Tíminn - 13.11.1970, Blaðsíða 9
NjSTUDAGUR 13. nóvember 1970
ÍÞRÓTTIR
TIMINN
FH var betri aðilinn
— en ungu mennirnir, sem Fram leyfði a3 spreyta sig, lofa góðu. — FH sigraði í leiknum í gær-
kvöldi með tveggja marka mun, 21:19.
-
■
Alf-Reykjavík. — FH sigra'ði
Fram í gærkvöldi, 21:19. Enda
þótt aðeins tvö mörk skildu á
milli liðanna, lék enginn vafi á
því, að FH var betra liðið í þess-
ari viðureign. Samt þurfa Fram-
arar ekki að vera mjög óhressir,
því að þeir tefldu ungu mönnun-
wm fram í gærkvöldi og hvíldu
bæði Ingólf og Sigurð Einarsson,
auk þess, sem bæ'ði Sigurbergur
og Arnar vom forfallaðir.
E.t.v. hefði FH unnið stærri
sigur, ef liðið hefði leikið frjáls-
an handknattleik, því að veilurn-
ar í Fram-vörninni voru margar.
En FH-ingar kusu að prufukeyra
leikaðferðir, sem þeir munu að
öllum líkindum nota í vetur, og
var rétt hjá þeim að nota þennan
lei'k t-il þess, alveg eins og það
var rétt hjá Fram að gefa ungu
piltunum tækifæri.
Örn Hallsteinsson átti sérlega
góðan leik í gærkvöldi, en hann
skoraði 6 mörk fyrir FH. Einnig
áttu Kristján Stefánsson og Ólafur
Einarsson ágætan leik, en Geir,
enda þótt góður væri, tók lífinu
heldur með ró.
Hjá Fram vakti Pálmi Pálma-
son mesta athygli, fyrir utan ný-
liðann, Guðjón Marteinsson, vinstri
handar skyttu. Eini „öldungur-
inn“ í liðinu að þessu sinni, Guð-
jón Jónsson, átti aftoragðsleik.
í stuttu máli gekk leikurinn
þannig fyrir sig, að Fram náði
forustu í byrjun, en FH jafnaði
um miðjan hálfleikinn og hafði
eitt mark yfir í hálfleik, 11:10.
Hafði FH forustu allan tímann
í síðari hálfleik, þó að stundum
væri munurinn ekki mikill, t.d.
þegar 3 mínútur voru eftir, en þá
stóðu leikar 19:18 FH í vil.
Lokatölur leiksins urðu 21:19,
eins og fyrr segir, os voru það
sanngjörn úrslit. Áhorfendur voru
um 1100 talsins.
Bþróttafréttamenn
fijótari en dómarar
íþróttafréttamenn fengu meiri
keppni í pokahlaupinu gegn hand
knattleiksdómurum, en þeir höfðu
átt von á. Munaði sáralitlu, að
dómurum tækist að sigra hið vel-
æfða lið íþróttafréttamanna, en
þó fór svo, að fréttamenn báru
sigur úr býtum. Munaði mestu um,
að Ómar Ragnarsson, fyrirliði
þeirra, átti góðan endasprett, svo
og, a'ð sá, sem tók endasprettinn
fyrir dómara, Björn Kristjánsson,
hrasaði, aðeins 2 metrum frá
markinu. Var þá ekki að sökum að
spyrja. Ómar flaug fram úr og
tryggði fséttaipönnum sigurinni Örn Hallsteinsson sýndi góðan leik í gærkvöldi og skoraði 6 mörk fyrir FH
Glímu-
námskeið
Víkverja
Ungmennafélagið Víkverji
gengst fyrir glímunámskeiði fyrir
byrjendur 12 til 20 ára og hefst
það í kvöld, föstudaginn 13. nóv-
ember í íþróttahúsi Jóns Þorsteins
sonar að Lindargötu 7.
Ungmennafélagar utan Reykja-
víkur eru velkomnir á glímuæf-
ingar félagsins. Kennt verður á
mánudögum og föstudögum kl.
19—20. Kennarair verða Kjartan
Bergmann Guðjónsson, Kristján
Andrésson og Ingvi Guðmunds-
son.
Þessi mynd var tekin á æfingu hjá Víkverjum.
9
Fara með
skipi í dag, ef
fiug bregzt
Alf — Reykjavík. — Að öll- \
um líkindum verður úr úrslita-,1
leik bikarkeppninnar í knatt-
spyrnu á morgun. Vestmanna-
eyingar ætla að hafa góðan
vara á og koma til lands me®
. skipi í dag, ef ekki verður
flugveður. ,
Fékk íþróttasíðan þessar upp
lýsingar hjá Jóni Magnússyni,
formanni mótanefndar KSÍ, en
þá höfðu Eyjamenn tilkynnt
honum um þetta. Jón sagði, að
ieikurinn færi fram á Mela-
vellinum á morgun og hæfist;
klukkan 13,30.
Noregur
vann 13 : 11
Noregur og Svíþjóð léku lands-
leik í handknattleik í gærkvöldi.
Lauk honum með sigri Norðmanna
13:11, en í hálfleik var staðan
8:4, Norðmönnum í vU. Leiknum,
sem fram fór í Osló, var sjónvarp
að beint.
Hermann
leikur með
Val á sunnu-
daginn
klp—Reykjavík.
Eins og áður hefur komið fram
í fréttum, töpuðu Akurnesingar
milli 100 og 200 þúsund krónum á
þátttöku sinni í Borgakeppni
Evrópu, og vinna þeir nú að því
að losa sig úr skuldasúpunni
með margskonar leikjum og
skemmtunum.
Ráðgert er, að um næstu helgi
fari fram leikur á milli lA og Vals
á Akranesi, en verið getur að
þeisn leik verði frestað um eina
viku, vegn>a bikarúrslitaleiksins.
Hermann Gunnarsson mun þá að
öllum líkindum leika með Val,
en hann er nú fluttur frá Akur-
eyri og til Reykjavíkur aftur, og
hefur tilkynnt félagaskipti bæði í
handknattleik og knattspyrnu.
Mun hann leika knattspyrnu með
sínum fyrri félögum í Vaf aftur.
Þeir, sem hafa fengiS
heimsenda miða, vinsam-
iegast geri skil sem allra
fyrst til , skrifstofunnar
Hringbraut 30, eSa á af-
greiðslu Tímans, Banka-
stræti 7. — Miðar einnig
seldir á ofangreindum
stöðum.
Verðkr.l00,00 Dregíó 23. Desember 1970
tt ?í^Vív>'<
VlHNWeAR:
1 Húnvagn SPRITE 400 tM.Oflt-.OO
Z. ~ Iré Votodeaa SÍS — 108.0004»
0. SBjÓvteíS YAÍAAHA $1.480 — «4100,00
<- VcíntrtefO 81 íyrír tvo — «008.00
S. Ííúf JOn Slnt»n«en — STOOS.OO
8, KOímíi Uftff Hoslailci S(afns«on — 30.060,00
1. S»t«nev«l 81NGER — 23.000.00
8. BeaclbWtttvtóHSlíRA -- 20 0004»
9. Myittteva — 10.000,00
10-25. rtSiKlutietlVitSN. to.^ðOSvort — g?.S0O,O«
2S-S0. Mytwavétar, kt. 2SOO hvef — 6Í.SOO.OO
Sf-100. JtHaSaktif.kr.iOOOlwer — 100000,00-
* e M-LS kf. 700.0004»
YUpptýt4r«ar é Skrítetolu frantfýkeírtteiatsfete,
Htinebtsut 30. sfctt) 244S3.