Tíminn - 28.05.1970, Blaðsíða 1
Neskaupstaður, Hafnarfjörður og Kópavogur vilja semja - sjá baksíðu
IGNIS
HEimmSTfEKI
Hiffliai;
(Tímamynd-GE)
Myndin sýnir hluta gesta á hinni glæsilegu KosningahátíS B-listans í Háskólabíó í gærkvöldi.
’ :.ifl
f<‘, 4y:>
f • í ‘|a
ijþr.'ifhlpHM *Ur:íf-_í
i 'iikHö
« i
r-
.
Einar Ágústsson á hinni glæsilegu kosningahátíð B-listans í Háskólabíói í gærkveldi:
Sjálfstæðisfl. hefur gert kjara-
deiluna að úrlausnarefni kjósenda
- með því að telja það pólitíska afstöðu að hafna hoði atvinnurekenda
TK—Reykjavík, miðvikudag.
f ræ'ðu sinni á hinni glæsilegu
kosningahátíð B-listans í Reykja-
vfk í Háskólabíói í kvöld, sagði
Einar Ágústsson. að með skrifum
Mbl. í morgun hgfði forysta Sjálf-
stæðisflokksins gripið inn í kjara-
deiluna og gert hana að úrlausnar
efni kjósenda í kosningunum á
sunnudaginn kemur. Um kjarabar
áttuna sagði Einar m. a.:
„Þessa kjarabaráttu heyja laun-
þegar úr öllum stjórnmálaflokk-
um í landinu, hlið við hlið í hin-
um ýmsu stéttarfélögum. Að þeirri
baráttu stendur t. d. mikill fjöldi
þess fólks, sem í undanförnum
kosningum hér í Reykjavík, hefur
greitt Sjálfstæðisflokknum at-
kvæði sitt.
Á forsíðu Morgunblaðsins í
morgun var hins vegar tilkynnt,
að forystumenn Sjálfstæðisflokks-
ins, líti á þessa baráttu sem póli-
tískan leik. Þeir segja, að pólitísk
verkföll séu hafin. Þeir segja, að
það sé pólitísk afstaða, sem ráði
því, að ekki er gengið að tilboði
atvinnurekenda. En með því segja
þeir einnig, að launþegar eigi að
sætta sig til næstu tveggja ára
við þær kjarabætur, er í tilboð-
inu felast. Það er, að laun verka-
mannsfjölskyldu verði um það bil
13.500 krónur á mánuði. Það eru
nú öll ósköpin.
Þar með hefur forysta Sjálf-
stæðisflokksins gert þessa kjara-
deilu að pólitísku máli, máli, sem
beri að útkljá í kosningunum á
sunnudaginn kemur. Það eru þeir,
sem nú hafa tekið frumkvæði,
gengið fram fyrir skjöldu og flutt
málið af 'hinum stéttarlega vett-
vangi, og lagt það sem pólitískt
úrlausnarefni fyrir kjósendur —
og þá ekki sizt kjósendur í Reykja
vík. þar sem mestur fjöldi þeirra,
sem nú er í verkfalli, á kosning-
arrétt.
Ég skal ekki hafa um þetta
fleiri orð að þessu sinni. Málið
liggur nú ljóst fyrir:
* Þeir, sem vilja sætta sig til
tveggja ára við þær kjarahætur,
sem atvinnurekendur hafa nú boð
ið og Sjálfstæðisflokkurinn telur
óbilgirni að hafna, þeir kjósa auð-
vitað Sjálfstæðisflokkinn. En þeir
launþegar hins vegar, sem álíta,
að það boð sé hvorki nóg né end-
anlegt svar atvinnurekenda, þeir
kjósa gegn Sjálfstæðisflokknum á
sunnudaginn. Það er augljóst mál."
Enn fremur sagði Einar:
í útvarpsræðu um borgarmál-
efni Reykjavíkur um daginn sagði
einn frambjóðandi Sjálfstæðis-
flo&ksins að borgin væri eins og
unglingur, sem sífellt væri að
vaxa uipp úr fötunum sínum. Þetta
er mjög sláandi lýsing á stjórn
íhaldsins á borginni síðastliðna
hálfa öld, framkvæmdir yfirleitt
of litlar og of seint gerðar, íhalds-
flíkin hefur staðið Reýkvíkingum'
á beini um 50 ára skeið, og ein-
mitt núna er tækifæri til þess að
fá sér nýjan fatnað og meirai við
hæfi.
Auðvitað hefur Reykjavík vaxið
á undanförnum áratugum. Allir
hlutir á íslandi hafa vaxið, fólk-
inu fjölgað, kröfurnar aukizt,
möguleikarnir batnað, skilyrðin
breytzt. Undirstaða aldamótakyn-
slóðarinnar undir endurreisn fs-
l'i'amhald á 11. síðu
Elnar Ágústsson