Tíminn - 12.07.1970, Qupperneq 2

Tíminn - 12.07.1970, Qupperneq 2
r TfMINN SUNNUDAGUR 12. júM 197«. Prýðilegur árangur Guðmundar Þegar þessar línur eru ritaðar er mjöR farið að síga á seinni Wuta" skákmótsins í Caracas og hefur Guðmundur Sigurjónsson staðið fyrir sínu, eins og vænta mátti. Hefur hann hlotið 8 vinn- inga af 14 mögulegum, eða lið- lega 57 prósent, sem telja verður mjög sómasamlegan árangur í svo sterku móti. Allar erfiðustu skákirnar eru nú að baki og hef- ur Guðmundur því góða mögu- leika á að laga vinningshlutfall sitt í þremur síðustu umferðun- um Mótið í Caracas er örugglega sterkasta skákmót. sem Guðmund- ur hefur tekið þátt í fram til þessa og er því fróðlegt að gera sér grein fyrir árangri hans í ein stökum atriðum. Gegn stórmeist- urunum hefur hann hlotið 3Í4 vinning af 9 mögulegum eða tæp 39 prósent. Hann vinnur Barcza, gerir jafntefli við Stein, Ivkov, Uhlman, Parma og O’Kelly, en tapar fyrir Kavalek, Panno og Benkö. Alþjóðlegu meisturunum hefur hann sýnt litla miskunn og aðeins leyft eitt jafntefli. Þeir Addison og Ciocalteca hafa báðir orðið að lúta í lægra haldi fyrir Guðmundi, en heimsmeistari ungl inga, Karpov, fengið jafnteflið. Þetta gerir 2V2 vinning af 3 eða liðlega 83 prósent. Þá hefur Guð- mundur unnið tvo titillausa Venezúelamenn, þá Slussar og Villaroel. f síðustu þremur um- ferðunum teflir Guðmundur svo við Cuellar og Yepes, sem báðir eru alþjóðlegir meistarar og Caro, sem er titillaus. Samkvæmt reglum FIDE cull- nægir mót þetta þeim kröfum, sem gerðar eru til alþjóðlegra móta af styrkleikagráðu la. í slíku móti er unnt að verða sér úti um alþjóðlegan meistaratitil í einni atrennu og er þá gert ráð fyrir, að viðkomandi hljóti 35 prósent vinninga gegn stórmeist- urunum, 55 prósent gegn alþjóð- legum meisturum og 75 prósent gegn titillausum. Samkvæmt þessu virðist Guðmundi nægja 1 vinn- Guðmundur Sigurjónsson ingur til viðbótar til að hljóta titilinn í einni atrennu og ætti honum varla að reynast það erf- itt. Hitt er svo annað mál, að Guðmundur á, þegar að vera búinn að tryggja sér titilinn á grundvelli fyrri afreka, svo að slakari útkoma ætti ekki að koma að sök. Hér heima hlýtur athygli © Enn sem fyrr Mallorka London ódýrustu og beztu utanlandsferðimar Leiguflug beint til London á heimleið > í. i ferðaskrifstofa banbastræti 7 símar 16400 1207fij> Brottför annan hvero mið- vikudag. Vikulega í ágúst og sept. 15—17 dagar. Verð frá kr. 11.800,00. manna fyrst og fremst að beinast að gengi Guðmundar í þessu móti, en hitt getur ekki hafa farið fram hjá neinum, hversu tékkneski stór meistarinn Kavalek hefur staðið sig framúrskarandi vel. Hann er nú í efsta sæti með 12 vinninga, sem er óvenjulega hátt vinnings- hlutfall í svo sterku móti, og er óhætt að fullyrða, að slíkum ár- angri hefur hann aldrei náð áð- ur. Ætti honum ekki að vgrða skotaskuld úr því að halda efsta sætinu í mótinu. Úr því að ég fór að minnast á Kavalek, þá er ekki úr vegi að þirta hér skák. sem tefld var á mótinu í Lugano í ár. Skákinni lyktar með jafntefli, en hún er engu að síður skemmtileg og fróð leg. Lugano 1970. ' Hv.: Kavalel: Sv.: Friðrik. Sikileyjarvörn. 1. e4, c5 2. Rf3, Rc6 3. d4, cxd4 4. Rxd4, e6 5. Rb5. (Með þessum leik hyggst hvitur mynda sér sterka miðborðsstöðu og takmarka athafnafrelsi svörtu mannanna.) 5. —, d6 6. c4, Rf6 i. Rlc3, a6 8. Ra3, Be7 y. Be2, 0—0 10. 0—0, b6 11. Be3, Bb7 (Svarta staðan er þröng en traust, og í henni býr dulinn kraftur, sem leysa má úr læðingi við hent ugt tækifæri.) 12. Hcl (Hér hefur einnig verið reynt 12. Db3, 12. Dd2 og 12. f3. Ekki treysti ég mér til að dæma um það, hver þessara leikja er bezt- ur.) 12. —. Hb8 (Ekki minnist ég hess, að hafa séð þessum leik beitt áður í þess- ari stöðu, enda eðlilegra að leika 12.