Morgunblaðið - 08.11.2005, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 2005 7
BÆKUR
„MÉR hefur alltaf fundist tal um eðli kvenna
og eðli karla sem andstæður þreytandi. Ég get
ekki séð að það sé svo mikill munur. Við erum
framleidd úr sama efni. Bæði kynin hafa sínar
hvatir, langanir og þrár, þörf fyrir ást og sam-
neyti við aðra og það er félagsmótunin sem
hannar þetta svokallaða eðli,“ segir Súsanna
Svavarsdóttir rithöfundur sem sent hefur frá
sér skáldsöguna Dætur hafsins.
Dætur hafsins er spennusaga þar sem segir
frá Ragnhildi, 46 ára gamalli fráskilinni blaða-
konu sem meira og minna óviljandi flettir ofan
af morðingja föðursystur sinnar, Herdísar.
Ragnhildur fær í arf eftir frænku sína minn-
ingabækur hennar þar sem Herdís hefur skráð
samviskusamlega niður öll sín ástarævintýri og
kynlífsreynslu sem koma Ragnhildi í opna
skjöldu þar sem hún hafði til þessa talið að
Herdís hefði aldrei verið við karlmann kennd,
ógift og barnlaus alla tíð. En annað kemur á
daginn.
Saga um þrjár konur
Dætur hafsins er saga um þrjár konur, Her-
dísi sem talar til okkar í gegnum minningabæk-
urnar, Ragnhildi sem þroskast og öðlast dýpri
skilning á sjálfri sér og síðan er móðir hennar
og samband þeirra mæðgna talsvert í brenni-
depli. Þetta er bók um konur.
„Herdís er mjög ung þegar hún velur leið
sína í lífinu en eins og hún segir sjálf er konum
ekki ætlað að vera kynverur, ekki sem ungum
konum, ekki sem miðaldra eða þaðan af eldri,
ekki giftum eða einhleypum. Konur eru alltaf
dæmdar fyrir kynhegðun sína og verða að láta
eins og þær hafi engan áhuga á kynlífi. Herdís
hefur oft reynt að ræða þessi mál við Ragnhildi
en hún hefur vísað slíku tali á bug. Ragnhildur
hefur alla tíð lagt áherslu á að líta óaðfinn-
anlega út í augum samfélagsins.
Ég held að flestar konur upplifi togstreituna
sem felst í því að horfast í augu við eigin kyn-
hvöt um leið og þær leyna henni og bæla. Ef
hægt er að tala um eitthvert eðli hlýtur það að
vera kyneðlið – sem fjandakornið fer ekkert
þótt við reynum að afneita því. Þegar gerð er
krafa um afneitun og bælingu verður kyn-
hegðun og tal um kynlíf svo ruddalegt. Þá
þekkjum við okkur sjálf ekki og kynorkan brýst
út án þess að við höfum stjórn á henni. Þá get-
um við ekki rætt kynhvöt og kynhegðun á heil-
brigðan hátt, heldur hefur umræðan tilhneig-
ingu til þess að verða klúr og dónaleg.
Ég hef verið ein í allmörg ár og það er ótrú-
lega algengt að ég sé spurð hvernig ég leysi
kynlífið. Mér finnst þetta dónaleg spurning.
Giftar konur eru aldrei spurðar að því hvernig
kynlíf þeirra sé. Hvort þær fái það reglulega,
hvort karlinn sé í lagi og hvort þær stundi kyn-
líf yfirleitt. Við sem erum einhleypar erum hins
vegar sífellt spurðar að þessu. Hvers vegna eig-
um við að svara því frekar en aðrar konur?“
Stjórnlaus kynlífsfíkn
Karlarnir í bókinni eru af ýmsum sortum.
Bæði mjúkir og elskulegir og svo grimmd-
arseggir, lygnir og óheiðarlegir.
„Já, karlmenn eru lifandi verur rétt eins og
konur og fara ekkert varhluta af því að vera
mennskir. Að mörgu leyti held ég að það sé erf-
iðara að vera einhleypur karl en kona. Alla
vega virðist mér að einhleypum konum líði
ágætlega í þessu þjónustulausa hlutverki.
