Morgunblaðið - 27.10.2005, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 27.10.2005, Qupperneq 12
12 B FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ  SÆNSKA kvikmyndafyrirtækið White Shark er um þessar mundir að hefja framleiðslu á þrívíddarteikni- myndinni Astrid Silverlock, næst dýrustu mynd sem framleidd hefur verið í Svíþjóð. Ro- bert Rhodin, forstjóri White Shark, segir að myndin sé ein- hverskonar blanda af kvik- myndunum Shrek og Hringadróttinssögu. White Shark hefur á undanförnum 5 árum framleitt auglýsingar fyrir ýmis fyrirtæki. Þá hefur fyrirtækið einnig annast tæknibrellur í kvik- myndum á borð við Hamilton, Adam & Eva og Lilla Jönssonligan. En núna hyggst fyrirtækið ráðast í sitt stærsta verkefni, teiknimyndina um Astrid Silverlock, sem er þrívídd- arteiknimynd í fullri lengd. Handritið er tilbúið að sögn Rhodin, og búið að ráða fólk til starfa. Myndin segir frá sænskum víkingum á 9. öld sem herja á Bretlandseyjar. Vík- ingahöfðinginn Eirík- ur og sonur hans Björn eru þar teknir í gíslingu en tvíbura- systir Björns, Astrid, bíður þeirra í Svíþjóð. Hana grunar að ekki sé allt með felldu og ákveður að bjarga föður sínum og bróð- ur úr prísundinni. Rhodin segir mikla möguleika felast í kvikmyndagerð í dag og mörg tæki- færi séu til vaxtar. Sérstaklega hafi verið mikill vöxtur í gerð þrívídd- arteiknimynda en þessi geiri kvik- myndaiðnaðarins blómstri umfram aðra. Hann segir að kostnaður við gerð myndar af þessu tagi í Holly- wood hlaupi á milljörðum króna en áætlaður kostn- aður við Astrid Silverlock er áætlaður um 50 millj- ónir sænskar krónur, nærri 400 milljónir króna, og yrði hún þar með næst dýrasta mynd sænskrar kvikmyndasögu. Myndin hefur fengið styrk úr sænska kvikmyndasjóðn- um en annað fjármagn verður sótt til einkaaðila. Myndin verður að mestu framleidd í Svíþjóð en ákveðnum verkefnum við framleiðsluna verður út- hýst til Kína til að ná nið- ur kostnaði. Rohdin segir að þrátt fyrir norrænt yf- irbragð hafi myndin alþjóðlega skír- skotun og allar persónur mynd- arinnar mæli á ensku. „Við erum með gott handrit í höndunum og með góðri hönnun og skemmtilegri sögu á Astrid Silverlock möguleika á að slá í gegn um allan heim,“ segir Rhodin. Robert Rhodin: „Við erum með gott handrit í höndunum.“ Vöxtur í þrívíðum teiknimyndum leiðslu,“ segir Are, „þar sem áherslan er lögð á endurnýtanlega orku. Það er ljóst að það er gríðarlegur markaður fyrir straumorku út um allan heim. Harmonica Model getur leikið stórt hlutverk í að uppfylla framtíðar raforkuþörf ýmissa strandsvæða. Áætlanir okkar gera sömuleiðis ráð fyrir að kostnaður við rekstur Harmonica Model sé umtalsvert lægri en annarra rafstöðva sem nýta straumorku. Áætl- uð ársframleiðsla er um 40 gígavattstundir og er gert ráð fyrir að kostnaðurinn við fram- leiðsluna sé 0,05 evrur á hverja kíló- vattstund.