Tíminn - 11.09.1970, Page 10
10
TÍMINN
FÖSTUDAGUR 11. september 1970
Framsóknarfélag
Garða- og Bessa-
staðahrepps
Heldur félagsfund í Garðatúni
n. k. föstudagslcvöld kl. 20. Dag-
skrá: 1. Skoðanakönnun. 2. Vetrar-
starfið. 3. Önnur mál.
Félagsmenn eru hvattir til að
fjölmenna. — Stjórnin.
Skoðanakönnun í
Reykjaneskjördæmi
26.-27. september
Frestur til að setja menn á fram
boðslista fyrir skoðanakönnunina
er til 15 septembor. Skoðanakörm-
un fer fram helgina 26.—27. sept-
ember.
Yfirkjörstjórn tilkynnir síðan
hversu marga daga sjálf skoðana-
könnunin stendur, hvar kjörstaðir
verða og fleiri framkvæmdaatriði
varðandi skoðanakönnunina. Verð-
ur nánar sagt frá þeim atriðum í
blaðinu síðar.
Verkir, þreyta í baki ?
DOSI belfin hafa eytt
þraufum margra.
ReyniS þau.
R
EMEDIA H.F
LAUFÁSVEGI 12 - Siml 16510
Vinna
Vantar einn mann, sem er
bifvélavirki, eSa sem er
vanur akstri og viðgerSum.
Hefi húsnæði fyrir fá-
mennan. Meðmæli óskast
send á B.S.Í., Reykjavík,
sími 22300.
Ólafur.
ENSKIR
RAFGEYMAR
fyrirliggjandi
LONDON BATTERY j
Lárus Ingimarsson, j
beildverzlun
Vitastlg 8 a Siml L6205 i
Héraðsmót Fram-
sóknarmanna á
Bolungarvík
Héraðsmót Framsóknarmanna í
ísafjarðarsýslu verður haldið í
Bolungarvík laugardaginn 12. sept
ember og hefst kl. 9 síðdegis.
Ræður flytja Steingrímur Her-
mannsson og Halldór Kristjáns-
son. Skemmtiatriði annast Jör-
undur GuðmUndsson og Jón Krist
jánsson- Hljómsveit Ásgríms Sig-
urðssonar og Kolbrún leika.
Steingrímur Halldór
Kjósarsýsla
Framsóknarfélögin í Kjósar-
sýslu halda almennam félagsfund
að Fólkvangi, laugardaginn 12.
september k.\ 2 e.h. Guðmundur
Guðmundsson, erindreki kemur á
fundinn. Umræður verða um
skoðanaköninun. Stjórnirnar.
Prófkjör
Framhald af bls. 16.
framsóknarfélags þess byggðar-
lags, sem þeir eru staddir í og fá
vottorð hjá honum, sem fylgja skal
atkvæði viðkomandi kjósenda.
Sýnishorn aí kjörseðli með nöfn-
um þeirra 10 manna, sem boðnir
hafa verið fram í skoðanaköitnun-
ina, verður birt í Tímanum á laug
ardag, og geta þeir, sem kjósa úti
á landi notað það sýnishorn sem
kjörseðil, eða ritað nöfnin á sér-
stakt blað. Skal atkvæðaseðillinn
settur í sérstakt lokað umslag, sem
sí'ðan skal sett í annað umslag
ásamt uppl. um kjósandann (þ.e.
nafn, fæðingadag og ár og lög-
heimili) og vottorð félagsfor-
manns. Atkvæði skal síðan sent
til „Uppstillingamefndar, Hring-
braut 30, Reykjavík“.
Athugið, að kjósa verður sex
nöfn, hvorki færri né fleiri. Ann-
ars er atkvæðaseðillinn ógildur.
Kal
Framhald af bls. 1
anförnum árum á kali og kalþoli
jurta.
