Tíminn - 13.05.1970, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 13. maí 1970.
„Malcolm litli"
frumsýning á
föstudag
Síðasta frumsýningin á þessu leik
ári hjá Þjóðleikhúsinu verður á
leikritinu „Malcolm litla“, eftir
enska höfundinn David Halliwell.
Aðeins fimm leikendur taka þátt
í þessari sýningu og eru þeir allir
fulltrúar yngri kynslóðarinnar,
enda fjallar þetta leikrit um
vandamál þeirra ungu. — Um rót-
leysið og þann mikla vanda, sem
ungu fólki er á herðar lagður í
nútíma þjóðfélagi. Þarna eru ung
ir reiðir menn í andstöðu við
þjóðfélagið, en hvað hafa þeir
sjálfir til málanna að leggja og
hvað á að koma í s,taðinn fyrir það
þjóðfélag og það fyrirkomulag,
sem þeir fordæma? — Leikurinn
verður frumsýndur n.k. föstudag.
Leikendur eru: Þórhallur Sigurðs-
son Hákon Waage, Sigurður Skúla
son, Gísli Alfreðsson og Þórunn
Magnúsdóttir. Leikstjóri er Bene-
dikt Árnason, en Birgir Engil-
berts gerir leikmyndir. — Myndin
er tekin á æfingu. — (Tímamynd
— Gunnar).
Loftl^iðir
Framhald ?£ bls. 2
em í ýmsu, er varðar DC 8-63. Að
því loknu fengu þeir aftur sérstaka
þjálfun á blindflugsmælitæki af
nýrri og mjög fullkominni gerð,
sem er í þotum Loftleiða. Þessi
þjálfun öll tók 6—8 vikur.
Annar hópur flugliða hóf síðan
nám 18. febrúar, og var námstil-
högunin eins og hjá fyrri hópnum
og tók svipaðan tíma.
Lokaþjálfun flugliða fór síðan
fram í New York og Atlantic
City, en þar fengu allir flugmenn
Loftleiða a@ gera nokkur aðflug
og lendingar á þeim flugvélum,
sem þeir eiga að fljúga í framtíð-
inni. Nokkrar fyrstu ferðirnar
verða svo bandarískir eftirlitsflug
menn um borð í þotum Loftleiða
til þess að fylgj-ast með starfj flug
liðanna.
Flugfreyjur Loftleiða hafa feng
ið stutt námskeið í New York til
þess að læra á öryggisútbúnað þotn
anna, og jafnframt til þss alð kynna
sér starfsskilyrðin um borð.
Loftleiðir leigja nú þoturnar
tvær frá flugfélaginu Seaboard
World, en þannig er frá samning-
um gengið, að Loftleiðir eiga for-
gangsrétt að kaupum á þeim ef
félagið óskar, og reiknast þá
greiðslur vegna leigu til hluta af
kaupverðL
1 siumar verður farið 11 ferðir
í viku með þotunum tveim fram
og aftur milli New York og Lux
emhorgar.
Póst og símamálastjórnin hefir
ákveðið að nota sérstakan stimpil
á öll bréf, sm fara héðan með
þotu Loftleiða n. k. föstudag, en
bréf með þess konar stimplun
eru mjög eftirsótt af frímerkja-
söfnurum.
Á VÍÐAVANGI
Framhald af bls ?
er ráð fýrir að heimila kauP
á samkvæmt viðaukatillögunni,
þurfa eigi að grei'ðast á einu
ári. Taka mun 2—4 ár að undir
búa kaupin og smíða þá, 10%
af andvirðinu nemur tæplega
meiru en 100 millj. krónum.
Atvinnujöfnunarsjóður gæti
lagt fram það fé ef vilji væri
fyrir hendi, því að tekjur hans
munu fara vaxandi.
7. Lán hafa verið veitt úr at-
vinnujöfnuliarsjóði til váfá-
samra hlútá. Sæmileg eljusemi
hefur verið sýúd vlð innheimtu
vaxta og afborgana. Betra væri
í vissum tilfellum að veita
vaxtalaus lán eða óafturkræf
framlög til kaupa nauðsynlegra
og gjaldeyrissparandi atvinnu-
tækja.
8. Verði ekkert gert raun-
hæft til að útvega minni byggð
arlögum hagkvæm togskip, er
viljaleysi stjórnarliðsins um að
kenna, en ekki getuleysi.
Guðm. Karl
Fr mhald a' 'ús t
sérfræðingur í handlækniingum.
