Tíminn - 17.09.1970, Side 3

Tíminn - 17.09.1970, Side 3
> FHMTTJDAGUE 17. september 1970 TIMINN 3 Spansktlugan til styrktar húsbyggingasjóöi LR Sendiherra ísraels á íslandi: Segir ísraeS ekki vilja ræða deilumálin á Allsherjarþingi EB—Reykjavílc, þriðjudag. Ayigdor Dagan sendiherra fsra- els á fslandi er nú staddur hér á landi, til þess að skýra íslenzku ríkisstjórninni frá afstöðu fsra- elsstjórnar, tU ýmissa mála, sem , líklegt er að um verði rætt á I Allsherjarþingi SÞ í haust. Ræddi sendilierrann í dag við fréttamenn og sagði m. a. að ísraelsstjóm vildi ekki, að deilu- mál hennar við Araharíkin yrðu rædd á Allsherjarþinginu. Sagði hann afstöðu ísraels byggjast á því, að umræður um þessi mál á þinginu myndu spilla fyrir sátta tilraunum Gunnars Jarring. Þá lagði sendiherrann áherzlu á, að ísraelsstjórn teldi áætlun Rog- ers utanríkisráðherra Bandaríkj- anna að koma á friði fyrir botni Miðjarðarhafs jákvæða. — Sendi- herrann fór hörðum orðum um flugvélarán Palestíun .skæruliða. Vitnaði hann í því sambandi til orða Halldórs Laxness þar sem hann segir í grein um eyðingu þorps í Bæheimi á heimsstyrjaldarárun- trm síðari áð „sú hönd sem lyft er gegn varnarlausu fólki sé dæmd“. Sagði sendiherrann að reikna mætti með að róttæk öfl í Arabaríkjunum myndi vinna að því með öllum tiltækilegum ráð- tim að torvelda allar friðarviðræð ur. Avigdor Dagnan hefur aðsetur í Osló. Hann hefur áður komið hingað til lands á árinu, var það í aprílmánuði. Hásetahlutur 200 þúsund Norðursjó KJ-Reykjaví'k, miðvikudag. f dag seldu fimm síldarhátar síld í Danmörku, í Skagen og Hirtshals, en að undanförnu hafa síldarbátar aflað vel í Norðursjó, og mun hásetahlutur á sumum bátunum eftir tvo og hálfan mán- uð vera orðin um tvö hundruð þúsund krónur. Harpa seldi 1706 kassa fyrir 105 þúsund danskar kr., . Fífill seldi 1694 kassa fyrir 97 þúsund danskar krónur, og seldu þessir bátar í Hirtshals. Þá seldi Súlan í Skagen 2.332 kassa af síld fyrir 128 þús. d. kr., en auk þess gúanó og makríl fyrir 6.300 d. kr. Óskar Halldórsson seldi einnig i Skagen 1219 kassa af síld fyrir 75 þús. d. kr. og makríl og gúanó fyrir 750 krónur danskar. Afhenti trúnaðarbréf Nýskipaður ambassador Sovét- ríkjanna Sergei Timofeyevitch Astavin afhenti nýlega forseta ís- lands trúnaðarbréf sitt í skrifstofu forseta í Alþingishúsinu að við- stöddum utanríkisráðherra. Síðdegis þágu ambassadorinn og kona hans heimboð forsetahjón- anna að Bessastöðum ásamt nokkr um fleiri gestum. Svo sem kunnugt er, frumsýndi Húsbyggingasj óður Leikf élags Reykjavíkur Spanskfluguna eftir Arnold og Bach nú fyrir skömmu. Mikil stemning var á frumsýning- unni, hlátursköllunum ætlaði aldrei að linna og glöggt mátti siá, að sýningargestir kunnu enn vel að meta gömlu farsana frá sokkabandsárunum hans afa með- an rómantíkin lá enn í loftinu. Sýningar á Spanskflugunni hafa legið niðri nú nokkur kvöld vegna anna leikaranna við Kristihald KJ-Reykjavík, miðvikudag. Um hálf átta í gærkvöldi kom varðskipið Óðinn að togara, setn mældist 1,7 sjómílur fyrir innan fiskveiðitakmörkin SV frá Hval- bak, og reyndist þetta vera Aber- deentogarinn Ben Gulvain A 751, sem þarna var á togi með stjóm- borðsvörpuna úti. Að því er Gísli Einarsson full- Umdæmismót Fjögra daga umdæmismót Votta Jehóva, sem ber stefið: „Menn góðvildar“, hefst í ríkissal Votta Jehóva að Brauta'rholiti 18 kl. 14,45, 17. september. Þar sem vottar