Tíminn - 19.07.1970, Qupperneq 7
SUNNUDAGUR 19. júií 1970
TIMINN
Ritstjóri: Fríða Björnsdóttir
Chuk og Geck nefnast þessar brúður, sem eru vðrumerkl Kazan verk.
GÆRUM
SKINN
Það mun margt vera hægt
að gera úr íslenzku gærunum,
þótt enn séu þær á engan hátt
nýttar sem skyldi. Víst hafa
þær hlotið viðurkenningu víða
um heim, ea því miður getum
við ekki sjálf fullunnið þær í
nægilega stórum stíl. Nýlega
barst mér í hendur frásögn
frá sovézku fréttastofunni
AIPN, þar sem sagt er frá
stærstu skinnaverksmiðju
heims, Kazan-verksmiðjunni,
þar sem meðal annars er unn-
ið að þvf að breyta gærum i
eftirlíkingar af minkaskinnum,
leopardaskinnum, selskinnum
og fleira. Hér með fylgir mynd
af brúðum, sem ger'ðar hafa
verið úr skinnum frá verk-
smiðjunni, og eru þær skemmti
legar á að líta.
Það er erfitt að gera sér
grein fyrir þvi, þegar hlaðnir
vörubílar flytja úfin gæru-
skinnin inn um verksmiðjuhlið
in, að þau eigi á stuttum tíma
eftir að breytast í undurfögur
*
• •
Opinberir aðilar í Danmörku
beita sér nú fyrir því að orð-
in frú og fröken hverfi af
bréfum og öðru álika. í stað-
in er ætlunin að nota aðeins
stafina fr. I politiken fyrir
skömmu var sagt frá þessari
breytingu, sem á aS vera kom
in til skjalanna árið 1971.
smiðjunnar, stærstu skinnaverksmiðju í heimi.
H.C. Toft innanríkisráð-
★
★
*
BREYTT í MINKA-
mjúk og marglit skinn, sem síð
an eru notuð í alls konar klæðn
að, sem seldur er út um allan
heim, segir m. a. í APN frá-
sögninni.
Skinnin fara af einu verk-
stæðinu á annað, og ótal hend
ur handfjatla þau, og þau fara
í gegnum margs konar vélar,
áður en þau ná því útliti og
þeirri áferð, sem þeim er ætlað
að fá í Kazan-skinnaverksmiðj
unni. Þar vinna um 10 þúsund
starfsmenn, og daglega eru þar
framleiddir um 80 þúsund hlut
ir, t. d. kápur, hattar, slár, jakk
ar og barnakápur.Verksmiðjan
framleiðir til dæmis 8 milljón-
ir af kápum árlega, og 6 þús-
und hatta.
Framleiðsluvörurnar eru ekki
einungis seldar í Sovétríkjun-
um, heldur einnig í Bretlandi,
Þýzkalandi, Svíþjóð og j Ung-
verjalandi, svo nokkur lönd sén
nefnd.
Kazan-verksmiðjan var fyrst
sett á stofn fyrir 40 árum. Á
stríðsárunum 1941 til 194ö sex
faldaðist framleiðslan, og þ&
var lögð megináherzla á að fram
leiða skinnkápur og hatta fyrir
sovézka hermenn. Nú er svo
komið, að þessi verksmiðja,
sem fær hráefni sín hvaðanæva
að úr sovétríkjunum, framleið-
ir fimmta hvern loðskinnshlut,
sem framleiddur er í landinu.
Ætlunin er að framleiðslan auk-
ist um 25% á næstu fimm ár-
um, samkvæmt þeim áætlun-
um, sem gerðar hafa verið.
★
herra hefur gefið loforð um
það í þinginq, að þessir titlar
skuli hverfa af opinberum
skjölum, þar sem þeir hafi
engan sérstakan tilgang. Vorið
1971 verða titlarnir horfnir,
en í stað þeirra komi starfs-
heiti — en við lítum ekki á
orðin frú eða fröken sem slík,
segir Sv. Renstrup starfsmað-
ur Innanríkisráðuneytisins.
