Tíminn - 11.09.1970, Blaðsíða 3

Tíminn - 11.09.1970, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR IL september 1970. TIMINN tATA-félög hefja við- ræður um fargjöld: FREKAR ER BÚIZT VIÐ HÆKKUN EN LÆKKUN FAR- GJALDA EJ—Reykjavik, fimmtudag. Á miSvikudaginn hófst fandur rúmlega 90 flugfélaga, sem era virMr aðilar að al'þjóðasamtökun- tm IATA, í Honolulu. Mun fund- urinn standa í am einn mánuð og fjallað verðar þar um fargjöld þau, sem taka eiga gildi 1. apríl næsta ár. Danska blaðið „Berlingske aft- enavis“ segir, að eins og venju- lega sé mikið ósamkomalag ríkj- andi um vaentanleg fargjöld, enda woti mörg flugfélög þá aðferð í áróðurssikyni, að þykjast vilja mikla lækkun fargjalda. f raan og veru vill efckert flug- félag í dag lækka fargjöldin, seg- ir blaðið, þar sem laun og annar rekstrarkostnaður hafa hækkað gífurlega, og ágóðinn minnkar þvi stöðugt. Mörg flugfélbg hafa þegar játað þetta og lýst því yfir, að fargjalda hækiíun sé nauðsynleg. Kemur þama einnig til, að flugvélarnar verða sífellt stærri og dýrari, en alis kyns afsláttarkerfi draga úr tekjam pr. farþega. Þetta er sérstaklega þýðingar- mikið á þýðingarmestu flugleið- inni, þ. e. þeirri yfir Norðar- Atlantshafið. Þar eru alls konar afsláttarkerfi gildandi, og einung- is mjög lítill hluti farþeganna flýg ur á fullu fargjaldi. Blaðið segir, að það liggi í loft ina, að ekki verði am fargjalda- lækkun að ræða að þessu sinni. Hins vegar verði væntanlega reynt að koma betra skipalagi á afslætti þá, sem nú eru í gildi. HAPPDRÆTTI HÁSKÓLANS Fimmtudaginn 10. september 1970 var dregið í 9. flokki Happ- drættis Háskóla íslands. Dregnir voru 4.600 vinningar að fjárhæð sextán milljónir króna. Hæsti vinningurinn, fjórir 500.000 króna vinningar, komu á númer 30828. Voru allir fjórir mið arnir seldir í Aðalumboðinu, Tjarn argötu 4. 100.000 krónur komu á fjóra heilmiða númer 38265, sem allir voru seldir í umboði Frímanns Erímannssonar í Hafnarhúsinu. 10.000 krónur: 165 537 1808 2528 2780 2917 3557 4777 6875 7734 8822 9319 14971 15041 15214 16147 16527 16912 17081 18213 18739 19331 19708 19743 20312 21365 22525 22615 22659 24265 25312 25314 26068 26943 27359 27556 27749 28992 30827 30829 31016 32292 32689 34144 34784 36648 37918 39342 41585 41689 41756 43019 43147 44062 44254 44323 44973 46688 48982 49646 49651 50863 51047 51968 52338 52596 52782 53611 54431 55694 58608 59752. (Birt án ábyrgðar). Aijpjóbasamtök komi í veg fyrir frekari flugvélarán EB—Reykjavík, fimmtudag. Fundi stjórnmálanefndar Evr- ópuráðsins, sem haldinn var í Al- þingishúsinu, lauk á hádegi í dag. Nýtt mál á dagskrá var tekið upp á fundinu í morgun — var það flugvélaránin síðustu daga, sem svo mjög eru lcunn af fréttum. Var biaðamönnuim afhent álykt- un frá fundinum um máflð þar sem segir m.a.: Að nauðsynlegt sé að a.'þjóðasamtök taki þetta mál föstum tökum og ákvarði hvað gera skuli til þess að koma í veg fyrir að áframhald verði á þessum hörmuiegu atburðum. Er í því sambandi vísað á SÞ og öryggis- ráð þess. Þau mál önnur sem voru rædd á fundinum var stækkun EBE með hliðsjón af stjórnmólategri ein- ingu V-Evrópu. Þá um bætt sam- skipti milli austurs og vesturs eink um í sambandi við Þýzkalandssamn inginn sem eins og kunnugt er var ganður fyrir skömmu. Einnig var rætt um afstöðuna til Bandarikja N-Ameríku með stjórnmála- lega einingu V-Evrópu í huga. Þessi fundur var til undirbún- Lngs fyrir ráðgjafaþing Evrópuráðs ins sem kemur saman í Strass- borg í Frakklandi þann 20. n.k. Drög að stjórnmái’ayfirlýsingu þingsins var geirð á þessum fundi, en ekki verður hún þó fiullbúin fyrr en eftir annan fund stjórn- málanefndar Evrópuráðsins, sem haldinn verður í næstu viku. OÓ—Reykjavík, fimmtudag. fsvél sem framleiðir ís úr sjó hefur verið til prófunar í v.b. Ásgeiri Kristjánssyni SH undan- farna mánuði og reynzt ágætlega. Þetta mun vera fyrsta vélin um borð í íslenzku skipi sem framleið ir ís úr óblönduðum sjó. Að sögn þeirra sem til þekkja. fylgir mikil hagkvæmni þessari framleiðsluað- ferð og er hægt að geyma fiskinn lengur um borð í veiðiskipunum án þess að hann skemmist, sé hann geymdur í sjávarís, en ís sem eingöngu er framleiddur úr vatni, auk þess sem mögulegt er að fram leiða ísinn um borð í skipunum án