Jehóva búast við að á þriðja hundrað manns muni sækja mótið, heldur mótið áfram 18. sept. í stærri sal í Templarahöl'- inni, Eiríksgötu 5, Rvík og lýkur þar þann 20. þ.m. Vottar Jehóva hafa lagt hart að sér undanfarna mánuði við að skipuleggja og undirbúa mótið, svo að allt geti farið fram með reglu og orðið áheyrendunum til uppbyggingar Meða.' annars hafa þeir leikrit, sem verður sýnt á föstudaginn, frá dögum Esterar drottningar og Ahasverusar Persa konungs. Þeir hafa leigt búninga og saumað aðra svo að allt mætti vera sem eðlilegast. Annað leikrit verður sýnt á laugardagskvöldið undir Jökli. Við sýningar á Spansk flugunni ríkir gamli áhugamanna- andinn, því allur ágóði af sýning- unum rennur í Húsbyggingasjóð L. R., og mottóið er enn sem fyrr: VIÐ VILJUM BYGGJA LEIK- HÚS. Leikarar í Spanskflugunni eru Brynjólfur Jóhannesson, Gísli Hall dórsson, Steindór Hjörleifsson, Auróra Halldórsdóttir, Margrét Ólafsdóttir, Kristinn Hallsson, trúi sýslumanns á Eskifirði, sagði Tímanum í dag, þá segir Þröstur Sigtryggsson, skipherra á Óðni í skýrslu sinni, að 'ákipstjórihn á togaranum hafi ekki talið sig vera fyrir innan fiskveiðilínuna. Þá segir í skýrslu Þrastar, að hvorki klukkum né radartækjum togar- ans og varðskipsins hafi borið saman. Votta Jehóva um unglingavandamál og þá örð- ugleika sem þeir verða að glíma við. Bæði ungMngum og foreldr- urn er sýnt með góðum dæmum, hvernig hægt er að bregðast við slíkum vandamálum og sigrast á þeim með því að nota holl og sígild ráð Bib.'íunnar. Hámark mótsins verður á sunnud.; opin- beri fyrirlesturinn: „Björgun mannkynsins með hætti ríkisins." Vottar Jehóva hafa líka gert ráðstafanir til að taka á móti öll- um þeim fjölda gesta, sem vitað er að muni kpma á mótið utan af landi. Til þess að gera öl.'um kleift að vera á mótinu allan tíman mun vera hægt að kaupa mat og hress- ingar fyrir vægt verð á mótsstaðn- um. Eins vilja Vottar Jehóva líka bjóða alla menn, sem hafa áhuga á Biblíunni og bib.'iulegum mál- efnum velkomna á mótið. Helga Stephensen, Ásdís Skúladótt ir, Hrafnhildur Guðmundsdóttir, Jón Hjartarson og Sigurður Karls son. Leifcstjóri er Guðrún Ás- mundsdóttir. Inn j Spanskfluguna er víða ofið söngvum og tónlist og er það allt verk Magnúsar Pét urssonar, sem jafnframt er undir- leikari. Næsta sýning á Spanskflugunni verður í Austurbæjarbíói laugar- dagskvöldið 19. sept. kl. 11.15. Miðnætursýning. Mál skipstjórans, sem heitir Allan Grimmer og er 54 ára gam all, verður tefcið fyrir í sakadómi Súður-Múlasýslu kl. 8 í kvöld. Dómforseti er Gísli Einarsson, en meðdómendur skipstjórarnir Steinn Jónsson og Vöggar Jóns- son. Sækjandi i málinu er Jónatan Sveinsson fulltrúi saksóknara rík- isins, en verjandi Ragnar Aðal- steinsson. Dómtúlkur er Hilmar Foss. Framsóknarkon- ur Reykjavík Félag Framsóknarkvenna vill vekja athygli á, að tekið er á móti inntökubeiðnum í félagið á skrifstofu Fram- sóknarflokksins, Hringbr. 