Tíminn - 20.05.1970, Blaðsíða 1

Tíminn - 20.05.1970, Blaðsíða 1
 . SéS yfh* SetiSárkróV sf SevZárhæSwm, þar sem biífS er að sk ipuleggja nýtt íbúSahverfi, sent framkvæmdir fara aS hefjast viS. Fremst á mynd'tnni er gagnfcæðastcoKnn, Blómlegt atvinnulíf á Sauðárkróki og uppbyggingin ör síðustu árin > i , . 's- » Rætt við Guðjón Inglmundarson, forseta bæjarstjórnar GuSjón IngimuJidarsoiL, hcfur setið í bæjarstjóm Sauðárkróks síðan árið 1950 og verið foa-seti bæjarstjórnar síðan 1966 en þá nrðu þáttaskil í stjórn kaupstað- arins. Tfaninn bað Guðjón að gera grein fyrir þeiim breytingum sem þá urðu og hvernig bæjarfélag- inu hefur verið stjórnað síðan. — Við kosningarnar 1966 varð mikil breyting á styrkleikahlut- föllum flokkanna í bæjarstjórn. Þá undanfarin 8 ár höfðu Sjálf- stæðismenn haft 4 bæjarfulltrúa af 7 og því hreinan meirihluta. Eftir kosningarnar höfðu þeir 2 fulltr., Alþýðuflokkur og Alþýðu- bandalag sinn fulltrúann hvor og Framsóknarflokkur 3 fulltrúa. Meirhlutann mynduðu fulltrúar þriggja síðastnefndu flofckan'na. Samstarfið reyndist að mörgu leyti vel, en þó frá fyrstu tíð fyrirhafnarsamara en efni stóðu til. Á miðju kjörtímabili slitnaði fulltrúi Aliþýðubandlagsins út úr meirihlutanum vegna smávægi legra ástæðna. Verður því vart ann að sagt en að sá s-atnstarfsaðili hafi ekki gert sér far um að játast undir þær kvaðir sem meirihluta samstarf krefst og telji sér hag- stæðara að vera í andstöðu en í samstarfi. Síðari hluta kjörtímabilsins mynduðu því fulltrúar Framsókn ar- og Alþlýðuflokks meiríhluta. í mörgu var það samstarf áfalla- laust, en alls ekki að öllu leyti þó. f mikilsverðum atriðum rofn- aði það og hlupu kratarnir út undan sér af „pólitískum" ástæð- um, og nutu til þess stuðnings fulltrúa Sjálfstæðisfloikksins og Alþýðuhandalags sem í ábyngð- arleysi fögnuðu og gripu tækifær- ið til að reyna að skapa glund- roða. Þegar á allt þetta er litið, fer ekki á milli mála, og verður að viðurkenna, að ég tel að enn • betur hefði unnist um fram-vindu ' ýmissa mála ef Framsóknarmenn hefðu haft nægan styrk innan bæjarstjórnarinnar til þets að móta stefnuna að öllu leyti. Á hitt skal þó einmig minnzt, að flest mál eru þannig vaxin, að fuMt samstarf allra bæjarfulltrúa næst að jafnaði um afgreiðslu þeirra. Eftir siðustu kosningar var ráð inn nýr bæjarstjóri, sem þá var utanhéraðsmaður og hafði ekki tökizt á við sveitarstjórnarmál áður. Hvernig hefur sú ráðstöfun reynzt? — Til okkar réðist sem bæjar- ‘stjóri Hákon Torfason, verkfræð- ingur. Hann var hér ókunnnr og kom að flestum málum óundirhú- inn og í grundvallaratriðum van- gerðum. Það var því vissulega erfið aðkonua og vandaverk úr að leysa í hvívetna. Bæjarstjór- inn var ráðinn hingað til að vinna að nauðsyaja- og frarnfevæmda- málum bæjarins á hlutlausan hátt, án pólitískra sjónarmiða. Mér er óhætt að fullyrða að hann hefur í hvívetna sýnt mik- inn dugnað og hagsýni um öll málefni hæjarins og undirbúning framlkvæmda. Að öllum þessum málum hefur hann unnið þannig að bæjarfnlltrúar allir hafa get- að fylgzt þar með málum. Fram- kvæmdamál hefur hann undirbú- ið á annan og betri háltt en hér hefur áðnr verið gert. Auk bæjarstjórnarstarfa sinna, sem