Rannsóknir hafa sýnt að þeim konum sem líður
hvað best eru miðaldra og fráskildar.“
Hvað er miðaldra í dag? Er Ragnhildur mið-
aldra?
„Nei, en hún er að nálgast. En ég myndi þó
skilgreina mig sem miðaldra, rétt komna yfir
fimmtugt. Mér finnst ég vera að verða kerling,
miðaldra kerling. Það er leiðinlegt hvað „mið-
aldra“ og „kerling“ hafa neikvæða merkingu í
huga fólks vegna þess að við eigum engin önnur
hugtök sem þýða að kona sé þroskuð. Aldur og
þroski fer ekki endilega saman. Ragnhildur er
óþroskuð að mörgu leyti. Hún lætur t.d. Sigurð
leikara spila með sig og situr eftir með sárt
ennið.“
En er það ekki allt í lagi? Hún var ánægð
meðan á því stóð. Hvers vegna lýsirðu honum
sem hreinum skíthæl?
„Af því að hann lýgur og er óheiðarlegur.
Sama á við um hinn ítalska Giovanni sem fer
illa með Herdísi. Hún aftur á móti segir alltaf
satt og kemur hreint fram. Það er munurinn.
Það er hægt að þola konum og körlum margt
en lygi er óviðunandi.“
Svo eru öðruvísi karlar í sögunni.
„Já, vegna þess að í heiminum er fullt af
mönnum sem eru öðruvisi en þessir tveir. En
þótt Herdís sé heiðarleg er hún langt frá því að
vera einhver engill. Hún missir smám saman
alla stjórn á lífi sínu og hverfur inn í kynlífsfíkn
sem hún á erfitt með að snúa til baka úr. Þetta
á alls ekki að vera dýrðaróður um kynlífið þótt
einhverjum kunni að þykja lýsingar berorðar.
Það er miklu frekar að í þessu felist ábending
um að við konur þurfum að þekkja okkur sjálf-
ar andskoti vel ef við ætlum að lifa kynlífi á
okkar eigin forsendum.“
Ertu að segja lesandanum að Herdís hafi
misst stjórnina?
„Já, og hún er ekki gömul þegar hún dregst
inn í aðstæður sem hún ræður ekki við. Hún
kemst að því að heimurinn er fullur af fólki sem
kann að misnota þá sem halda að þeir hafi
stjórn á atburðarásinni.“
Sagan snýst þó ekki nema að hluta til um
leitina að morðingja Herdísar heldur ekki síður
um uppgjör Ragnhildar við foreldra sína.
„Morðið á Herdísi verður til þess að ýta því
uppgjöri af stað.“
Sæki konurnar í sjálfa mig
Allir höfundar byggja að einhverju leyti á
eigin reynslu. Ragnhildur er með svipaðan bak-
grunn og þú sjálf. Er það tilviljun?
„Ég sæki hana í sjálfa mig og ég sæki Her-
dísi líka í sjálfa mig. En það eru persónur
þeirra sem ég sæki í sjálfa mig, ekki hegðun
þeirra. Sem dæmi get ég nefnt að Ragnhildur á
ýmislegt óuppgert við móður sína en mitt sam-
band við mína móður hefur alltaf verið mjög
gott. En þótt þessar konur séu byggðar á þátt-
um sem ég bý sjálf yfir er þessi saga ekki um
mig. Persónurnar eru byggðar á ólíkum þáttum
sem við búum öll yfir. Ég get ekki sagt að mér
hafi þótt sniðugt að átta mig á því að ég væri
samsett úr mörgum þáttum; að inni í hausnum
á mér væru margar konur sem gætu aldrei orð-
ið alveg sammála um neitt. En þannig er það og
þá eins gott að gefa þeim sitt sögusvið.“
Kynlífslýsingar Herdísar eru mjög op-
inskáar. Vafðist það ekkert fyrir þér?
„Nei, mér finnst sagan kalla á það vegna þess
að bókin fjallar öðrum þræði um konur sem
kynverur og kynhegðun kvenna. Kynhvötin er
sá þáttur sem stjórnar hvað mest hegðun okkar
og vegferð í lífinu. Hvað við segjum og hvað við
gerum og hvernig við lifum, hverjum við gift-
umst og hverja við elskum. Þetta er þáttur sem
viljum samt ekki viðurkenna. Slíkt leiðir af sér
tvöfeldni sem hlýtur alltaf að vera skaðleg.“
Ertu að segja með sögu þinni af Herdísi að
fólk þurfi að ganga lengra en skynsemin býður
til að þekkja sín eigin mörk?
