Morgunblaðið - 08.11.2005, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 08.11.2005, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 2005 3 BÆKUR SKAMMT er stórra högga á milli. Fyrr í haust kom út mikið og gagn- merkt rit – Lagarfljót – eftir hinn landskunna náttúrufræðing Helga Hallgrímsson og nú berst mér í hend- ur ekki ómerkara rit, sem þeir frænd- ur Hjörleifur Guttormsson og Sigurð- ur Blöndal hafa haft veg og vanda af ásamt mörgum meðhöfundum (a.m.k. átta). Þetta glæsilega rit má skilja að samið sé í tilefni af því að öld er liðin frá því að Hallormsstaðarskógur var friðlýstur og þrír aldarfjórðungar frá stofnun Hússtjórnarskólans. Umfjöllunin um Hallormsstað og umhverfi er mjög gagnger og má segja að þar sé engum steini látið óvelt. Og steinarnir eru margir. Þetta er bók sem ekki verður lesin í fljót- heitum svo að gagn sé að. Að réttu lagi á maður að liggja yfir henni, lesa hana vandlega, melta hana með sér og njóta hennar. Það er líka létt verk því að bókin er næsta skemmtileg aflestr- ar og á köflum heillandi. En sá sem hér heldur á penna getur ekki leyft sér þann munað að sinni. Tímans vegna verður fljótaskrift að duga og er það miður. Bókin skiptist í átta aðalkafla og þeir aftur í smærri undirkafla eða þætti. Fyrsti kaflinn ber heitið Nátt- úrufar, umhverfi og fornminjar. Er það eins konar yfirlits- og kynning- arkafli. Lesandinn er leiddur um byggðarlagið, en það nefnist í raun- inni Skógar og er það land höfuðbóls- ins Hallormsstaðar, sem mér skilst að nái frá Hafursá að Gilsá. Góð kort eru á fremri og aftari kápusíðum bókar- innar, sem nauðsynlegt er að skoða um leið og lesið er sé maður ekki því kunnugri. Í næsta kafla segir frá jarð- fræði Hallormsstaðarlands og er sá kafli sem og sá sem þar fer á eftir, Líf- ríki og rannsóknir, fræðilegir og kannski ekki fyrir alla. Öðru máli gegnir um kaflana sem á eftir fara. Í einum löngum kafla er saga Hall- ormsstaðar sögð. Hallormsstaður var kirkjustaður og prestssetur til ársins 1880, en þá var sóknin sameinuð Vall- anesprestakalli. Margir merkir prest- ar sátu Hallormsstað og er tveggja þeirra getið sérstaklega, þeirra Hjálmars Guðmundssonar og Sigurð- ar Gunnarssonar. Sá síðarnefndi markaði sérstaklega djúp spor bæði með stórmerku starfi sínu og niðjum, sem Hallormsstaður og Hallorms- staðarskógur eiga vöxt sinn og við- gang að þakka. Einkar áhugaverður kafli er um Hallormsstað sem skóla- og fræðslu- setur. Þar ber hæst Húsmæðraskól- ann, sem seinna nefndist Hússtjórn- arskóli og starfar enn, og hinn stórmerka stjórnanda hans Sigríði Blöndal og mann hennar Benedikt. En Sigrún átti að afa áðurnefndan séra Sig- urð Gunnarsson. Þjóðskógur í eina öld er saga skógræktarinn- ar. Þar vann fyrsti skógarvörðurinn, Gutt- ormur Pálsson, mikið og merkt brautryðj- andastarf. Þau Sigrún Blöndal voru systkin. Seiðmagn Fljóts og skógar er fagur kafli og rómantískur. Þar ber margt á góma og munu sjálfsagt margir minnast Atlavíkur- ævintýra, þó að ekki sé annað nefnt. Seinasti kafli bókarinnar, sem nefnist Skógurinn kveikja kvæða og mynd- listar, er ekki síður fagur og ljúfur. Þar kveðja mörg skáld sér hljóðs, því að margir hafa ort um Hallormsstað og skóginn allt frá Bjarna Gissurar- syni til nútíma skálda og myndlistar- menn hafa átt skóginn að yrkisefni. Þetta er í eins stuttu máli og mögu- legt er lýsing bókar, en segir í raun- inni ekkert um ágæti hennar. Hún er ágætlega samin. Texti er