Tíminn - 24.05.1970, Side 10
*
22 TIMINN SUNNUDAGUR 24. maí 1970.
Rafgeymir
6B11KA — 12 volta
317x133x178 m/m
52 ampertímar.
Sérstaklega framleiddur
fyrir Ford Cortina.
S M Y R I L L, Ármúla 7 — sími 84450.
Góð bújörð
BújörS á SuSurlandi er laus til ábúðar í næstu
fardögum. Upplýsingar gefa Jón Eiríksson odd-
viti, Vorsabæ, SkeiSahreppi, og Haukur Jónsson,
hrl., Hafnarstræti 19. Sími 17266.
Ýtumaður
Vanur maður ósikast til jarðvinnslu. Upplýsingar
gefur Rafn Helgason, Stokkahlöðum, Eyjafirði.
Sími úm Grund.
Gcdjön Styrkírsson
HÆSTARÍTTAItLÖCMADUK
AUSTURSTKÆTI 6 SÍMf IÍ3Í4
FRAMNESVEGI 17
SÍMI: 122AT
Allt handunnið bókband.
Einnig band á bók-
haldsbókum og möppum.
Gestabækur framleiddar
eftir pöntunum.
Bifreiðaeigendur
ATHUGIÐ
Nú er rétti tíminn til að
panta tíma og láta þétta
rúður og hurðir.
1. fl. efni og vönduð vinna.
Upplýsingar í síma 51383
eftir kl. 7 á kvöldin og
um helgar.
Jón Grétar Sígurðsson
héraSsdómslögmaSur
Austurstræti 6
Simi 18783
20 ára piltur
óskar eftir að ráða sig í
kaupavinnú í sumar. Er
vanur vélum. Tilboð legg-
ist inn á blaðið hið fyrsta,
merkt: „9112 — 1057“.
Duglegir
11 og 12 ára drengir óska
eftir vinnu á góðum sveita
heimilum í sumar. Eru
vanir sveitavinnu. Upplýs-
ingar í símum 84005 og
12010.
Unglings-
stúlka
á 16. ári óskar eftir að
komast á gott sveitaheimiii.
Upplýsingar í síma 36900.
GINSBO-ÚR
SVISSNESKT ÚR
VANDAÐ ÚR
FRANCH MICHELSEN
úrsmíSameistari
LAUGAVEGI 39
Pósthólf 812, Rvfk
Rætt við Björn
Framhald af bls. 14
ég hafi smitazt í þessu efni af
þeim merka manni Jóhannesi
Reykdal, sem hér hafði sveit-
arforystu á3ur. Hann iagði ríkt
á við mig, að hreppurinn staeði
fullkomlega í skilum. Ýms-
ir aðrir hreppar fengu eftir-
gjöf, og síðan var lögunum
breytt, og hver varð að sltja
með það, sem hann hafði.
— Átti hreppurinn sam-
komahús?
—Hann eignaðist það. Jó-
hannes Iteykdal sá um það.
Forráðamenn lireppsins vildu
þó ekki kaupa smákofa á Garða
holti, sem til boða var, en hús-
ið var keypt eigi að síður. Það
varð þinghús hreppsins en var
hvorki stórt né reisulegt. Síðar
var það stækkað, og kvenfé-
lagið átti sinn mikla þátt í því,
svo og við búnað þess. Þetta
hús er enn faelzta samkomu-
hús byggðarinnar og rúmar um
150 manns.
—■ En skólahaldið?
—• Garðahreppur stofnáði
ekki eigin skóla fyrr en
síðar. Við sömdum við Hafnar-
fjörð um að börn gengju þang-
að í skóla og einnig við Álft-
nesinga. Þetta var að ýmsu
leyti hagstæðara, meðan byggð
in var enn fámenn. Við höf-
um ætíð átt hin beztu skipti
við Hafnfirðinga, sem reynd-
ust okkur ágætir nágrannar.
í bókasafnsmálum höfum við
til að mynda lengi annið sam-
an. Einnig var barnaskóli á
Vífilsstöðum.
Síðan var ráðizt í að byggja
skóla árin 1956—58, og hann
hefur stækkað og dafnað vel.
Einnig var stofnaður gagn-
fræðaskóli, en hann er enn í
leiguhúsnæði. Bygging hefur
verið ráðgerð en mun kosta
30—40 millj.