Sjúkrahúslæknir varð hann við
sjúkrahús Akureyrar 1936 til 1953,
og yfirlæknir við handlæknisdeild
og fæðingardeild Fjórðungs sjúkra
hússins á Akureyri 1. janúar 1954.
Guðmundur Karí var meðal stofr.
enda Flugfélags Akureyrar, er síð-
ar varð Flugfélag íslands. Hann
starfaði í ýmsum félögum, svo
sem Rauðakrössinum og Læknafé-
lagi Akureynar. Kona Guðmundar
Karls er Inga Jóna Karlsdóttir
hjúkrunarkona.
Hekluveikin
Framhald af bls. 1.
annað hvort að freista þess að
beita fénu og gefa því d-fjörefni
með, eða flytja það burt til svæða
þar sem fiúoreitrun hefur ekki
gert vart við sig.
Bkki hefur borið á veikindutn
í fé í Þjórsárdal, en þar mun hafa
fallið grófari aska og vikur, er.
flúorinnihald er mest í fíngerð-
ustu öskunni.
Tilraunástöðinni að Keldum
hafa borizt blóðsýnishorn úr hinu
sýkta fé, og verður sýnishornasöfn
un og athugunum haldið áfram.
Á fimmtudaginn var fóru vísinda-
menn frá Rannsóknastofnun land-
búnaðarins, Rannsóknastofnun iðn
aðarins og frá Keldum, í leiðang-
■ur á öskufallssvæðið til athugana
og annar slíkur verður farinn
sennilega á fimmtudag, sagði Guð
mundur Pétursson, forsböðumað-
TIMINN
n
ur Tilraunastöðvarinnar að Keld-
um okkur. A3 honum loknum
gerði hann ráð fyryir að þeim yrði
eðli Hekluveikinnar Ijósara.
Þó verða gerð'ar abhuganir á
vatnsbólum á öskufallssvæðinu, en
of mikið flúorinnihald er óæski-
legt fóiki.
Landgræðslustarf
Framhald af bls. 1.
mörkum sjálf ,til áburðar og fræ-
kaupa, og jafnvel einstök félög og
aðilar einnig, því ekki mun skorta
fólk til að dreifa þessu um gróð-
urlaus eða gróðurlítil syæði.
Allur kostnaður við sjálfa dreif
inguna er án útgjalda fyrir Land-
vernd, og þarf ríkið aðeins að
greiða áburðar- og frækostnaðinn.
Áskorun FUF
Framhald af bls. 1.
Rúnar Hafdal. 12 dögum síð-
ar barst svar Heimdallar, þar
sem tilkynnt var að félagið
vildi viðræður um málið. 22.
apríl var síðan haldinn við-
ræðufundur, en síðan var fjall
að um málið í símtölum milli
formanns FUF og framkvæmda
stjóra Heimdallar og síðar for-
manns FUF og formanns Heim
dallar.
Hér á eftir fer yfirlýsing for-
manns Heimdallar, en á eftir
athugasemdir við þá yfirlýs-
ingu frá formanni FUF:
Yfirlýsing Heimdallar
„í frétt á forsíðu blaðs yðar
í dag, þriðjudaginn 12. maí,
er látið að því liggja, að Heim-
dallur FUS þori ekki í kapp-
ræður við unga framsóknar-
menn um borgarmál. Þar sem
staðreyndum málsins er mjög
hagrætt, svo ekki verði meira
sagt, í fréttinni og virðist efcki
hafa verið leitað upplýsinga
hjá réttum aðilum, vildi ég
biðja yður að birta eftirfar-
andi, og þá að sjálfsögðu á
jafnáberandi stað í blaði yðar:
Á stjórnarfundi í Heimdalli
FUS þriðjudaginn 14. gpríl, var
lagt fram bréf frá Félagi ungra
framsóknarmanna í Reykjavík, þar
sem skorað var á Heimdall til kapp
ræðna um málefni Reykjavíkur-
borgar. Var undirrituðum, ásamt
varaformanni Heimdallar, falið að
taka upp viðræður við FUF um
málið og sátum við nokkrum dög-
um síðar, fund með hr. Elíasi
Jónssyni, formanni FUF, og hr.
Gúðbjarti Einarssyni. Á fundi
þessum var samþykkt að efna til
kappræðnanna og samþykktu full-
trúar FUF hugmyndir okkar um
tilhögun fundarins. Þar sem FUF
hafði stec-rað á Heimdall til kapp-
ræðnanna, þótti eðlilegt að full-
írúar FUF tækju að sér útvegun
húsnæðis. Voru báðir aðilar sam-
mála um að Sigtún væri heppileg-
asti íundarstaðurinn, en Hótel
Borg kæmi ekki til greina. Aðrar
formlegar viðræður hafa ekki átt
sér stað um þetta mál, nema sím-
töl, scm óg og framkvæmdastjóri
Heimdallar höfum átt við for-
mann FUF.
