Morgunblaðið - 27.10.2005, Side 11

Morgunblaðið - 27.10.2005, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 2005 B 11  CAOZ hf. framleiðir tölvugerðar teiknimyndir fyrir alþjóðamarkað. Að sögn þeirra Hilmars Sigurðs- sonar, framkvæmdastjóra og Arn- ar Þórissonar, stjórnarmanns, er mikill vöxtur framundan hjá CA- OZ og félagið stefnir á að verða eitt af þremur leiðandi fyr- irtækjum í Evrópu á sviði tölvu- teiknimynda. CAOZ fram- leiddi og setti á markað fyrstu íslensku tölvugerðu teiknimyndina um Litlu lirfuna ljótu sem er mest seldi DVD á Ís- landi og á að auki aðsóknarmet fyrir stuttmyndir í kvikmynda- húsum á Íslandi. CAOZ vinnur nú að framleiðslu á sinni annarri mynd, Anna og skapsveiflurnar, eftir hugmynd og sögu Sjón og verður myndin frum- sýnd í vor. Heimsþekktir lista- menn ljá raddir sínar í myndina og má m.a. nefna Terry Jones, Dam- on Albarn og Björk. Tónlist er samin af Julian Nott og flutt af hinum heimsþekkta breska Brodsky kvartett. Auk þess vinnur hreyfimyndasmiðurinn Kyle Balda með CAOZ að myndinni, en Kyle var m.a. stjórnandi hreyfimynda- gerðar á Pöddulífi og Toy-Story 2 myndum Pixar. „Teiknimyndamarkaðurinn er 52 milljarða dollara markaður og er í miklum vexti,“ segja Hilmar og Arnar. „Tölvu- teiknaðar myndir eru að taka við af hefðbundnum tvívíðum teikni- myndum. Til marks um það er sú staðreynd að 7 af 10 tekjuhæstu teiknimyndum allra tíma eru tölvuteiknaðar myndir sem hafa komið út á síðustu 10 árum. Shrek 2 hefur aflað mestra tekna þeirra allra í kvikmyndahúsum en mynd- in hefur velt yfir 55 milljörðum króna í sölu aðgöngumiða ein- göngu. Eftir er að telja fram tölur vegna sölu á myndböndum og diskum og sölu á varningi tengd- um myndinni. Framleiðslukostn- aður myndarinnar var um 6 millj- arðar króna.“ Hjá CAOZ er að ljúka þróun á sjónvarpsþáttaröðinni Anna Young sem er unnin út frá upprunalegu hugmynd Sjón í Önnu og Skap- sveiflunum. Þáttaröðin er skrifuð af Jessicu Berkemeier, áströlskum handritshöfundi. Hilmar segir að ef áætlanir gangi eftir verði fram- leiðsla hafin á þeirri þáttaröð á fyrri hluta ársins 2006 sem sam- framleiðsluverkefni með leiðandi fyrirtækjum í Frakklandi og Þýskalandi. „Verkefnið var kynnt í fyrsta skipti á Cartoon Forum í lok september sl. og vakti mikla athygli og hafa í framhaldi nokkr- ar stórar evrópskar sjónvarps- stöðvar gefið vilyrði fyrir for- kaupum á þáttaröðinni.“ Hjá CAOZ er unnið að þróun á teiknimynd í fullri lengd til sýn- inga í kvikmyndahúsum. Myndin sækir efnivið sinn í norrænu goða- fræðina og gengur undir heitinu THÓR. Friðrik Erlingsson skrifar handritið. „CAOZ hefur fengið enskan meðframleiðanda til liðs við sig í þetta verkefni. Hann var m.a. framleiðandi á Chicken Run, best sóttu evrópsku hreyfimynd allra tíma og þeirri einu fram til þessa sem náð hefur að velgja stóru bandarísku teiknimyndunum undir uggum. Jafnframt er hann aðalframleiðandi Wallace and Gro- mit myndarinnar sem er sýnd um þessar mundir í kvikmyndahúsum um allan heim við góðan orðstír. Gert er ráð fyrir að þróuninni á THÓR ljúki í árslok 2006 og frum- sýning gæti orðið árið 2009.“ CAOZ með mörg járn í eldinum Morgunblaðið/Ásdís Arnar Þórisson og Hilmar Sigurðsson: „Tölvuteiknaðar myndir eru að taka við af hefðbundum tvívíðum teiknimyndum.