Tíminn - 12.07.1970, Blaðsíða 16
I
Sumwdagvr 12. jútí T970.
Lesið um Miu Farrow bls. 6 og 7
Þessi mynd var tekin í fyrrakvöld og er frá leik lslendinga og Færeyinga í handknattleik, en eins og
skýrt hefur verið frá, sigruðu íslendingar með nokkrum yfirburðum. — Á myndinni sést Ólafur Jónsson
skora. Tímamynd Gunnar)
ÍÞRÖTTAHÁTÍÐ
ISÍ ER LOKIÐ
Alf-Reykjavík. — í gær,
laugardag, lauk Íþróttahátíð
ÍSÍ, sem staðið hefur yfir
óslitið í eina viku. Þátttakend
ur í hátíðarhöldunum munu
hafa verið á fimmta þúsund
talsins, þar á meðal fjölmarg
ir útlendingar.
STÓRFELLD KARTÖFLURÆKT
ER HAFIN I STADARSVEIT
SJ—Ólafsvík, laugardag.
í fyrra hófst kartöflurækt í stór
um stíl í Staðarsveit á Snæfells
nesi. Er henni haldið áfram í sum
ar og nú er einnig að hefjast þar
mikil rófurækt.
Orlofsför
hafnfirzkra
kvenna
FB—Reykjavík, laugardag.
Hafnfirzkar konur munu dvelj-
ast að Laugarskóla í Sælingsdal
í Dalasýslu dagana 31. júlí til
10. ágúst næst komandi. Orlofs-
nefndir Reykjavíkur, Hafnarfjarð
ar og Kópavogs hafa í nokkur ár
haft samvinnu um rekstur orlofs-
heimilis að Laugum í Sælingsdal.
Hefur aðsókn alltaf verið mjög
mikil og konur haft bæði gagn og
gaman að þessari dvöl. Ein
skemmtiferð er farin um dvalartím
ann, annað hvort fyrir Klofning
eða að Reykhólum. Hafa skóla-
stjórahjónin að Laugum, Kristín
Tómasdóttir og Einar Kristjáns-
son, verið fararstjórar. og flutt
afburðaskemmtilega og fróðlega
leiðarlýsingu. Allar konur. sem
veita hemili forstöðu án launa-
greiðslu fyrir það starf, eiga rétt
til orlofs, upplýsingar um ferðina
mánudaginn 13. júlí, á skrifstofu
verkakvennafélagsins, Alþýðuhús-
inu, Hafnarfirði kl. 20.30.
Þrír ungir menn standa aið fé
lagsræktuninni á kartöflum, þeir
Helgi Sigurmonsson, Görðum, Guð
mundur Þorgrímsson, Staðarstað
og Ragnar Jónsson, Brautarholti. í
fyrra settu þeir niður 5 lestir af
kartöfluútsæði og hr.fa í sumar
aukið magnið af útsafði íil -muna.
1 byrjun keyptu þeir vélar íyrir
140 þúsund. Uppskera var góð í
fyrra en þó erfiðleikum bundin því
taka varð megni® af henni upp
með höndum vegr.a bleytu. Hefði
það ekki tekiz': nema fyrir hjálp
barna og unglinga í sveiíinni, sem
fengu fjórðunj uppskerunnar að I
launum. Einn félagsræktenda!
kvaðst fyrir skömmu vera svart- j
sýnn á uppskeru í haust, en illa
gekk að setja niður í vor vegna
kulda og bleytu.
í gær lauk landskeppni fslend-
inga og íra í sundi, en vegna þess
hve blaðið fer snemma í prentun,
er ekki hægt að skýra frá úrslit-
um keppninnar. Eftir fyrri dag
keppninnar höfðu íslendingar
tryggt sér 11 stiga forskot, 71
stig gegn 60 stigum íra, en í blað
inu í gær, var ranglega frá því
skýrt, að 9 stig skildu á milli
eftir fyrri dag keppninnar.
Hátíðarslit fóru fram á Laugar
dalsvellinum síðdegis í gær — og
FramnaiO * bls 14
Nýr bæjarstjóri
í Kópavogi
OÓ—Reykjavík, laugardag.
Björgvin Sæmundsson hefur
verið kjörinn bæjarstjóri í Kópa
vogi. Mun hann taka við því starfi
1. ágúst n.k., en Björgvin hefur
verið bæjarstjóri á Akranesi s.l.