Um varnir gegn kali segir
hann:
„Hér að framan hef ég drepið
á ýmsa þá þætti, sem ég tel stuðla
að kali. Hef ég reynt að sýna
fram á hvaða þekking hefur áunn-
izt við rannsóknir og athuganir á
kali síðustu ára og hvernig saman-
burður á ræktunaraðferðum og
misjafnri meðferð túna hefur leitt
í Ijós, að þekkjanlegar ræktunar-
og líffræðilegar orsakir eru fyrir
því, að tún kelur mismikið, enda
þótt tjónið megi vitanlega fyrst
Innilegar þakkir fyrir samúS og vlnarhug vlS andlát og jarSarför
Guðrúnar Gestsdóttur,
StóragerSI 19
Fyrir hönd vandamanna
Ásdís Eystelnsdóttir,
og fremst rekja til veðurfræði-
legra áhrifa.
Þessi þekking veitir okkur
ýmsa möguleika til þess að leita
úrbóta á vandamálinu.
Viðbrögð okkar eru af þremur
þáttum spunnin.
1. Hvernig má koma í veg fyrir
kal?
2. Hvernig á að /meðhöndla
kalnar sléttur?
3. Hvað má rækta til fóðurs í
stað þess ,sem áætlað var að feng-
ist af hinu kalna landi?
Val túnstæða.
Leitazt skal við að beina rækt-
un að þeim hlutum landsins, þar
sem kaltjóna gætir minnst. Rækta
skal framur myldinn og sendinn
jarðveg en leirkenndan jarðveg og
mýrlendi, þar sem því verður við
komið.
Yfirborð.
Hugsanlegt er að taka upp nýja
gerð af beðasléttum, það er breið-
ar ávalar skákir, til þess að yfir-
borðsvatn eigi greiðan aðgang til
afrennslis. Varast ber að skilja
eftir skurða ruðninga á útjöðrum
sléttunnar.
Raki.
Þýðingarmikið er að hafa ræs-
ingu góða, sem tekur fljótt við
vatni úr jarðveginum og þurrkar
hann ört. Þurrum jarðvegi er síð-
ur hætt við kali. Hér ættu því lok
ræsi og kílræsi að koma að góð-
um notum, svo og ýmis hugsan-
leg niðurföll í sléttum.
Jarðvinnsla og áburður.
Kornastærð og holurými má ef
til vill ekki raska um of með of
mikilli jarðvinnslu. Og áburðar-
gjöf þarf að miða við þol jarta
jafnt og uppskeruaukningu þeirra.
Því verður að stilla köfnunarefnis-
gjöf í hóf miðað við steinefni.
Sáning og gróðurfar.
Leitazt skal við að sá grasteg-
undum, sem eru harðgei-ðar jafnt
oa uppskerumiklar.
Sláttur og beit.
Eðlilegt virðist að hlífa jurtun-
um við seinum slætti og mikilli
haustbeit, vegna þess að hvort
tveggja virðist heldur auka kal-
hættu og einnig rýra uppskeru ár-
ið eftir. Þetta atriði tel ég þó vafa
samt að leggja mikla áherzlu á,
þar sem sú staðhæfing er studd
alltof fáum athugunum.
Viðvíkjandi öðru atriðinu í með-
ferð túna, þ. e. hvernig á að með
höndla kalnar sléttur skal þetta
tekið fram, Ráðleggja mætti að
fara yfir holklakabletti með létt-
um valta snemma á vorin þar sem
um rótarslit er að ræða. Rétt er að
slá þann gróður snemma og oft,
sem kemur upp úr kalskellum þótt
hann kunnl að vera gisinn og lítill
heyfengurinn. Örvar það renglu-
myndun þeirra grastegunda, sem
lifað hafa kalið, og varnar þvi, að
illgresi, sem er mikill vágestur
í kalskellum, nái að fella fræ.
Endurvinnsla. sáning
Séu kalskellur stórar og gróð-
urlausar er ekkert annað ráð en
að rífa þær upp. hvort heldur er
með smáherfi eða plógi og sá i
þær harðgerðu grasfræi að nýju.
Viðvíkjandi þriðja atriðinu, það
er fóðuröflun kalsumarið, eru
ýmis ráð til úrbóta, eins og mönn
um eru kunnug, en að rækta skal
einærar jurtir tii skyndifóðuröfl-
unar. eru rýgresi, hafrar, bygg og
káltegundir vænlegastar til upp-
bóta fyrir það. sem á vantar af
r' 5ri sökum kaltjóns.
Nauðsyn á auknum kal-
rannsóknum.
Hér hef ég rætt lauslega nokk
ur ráð til varnar o? úrbóta kali.
