Tíminn - 22.09.1970, Side 6
18
TÍMINN
KMÐJUDAGUR 22. september 197®.
Höil sumarlamlsins og íbúar hennar.
uppreisnargjarnt og uppá-
sumar-
landsins
Sumir eiga sér sumarhallir
austur við Álftavatn, Þingvalla
vatn eða á öðrum þeim stöð-
um, sem ilmgrös náttúrunnar
blémstra og gott er að hvíla
lúna limi og þreyttan heila,
eftir stritið við að velta sín-
um milljónum og finna þeim
réttan farveg fram hjá stigan-
um sem ýmsum þykir alltof
hár. — Aðrir una sér undir
suðrænum himni á Costa del
Sol og öðlast þar útsýn til
framandi landa. — Einhverjir
eru svo þeir, sem hvorugt
þetta hlutskipti hljóta, eiga
«ér ekkert sumarland annað
en malbiikaða almenningsgötu,
og svitna sumarleyfisdagana
yfir sínum húsgrunni.
Upp með Vatnsveituvegm-
um, ofan við Elliðaárstíflu,
stóð í sumar ofurlítiil gulur
vinnuskúr með grænu þaki og
gluggahlerum.
Þarna, þar sem ys bongar-
innar er fjarlægur ómur og
snertingin við sjoppumenning
una aðeins stopult kvöldgam-
an, hafa níu drengir, sem á
þessu sumri vaxa til hins lög-
helga sjálfræðis, unnið að vega
gerð í níu vikur. — Þessi veg-
ur er tengiliður milli borgar-
innar og „Kardimommubæjar-
ins“ þar sem þeir hestfæru
geyma sína gæðinga. Vonandi
verður hann nú eitthvað betri
umferðar en áður.
Innan fárra ára eru þessir
ungu menn, sem nú eru að
Ijúka sínu vegabétastarfi þetta
sumar, vaxnir að viti og þekk-
ingu og setja sinn svip á lífið
í landinu. — Og ef til vill
vilja þeir nú þegar hafa nokk-
urn rétt til íhlutunar um þá
(heimsmynd, sem innan
skamms verður þeirra.
Ásgeir Tómasson, sonur
hjónanna Tómasar Bjarnason-
ar og Sigríðar Sigfúsdóttur,
yngstur í hópi sex systkina.
Hann er síðhærður án þess að
því hátterni hans fylgi úfinn
lubbabragur.
—• Hverniig ungt fólk iklæð-
ist og hagar hársnyrtingu fer
sjálfsagt eftir smekk hvers og
eins, og giarnan einnig til að
vekja á sér athygli. Mörgum
þeim e'tlri finnst unigt fólk
tektasamt. Eg er sáttur við
mína jafnaldra að flestu leyti
öðru en eiturlyfjaneyzlu, sem
því miður er ekki óþekkt hér.
Ég hef. iokið landsprófi og
er nú innritaður í verzlunar-
skólann. Efcki þó vegna þess
að ég hafi sérstakana áhuga
á störfum á því sviði öðru
fremur. En mér finnst ég
muni ráða við námið og ætti
þá að geta öðlazt þekkingu,
sem gagn er að í framtíðinni
á viðari vettvangi.
Ég er ekkert óánægður með
skólann eins og ég hef kynnzt
honum og geri mér nú orðið
grein fyrir þvf að starf hans
er í mína þágu fyrst og fremst,
og mér ber að haga námi
mínu í samræmi við það. Með
almenna vinou finnst mér
þetta gegna öðru máli, þar lít
ég svo á að vinna mín sé ein-
göngu í þágu þess sem ég vinn
hjá.
Sjálfsagt verður ekki á móti
því mælt, að ýmislegt mætti
betur fara í skipulagi skólanna
og námsefnisvali. Til dæmis
finnst mér að tíðarandinn nú
kalli á meiri uppfræðslu í kyn-
kynferðismálum unglingum
til handa, svo viðhorf þeirra
verði ekki óheilbrigð og valdi
síður árekstrum.
— Jú, fólk á mínum aldri
notar bæði tóbak og áfengi.
sumt í rífcum mæli. í upphafi
er þetta sjálfsagt sprottið af
fikti eða þá að vilja vera eins
og aðrir ef til vill eitthváð
eldri. Múgsefjun er sterkt
vald, efcki sízt á þessu aldurs-
skeiði. — En áhrifavaldurmn
gæti einnig verið úr xöðum
þeirra reglusömu.