prýðilega læsilegur og greinargóður og enda þótt höfundar séu margir hafa aðal- höfundarnir tveir haft þann hátt á að fella texta allra þeirra saman, án þessa tilgreina hvað hver hefur skrif- að (með örfáum undantekningum). Sú aðferð fellur mér vel, því að oft hefur mér fundist bækur verða fremur tæt- ingslegar, þegar annar háttur er hafð- ur á. Geysimikill fjöldi mynda prýðir bókina, einkum litmynda, og fjöl- margar teikningar, línurit og töflur er þar einnig að finna. Miklar skrár eru í bókarlok og er sérstök ástæða til að nefna Skrá yfir háplöntutegundir í Hallormsstaðarlandi og Skrá yfir inn- fluttar trjátegundir í Hallormsstaðar- skógi. Þær eru svo sannarlega ekki fáar. Má í því sambandi nefna Trjá- safnið, sem er merkilegt og einstætt. Allur frágangur þessarar bókar er með miklum ágætum. Hönnun smekkleg, prófarkir vel lesnar og pappír vandaður. Þetta er bók sem aðstandendum sínum er til mikils sóma og mun gleðja marga. Hallormsstaður BÆKUR Þjóðfræði Hallormsstaður í Skógum Náttúra og saga höfuðbóls og þjóðskógar eftir Hjörleif Guttormsson – Sigurð Blöndal. 351 bls. Mál og menning, Reykjavík 2005 Sigurjón Björnsson Hjörleifur Guttormsson Sigurður Blöndal ÁHUGI Íslendinga á yfirnáttúruleg- um málefnum og handanheimum hefur lengst af verið geysimikill og er að öllum líkindum enn. Bækur um þetta svið fylla marga hillumetrana á íslenskum bókasöfnum og í raun er hægt að tala um sérstaka grein ís- lenskra bókmennta í þessu sam- bandi. Afstaða manna gagnvart slík- um bókum helst gjarnan í hendur við afstöðu þeirra til málefnisins; hinir trúuðu hrífast af frásögnum sem staðfesta trú þeirra; hinir vantrúuðu undrast trúgirni hinna og henda gaman að „bullinu“. Án þess að hér verði tekin afstaða til sannleiksgildis frásagna spíritista get ég ekki látið hjá líða að benda á að hér er enn ein grein íslenskra bókmennta sem ligg- ur svo að segja óbætt hjá garði þegar kemur að rannsóknum á íslenskum bókmenntum og væri það eflaust verðugt og skemmtilegt verkefni fyrir fræðimenn, bæði bókmennta- fræðinga og sagnfræðinga, að takast á hendur það verkefni að skoða og greina þessa bók- menntategund út frá fræðilegu sjónarhorni. Játningar Láru miðils eftir Pál Ásgeir Ás- geirsson verður þó ekki flokkuð sem fræðirit enda er bókin fyrst og fremst skrifuð sem ævisaga eins og fram kemur á forsíðu bókarinnar í klausu sem er í dálitlum æsi- fréttastíl: „Opinská ævisaga umdeildasta miðils á Íslandi byggð á hennar eigin frásögn og skjölum sem aldrei hafa komið fram í dagsljósið.“ Lára Ágústsdóttir (1899–1971) starfaði sem miðill um langt skeið en varð uppvís að svikum sem hún reyndar játaði sjálf og hlaut dóm fyr- ir árið 1940. Í bók Páls Ásgeirs er öðrum þræði gerð heiðarleg tilraun til þess að greina umræðuna og rýna í það samfélag sem gerði Láru kleift að hafa broddborgara samtíma síns að ginningarfíflum og féþúfu. Það er hins vegar frásögnin af lífsferli Láru sem er athyglisverðasti þráður sög- unnar; frásögnin af litríkri ævi ís- lenskrar alþýðukonu sem hafði öll spjót úti til að komast af á tímum mikillar kreppu, almennrar fá- tæktar og bágrar stöðu almúgans í höfuðstaðn- um. Það sem stendur upp úr er saga ótrúlega sérstæðs persónuleika; konu sem oft á tíðum virtist ofurseld kynferði sínu og á ég þar við end- urteknar ótímabærar þunganir sem Lára þurfti að glíma við ofan á annað óhjákvæmilegt basl. Svo virðist sem Lára Ágústsdóttir hafi teflt bjartsýni, útsjón- arsemi, fegurð