þess að þurfa að eima sjóinn fyrst Vélin um borð í Ásgeiri Krist- jánssyni afkastar 3 smálestum á sólarhring. Fiskurinn hefur verið geymdur í sjávarisnum í allt að sjö sólarhringa, og reynzt algjör- lega óskemmdur eftir þapn tíma. Á næstunni verður gerð tilraun til að geyma fisk enn lengur í sjávarísnum, en talið er fullvíst að geymsluþolið sé enn meira, en sé fiskurinn ísaður með vatnsís. Sjávarísinn er auðveldari í notkun. Til dæmis rennur hann ekki sam- an í hellu eins vatnsís gerir við geymslu, jafnvel þótt hann sé geymdur í ókældri lest. Sjávarís- inn er mun fíngerðari, svolítið krapfcemmdur og kælir fiskinn fljótt. Verð á þeirri stærð ísvélar sem er um borð í Ásgeiri Kristjáns- syni kostar tæpa milljón króna. Eigendur bátsins eru Guðmund ur Runólfsson og Björn Ásgeirs- son, sem jafnframt er skipstjóri. Er hann gerður út frá Grundar- firði. Er þeir kynntu blaðamönn- um, þessa aðferð til ísframleiðslu og árangur þann sem náðst hef- ur. sögðu þeir að þessi tegund íss ætt örugglega eftir að ryðja sér til rúms í íslenzkum fiski-1 Vélarnar eru framleiddar hjá skipum, svo marga kosti hefði Longwood Industries Inc., Long- sjávarísinn fram yfir þann sem wood. FLa. en SKOKIE INTER- yfirleitt er notaður. | Framhald á bls. 10 Frystlvélin om borð í Ásgeiri Kristjánssyni. Hjá henni stendur C. Lipsey verkfræSingur, sem starfar hjá verksmiðjunni sem framleiSir sjávar- ísvélarnar. (Timamynd G.E.) Stjórnmálanefnd EvrópuráSsins á fundi með blaðamön num í Alþingishúsinu í gær. Við endann situr Oliver Reverdin forseti ráðgjafaþings Evrópuráðsins. (Tímamynd G.E.) Fundur stjórnmálanefndar Evrópuráðsins SJAVARIS FRAMLEIDDUR UM BORÐ 3 Skrítin ábyrgðar- kennd Tíminn liefur að undanförnu bent á það me'ð ýmsum rök- um, hve landbúnaðarstefna sú, sem núverandi ríkisstjórn hef- ur haft, er fráleit og hættuleg að því leyti, að hún er jafn- óhagkvæm neytendum sem bændum. Tíminn er ekki einn um þessa gagnrýni, heldur er hún beinlínis frá samtökum bænda sjálfra komin og einnig neytendum. Meginþráður þess- arar röngu stefnu er sá, að láta allar hækkanir framleiðslu kostnaðar fara beint út í verð- lagið en gera aldrei ráðstafanir til þess að lækka framleiðslu- kostnaðinn og veita landbún- aðinum stuðning á framleiðslu- kostnaðinn. Þetta er ómenguð dýrtíðarstefna, sem hert er á með því að nota sölu brýnustu, innlendu neyzluvara sem sölu- skattsstofn á borð við hvaða viðskipti önnur, sem er. Þegar Tíminn bendir á, að Framsóknarmenn liafi hvað eft- ir annað reynt að sveigja þessa stefnu til meiri skynsemi með tillöguflutningi á Alþingi og gerir ríkisstjómina alla, Al- þýðuflokkinn líka, ábyrgan fyr- ir þessari stefnu, ætlar Alþýðu- blaðið að ganga af göflunum og segir að Alþýðuflokkurinn beri enga ábyrgð á þessu, heldur sé það Framsóknarflokkurinn, sem ráðið hafi stefnunni í landbún- aðarmálum síðasta áratuginn og beri ábyrgð á henni. Af þessu tilefni er ástæða til að spyrja, live lengi ráð- herrar og þingflokkur Alþýðu- flokksins þurfi að fara með vald í ríkisstjórn til þess að sanngjarnt sé að telja að þeir beri ábyrgð á stjórnarstefn- unni. Skyldi annar áratugur duga til? Röksemdafærsla Al- þýðuhlaðsins er á þessa lund: Alþýðuflokkurinn, sem stend- ur að stjórnarmeirihlutanum, má fella allar tillögur Fram- sóknarmanna á Alþingi um breytta stefnu í landbúnaðar- málum í tíu ár, en eigi að síð- ur her Framsóknarflokkurinn alla ábyrgð á stjórnarstefnunni þennan sama áratug, sem hann hefur verið í stjórnarand- stöðu . Ábyrgðartilfinning Alþýðu- flokksins hefur ætíð verið nokk uð smáskrítin — ekki batnar Gylfa enn. Mengjafræði Morgunblaðsins Morgunblaðið er mikið og gott fréttablað eins og það seg- ir sjálft. Því til sönnunar er frásögn blaðsins af frægum fundi, sem haldinn var hér i borg í fyrradag, og önnur blöð hafa sagt töluvert frá. Gefum Mbl. orðið. Fréttin er svona í heild, takið eftir — i HEILD: „í fyradag boðuðu þrír lög- fræðingar, þei» Bjarni Bein- teinsson, Böðv;>r Bragason og Sigurður Líndnl nokkra Iög- fræðinga í bo/ginni til fund- ar. í fundaftok undirritaði hluti fundarmaúna áskorun til forsætisráðberi'a um að hann legði til við þingflokk Sjálf- stæðisflokksins, að Gunnar Framhald á bls. 10

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.