Nokkru síðar hafði formaður
FUF samband við framkvæmda-
stjóra Heimdallar og tjáði honum.
að hann gæti ekki fengið Sigtún
fyrir kappræðufundinn. Óskaði
formaður FUF eftir því, að fram-
kvæmdastjóri Heimdallar reyndi
að útvega húsnæði fyrir kappræðu-
fundinn. Var það gert, en ekki
reyndist’ unnt að fá annað hús-
næði en Hótel Borg, sem búið
var áður að taka ákvörðun um,
að kæmi ekki til greina. Eftir
þetta átti ég nokkur símtöl við
formann FUF og bauð honum að
efna til kappræðufundarins eftir
24. maí, ef húsnæði fengist þá til
fundarhaldanna, en það taldi hann
fráleitt. Tjáði hann mér, að fyrst
svo væri, gæti eteki orðið af þess-
um kappræðufundi fyrir borgar-
stjórnarkosniögar. Tók formaður
FUF því þá ákvörðun, að halda
ekki kappræðufundinn og væri
því nær að halda, að ungir fram-
sóknar-menn þyrðu ekki í kapp-
ræður við Heimdall. Er þetta bezt
skýrt með þeim staðreyndum, að
full'trúar Heimdallar komu strax
með fullmótaðar hugmyndir um
framkvæmd fundarins, svo að það
sem gert var í málinu, hefur
starfsmaður Heimdallar fram-
kvæmt.
Þá er þess getið í umræddri
frétt, að FUF og Heimdallur hefðu
efnt til kappræðufundar á Hótel
Borg í fyrravetur og vildi ég gjarn
an fá það upplýst hvenær sá fund
ur hefur verið haldinn, því ekki
er mér kunnugt uim það. Ef til
vill hafa framsóknarmenn sótt
hann einir og efnt þar til kapp-
ræðna.
Það er ósk mín, að þér, hr.
ritstjóri, birtið ekki fleiri slíkar
fréttir, nema því aðeins, að það
sanna komi fram í málinu og
trúi ég því ekki að óreyndu, að
hr. Elías Jónsson, formaður FUF,
gæti ekki upplýst blaðamann Tím
ans um hið sanna í málinu, að
öðrum kosti treysti ég mér ekki
til þess að eiga frekari viðræður
við unga framsóknarmenn, nema
í viðurvist votta.
Virðingarfyllst,
Pétur Sveinbjarnarson,
formaður Heimdallar FUS.“
Athugasemdir form. FUF
„Formaður Heimdallar segir í
yfirlýsingu sinni, að í frétt Tím-
ans í dag hafi „staðreynducn máls
ins verið mjög hagrætt svo ekki
verði meira sagt“, og hæfir sú
lýsing sérlega vel yfirlýsingu for-
rnanns Heimdallar. Hins vegar
var rétt frá málinu skýrt í Tím-
anum í gær.
í frásögn sinni af viðræðufundi
FUF og Heimdallar segir formað-
ur Heimdallar m.a.: „Voru 'báðir
aðilar sammála um, að Sigtún
væri heppilegasti fundarstaðurinn,
en Hótel Borg kæmi ekki til
igreina". Þetta er rangt að því
leyti, að FUF taldi Hótel Borg
ekki koma til greina ef Sigtún
fengist — en út frá því var gengið
á viðræðufundinum.
Þegar hins vegar Sigtún fékkst
ekki, tilkynnti formaður FUF
framkvæmdastjóra Heimdallar
þetta. Voru þeir sammála um að
leita að öðru húsnæði, og var tal-
að tim Hótel Borg eða Hótel Sögu.
Bauðst framfcvæmdastjóri Heim-
dallar til að kanna, hvort þessi
hús væru til reiðu það kvöld sem
ábveðið var á viðræðufundinum,
að heppilegast væri til fundarins
— miðvibudaginn 6. maí. Gerði
hann það, og fékk upplýst, að
Hótel Borg væri laust það kvöld.
Töldu báðir ,að það húsnæði væri
betra en enginn íundur, og töluðu
jafnvel um slík smærri atriði eins
og, hvað greiða þyrfti fyrir hús-
ið, hvort leyfa ætti húsinu að tafca
fatagjald o. s. frv. Var það þá
skilningur formanns FUF, að báð-
ir aðilar vildu frekar hafa fund-
inn á Hótel Borg en að sleppa
honum, en sú var eindregin af-
staða FUF.