„Nei, ég er að segja að fólki sem þekkir ekki
sjálft sig hætti til að ganga of langt. Ég kynnt-
ist því í þriðja hjónabandi mínu. Maðurinn átti
við kynlífsfíkn að stríða og vildi að ég tæki þátt
í leiknum. Ég þekkti hins vegar sjálfa mig
nægilega vel til að setja mörkin og vissi ná-
kvæmlega hvað ég vildi og hvað ég vildi ekki.
Þessi reynsla er í einhverjum skilningi fyr-
irmynd að sögu Herdísar. Ég hef séð hvernig
þetta gerist og veit hvernig góður ásetningur
og öll varnarkerfi hrynja þegar fíknin tekur
völdin.“
Mörk erótíkur og kláms
Veltirðu því fyrir þér hvar mörkin liggja á
milli erótíkur og kláms?
„Auðvitað geri ég það en það er ómögulegt að
draga þau mörk í eitt skipti fyrir öll. Það sem
mér finnst ekki klámfengið getur næsta manni
fundist svo. Einhverjum öðrum getur fundist
þetta grútmáttlaust. Mér finnst ofsalega gaman
sjálfri að fást við erótík og kynhegðun vegna
þess hvað hún er stór hluti af okkur. Og ég sé
ekki hvers vegna ekki á að fjalla um hana.“
Klisjan er að konur skrifi erótík og karlar
klám.
„Það er klisja, eins og þú segir. Ég held að
erótík og klám séu tveir límmiðar á sama fyr-
irbæri. Erótík er jákvæður límmiði og okkur
konum líður betur með hann. Eitt er víst, að
konur geta og hafa skrifað svo svæsið klám að
það gefur í engu eftir því sem karlar hafa skrif-
að. Skilaboðin frá samfélaginu eru þau að það
sé ósæmilegt fyrir konur að örvast af erótísku
efni og við erum alltaf að streða við að vera svo
vammlausar, betri en þið strákarnir.“
Heldurðu að konur séu svona miklu bældari
en karlar?
„Já, okkur er ætlað að vera það. Við sjáum
það á fleiri sviðum en í kynlífi.
Karlar tapa t.d. ekki hæfileikanum til að
leika sér þótt komnir séu á fullorðinsaldur. Ég
dáist að því hvað þeir eru duglegir að leika sér
með bílana sína, byssurnar, veiðistangirnar og
golfkylfurnar. Þetta eiga flestar konur erfitt
með, en ættu endilega að gera meira af.“
Kynhegðun kvenna, bæling og hlutverk í
samfélaginu er að stórum hluta efni sögunnar
sem er þó sögð undir merkjum spennusög-
unnar, reyfarans.
„Já, ég ákvað að klæða söguna í þennan bún-
ing vegna þess að ég ætlaði ekki að skrifa
fræðilega úttekt um kynhegðun, bælingu, þögn
og stjórnleysi. Spennusaga er mjög gott form
til að segja þessa hluti. Hún býður upp á mögu-
leika á að koma til skila þeim jarðhræringum
sem verða þegar bæling brestur og þögn er rof-
in.“
Er þetta þá saga um konu sem finnur sjálfa
sig í einhverjum skilningi?
„Nei, en hún áttar sig kannski á því smám
saman að það er einmitt það sem hún þarf að
gera. Það er ekki nóg að eldast. Það þarf að
þroskast.“
Þegar bæling brestur
Morgunblaðið/Kristinn
„Fólki sem þekkir ekki sjálft sig hættir til að ganga of langt,“ segir Súsanna Svavarsdóttir.
Eftir Hávar Sigurjónsson
havar@mbl.is
JPV útgáfa hefur sent frá sér stórvirkið
Jörðina – myndrænan leiðarvísi um
reikistjörnu okkar.