—, Hc8 eða —, He8. Á b8 er hróknum- m.a. ætlað hað hlutverk að vernda svarta peðið á b6.) 13. Dd2(?) (Þessi leikur gerir svarti strax kleift a'ð losa um stöðu sína. Skárra virðist 13. f3. sem svartur ( mundi væntanlega hafa svarað " mcð —, He8.) 13. —. Re5 14. f3 (Hvítur gat reynt að halda mið- borði svarts í skefjum með bví að leika 14. Dd4, en þá kemur greinilega í ljós einn kostur 12. leiks svarts, —, Hb8. Svartur,get ur nú einfaldlega leikið 14. —. Reg4 og eftir 15. Dxb6, DxD 16. BxB, Bc6 stæði hann vel. Jafn- vel 16. —, Bxe4 kemur til greina.) 14. —, d5 15. cxd5 (15. Bf4 missir marks vegna —, Rxc4 16. Rxc4, dxc4 o. s. frv.) 15. —, exd5 16. Bf4 (Hvíti tekst ekki að finna betra aframhald. Þannig mundi t. d. 16. exd5 beinlínis leiða til verri stöðu fyrir hann eftir —, b5 17. Rabl, b4 ásamt 18. —, Rxd5, sama máli gegnir um 16. Rxd5, Bxd5 17. exd5, Rxd5.) 16. —, Rg6! (Þcnnan leik hafði svartur í huga, er hann lék 14. —, d5. Annar möguleiki var 16. —, Be5+ 17. Khl, He8 18. Hcdl. Staðan er mjög flókin og sennilega hvítj í hag.) 17. Bxb8, Dxbh 18. Rxd5- (Hvítur gerir sér ljósa grein fyr ir því, hversu staðan er -hættuleg og reynir ekki að tefla til vinn- ings. Þannig mundi t. d. 18. f4 skapa svarti stórhættuleg færi eftir —, dxe4.) 18. —, Bxd5, 19. exd5, Bd6 20. g3 (Hvítur gerir sig ánægðan með jafntefli, enda væri áframhaldið 20. f4, Bxf4 21. Hxf4, Rxf4 mjög tvíeggjað.) 20. —, Bxg3 21. hxg3, Dxg3+ 22. Khl, Dh4t 23. Kgl, Rf4 24. Bxa6! Rh3t 25. Kg2 (Hér kom 25. Khl varla til greina ‘vegna 25. —, Rh5!) Svartur hugs aði sig nú um í 40 mínútur, en tókst ekki að finna neina afger- andi vinningsleið. Hann bauð hvf jafntefli, sem hvítur að sjálf- sögðu þáði. Staðan er mjög skemmtileg og væri fróðlegt að vita, hvort ein hvers staðar leynist í henni vinn ingsmöguleiki fyrir svart. F.Ó. VELJUM runM ATVINNA U.M.F. Skallagrímur í Borgarnesi, óskar að ráða starfsmann. Starfið er fyrst og fremst fólgið í rekstri samkomuhúss og störfum í sambandi við íþróttastarfsemi félagsins. Æskilegt er að viðkom- andi hafi einhverja reynslu í þeim störfum. — Umsóknarfrestur er til 25. júlí, og skal umsókn- um skilað til Gísla V. Halldórssonar, sími 93-7177 eða Konráðs Andréssonar, sími 93-7155, sem veita nánari upplýsingar, eftir kl. 19,00 á kvöldin. U.M.F. Skallagrímur. Hestamót Hestamannafélagið Geysir auglýsir hestamót á Rangárbökkum, sunnudaginn 19. júlí kl. 2 e.h. Keppt verður í eftirtöldum greinum: gæðinga- keppni, skeiði, stökki 250 m. — 350 m. — og 800 m. — I. verðlaun í skeiði og 800 m. eru kr. 8.000,00.' Sérstök vallarmetsverðlaun. Auk þessa er unghrossasýning, sérstök hópreið barna og naglaboðreið. Tilkynning um þatttöku berist Magnúsi Finnboga- syni, Lágafelli, fyrir miðvikudaginn 15. júlí. Dansað í Hvoli, Hvolsvelli, laugardagskvöld. — Ævintýri og Björgvin Halldórsson skemmta. — Á sunnudagskvöld skemmtir tríó Þorsteins Guð- mundssonar. Stjórnin. OFNA (H) VELJUM ÍSLENZKT iSLENZKAN IÐNAÐ Risalúða í höfninni í Hólminum SJ—Fimmtudag. Undanfama daga hefur ein heljarmikil lúða sézt inni á höfninni i Stykkishólmi. Kem ur hún alveg upp að bryggjun um og hafa bæjarbúar lagt fyr ir hana lóð. en fiskurinn hefur haft vit á að líta ekkj við slíkum gildrum, enda nóg æti í höfninni. Fróðir menn telja lúð una yfir 100 pund að þyngd þótt erfitt sé að segja til um slíkt í einni sjónhending. Á sumrin veiðist lúða rétt fyrir utan Stykkishólm, en ekki eru dæmi til að hún komi svona nærri landi. Skreppa bæjarbú ar gjarnan út til lúðuveiða í góðu veðri- Þá hefur sami selkópurinn verið árviss gestur í Stykkis hólmshöfn undanfarin sumur og er hann friðhelgur. Hann hefur einnig sézt undanfarna daga. Hver veit nema iúða þessi „haldi honum selslsap“ næstu sumrin? L --------------------------------------~--------------

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.