“ Allar einingar tækninnar eru þeg- ar fyrir hendi og því mun Tidal Sails ekki annast verklegar framkvæmdir eða skipuleggja uppsetningu raf- stöðvarinnar, heldur aðeins vera til NORSKA fyrirtækið Tidal Sails AS kynnir á Seed Forum rafstöðina Harmonica Model sem ætlað er að fanga straumorku sjávarfallanna. Framkvæmdastjóri Tidal Sails segir að sjávarföllin séu skilvirkasta að- ferðin sem þekkt er í dag til að framleiða rafmagn. Rafstöðin byggist í grófum drátt- um á stórum seglum sem eru á brautum neðansjávar og dragast með sjávarföllum fram og tilbaka, og knýja þannig rafal sem framleiðir rafmagn. Are Børgesen, eigandi og framkvæmdastjóri Tidal Sails, hefur mikla reynslu af siglingum og fékk hugmyndina að sjávarfallarafstöð- inni í kappsiglingu, þegar hann sigldi á móti vindi en með straumi. Eftir hálftíma þóf hafði hann ekkert þokast áfram en datt þá í hug að hvolfa bátnum til að fá strauminn í seglið. „Loftslagsbreytingar og vaxandi rafmagnsþörf knýja á um nýjar um- hverfisvænar lausnir í raforkufram- ráðgjafar samstarfs- aðilum, s.s. orkufyr- irtækjum eða opinber- um stofnunum. Tidal Sails sótti um einka- leyfi á tækninni árið 2003 og gerir Are ráð fyrir að jákvæð nið- urstaða liggi fyrir á næsta ári. Are segir að Harm- onica Model sé senni- lega umhverfisvænsta leiðin til rafmagns- framleiðslu sem völ er á. „Frá henni kemur engin úrgangur né út- blástur og af henni starfar hvorki hljóð- eða sjónmengun. Raf- stöðin er auk þess byggð á gömlum olíu- pöllum og nýtir þar að auki óþrjót- andi krafta sjávarins.“ Are segist spenntur fyrir að kynna Íslendingum hugmyndir sín- ar á Seed Forum í Reykjavík enda sé hefð fyrir framleiðslu á grænni orku á Íslandi. Fanga krafta sjávarins Are Børgesen: „Lofts- lagsbeytingar og vax- andi rafmagnsþörf knýja á um nýjar um- hverfisvænar lausnir.“ SPROTAFYRIRTÆKI SJÓÐIR fyrir áhættufjárfest- ingar í Bandaríkjunum setja u.þ.b. 0,25% af fjárfestingum sínum í fjár- mögnun sprotafyrirtækja. Það eru aftur á móti efnaðir einstaklingar, svokallaðir „viðskipta-englar“ (e. business angels), sem eru mikilvæg- asta uppspretta fjármagns fyrir fyr- irtæki á sprotastigi í Bandaríkj- unum. Eitt helsta markmið Seed Forum er að virkja þennan hóp, búa til vettvang og síðan að und- irbúa jarðveginn fyrir þá til að koma að fyrirtækjunum. Samkvæmt nýlegri könnun í Bandaríkjunum hafa ríflega 23% fyrirtækja sem hófu viðræður við efnaða athafnamenn eða „við- skiptaengla“ fengið fjármagn hjá þeim á þessu ári og er það besti ár- angur frá árinu 2000. Hluti af skýr- ingunni er talin vera aukin gæði í útfærslu viðskiptahugmynda og skipulögð nálgun við framsetningu og mat á þeim. Þessi aukning fjár- festinga efnaðra athafnamanna í sprotafjárfestingum kemur á sama tíma og hlutfall fjárfestinga meðal áhættufjárfestingasjóða í sprotafyr- irtækjum hefur dregist nokkuð saman en innan við 0,25% af upp- hæð fjárfestinga í Bandaríkjunum fóru til fjárfestinga í sprotafyr- irtækjum á fyrstu sex mánuðum þessa árs sem er lækkun frá fyrri árum. Jón Helgi Egilsson, fram- kvæmdastjóri Klaks nýsköp- unarmiðstöðvar, segir áhugavert að skoða þetta í samhengi við nýlegan 2,5 milljarða króna styrk íslenska ríkisins til Nýsköpunarsjóðs at- vinnulífsins. „Ef Nýsköpunarsjóður hefur í hyggju að haga sér eins og dæmigerður bandarískur áhættu- fjárfestingasjóður þá þýðir það að hann mun setja upphæð sem sam- svarar einum þokkalegum jeppa, eða rúmar 6 milljónir króna, í fjár- festingar í sprotafyrirtækjum. Ann- að nýlegt dæmi er fjárfestingar- sjóðurinn Brú sem hefur safnað 5 milljörðum króna. Það