Þessi glæsilegi og myndræni leið-
arvísir sýnir okkur jörðina í öllum mik-
ilfengleik sínum og fegurð – leiðir les-
andann um
fáfarna stigu, frá
neðansjávar-
gljúfrum til
gróskumikilla
regnskóga, um
freraveröld heim-
skautanna og
alla leið út í
geiminn.
Jörðin er tímamótaverk þar sem
saman fara frábærar ljósmyndir og
vandaður texti, unninn af sérfræð-
ingum. Hér er því hægt að kynnast
mörgum sérkennilegustu og mögn-
uðustu stöðum jarðar – allt frá brenn-
heitri Atacamaeyðimörkinni til ógn-
vænlegra eldgosa Etnu og frá ánni Níl
til víðáttu Kyrrahafsins.
Einstætt, sjónrænt yfirlit yfir helstu
perlur og dásemdir jarðarinnar myndar
kjarna bókarinnar. Mikilvægum þátt-
um á landi, hafsbotni og í andrúmsloft-
inu er lýst í máli og myndum og þeir ná-
kvæmlega staðsettir á yfirlitskortum. Í
bókinni er enn fremur lögð áhersla á
gagnkvæm áhrif manna og umhverfis
og tekist á við vandasöm álitamál, svo
sem fjölgun mannkyns og eyðingu
skóga, með áhrifamiklum hætti.
Flókin ferli eru gerð hverjum manni
skiljanleg með hjálp kunnáttusamlega
tölvuteiknaðra skýringarmynda og að-
gengilegum og skýrum texta. Sem
dæmi um fjölmargar fræðinýjungar í
bókinni má nefna nútímahugmyndir
manna um uppruna jarðarinnar, mynd-
un kalksteinsrifja neðansjávar úr lif-
andi kóröllum og þau kerfi og hring-
rásir sem valda loftslagsbreytingum.
Þetta mikla verk veitir með skýrum,
traustum og afar myndrænum hætti
óviðjafnanlega sýn á samspil allra
þeirra þátta sem móta okkar sí-
breytilegu reikistjörnu.
Bókin er samstarfsverkefni Smit-
hsonianstofnunarinnar í Bandaríkj-
unum og bókaútgáfunnar Dorling Kind-
ersley. Ritstjóri íslensku útgáfunnar
var Sigríður Harðardóttir og þýðendur
eru: Sigurður Steinþórsson, Helga Þór-
arinsdóttir, Ágúst H. Bjarnason, Páll
Bergþórsson, Jóhann Ísak Pétursson,
Guðríður Arnardóttir og Völundur Jóns-
son. Yfirlestur annaðist Helgi Guð-
mundsson. Guðmundur Þorsteinsson
annaðist tölvuvinnslu og umbrot og
Jón Torfason gerði atriðisorðaskrá.
Jörðin er 520 blaðsíður í stóru
broti, prýdd meira en 2.000 myndum.
Hún verður boðin á sérstöku kynning-
arverði til áramóta, 9.980 kr., en verð
frá 1. jan. 2006 er 12.980 kr.
Nýjar bækur
Sögur útgáfa hefur gefið út Úlfabróð-
ur. Þetta er fyrsta verkið í sex bóka
seríu með yfirheit-
inu Sögur úr myrk-
um heimi (Chro-
nicles of Ancient
Darkness) eftir
Michelle Paver í
þýðingu Sölku
Guðmundsdóttur.
Sagan um Úlfa-
bróður gerist fyrir
sex þúsund árum
og sækir höfundurinn meðal annars
innblástur til Íslands fyrir söguna.
Bókin er 260 bls. og leiðbeinandi
verð er 3.490 kr.
Stöng útgáfufélag hefur endurútgefið
barna- og unglingabókina Æv-
intýrafjallið, eftir Enid Blyton. Æv-
intýrabækurnar
eru trúlega vin-
sælustu barna- og
unglingabækur,
sem út hafa kom-
ið á íslensku. Með
þessari bók hefst
endurútgáfa
þessa vinsæla
bókaflokks, alls
átta bóka sem all-
ar fjalla um sömu börnin – að
ógleymdum páfagauknum Kíkí.
Hvers vegna skalf fjallið? Hvernig
stóð á rauða skýinu, sem kom út úr
því? Hvað fór fram inni í fjallinu?
Hverjir höfðust þar við?
Bókin er 200 bls. Verð 2.390 kr.