og sjarma – ásamt meintum miðilshæfileikum að sjálf- sögðu – gegn einstæðingsskap, bág- um kjörum og takmörkuðum tæki- færum sem konum af hennar stétt stóðu hér til boða á fyrri hluta tutt- ugustu aldarinnar. Lára þurfti að sjá fyrir sér sjálf allt frá unga aldri, reyndar tókst henni það ekki alltaf og var því á framfæri hins opinbera um lengri og skemmri tíma og neyddist til að láta nokkur barna sinna í fóstur til annarra. Hennar helsti akkilesarhæll virðist hafa ver- ið hversu veik hún var fyrir lánleys- islegum karlpeningi sem lagði lítið til heimilisins annað en efnivið í börn. Eins og fram kemur að ofan bygg- ir Páll Ásgeir bók sína að miklu leyti á sjálfsævisöguhandriti Láru sjálfr- ar sem áform voru um að gefa út, lík- lega um miðbik aldarinnar, en ekk- ert varð úr. Þá styðst hann einnig við fleiri heimildir, til að mynda útgefna ævisögu Láru eftir séra Svein Vík- ing, sem kom út árið 1962, sem og dómsskjöl frá réttarhöldunum 1940 yfir Láru og samverkamönnum hennar. Úrvinnsla Páls Ásgeirs úr þessum heimildum er skýr og hann fléttar frásögnina saman á lipran hátt. Víða vitnar hann beint í handrit Láru og vakti það strax athygli mína hversu vel ritfær þessi ómenntaða alþýðukona hefur verið. Texti henn- ar er skáldlegur, fullur af myndmáli og líkingum og satt að segja vöktu þessar beinu tilvitnanir mikla for- vitni undirritaðrar á því að lesa handrit Láru í heild sinni. Páll Ásgeir Ásgeirsson hefur að mestu leyti skilað góðu verki í þess- ari bók sinni en nokkrar klaufalegar fljótfærnisvillur koma á óvart, eins og til að mynda þegar hann segir á blaðsíðu 56 að elsta dóttir Láru sé fædd 21. apríl 1923, en á blaðsíðu 60 kemur fram að hún er fædd 20. apríl. Í frásögn Láru af kynnum sínum af börnum af huldufólksætt segir hún að faðir þeirra (huldubarnanna) hafi verið „farinn frá þeim“ (bls. 20) og túlkar Páll Ásgeir það óðara þannig að huldukonan móðir þeirra hafi ver- ið fráskilin (bls. 22) þótt fram komi á næstu síðu að faðirinn hafi í raun verið látinn og lík hans hafi staðið lengi uppi (23). Telur Páll Ásgeir þá frásögn vera „eitt af fáum dæmum um frásagnir af greftrunarsiðum huldufólks“ og hefði hann átt að gera sér grein fyrir mistúlkun sinni á orðalaginu „farinn frá þeim“. Játningar Láru miðils er bæði fróðleg og skemmtileg aflestrar og er bókin góð viðbót í hina skemmti- legu flóru íslenskra ævisagna sem virðist blómstra nú sem áður. Þótt það hafi kannski ekki verið megintil- gangur Páls Ásgeirs með bókinni þá finnst mér hún ekki síst spennandi sem innlegg inn í sögu íslenskra al- þýðukvenna. Þótt Lára Ágústsdóttir hafi að sjálfsögðu ekki verið dæmi- gerður fulltrúi þeirrar stéttar þá gef- ur saga hennar skemmtilega mynd að því til hvaða bragða konur gátu gripið til að hafa ofan í sig og á, á erf- iðum tímum. BÆKUR Ævisaga Játningar Láru miðils eftir Pál Ásgeir Ásgeirsson. 231 bls. JPV útgáfa 2005 Soffía Auður Birgisdóttir Páll Ásgeir Ásgeirsson Saga litríkrar konu TÁKNHEIMUR ljóða Þorsteins frá Hamri hefur ævinlega verið stórbrotinn og ramm- ur. Þorsteinn er sinnar eigin tíðar maður sem fer á stundum einförum í skáldskapnum. Þetta er í senn styrkur hans og veikleiki. Styrkur af því að hann er alltaf sjálfum sér trúr. Veik- leiki af því að stundum er erfitt að nálgast ver- öld hans. Í upphafskvæði nýrrar ljóðabókar hans, Dyr að draumi, erum við stödd við vatnið með öllum þess táknlegu skírskotunum til eilífðar og allífs og það þýtur í sefi. Þetta er vatn- ið þar sem við mennirnir söfnumst saman – kannski að lokum – og trúum ,,þöglum speglinum fyrir / lítilræði, ágripi: / okkur sjálfum.