Sameiginleg vatnsveita var
lögð hér 1960 en nú er aukn-
ingar þörf. Veitan er úr af-
braigðsgóðum lindum fyrir of-
an Vífiisstaði.
— Hér hefur gert hröð og
einstæð saga, Björn?
— Já, satt er það. Byggðin
hér á Flötunum að minnsta
kosti á sér fáa líka. Hún var
skipulögð þegar í upphafi, göt
ur lagðar um leið ‘og húsin
voru byggð, allar línur og lagn
ir í jörð. Þetta eru allt einhýl-
ishús, á stórum og góðum lóð-
um. Þetta er allt saman dýrt
bæði fyrir húsbyggjandann og
hreppinn, en það borgar sig að
vinna svona að málum. Hér er
gott að vera og hingað hefur
flutzt gott fólk.
— Þú varst einnig lengi í
sýslunefnd, Björn?
— Já. mörg ár, allt til 1967.
— Og hefurðu starfað mik-
ið í Framsóknarflokknum?
— Já, ég hef haft áhuga á
málum hans og átti um skeið
sæti í miðstjórn hans, starfaði
einnig í nokkrum nefndum á
vegum hians.
— En varstu þá kosinn í
hreppsnefndina af því að þú
varst Framsóknarmaður? Voru
slíkar kasningar hér óður póli-
tískar?
Nú hlær Bjöm dátt að
heimskulegri spurningu?
— Nei, ég held, að mér sé
óhætt að segja, að það hafi
ekki orðið mér til framdrátt-
ar í því efni. Þeir voru. ekki
margir hérna, Eramsóknar-
mennirnir, á þeim árum. Það
var löngum haft að gamni og
flimti, að ég væri eini Fram-
sóknarmaðurinn hér og þó kos-
inn oddviti. En sannleikurinn
var sá, að það var ekki kosið
í hreppsnefnd eftir pólitík, og
þegar þangað kom höfðum við
engan tírna til að blanda okkur
í pólitík. Þannig hefur þetta
nú raunar verið fram undir
þennan dag. Að vísu hefur
færzt pólitiskur hiti I kosning-
arnar, en eftir þær fara menn
að vinna saman að málum sveit
arféflagsins. Og þannig á það
að vera.
— Þú minnist auðvitað
margra, sem unnið hafa með
þér í hreppsnefndinni, Björn?
— Já, ég minnist margra
góðra samverkamanna. Ég
held, að við Gísli Guðjénsson
bóndi höfum átt þar lengsta
samleið, en einnig var Eyjólf-
ur í Mjólkurfélaginu þar lengi,
greindur maður og duglegur.
Ein kona sat alllengi í hrepps-
nefndinni, frú Sigríður John-
sen frá Elliðavatni. og lengi
hef ég starfað með Guðmanni
Magnússyni, hreppstjóra á
Dysjum.
Já, það er margs og margra
að minnast, segir Björn, þegar
hann fylgir okkur til dyra eft-
ir að við höfum þegið höfðing
legar góðgerðir hjá þeim hjón-
um. AK.
RættviðSigurð
Framhald af bls. 14
og dælum en vinnum annars áð
hvaða vélsmíðum sem er. og veit-
um skipum hvaðanæva af landinu
slíka þjónustu. En nauðsynleg-
asta umbótin hér er bryggjugerð,
svo að skip geti komið beint faing
að til viðgerða. Við höfum skipu-
lagt byggingar hér með það fyrir
augum, að bryggja komi á milli
Stálvíkur og Nökkva, og þyrftu
skip allt að 1000 tonn að stærð
að geta lagzt að henni. Með þvi
móti ætti að vera unnt að lækka
viðgerðakostnað og stytta við-
gerðatíma, sem ekki er minnst
nm vert.
—Hve margir vinna hjá þér.
Sigurður?
— Oftast um 25 manns. en hjá
fyrirtækjunum þremur um eða
yfir hundrað manns. Við höfum.
hér sameiginlega teiknistofu,.
skrifstofur að nokkru og matstofu
ojffl.
—Hvers konar skip er nú ver-
ið að smíða hér í Stálvík?
