Komist kaup-
höllin hins vegar að því að frekari
athugunar er þörf, kemur Fjármála-
eftirlitið að málinu. Sé niðurstaða
FME, að athugun eftirlitsins lokinni,
að saknæmt athæfi hafi átt sér stað
er máli vísað til efnahagsbrotadeild-
ar lögreglu. Það hefur hins vegar
ekki gerst hér á landi í málum af
þessu tagi,“ segir Hlynur.
„Virkt eftirlit
á íslenska
markaðnum“
SAMKVÆMT mælingum Rann-
sóknaseturs verslunarinnar var
velta í dagvöruverslun 13% meiri í
september síðastliðnum en í sama
mánuði árið 2004, á föstu verðlagi.
Sala á áfengi í september var 18,5%
meiri í ár en í fyrra og velta lyfja-
verslana 8,1% meiri, á föstu verð-
lagi.
Síðastliðið ár hefur verð dagvöru
lækkað um 2,8% en á sama tíma
hefur verðlag á áfengi og í lyfja-
verslunum því sem næst staðið í
stað.
Smásöluvísitalan
hækkaði