“ NEW Amigos! er borðspil sem kom fyrst út í Noregi árið 2002. Markmiðið með spilinu er að læra nýtt tungumál um leið og spilað er. Spilið er hugsað fyrir leikmenn 8 ára og eldri og ætlaður öllum þeim sem langar að læra nýtt tungumál, bæta hæfni sína í erlendu tungumáli eða einfaldlega skemmta sér. Þegar hafa verið seld 122.000 ein- tök af New Amigos! í Noregi og Þýskalandi. Spilið verður gefið út í Benelúx-löndunum og Frakklandi í janúar á næsta ári. Það er norska fyrirtækið New Amigos AS sem á einkarétt á spilinu. Það er þátttakandi á Seed Forum og leitar nú fjárfesta til að koma fyr- irtækinu á framfæri um allan heim. Norsk/enski tónlistarmaðurinn Lakki Patey fékk hugmyndina að New Amigos! þegar hann var á ferð um S-Ameríku og langaði að læra ný tungumál á fljótlegan og einfaldan hátt. Í spilinu eru 1.800 algengustu orðin í því tungumáli sem um ræðir, auk helstu orðasambanda, setninga og sagna. Í Noregi og Þýskalandi hefur spilið verið gefið út í enskri, spænskri, franskri og ítalskri út- gáfu, auk þess sem hægt er að fá spilið í þýskri útgáfu í Noregi. Tungumál á augabragði tengingum, rétt eins og menn væru að kaupa sér nýtt sjón- varp. Skjávarpanum er komið fyrir í loftinu og er stjórnað með fjar- stýringu. Það má síðan tengja allan þannig búnað við tækin, svo sem DVD-spilara, heimabíó, vídeóvélar og svo framvegis. „Vörum okkar er ætlað að brúa bilið milli hefðbundinna skjávarpa og Plasma-sjónvarpa,“ segir Jan Ott. „Við er- um fyrsta fyrirtækið til að setja þessa bylt- ingarkenndu tækni á markað. Markhópur okkar eru þeir sem hyggjast kaupa skjávarpa til að fá stórar myndir heima við, í fyrir- tækjum eða stofnunum. Við leggjum áherslu á stærð, stíl og verð og telj- um okkur hafa náð samkeppnisforskoti á þessum sviðum.“ Xscreen er stofnað af fyrrum starfsmönnum þróunardeildar InFocus í Noregi og segir Jan Otto að reynsla og tengsl starfsmanna fyrirtækisins séu lykillinn að vel- gengni þess. „Við höfum innan okk- ar raða einstaklinga sem búa yfir mikilli reynslu og þekkingu um allt er viðkemur sjónvarpsskjáum úti um allan heim.“ NORSKA fyr- irtækið Xscreen kynn- ir á Seed Forum risa- sjónvarp og myndvarpa sem fyrir- tækið hefur hannað. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir búnaðinn brúa bilið milli hefðbundinna skjávarpa og Plasma- sjónvarpa. Framkvæmdastjóri Xscreen, Jan Otto Rei- mers, segir að mark- aður fyrir stóra staf- ræna skjái stækki gríðarlega ört, auk þess sem sala á skjá- vörpum hafi aukist verulega á undanförnum árum, heimssalan hafi tvöfaldast á milli ár- anna 2003 og 2004 og spáð sé mikilli aukningu næstu árin. Xscreen hefur þróað skjávarpa og risaskjá með hágæða upplausn sem byggist á DLP/LCD tækni. Um er að ræða 60–100 tommu skjái fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir. „Með nýrri tækni (Day- light Film Technology by Xscreen) er nú unnt að varpa mynd á risaskjá við venjuleg birtuskilyrði án þess að það komi niður á myndgæðum,“ segir Jan Otto. Búnaður Xscreen samanstendur af risaskjá, skjávarpa, hátölurum og öllum nauðsynlegum snúrum og Gæði á risaskjá Jan Otto Reimers: „Við leggjum áherslu á stærð, stíl og verð.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.