—Œ þessum áfanga eru fjögur
alhliða fiskiskip um 105 tonn að,
stærð, ætluð til veiða með hvers .
konar veiðarfærum. Þau eiga því,
að geta stundað veiðar allt árið •
og skipt um veiðiaðferð eftir því ■
sem við á, jafnvel einnig farið á
síldveiðar, ef sett er í þau kraft-
blökk. Þessi skip eru öll seld
fyrifram. Ríkisstjórnin faefur gef-
ið vilyrði um, að skipasmíðastöðv-
ar geti fengið fjármagn til smíði
skipa, þótt þau séu ekki seld fyr-.
irfram og það er gott að vita af.
því, ef á þarf að halda. En við,
byggingu þessara fjögurra skipa.
þurfti þess ekki við, því að kaup-
endur voru nógir. Það er augljóst
hagræði að geta byggt þannig
nokkur skip eins í einu. Nú er
fyrsta skipið komið út og langt
komið, annað hálfgert inni og
unnið að framhlutum í hið þriðja
og fjórða. Það ætti að takast að
ljúka þeim öllum á þessu ári eins
og ráðgert var. ef ekki stendur á
fjármagni. Fjármagnsáætlunin
við þennan rekstur má ekki bregð
ast, þar má varla skakka um dag,
ef tafir eiga ekki að verða, og
þessi smíði er fjárfrekari en flest
annað vegna dýrs efnis og véla.
— Væri hagkvæmt að gera hér
fullkomna dráttarbraut?
— Um það hefur verið rætt,
en ég held, að meira liggi á að
gera hér bryggju og ekki ástæða
til að fjölga dráttarbrautum að
sinni. Vel gæti þó verið, að hún
ætti hlutverki að gegna hér síðar,
en annað kallar þó meira að nú.
— Heldur þú, að um útflutn-
ing á vindum og dælum eða öðr-
um vélbúnaði skipa gæti verið að
ræða frá ykkur?
— Ég held, að það sé alls ekki
fráleitt, ef rétt er að því staðið
bæði tæknilega og með éðlilegi
fyrirgreiðslu. Við höfum hér alveg
einstæða og lærdómsríka reynslu
við að styðjast um notagildi þess-
ara hluta, og það er traustasti
grundvöllur að byggja á, og hag-
leiksmenn vantar ekki. Ég minn-
ist þess í þessu sambandi, að ég
hef heyrt reynda viðskiptamenn
úr öðrum löndum, til að mynda
frá Kanada, segja sem svo um
þetta: — Við myndum óhikað
þora að kaupa svona tæki af fs-
lendingum vegna þess, að þeir
eru mikil fiskveiðiþjóð við erfið
veðurskilyrði, og hluti þá, sem
þeir gera handa sér, hlýtur að
vera hægt að nota.
Að loknu þessu stutta spjalli
gengur Sigurður út með okkur
og sýnir okkur vélasal sinn. þar
sem mörg og dýr tæki eru og
unnið er að viðgerðum og ný-
smíði á hverjum fermetra gólfs.
Við lítum einnig á skipasmíðastöð
ina og staðinn, þar sem bryggjan
ætti að koma. Það er ekki ofsögn-
um af því sagt, áð hér er góð að-
staða til að byggja og reka skipa-
smíðastöð með eðlilegum og
sjálfsögðum hliðargreinum þess
iðnaðar. AK.
Hjartanlega þökkum við öllum þeim mörgu, sem sýndu okkur sam-
úð og vináttu í sambandi við sviplegt fráfall sonar okkar,
Garðars Ragnars,
Eyrargötu 22, Siglufirði.
Sérstaklega þökkum við Sigurði Sigurðssyni héraðslækni, læknum
og starfsfólki á handlækningadeild Landspítalans, Slysavarnar-
deildinnl á Sigluflrði og Hilmari Steinólfssyni.
Guð blessi ykkur öll.
Guðný Garðarsdóttir, Stefnir Guðlaugsson.
Innilegar þakkir færi ég öllum, sem sýndu mér samúð og vinar-
hug við andlát og útför móður minnar,
Sigríðar Eiríksdótfur.
Júlíus Steingrímsson.
Þökkum innilcga öllum þeim er sýndu okkur samúð og vináttu
vlð andlát og jarðarför.
iitla drengsins okkar.
Halla og Logl Snædal.