verið hafa ærin verkefni, hefiur hann verið framfevæmda- stjóri Útgerðarfélags Slkagðfirð- inga og leyst það starf af hendi með álgæitum. Þekking hans á öllu því sem að útgerð lýtur ger- ir honum auðvelt að ræða þau mál og meta með meiri yfirsýn og réttara mati en flestum öðr- um. Á sínum tfana þótti ekki fært að ráða sérstafcan framfcvæmda- stjóra fyrir félagið á meðan efcki er um að ræða nema utgerð á einu skipi. Bæjarstjórinn 'hefur ætíð gert sér þess fulla grein að atvinnumálin og traustir atvinnu- vegir eru grundvallarskilyrði allra annarra framfara og fram- kvæimda. Sauðárkrókur er stærsti þétt- býliskjami í stóru héraði og þar eru mangar stofnanir sem sjá um þjónusta fyrir sýsluhúá alla. Hvernig er íamstarf hæjar og sýslu? Einn samstarfsþátta bæjar og sýslu er bundinn skólamálum. Við byggðum til dæmis upp gagn fræðaskólann með miWum stækk- unarmöguleikum og teljum við að á þessu sviði sé um eðlilegt samstarf 'að ræða. Til þess a'ð fullnægja skilyrðum til gagnfræða skólans, bæði í verklegum grein- um og bóklegum, er fyrirhuguð viðbótarbygging á þessu ári þar sem aðstaða verður fyrir verk- legt nám. Iðnskóli hefur verið starfandi hér í yfir 20 ár. Nú er ákveðið að iðnskóli fyrir Norð urlandskj'ördæmi vestra verði reistur hér og verður unnið að því að koma byggingu hans á rekspöl sem fyrst. Verður það fullfcominn i'ðnskóli með aJlri verktaigri aðsfoðu, sem SfasMa- lög gera náð ftoir. Ég tei áð hér á Sauðárkrófci gefí risið sú miðstöð hénaðsins sem allir sssta búar standa að og að affir skóÞ ar styðiji samstarf hvers annars sem gerir þeim auðveldara að leysa sín verkefni . Það er margt annað sem stuðlar að því aS Sauð árfcrókur verði miðstöð héraðs- ins. Má nefna að til stendiur að hyggja nýjan flugvöll og er unnið að því af hálfu Flugmálastjóm- arinnar. Við væntum þeas að öng- vallarbyggingin komist itm í frambvæmdir Norðuriandsáæii- unar. Þetta er knýjandi mál, því núverandi flugvelli verður eWd haldið við nema með mifcium kostnaði og væri því hagbvæm- ara að verja því fé til byggingar nýja flugvallarins. Er ákveðið að staðsetja hann talsvert austar en flugvöllurinn er nú, eða allt aust ur undir Héráðsvötnum. Þegar tímar líða, hefur sá völlur öE skilyrði til að vera varavöllur fyrir millilandaflug með fullkom- inni blindflugsþjónustu. Hvort sem staðið er á Tinda- stóli, MælifellshnúW, GlóðafeyH eða á Arnarstapa, blasir héraðið við, víðfeðmt og fagurt, ein heild sem ekki verður með neinu móti, svo vel fari, skipt niður í hags munareiti. Þar styður hver^ hér- aðshluti annan. Þarfir héraðs- ins í hagsmunalegu tilliti, félags- legu tilliti, verzlunarlegu tilliti, stjórnsýslulegu tilliti og menn- ingarlegu tilliti mætast á Sauð- árkróki. Þessu gera Framsóknar- menn á Sauðárkróki sér fulla grein fyrir og raunar einnig flest ir héraðsbúar. Samstarf héraðs- búa og bæjarhúa hefur lika á svo mörgum sviðum undirstrikað þetta, og verið ágætt í hvívetna. Áhugamál okkar hníga að því að treysta þessi bönd. Guðjón Ingimundarson, forseti bæjarsfjórnar. í baksýn er sundlaugin og fjær íþróttasvæðið sem verið er að vinna við. Þar verður m.a. fultkominn grasvöllur.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.