Vandamálið er þó langt frá því
að vera auðvelt viðfangs, sumpart
af tæknilegum ástæðum eða fjár-
hagslegum, sumpart vegna þess að
ráðstafanir til kalvarna vinna gagn
stætt au'kningu á uppskerj (svo
sem val gróskumikilla suðrænna
grastegunda og mikil notkun köfn-
unarefnisáburðar) og ekki sízt
vegna þess að enn skortir okkur
mikið á að vita til hlítar orsakir
kals svo og ráð til varnar og úr-
bóta.
Okkur ber því nauðsyn til að
efla rannsóknir á þessu sviði.
Alþjóðasamtök
Framhald af bls. 3.
NATIONAL, Evanston, 111., sjá
um sölu þeirra í öllum löndum
utan Bandaríkjanna. Umboðs-
menn hérlendis eru Ingólfur
Árnason h.f.
Verksmiðjan býr nú einnig til
stærri ísvélar, svo sem 5,8 og 10
smálesta (afköst á sólarhring).
eÞssar stærri vélar eru þannig
byggðar, að þjöppurnar geta ver
ið í vélarrúmi, stjórntækin og
sjálfvirkir öryggisrofar í brú, en
frystihólkarnir í lestarrúmi. Við
þetta sparast mikið rúm og þann
ig tekur frystingin aðeins 1—1 Va
rúmmetra í lest þegar um 5 smál.
ísvél er að ræða, en 8 og 10 smál.
vélar hlutfallslega meira.
Allar eru vélargerðirnar full-
komlega sjálfvirkar og frysta ís-
inn úr óblönduðum sjó.
Á VÍÐAVANGI
Tlioroddsen, hæstarréttardóm-
ari, yrði skipa'ður í embætti
dómsmálaráðherra. í gær bætt-
ust nokkrir lögfræðingar í
hóp þeirra, sem undirrituðu
áskoninina, og var hún aflient
forsætisráðherra í gær.“
Hér skortir ekkert á nákvæm
an fréttaflutning, eins og allir
sjá. Önnur blöð eru að nefna
ákveðnar tölur, svo sem 60,
en Mbl. beitir háþróaðri reikn-
ingstækni. eins konar bók-
stafarcikningi, eða öllu frem-
ur mengjareikningi, til þess að
komast að hárréttri niður-
stöðu, þar eru fundarmenn
„nokkrir Iögfræðingar“, og
„hluti fundarmanna" undirrit-
aði áskorunina, og síðan bætt-
ust „nokkrir lögfræðingar“ í
hópinn eftir fundinn. Dæmi
Mbl. er því:
X ~ Y + X =
Gunnar Thoroddsen
dómsmálaráðherra.
Og nú eru Sjálfstæðismenn
byrjaðir að reikna dæmi Mbl.
Fyrra X er fundarmenn,
„nokkrir lögfræðingar”, Y er
sá hluti, sem út gekk, seinna
X þeir, sem bættust við á eft-
ir. — AK
Fræðsluskrifstofur
Framhald af bls. 1
sem dvelja verða vi® skólanám
fjarri heimili sínu.“
Þá var fjallað í ályktun um
rekstrarkostnað skóla, og segi rþar
eftirfarandi:
„Landsþingið leggur áherzlu á
nauðsyn þess, að nú þegar verði
sett reglugerð um rekstrarkostnað
skóla skv. 1. nr. 49/1967, þar sem
skírt sé kveðið á um skiptingu
kostnaðar milli ríkis og sveitarfé-
laga. Landsþingi® leggur sérstaka
áherz.'u á. að ríkissjóður greiði
eðlilegar kennslukostnað að fullu,
þótt fámenni einstakra byggðar-
laga hafi í för með sér óhagstæða
deildaskiptingu Einnig telur lands
þingið fráleitt, að kennsluafslátt-
ur skólastjóra skuli skerða rétt
sveitarfélaga til kennslulauna úr
ríkissjóði, svo og að ríkið greiði
ekki að hálfu sjálfsagða heilbrigð-
sb.iónustu, eins og tannlækningar.'1
Á þingimi var staðfest sú álykt-
un stjórnar sambandsins, að gera
Karl Kristjánsson að heiðursfé-
laga þess í viðurbenningarskyni
fyrir margþætt störf hans að
sveitarstjórnarmálum um hálfrar
aldar skeið.