★
BLOMIN OG
SUMARFRÍIÐ
EÐA SELSKINN
Sandkassar og keröld undir
sumarblómin í garðinum
Með hverjum deginum, sem
líður, verða garðarnir fallegri
hjá þeim, sem hafa gaman af
blómarækt. En það er í mörgu
hægt að rækta blóm, og bað
getur sett skemmtilegan svip
á garða og stéttar kringum
hús, ef blóm eru ræktuð í ein-
hvers konar kerum eða köss-
um.
Gömlu þvottakörin, eða skol
körin, sem eitt sim, voru til
á hverju heimili, og notuð í
hvert s’nn, sem þveginn var
þvottur, fara ekki með stórt
hlutverk lengur. nú á dögum
sjádfvirkra þvottavéla. Víðast
er líklega búið að koma þeim
fyrir kattarnef. en ef þau eru
enn niðri í kjallara að þvæl-
ast fyrir, eða fylla hjá ykkur
geymslurnar, væri rétt að
draga þau fram aftur. snyrta
bau til eftir þörfum, mála þau
með glaðlegum björtum litum.
eðe láta viðarlitinn halda sér
hafi þau aldrei verið máluð.
Fyllið svo körin af mold,
gjarnan má blanda saman við
hana einhverri möl, eða setja
möl á botninn, og að bvd búnu
skulið þið gróðursetja í þess-
um risapotti falleg sumar-
blóm, eða fjölærar plöntur.
Þennan nýja blómapott get-
io þið svo sett á einhvern
skemmtilegan stað í garðinum
ykkar, á stéttina. ef hún er
nægilegá stór, við innganginn,
eða hvar sem ykkur dettur í
hug. Ef bið fáið leið á þessari
nýju blómaskrevtingu er allt-
af hægt að færa hana til, eða
taka hana alvee í burtu.
Á mörgum heimilum. bar
sem börn eru. hefur einhvern
tínja verið komið fyrir sand-
kassa í lóðinni Börr.in stækka
og hætta að hafa gaman af
sandkassanum. en þá má taka
hann undir blómarækt. ekki
síður en skolkarið gamla. Það
getur verið ótrúlega skemmti-
legt að dunda við að snyrta
þennan litla blómagarð. sem
myndast með bví að nota kass
ann undir blóm.
Það gerir ekkert til, þó eitt
hvað sé eftir af sandi í kass-
anum, þegar þið farið að
planta út í hann. Blandið bara
moldinni saman «18 saudinn.
það á að vera í lagi. ef sand-
urinn er ekki allt of mikill.
Blómaeigendur lenda oft i
vandræðum, þegar þeir ætla
a8 bregða sér í sumarleyfL Sé
ekki einhver góður nágranni
eða ættingi tiltækur til þess
að sjá um blómin, á meðan
þeir eru fjarverandi, geta þeir
aUt eins vel búizt við, að blóm
in séu 511 steindauð úr þurrki.
þegar þeir koma aftur.
Blómaverzlanir hafa haft á
boðstólum nokk'jis konar
blöðrur með stút, sem hœgt
er að fylla af vatni. og stinga
síðan stútnum í moldina.
Rennur þá vatnið smátt og
smátt niður í pottinn, á með-
an eitthvað er eftir í blöðr-
unni.
Annað ráS rakst ég á í blaði
fyrir nokkru. Það er einfalt
og kostnaðarlítið. Sagt er, að
sé betta ráð lotað, eigi blóm-
in að geta komizt af ein og
án vökvunar i tvær til þrjár
vikur. Byrjið á því að vökva
plöntuna rækilega, setjið svo
pottinn niður f plastpoka. og
bindið hann saman rétt fyrir
ofan Dottbrúnipa. Gætið þess
vandlega að blöðin séu öll fýr
ir utan ookann. Á bennan bátt
getur plantan fengið nægileg-
an raka í 15 til 20 daga, eins
og fyrr segir.