liggur fyrir að Brú ætlar fylgja áþekkri línu og viðgengst víða um heim meðal slíkra sjóða, að einbeita sér að fyr- irtækjum sem eru lengra komin en sprotafyrirtæki. Ef sömu hlutföll eiga að gilda um Brú og meðaltal áhættufjárfestingasjóða í Banda- ríkjunum þá mun Brú verja 12,5 milljón króna í fjárfestingar í sprotafyrirtæki. Það þýðir að þeir fjármunir sem Brú hefur nú fengið fá lífeyrissjóðum mun líklega breyta litlu ef einhverju fyrir sprotafjármögnun á Íslandi að mínu viti og síðan á maður eftir að sjá hvað kemur út úr starfsemi Ný- sköpunarsjóðs.“ Þörf fyrir nýja nálgun Í nýlegri skýrslu sem unnin var af sérfræðingum iðnaðar- og við- skiptaráðuneytum Bandaríkjanna kemur fram að samdráttur í fjár- festingum í sprotafyrirtækjum er kerfisbundið vandamál sem ein- kennir þróuð hagkerfi. Þar sem færri og færri áhættufjárfest- ingasjóðir séu virkir í sprota- Vilja virkja „viðskiptaengla“ .................. M a r k m i ð f j á r f e s t a - þ i n g s i n s S e e d F o r u m e r a ð l e i ð a s a m a n á k e r f i s - b u n d i n n h á t t e f n a ð a a t h a f n a - m e n n o g h á g æ ð a s p r o t a f y r i r t æ k i . .................. SÆNSKA lyfjafyrirtækið Bluefish Pharmaceutical AB hyggst á næsta ári hefja markaðssetningu og sölu samheitalyfja á Norðurlöndum og síðar innan Evrópusambandsins. Fyrirtækið kynnir starf- semi sína á Seed Forum í Reykjavík. Að sögn Karls Karls- sonar, framkvæmdastjóra Bluefish, er fyrirtækið í samvinnu við sam- heitalyfjafyrirtæki í Indlandi, þar sem framleiðsla lyfjanna fer fram. Karl segir að Bluefish muni mark- aðssetja sig sem hreinræktað lág- vöruverðsfyrirtæki innan samheita- lyfjageirans, með litla yfirbyggingu og áherslu á skipulagða og skilvirka stefnumörkun. „Þetta, ásamt sífellt stækkandi markaði, mun gera Bluefish sveigj- anlegt og þar af leið- andi skapa fyrirtæk- inu tækifæri til að bjóða lægra verð en keppinautarnir en skila engu að síður góðri afkomu,“ segir Karl Karlsson.“ Það voru þeir Karl Alexius Tiger Karls- son og Lars-Göran Kjellin sem stofnuðu Bluefish Pharmaceuti- cal AB. Karl hefur unnið að stefnumörk- un fyrir vörumerki í Bandaríkjunum og Lars-Göran er stofnandi sænsku heilsu- og læknaþjónustunnar Cur- era AB. Í yfirstjórn fyrirtækisins er einnig markaðsstjórinn Bo Rönnberg sem m.a. hefur unnið auglýsinga- herferðir fyrir SAS, H&M og Tele 2. Einnig lyfjafræðing- urinn Björn Magn- usson, sem hefur veitt forstöðu einu af apótek- um Apoteksbolaget, ríkisrekna apóteksins í Svíþjóð. Karl Karlsson segir að líklega verði velta Bluefish Pharmaceuti- cal AB um 3 milljónir evra, rúmar 200 millj- ónir króna, á næsta ári en áætlanir geri ráð fyrir 86 milljóna evra, ríflega 6 milljarða króna, veltu árið 2010. „Fjárfesting í Bluefish á þessu stigi er þannig líkleg til að skila góðri arðsemi,“ segir hann. Karl segist binda miklar vonir við þátttöku fyr- irtækisins í Seed Forum. Markmiðið sé að tryggja fjármögnun fyrir minnst 2,5 milljón evra, um 180 millj- ónir króna, auk þess sem þar stofnist væntanlega til dýrmætra tengsla. Lyf á lágu verði Karl Karlsson: „Blue- fish mun markaðssetja sig sem hreinræktað lágvöruverðsfyrirtæki.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.