Morgunblaðið - 27.10.2005, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 27.10.2005, Blaðsíða 16
A VION Group hefur staðið í stórræðum að undanförnu með flugvélakaupum og fyr- irtækjakaupum þar sem kaupin á Eimskip fyrr á þessu ári ber hæst. Í upphafi næsta árs stendur til að skrá félagið í Kauphöll Íslands og þá verður eitt af andlit- um þess út á við Dögg Hjaltalín sem er fjárfestateng- ill hjá Avion Group. Dögg er fædd í Reykjavík árið 1977 og alin upp í Norðurmýrinni. Hún lauk stúdentsprófi frá Verzl- unarskóla Íslands árið 1997 og prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 2002 en að því loknu nam hún hagnýta fjölmiðlun við sama skóla. „Skemmtilegasta námið sem ég hef stundað í er samt Hússtjórnarskóli Reykjavíkur. Námið þar er ein önn og þar lærði ég alvöru hluti eins og að prjóna og sauma. Ég kunni að elda og baka áður en ég fór í Húsó en auðvitað lærði ég ýmsar kúnstir til viðbótar þar,“ segir Dögg. Skemmtilegur skóli Áður en hún tók við núverandi starfi hjá Avion Group hafði Dögg starfað sem blaðamaður allan sinn starfs- feril. „Ég byrjaði að vinna á Viðskiptablaðinu um leið og ég lauk námi í hagnýtri fjölmiðlun. Tæpum tveimur árum seinna fór ég að vinna á Fréttablaðinu og tók þátt í að setja Markaðinn, viðskiptablað Fréttablaðs- ins, á laggirnar. Ég var ekki búin að vinna lengi á Markaðinum þegar tækifæri kom til að vinna fyrir Avion Group. Ég lít á þetta sem tækifæri sem kemur bara einu sinni. Viðskiptablaðamennska er mjög skemmtilegur skóli og ég veit að sú reynsla á eftir að nýtast mér alla ævi,“ segir hún. Dögg segist alltaf hafa haft gaman af því að læra um viðskipti en hún hafi þó aldrei haft löngun til þess að vinna í banka, þar sé ekki nóg um að vera. „Fólk fær ákveðið „kikk“ út úr blaðamennsku þeg- ar skammur tími er til þess að vinna verkefni. Ég fæ þessa útrás í vinnunni minni í dag og það er alveg nauðsynlegt.“ Dögg telur sig ekki vera vinnufíkil en henni þykir vinnan þó afar mikilvægur hluti af lífinu. „Við erum að undirbúa skráningu Avion Group á hlutabréfa- markað þannig að það er nóg að gera.“ Á skemmtilega vini Aðspurð segist hún aldrei hafa átt nein sérstök áhugamál en að hún lesi mikið, hlusti á tónlist og fari í leikhús. „Mér finnst gaman að tala,“ segir Dögg og bætir við að hún hafi alltaf haft gaman af ferðalögum. „Ég ferðaðist mjög mikið með foreldrum mínum þeg- ar ég var yngri. Nú hefur dóttir mín tekið við því hlutverki,“ segir Dögg en hún á eina dóttur sem heitir Agnes og er sex ára. Hún er nú í Ísaksskóla. „Ætli stærsta áhugmálið sé ekki að vera með vinum mínum. Ég á ótrúlega skemmtilega og hæfileikaríka vini.“ Talandi um vini staðfesta þeir sem til Daggar þekkja að hún hafi gaman af því að tala. „Hún hefur smitandi hlátur og hlær mikið þannig að það er gam- an að segja henni brandara,“ segir einn þeirra. Dögg er að sögn vina sinna lífsglöð, hress og dug- leg manneskja. „Hún hefur þann eiginleika góðs blaðamanns að hún veit allt um alla, oft meira en við- komandi veit sjálfur,“ segir einn fyrrum vinnufélaga hennar. Þegar Dögg er beðin um að lýsa sjálfri sér segist hún vera jákvæð, hæfilega kærulaus og talnaglögg. „Ég geri það sem ég hef gaman af,“ segir hún. Aðspurð segist hún ekki hafa hugmynd um hvar hún verði eftir tíu ár. „Ég verð að minnsta kosti að gera eitthvað skemmtilegt með rauðvínsglas í hönd.