“ Nokkurn veginn þannig er þessi ljóðabók, ein- lægt, lítillátt trúnaðarviðtal skálds við sjálft sig og lesendur sína. Meginþema hennar er óvissa tím- ans því að kerið máttuga sem heldur heimsmynd skáldsins saman er í mol- um og tilraunir til að setja það saman reynast fálmkenndar. Veröldin er uppfull af lægingu, lyg- um, grimmd og öðrum heimsósóma svo að skáldið efast um mennsk- an rétt sinn. Þetta er ljóðabók í leit að öryggi og vissu í veröld sjálfs- birgings og mannhroka þar sem eina svarið sem er einhvers virði er efi ljóðsins. Einhvers staðar ná- lægt er þó mennskan þar sem ástleitið auglit brýtur sér leið inn í ljóð skáldsins, eitthvað slær birtu á það eða bernskuminningin yljar. Fal- legasta kvæði bókarinnar að mínu mati, Hér, er nefnilega laust við kyrj- un heimsósómans. Þvert á móti brýst í því æskuþrungið minningarbrot fullt með ankannalegri og þverstæðufullri kennd: Hér ertu ætíð barn: sama undrun, sami fögnuður, sama ofboð við sömu bugðu á stígnum ásamt þeirri þrálátu kennd að eitthvert sinn fyrir óralöngu hafirðu gengið hér gamall. Andstæður upphafs og loka, æsku og elli setja töluvert mark sitt á þessa bók. Hún er ort í skugga óvissunnar og ósómans. Það er ekki nýtt að Þor- steinn frá Hamri leggi á veröldina sið- ferðilegt mat. Sá óhagstæði byr sem hún veltist í um þessar mundir er honum hugleikið viðfangsefni. Meg- instyrkur þessarar bókar er þó fólg- inn í þeim kvæðum þar sem skáldið finnur ljósleiftur í myrkrinu og nýjar og betri hliðar á hinni tættu og velktu veröld. Einlægni ljóðs er efinn BÆKUR Ljóð Dyr að draumi eftir Þorstein frá Hamri. 54 bls. Mál og menning 2005 Þorsteinn frá Hamri Skafti Þ. Halldórsson JPV ÚTGÁFA hefur sent frá sér nýja skáldsögu eftir Súsönnu Svav- arsdóttur sem ber heitið Dætur hafsins. Þegar blaðakonan Ragnhildur fær dagbækur Herdísar föðursystur sinnar í hendur opnast fyrir henni nýr og framandi heimur. Ragnhild- ur lifir fremur lit- lausu og hvers- dagslegu lífi en þegar Herdís er myrt með hrotta- legum hætti breytist líf hennar á svipstundu. Hún er skyndilega stödd í heimi þar sem ekkert rúm er fyrir viðtekin gildi samfélagsins, leyndarmál afhjúpast og ástríður krauma. Um leið og Ragnhildur sog- ast inn í æsispennandi og stór- hættulega hringiðu myrkra afla upp- götvar hún nýja og ókannaða hlið á sjálfri sér. Súsanna Svavarsdóttir fer ótroðn- ar slóðir í sinni fyrstu glæpasögu. Hér er á ferð æsileg, blóðheit spennusaga sem ögrar viðteknum gildum og þenur taugar lesandans til hins ýtrasta. Nýjar bækur HARALDUR S. Magnússon hefur gefið ljóðabókina Einyrkinn. Þetta er 8. ljóða- bók höfundar sem einnig hefur skrif- að barnabækur, m.a. hinar vinsælu bækur um Ragga litla. Þá hefur Har- aldur gefið út smá- sagnasafnið Öspin og ýlustráið. Einyrkinn er 80 bls., prentuð í Prentsmiðju Hafn- arfjarðar. Nýjar bækur SÍMON Jóhann Jóhannsson hefur gef- ið út ljóðabók sína Kaffið í aldingarð- inum. Þetta er fyrsta ljóðabók höf- undar sem hefur stundað ritstörf um árabil samhliða bók- menntakennslu við Flensborgarskóla í Hafnarfirði. „Mild kímni, hug- rekki og mannleg hlýja streyma af síð- um þessa ljúfa kvers,“ segir skáldið Birgir Svan Sím- onarson um ljóð Símonar Jóhanns. Bókin er 51 bls., prentuð í Guten- berg-prentsmiðju.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.