I dag fór fram stjórnarkjör, og
kjörin stjórn sambandsins næstu
fjögur árin. Aðalmenn voru kjörn-
ir Páll Líndal, horgarfögmaður,
formaður. Ólafur G. Eimarsson,
sveitarstjóri, Ölvir Karlsson, odd-
viti, Bjarni Einarsson, bæjarstjóri
og Gyifi ísaksson, bæjarstjóri.
Varamenn voru kjörnir Jón G.
Tómasson, skrifstofustjóri, Björg-
vin Sighvatsson, bæjarfulltrúi,
Kristinn Ó. Guðmundsson, bæjar-
stjóri, Pál’ Diðriksson, oddviti og
Þórður Benediktsson, hreppsnefnd
armaður.
Fasteignaskattar
Framhald af bls. 16.
gildandi útsvarstiga er nauðsyn-
legt að gera aðrar hreytingar á
álagningu útsvara, er leiði til rétt
látari skattlagningar. Stefna ber
að því, að reglum um vaxtafrá-
drátt einstaklinga verið breytt
þannig, að hann nái aðeins til
veðlána vegna íbúðabygginga, þ. e.
a. s. veðdeildarlána, lífeyrissjóðs
lána og annarra Miðstæðra lána.
Svo og vaxta vegna atvinnurekstr-
ar. Allur annar. vaxtafrádráttur
verði afnuminn í áfömgum á vissu
árabili. Reglur uim frádrátt vegna
atvinnutekna giftra kvenna verði
endurskoðunar með það fyrir aug
um að gera þær réttlátari með
tilliti til skattlagningar allra ein-
staklinga, án tillits til kyns og hjú
skaparstöðu. Þó ber að hafa í huga
sérstakar aðstæður, þar sem árs-
tíðarbundin þátttaka giftra kvenna
í framleiðslustörfum er almenn
og nauðsynleg vegna atvinnuhátta."
Handrit
Framhald af bls. 1.
var á íslandi, að handritin kæmu
aftur til landsins, var öllum kirkju
klukkum landsins hringt. Að þessu
sinni verður íagnað enn á ný.
Þetta er nefnilega heimsviðhurð-
ur. Ali’sstaðar í heimiwuim eru
styrjaldir og ófriðuir. Danmörk er
eitt þeirra fáu ríkja í heiminum,
sem geta sýnt fordæmi um fórn-
ariund til þess að skapa gott sam-
band milli tveggja ríkja. Við höf-
um áður fyrr fairið iíla með ís-
land. Nú höfum við tækifæri til
að bæta fyrir þetta. Það mtm
vekja athyg.fl um allan heim.
Begtrup lagði einnig áherzlu á,
að Danir ættu aið halda fast við
réttindi sín, en Islendingar hafi
lofað dönskum vísindaimönnum for
gangsirétt við rannsóknir á hand-
ritunum hér heima.
Begtrtíj var í Kaupmannahöfn
meðan á heimsókn forseta íslands
dóð, og hún segir í viðtalinu, að
það hafi verið góð heimsókn. Bend
ir hún sérstaklega á þýðingu þess,
að forsetinn lagði blómsveig að
kistu Kristjáns konungs X í dóm-
kirkjunni í HróarskeMu. Sá at-
burður hafi verið þýðingarmikið
tákn um bætta sambúð Islands og
Danmerkur.
Liðsforingjarnir
Framhald af bls. 1
hafi óskað eftir lausn með sæmd
úr sjóhernum, og að þeir hafi á-
stæðu til að æt.’a, að sú ósk verði
tekin til greina. Er augljóst, a® á
meðan þeir eru undir heraga, geta
þeir engu við þetta bætt.
Hins vegar virðist augljóst af
öllum málavöxtum, að hér er að-
eins um aðra aðferð yfirmanna á
Keflavíkurflugvel.'i til að losna
við fimmmenninganna, og reyndar
auðveldari aðfer®, en sú fyrri,
því mál þetta hefur farið þannig í
meðförum yfirmanna á Keflavíkur
flugvel.’i, að erfitt hefði reynzt
fyrir þá að komast út úr því
skammlaust.