Ég álít að ungt fólk á aldr-
inum 16—16 ára, sé naumast
fært um að taka bindandi
ákyarðanir, sem það síðar í líf-
inu yrði að standa við.
— Kirkja og kristindómur.
Kirkjan. Hún verður ekki fyrir
mikilli ásókn af ungu fólki.
Þeir eldri, sem sækja kirkju
eru þar óáreittir. En ég hef
lesið talsvert í biblíunni að
eigin frumkvæði. Annars er
lestur mín helzta tómstunda-
iðja.
Börkur Sigurðsson. er yngst
ur þessara ungu manna, en þó
greinilega leggjalengstur.
Hann hefur ekki ennþá náð
þeim eftirsóknarverða sjálf-
ræðisaldri, sem svo mörgum
er takmark. Hann sleppur líka
við skyldusparnaðinn og lætur
lítið eftir sér hafa. Þó hef ég
komizt að raun um, að honum
er annað hugleiknara en lík-
amlegt erfiði, og einnig það,
að margur mundi hafa verið
fús til að skipta við hann á
eðlisfræðieinbunn að loknu
prófi í vor.
Gunnar Theódór er sonur
Gunnars Theódórssonar hús-
gagnaarkitekts og Jóhönnu
Magnúsdóttur. Hann hefur lok
ið landsprófi og hyggst stunda
nám í menntaskóla og stefna
með því að verkfræði.
— Ég er skáti og hef mik-
inn áhuga á þeim félagsskap,
sem veitir mér aðstöðu til úti-
lífs og margs konar samstarfs
við aðra unglinga. Ég viður-
kenni þó að það eitt að vera
skáti í orði dugar skamrnt til
að halda áhrifagjörnum ungl-
ingum frá óreglu t.d. áfengis
og tóbaksnautn, sem nú er orð
in mjög almenn og fjöldinn
getur stundað átölulaust, ef
ekki kemur til meiri háttar
uppþota. Þá er ekki hægt ann-
að en viðurkenna það að ungl-
ingar á gelgjuskeiði hugsa
fæstir sjálfstætt, og dragast oft !
að þeim sem stofna til múgæs-
inga án þess að gera sér grein
fyrir hvert takmarkið er.
Ég er ekki ánægður með \
þjóðfélagið eins og það er,
sízt skólann. Hann fullnægir
ekki þeim kröfum um náms-
efni og víðsýni í starfsháttum,
sem æskufólk nútímans gerir
Ikröfu til.
SjáLfræði. — Ef til vill gera
unglingar sér betur grein fyr-
ir þeim réttindum, sem það
veitír eftir orðanna hljóðan,
en skyldunum, er því fcunna
að fylgja.
Gylfi Ámason:
— Já, pabbi er sjómaður,
Árni Guðmundsson og er nú
á Brettingi frá Vopnafirði.
Mamma er Sigurrós Ólafsdótt-
ir og mun geta rakið ætt sína
til Eyjólfs Eyjajarls, því móð-
urmóðir mín — amma — er
Ólína Pétursdóttir systir Ingi-
bjargar á Reykjum. En ég get
nú líka eftir bókum rakið æft
mína til Haraldar hárfagra.
Ég hef lokið landsprófi og f
haust liggur leiðin í Hamra-
hlíðarskóla. Þetta geri ég í
því augnamiði að eignast fjár-
muni. Til þess á sú þekking
sem ég öðlast að hjálpa mér.
Ég er tílbúinn að leggja hart
að mér til þess að verða efna-
lega sjálfstæður. Ég veit að
langt nám er engin sérstök
rósabraut, en ég vinn á sumr-
in og foreldrarnir hjálpa mér.
Hvar sem ég vinn, þá vinn ég
fyrir sjálfan mig, því það
kaup, sem mér er greitt er
minn hagnaður og framfærslu-
eyrir.
Eftír því hef ég tekið að
vinna á vegum þess opinbera
er oft lakar af hendi leyst en
hjá einkaaðilum. Mér sýnist
RAFKERTI
GLÓÐAR-
KERTI
OTVARPS-
ÞÉTTAR
ALLSK.
S M Y R I L L
Ármúla 7
Sími 84450.