“ Finnst gaman að tala SVIPMYND Morgunblaðið/Ásdís sverrirth@mbl.is Dögg Hjaltalín tók við starfi fjárfesta- tengils hjá Avion Group fyrir skömmu. Þá hafði hún starfað sem blaðamaður um hríð. Guðmundur Sverrir Þór bregður upp svipmynd af henni. GENGI Bandaríkjadollars hefur hækkað þó nokkuð á síðustu vik- um. Þetta kemur berlega í ljós þegar gengi dollarsins gagnvart öðrum gjaldmiðlum er skoðað. Tökum sem dæmi gengisvísitölu íslensku krónunnar. Vísitalan hef- ur lækkað um 4,7% frá því 1. sept- ember og hefur gengi krónunnar því styrkst sem því nemur. Gengi dollarsins gagnvart krónunni hef- ur á sama tíma lækkað um 2,8% – var 61,96 krónur en er nú 60,22 krónur. Þetta sýnir að dollarinn hefur að mörgu leyti haldið sjó gagnvart gengisvísitölunni en gengi annarra gjaldmiðla sem vísi- talan samanstendur af hefur á sama tíma lækkað meira gagnvart krónunni. Ef borið er saman gengi dollars og evrukemur berlega í ljós að gengi dollars hefur hækkað á tímabilinu. Hinn 1. september kostaði einn dollar 0,807 evrur en í gær kostaði hann 0,828 evrur. Er það hækkun um 2,6% en á sama tíma hefur gengi evrunnar lækkað um 5,3% gagnvart krónunni. En hvað er það sem veldur? Vaxtamunur við útlönd er hug- tak sem okkur Íslendingum hefur orðið tamt á síðustu mánuðum enda er vaxtamunur ein helsta ástæða þess hversu sterkt gengi krónunnar er. Það sama á við í Bandaríkjunum. Seðlabankinn hef- ur hækkað vexti markvisst á síð- ustu mánuðum sem forvörn við verðbólgu. Þessar aðgerðir eru nú að skila sér í hærra gengi enda eru vextir í Evrópu og Japan enn mjög lágir. Dollarinn hækkar Eftir Guðmund Sverri Þór sverrirth@mbl.is HAGNAÐUR Trygginga- miðstöðvarinnar fyrstu níu mánuði ársins nam 5,4 millj- örðum króna en nam á síð- asta ári á sama tíma 1,5 milljörðum. Hagnaður TM á þriðja ársfjórðungi nam 2,5 milljörðum króna en á sama tímabili á síðasta ári nam hagnaðurinn 127 milljónum króna. Fram kemur í tilkynn- ingu frá TM að rekstr- arhagnaður af vátrygginga- starfsemi í fjórðungnum hafi numið 89 milljónum króna. Raunafkoma vátryggingastarfsemi sé þó í járnum á fyrstu níu mánuðum ársins. Talsvert endurmat á tjónaskuld félagsins hafi farið fram á þriðja ársfjórðungi og megi að óbreyttu ekki vænta jafn mikilla áhrifa endurmats á fjórða ársfjórðungi. Fjárfestingatekjur félagsins nema 2,5 milljörðum króna á tímabilinu en námu 196 milljónum á sama tíma í fyrra. Fjár- festingatekjurnar á tímabilinu skýrast fyrst og fremst af 2,3 milljarða króna hækkun vegna gangvirðisbreytinga skráðra hlutabréfa. Góð afkoma TM CENTURY Aluminium Company, móðurfélag Norð- uráls á Grundartanga, var rekið með 20,1 milljón dala tapi, jafngildi um 1,2 millj- arða íslenskra króna, á þriðja fjórðungi ársins á móti 16 milljóna dala tapi á sama tímabili í fyrra. Það sem af er árinu hefur félagið þó verið rekið með tæplega tveggja milljarða króna hagnaði. Sölutekjur félagsins fyrstu níu mánuði ársins námu um 50,6 millj- örðum íslenskra króna og jukust um 9% miðað við sama tímabil í fyrra en í magni talið nam söluaukn- ingin um 4,4%. Stjórnarformaður Cent- ury Aluminium, Craig Dav- Century Aluminum er nú um 615 þúsund tonn af áli en með stækkun álversins á Grundartanga mun fram- leiðlsugetan fara í 745 þús- und tonn um mitt ár 2007. anförnu auki okkur bjartsýni höfum við áhyggjur af stöðu orkumála í Bandaríkjunum og áhrif af þeim á afkomu fyrirtækisins,“ segir Davies. Árleg framleiðslugeta ies, segir að verri afkoma á þriðja fjórðungi sé vegna lækkandi verðs, kostnaðar vegna fellibylja og hærra orkuverðs. „Þrátt fyrir að hækkandi verð á áli að und- Tap varð af rekstri móðurfélags Norðuráls á Grundartanga Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson &2  &2  &2  &2  &2     ) ! 6- . * !8- .        ) ! 6- . * !8- .        ) ! 6- . * !8- .   " " " " " ) ! 6- . * !8- .   " " " " " ) ! 6- . * !8- . (" (" (" (" ("        ) ! 6- . * !8- .   " ) ! 6- . * !8- .   " " " " ) ! 6- . * !8- .  " " " " " ) ! 6- . * !8- .        ) ! 6- . * !8- . 3 3= (" '" '" '"  '"

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.