8 ár, en áður var hann bæjarverk
fræðingur þar.
Bæjarstjóraembættið var aug-
lýst og sóttu þrír um það, og var
Björgvin kjörinn á bæjarstjórnar-
fundi með 5 atkvæðum. Hjálmar
Ólafsson lætur nú af starfi bæjar-
stjóra í Kópavogi, en hann hefur
gegnt því starfi s.l. átta ár.
Flestir Reykvíkingar hafa
scnnilega tekið eftir því, að
settir hafa verið upp vinnupall
ar utan um Landakotskirkju.
Pallarnir eru búnir að vera
við kirkjuna í um tvo mán-
uði og verða að líkindum
fram á haust. En þá verður
líka búið að gera við og end
urbæta allt, sem aflaga hefur
farið í veðrum og vindum
þeirra rúmlega 40 ára, sem
NY SIMASKRA
KEMUR í HAUST
FB-Reykjavík, laugardag.
Miklar breytingar verða stöðugt
á símanúmerum manna hér í höf
úðborginni, og út um landsbyggð
ina er sjálfvirkt símakerfi tekið
í notkun með stuttu millibili í
hinum ýmsu bæjum og þorpum.
Af þessm leiðir, að mikil nauðsyn
er á nýrri símaskrá, svo hún geti
verið mönnum sá leiðarvísir, sem
henni er ætlað að vera. Póst og
símamálastjórnin hefur ætlað
sér, að senda út nýja skrá á
hverju ári, og er því væntanleg
símaskrá í september eða október
næst komandi
Við hringdum í Hafstein Þor-
steinsson skrifstofustjóra hjá
Landsímanum og fengum þær upp
lýsingar, að frestur til að senda
inn breytingar varðandi síma-
skrána hefði runnið út 1- júní
síðast liðinn. Er nú unnið kapp
samlega að því að undirbúa endur
útkomu skrárinnar, og ætti hún
að verða komin í hendur símnot
enda með haustinu.
Hafsteinn sagði, að mjög mikið
væri um breytimgar. Fólk filytti
mikið milli staiða í Reykjavík,
enda rísa stöðugt upp ný og ný
íbúðarhverfi. Þá má einnig geta
þess, að verið er að stækka sjálf
virku stöðina við Grensásveg, og
bætast þar við 1000 ný símanúmer.
Símaskráin verður í sama broti
og hún er nú, en eitthvað mun hún
verða meiri um sig, sem eðlilegt
er, vegna aukn'ngarinnar.
Fyrir nokkru kom út götu- og
númeraskrá. Þessi skrá er seld
þeim, sem þess óska, og eitthvað
mun enn vera til af henni hjá
símanum, þótt hún sé mjög vin-
sæl, og seljist yfirleitt fljótt upp.
Þessi götu- og númeraskrá er sér
lega þægileg fyrir til dæmis fyrir
tæki, en almenningur hefur ekki
síður áhuga á henni, og kaupir
hana, að sögn Hafsteins.
Síáttur hafinn
á stöku staö
í Árnessýslu
Stjas-Vorsabæ, laugardag.
Hér hefur verið nokkuð kalt
undanfarið og hefur grassprettan
verið heldur léleg nú siðustu daga.
Sláttur er hafinn á nokkrum baej
um í neðanverðri Árnessýsla, es
annars mun sláttur hér í sýslnuni
ekki alment hefjast, fyrr en eftir
miðjan mánuðinn.
Héraðsmót í Austur-Húnavatnssýslu
Héraðsmót Framsóknarmanna í
Austur-Húnavatnssýslu, verður
haldið að Húnaveri laugardaginn
18. júlí og hefst W. 21.00. —
Nánar auglýst síðar. — Fram-
sóknarfélögin.
Landakotskirkja lagfærð
liðin eru síðan kirkjan var
reist. Viðgerð stendur sem sagt
yfir á allri kirkjunni utan-
dyra. Múrverk verður Iagað,
gert við gluggana og þakið og
turninn lagaður til. Þetta mun
vera fyrsta stóra viðgerðin,
sem gerð er á Landakotskirkju.
Ekki verður gert við kirkjuna
að innan að sinni. (Tímamynd
Gunnar),
I