30. Sími 24480. Nýjar skýringar við Lestrarbók handa gagnfræðaskólum Ríkisútgáfa námsbóka hefur ný- lega gefið út í nýrri og endurskoð aðri útgáfu Skýringar við Lestrar- bók handa gagnfræðaskólum, IV hefti. Höfundar eru Árni Þórðar- son, Bjarni Vilhjálmsson og Gunn ar Guðmundsson. , í hefti þessu er reynt að skýra þau orð og orðasambönd, sem taiið er vafasamt, að unglingar skilji og sums staðar skotið inn stuttum greinum til að tengja efn- isþráð og auðvelda sfcilning á les- köflunum. Þá er einnig í heftinu fjöldi teikninga til að skýra merkingu þeirra orða, sem óhægt er að skýra með orðum einum. Enn fremur eru stuttar greinar um hvern þeirra höfunda, sem verk eiga í IV. hefti Lesbókar, ásamt myndum af þeim. AVIÐA 11 Snjall rökfræSingur Það bar helzt til tíðinda á vígstöðvum Alþýðublaðsins í gær, að Gylfi sprakk. Hann skrifar þar langa grein, sem hcitir „Landbúnaðarstefnan". Sú grein er eitthvert hið merki legasta plagg, sem maður með ráðherratitil hefur látið frá sér fara, og hafa vart sézt aðrir eins fimleikar í rökfræði — allir í því fólgnir að fara í gegnum sjálfan sig. Gylfi segir: „Allir, sem eitthvað þekkja til íslenzkra þjóðmála, vita, að grundvallarstefnan í íslenzkum landbúiiaði hefur verið óbreytt í áratugi“. Þetta scgir Gylfi til þess að „sanna“, hve fráleitt það sé, að hann og ríkisstjórnin beri nokkra ábyrgð á þessari land- búnaðarstefnu. Athugum nú þessa röksemdafærslu. Segjum sem svo, til þess að setja dæm ið upp með réttum líkum, að þetta sé rétt hjá Gylfa. En livernig getur það firrt hann og ríkisstj. ábyrgð á þessari stefnu síðasta áratuginn? Ríkisstjórn á auðvitað ekki nema tvo kosti um stefnu, sem ríkt hef- ur. Annan þann að breyta henni, ef hún telur hana ranga, hinn að halda henni, gera hana þar með að sinni og taka og bera fulla ábyrgð á henni. Ríkisstjórnin getur ekki setið í tíu ár og þvegið síðan hendur sínar á eftir, með því að segja: Ég ber enga ábyrgð á þessu, af því að þetta er sama stefnan og áður. Maður, sem beitir svona rök- semdafærslu þyrfti að fara í smábarnaskóla. Breytt „frá grunni" Auðvitað fer Gylfi í gegnum sjálfan sig í næstu andrá og fer að hamast við að sanna, að landbúnaðarstefnunni hafi verið gerbreytt! Hann segir: „En staðreyndin var sú, að nauðsynlegt var að endurskipu leggja stofnlánastarfsemina í þágu landbúnaðarins frá grunni og var það gert ..." Þarna fór röksnillingurinn glæsilegt heljarstökk. Hann er að lýsa því, að einum megin- þætti landbúnaðarstefnunnar, sem hann sagði alveg óbreytta, sjálfri stofnlánastarfseminni, hafi verið gerbreytt „frá grunni“! Svona fimleikar eru ekki til sýnis á hverjum degi. Auðvitað er það fráleitt, að landbúnaðarstefnan hafi ekki breytzt. Áður var reynt með öllum ráðum að lækka fram- leiðsluknstnað varanna, og forð ast að kostnaðarhækkun færi beint út í neytendaverðlagið. Nú er hið gagnstæða kappkost að eins og bezt sést á því, að niðurgreiðslur eru enn sama krónutala og 1960, þótt fram- leiðsluverðið hafi margfaldazt í óðadýrtíðinni. Er offramleiðsla búvara? Loks segir röksnilliráðherr- ann og hækkar róminn: „Of- framleiðsla er orsök alls vand- ans“. Og nú spyrja menn: Er FramhaJ.i a bls 14 Sumir járniðnaðarmenn, sem voru í Svíþjóð LENDA í TVÍSKÖTTUN EJ—Reykjavík, miðvikudag. Nokkur brögð hafa verið að því, að járniðnaðarmenn, sem starfað hafa í Svíþjóð, hafi orð ið fyrir tvísköttun. Þar sem staðgreiðsla skatta er fram kvæmd í Svíþjóð, voru skatt- grciðslurnar teknar af laun- um þeirra þar úti jafnóðum. Sumir þeirra hafa hinsvegar einnig verið skattlagðir vegna þessara tekna hér heima, og vinna þeir nú að því að fá leið- réttingu á þessari tvísköttun. Nokkrir þeirra járniðnaðar- manna, sem lent hafa í þessu, komu saman til fundar í gær- kvöldi til aið ræða má,'ið og ná samstöðu í baráttunni fyrir Leiðréttingu. KLUKKUM OG RADARTÆKJUM BAR EKKI SAMAN

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.