Tíminn - 20.05.1970, Blaðsíða 12
MltMloidagar 20. m«rf 1970
SKÓVERK-
SMIÐJAN
AGILA
TEKUR
TIL
STARFA
JK—Egilsstöðum, þriðjudag
Skóverksmiðjan Agila á Egilsstöð
xun hefur nú hafið i fram-
leiðslu. Verksmiðja'n er rekin af
samnefndu hlutafélagi, sem stofn
að var 1. febr. 1969 og eru hlut-
hafar 234 frá Egilsstöðum og ná-
grenni. Samningar voru gerðir við
verksmiðjuna ARBO í Hollandi
um tæknilega aðstoð og val á skó
gerðum og útvegun hráefnis.
Fyrsti framkvæmdastjóri var
ráðinn Vilhjálmur Sigurbjörnsson
til bráðabirgða og annaðist hann
samninga við Hollendingana. Hús
næði verksmiðjunnar er í eigu
Egilsstaðahrepps, sem er stærsti
hluthafinn. Húsið er nýbygging
og niðursetning véla hófst um
síðustu áramót. Vélaniar voru
keyptar frá Nýju skóverksmiðj-
unni í Reykjavík. Niðursetningu
véla var lokið í marzlok, og jafn
framt var undirbúið val á skó-
módelum í samráði við hollenzku
verksmiðjuna. Þjálfu'n starfsfólks
hófst í byrjun marz, og dvaldist
verkstjóri verksmiðjunnar hjá
Arbo í Hollandi og einnig dvöld
ust tveir menn hjá Iðunni á Akur
eyri, en framkvæmdastjóri Agilu
kvað þessa aðila hafa veitt ómet
anlega fyrirgreiðslu í þessu sam
bandi.
Fyrsta hráefnissendingin kom
frá Hollandi í byrjun apríl, og
hófst þegar framleiðsla á þremur
tegundum af barnaskóm sem höfðu
þá verið valdar og koma þær á
markaðinn síðar í þessum mán-
upi. Dreifingu og sölu framleiðsl
unnar mun skóinnflytjandi i
Reykjavík annast, og mun verða
gengið frá samningum um það
efni nú næstu daga. Hjá Agilu
vinna nú 10 manns. Framkvæmda
stjóri er Ögmundur Einarsson
tæknifræðingur í Reykjavík, og
var hann ráðinn í október í haust.
Verkstjóri er Sigurður Magnús-
son Egilsstöðum. Aðalfundur
hlutafélagsins Agilu var haldinn
s. 1. föstudag. Innborgað hlutafé
er um 1 milljón og 100 þúsund,
en hlutafjárloforð 1.355,000 kr.
Er ekki alveg öruggt, að útsvars
skráln kemur ekki fyrr en eftir
kosningar?
ÆSKULÝÐSMÁL
BarnaheirrLÍÍL
m Framsóknarflokkurinn legg
ur áheralu á nauðsyn þess, að
haldið sé uppi skipulegu æsku-
lýðsstarfi og telur að vel þurfi
að vanda til þeirrar starfsemi.
Leggur flokkurinn áherzlu
á eftirfarandi:
að frjáls félagasamtök, sem
vinna að æskulýðsmálum,
verði styrkt til starfsemi
sinnar með beinum fjár-
fratnlögum úr borgarsjóði.
að komið verði á reglubundn-
um námskeiðum fyrir
æsku'lýðsleiðtoga og aðra
þá, sem vinna að félags-
störfum meðal æsbufólks.
skólahúsnæði borgarinnar
verði í ríkara mæli en nú
er notað til tómstunda- og
félagsstarfa meðal æsku-
fólfcs, einfcum á kivöldin
og um helgar.
bindindisfræðsla verði
að
að
1 efld og stuðlað að aukn-
um bindindisáhuga meðal
æskulýðsfólks.
að Æskulýðsráð borgarinnar
beiti sér fyrir skipulegum
aðgerðum í samvinnu við
aðra aðila til að koma í
veg fyrir eiturlyfjanotkun
ungmenna.
að ræktun silungs í Elliða-
vatni verði aukin og ungl-
ingum borgarinnar gefinn
kostur á að veiða þar und-
ir stjórn og eftirliti leið-
beinenda Æskulýðsráðs.
að rækilega verði athugað,
hvernig haga beri rekstri
í Saltvík og Tónabæ, bann-
ig að þessir staðir komi að
sem mestum notum við
æskulýðsstarfsemina.
að Æskulýðsráð beiti sér fyr-
ir vísindalegri rannsókn
til að kanna félagsleg
vandamál unglinga.
Framsóknarflokkurinn tehir
mjög brýnt, að dagheimilum og
leikskólum verði stórlega fjölg-
að á næstunni og leggur á það
áherzlu, að þessum stofnunum
verði komið upp sem fyrst í
þeim hverfum borgarinnar, þar
sem þær eru ekki núna.
Jafnframt verði fjölgað leik
svæðum í borginni, bæði gæzlu
völlum og opnum leiksvæðum
og þau búin betri leiktæ!k.ium
en nú gerist
MæhraheimiÍL
Framsóknarflokkurinn telur
að veita þurfi einstæðum mæðr
um meiri félagslega aðstoð en
nú er gert, m. a. með því að
koma á fót og reka sérstök
mæðraheimili.
Vinnuskólinn
Vinnuskólinn.
Framsóknarflokkurinn legg
ur á það áherzlu. að starfsem
Vinnuskóla Reykjavíkur verð
aukin eftir því, sem þörf reyn
ist, og tekið verði á móti öil
um þeim unglingum, sem til
hans leita, og þeim séð fyrir
verkefnum við sem þroskavæn
legust störf.
Jafnframt telur flokkurinn,
að styrkja eigi þá aðila, sem
skapa mæðrum og börnum skii
yrði til sumardvalar í sveit.
Barnavernd Aðsíóð vzð vangefna
Framsóknarflokkurinn telur:
að samræma þurfi störf
þeirra stofnana, sem vinna
að velferðarmálum barna
og unglinga, þannig að
þeir starfskraftar, sem að
þessu vinna, nýtist sem
bezt.
að fj'ölgað verði „systkina-
heimilum“ fyrir munaðar
laus börn.
að komið verði á fót heimil-
um fyrir ungiinga. sem
þarfnast handleiðslu og
leiðbeiningar vegna hegðun
arvandkvæða og afbrota.
Framsóknarflokkurinn lítur
svo á. að skylt sé að veita þeim
börnum og unglingum. sem
ekki hafa vitsmunaþroska di
að fylgjast með almennu skóla
námi, sem fullkomnasta fræðslu
við þeirra hæfi og leggur
áherzlu á eftirfarandi:
að húsnæðisaðstaða Höfða-
skólans verði bætt sem
allra fyrst.
að nemendum. sem ljúka
námi i Höfðaskóla og ?kki
eru færir um að keppa á al-
mennum vinnumarkaði. séu
veitt starfsskilyrði við sitt
hæfi og félagsleg aðstoð til að
nota starfsgetu sína
KOSNING ASKRIFSIQF
LtSTANS BLS. 2