Nokkru síðar hatfði formaður
Heimdallar samband við formann
FUF og taldi Hótel Borg óhæft
húsnæði og væri frekar reynandi
aö fá Sigtún eitthvert annað
kvöld. Taldi hann þó vandkvæði
á því vegna mikilla fundau-halda
Sjálfstæðismanna. Stóð í stappi
um þetta, þar til ákveðið var fyr-
ir næst síðustu helgi —
eða um mánaðamótin, — að
formenn félaganna ráðfærðu sig
við væntamlega ræðumenn um
hvað þeir vildu gera í málinu. Þá
þcgar sagði formaður FUF, að
liann teldi fullvíst, að ungir Fram
sóknarmenn vildu iia'lda fundinn
þann dag, sem um var talað —
6. maií þótt hann yrði að vera á
Hótel Borg. Aðalatriðið í þeirra
augum væri að halda kappræðu-
fund, ininna máli skipti um hús-
næðið.
Strax eftir helgina, eða mánu-
daginn 4. maí, tilkynnti formað-
ur FUF fonnanni Heimdallair, að
þetta væri enn eindregin skoðun
FUF, og spurði um aifstöðu hans
til málsins. Kvaðst hann skyldi
ræða málið við sína menn, og
tilkynnti skömmu síðar að þetta
væri ekki hægt. Var þá komin ný
afsökun, nefnilega að Ólafur B.
Thors, sem yrði einn aif ræðu-
mönnum Hcimdallar, gæti ekki
mætt. Hann yrði á öðrum fundi
þetta' kvöld-
Sýnir kannski ekkert betur leik
araskap Heimdallar í þessu máli,
en að þótt ákveðið hefði verið 22.
apríl að liakla fundinn miðviku-
daginn 6. maí, þá dirfðist formað-
ur Heimdallar að bera því við um
hálfum mánuði síöa'r, að einn
ræðumanna félagsins væri upp-
tckinn á öðrum fundi!
í yfiriýsingu sinni segir formað-
ur Heimdallar einnig að hann hafi
í símtali við formann FUF „boðið
honum að efna til kappræðufund-
arins eftir 24. maí, ef húsnæði
fengist þá til fundarhaldanna, en
það taldi hann fráleitt".
Þar er staðreyndum hagrætt
hressilega.
Það sem formaður Heimdallar
sagði var, að framþjóðendur Sjálf-
stæðisflokksins yrðu upptefcnir
fram yfir 24. maí, sem er sunnu-
dagur, og væri þá hugsanlega
mögulegt aö hafa fundinn í síð-
ustu vikunni fyrir kjördag. Hins
vegar taldi hann upp þá ann-
marka, sem á því væru, svo sem
að þá væru kosningaumræður í
sjónvarpi, og í þessari vifcu halda
bæði Framsóknarmenn og Sjálf-
stæðismenn kosningafundi — sitt
hvort kvöldið, væru því fá 'kvöld
laus til kappræðufundar.
Hins vegar hefur FUF aldrei
faillið frá áskorun sinni á Heim-
dall, og hún stendur enn.
Ungir Framsóknarmenn hafa
sýnt það með áskorun sinni —
sem verið liefur hjá Heimdalli í
rúman mánuð — að þeir vilja
málefnalegar umræður við unga
S j álfstæðismenn.
Hins vegar hefur HeimdaUur
ekki eun sýnt, að ungir Sjálfstæð-
isinenn hatfi raunverulega liug á
slíkum mnræðum. Þeir hafa' þó
enn tækifæri til að sýna það, því
um 214 vika er til kosninga, og
ungir Framsóknarmenn eru enn
sem fyrr reiðubúnir til kappræðu
fundar hvenær sem er.
Það er reyndar táknrænt fyrir
afstöðu Heimdallar til áskorunar
ungra Framsóknarmanna, að borg
arstjórinn, Geir Hallgrimsson, lét
sig lia'fa það að halda fund í kvöld,
þriðjudag, að Hótel Borg, þótt sá
staður, — og reyndar öll önnur
hús í höfuðborginni nema Sigtún
— sé ekki nógu góður fyrir for-
mann Heimdallar.“
Bændur
2 drengir 13 og 14 ára
óska eftir vinnu í sveit í
sumar. Upplýsingar í síma
50784.
SVEIT
15 ára, stór stúlk^, óskar
eftir að komast í sveit. —
Upplýsingar í síma 41267.